Vísir - 09.04.1979, Page 16
VÍSIR
Mánudagur 9. april 1979.
Húnvetningar bregða á leik
„Það er nú búið að halda Húna-
vökur i um 30 ár og allir eru sam-
mála um að halda þeim áfram og
hafa þærsem veglegastar,” sagði
Magnús Ólafsson á Blönduósi i
samtaii við Visi, en um næstu
helgi hefst vaka þeirra Húnvetn-
inga og stendur hún að venju I
vikutlma.
Magnús sagði að stör hópur
hértósbúa kæmi alltaf til að
fylgjast með þvi sem boðið er upp
á. Þó sagði hann að Húnavakan
væri ekki sá viðburður i lifi fólks-
ins sem hún var áður fyrr, enda
værinúmunmeiraum að vera að
öllu jöfnu.
Fjölbreytt dagskrá
Húnavakan hefst laugardaginn
14. april með þvi að opnaðar
verða þrjár sýningar, sem siðan
verða opnar daglega alla vikuna.
Fyrst verður opnuð syning á
batik og fleiri verkum Sigrúnar
Jónsdóttur listakonu. Siöar um
daginn verður opnuð sýning á
olíumálverkum eftir Magnús
Þórarinsson frá Hjaltabakka..
Magnús er Húnvetningur en hefur
lengi starfað við fasteignasölu I
Reykjavik. Hann sýnir meðal
annars myndir sem hann hefur
málaðaf þekktum Húnvetningum
ltfs og liðnum.
Þriðja sýningin er i Heimilis-
iðnaðarsafninu, sem unnið hefur
verið að undanfarin ár. Þar er
meöal annars ein stofa helguð
Halldóru Bjarnadóttur og eru þar
ýmsir munir frá henni.
1 félagsheimilinu verður svo
dagskrá flesta dagana með fjöl-
breyttu efni, enda sagði Magnús
að reynt væri að byggja hana
þannig upp að allir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi og jafnframt
fengið sæmilega mynd af þvl sem
væri að gerast innan héraðsins.
Leikrit og leikþættir
Tvö leikrit verða sýnd á Húna-
vökunni: Hart i bak eftir Jökul
Jakobsson, sem Leikklúbbur
Skagastrandar hefur sýnt að und-
anförnu, og Ég vil fá minn mann,I
uppsetningu Leikfélags Blöndu-
óss.
Þá mun karlakórinn
Vökumenn standa fyrir söng-
skemmtun fyrsta kvöld Húnavök-
unnar. Kórinn er nú 20 ára og
hafa kórfélagar nú tekið upp þá
nýbreytni að fá konur i lið með
sér. Hluti efnisskrár þeirra verð-
ur þvf sunginn af blönduðum kór.
A sumardaginn fyrsta veröur
barnaskemmtun, sem börnin I
Barnaskólanum hafa sjálf undir-
búið. Þau verða með heimagerða
leikþætti, sýna leikfimi og syngja,
svo nokkuð sé nefnt.
Fyrir börn og húsbænd-
ur,
Siðasta dag vökunnar verður
svo barnaskemmtun, þar sem
Ómar Ragnarsson verður meðal
skemmtikrafta. Þar verða einnig
i mmiB am wm mmm. ' g
! «
1ER v V
Plíili 1
Batikmyndir Sigrúnar Jónsdóttur veröa til sýnis á Húnavökunni, en listsýningar eru nýmæli á dagskrá
vökunnar.
Einföld ákvörðun
Gullfatlegar og gagnlegar lopa- og ullarvörur, s.s. teppi, værðarvoðir,
peysur, húfur, vettlingar, sokkar, treflar, breeze-fatnaður o.m.fl.
VESTURGÖTU 2 - SÍMI 13404
Gjafavörur og skrautmunir úr kopar, keramik, kristal hornum o.fl. Sann-
köliuð meistaraverk og augnayndi. Fjölbreytt úrval - allir finna eitthvað
við sitt hæfi.
Heimsókn í Álafossbúðina er
einföld ákvörðun og örugg
lausn vanti þig þjóðlegar
eða fallegar gjafavörur.
Atriöi úr leikritinu Ég vil fá minn mann
veitt verðlaun I skólakeppni Ung-
mennasambandsins.
Um kvöldið verður Húsbænda-
vaka, en hún hefur verið fastur
liður á flestum Húnavökum.
Ómar skemmtir einnig þar og
Ólafur Sverrisson kaupféiags-
stjóri í Borgamesi flytur erindi.
Meðal annarra dagskráratriöa
má nefna kveðskap og grinþætti,
þar sem sýnt verður i skoplegu
ljósi það sem hæst hefur borið i
umræðu manna á milli að undan-
förnu.
Auk þess verða sýndar fjórar
kvikmyndir á Húnavökunni og
dansað verður af kappi fjögur
kvöld þessarar viku.
—SJ
Tónar páskanna
Kór og hijómsveit Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar
halda tónleika i kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigsveg i
kvöld, 9. april, kl. 20.30.
Aðalverkefni á efnisskránni að
þessu sinni er páskakantatan „1
dauðans böndum Drottinn lá” eft-
ir J.S. Bach. Meðal annarra
verka er Andante fyrir flautu og
hljómsveit eftir Mozart, litil svita
fyrir strengjasveit eftir Gibbs og
þrjú Mariuvers fyrir blandaðan
kór án undirleiks.
HARALD
HLAUT
STYRK
Harald G. Haraldsson leikari
hefur hlotið hálfrar miljón króna
styrk úr sjóði sem Brynjólfur
Jóhannesson stofnaði til að
styrkja unga leikara til fram-
haldsnáms erlendis.
Þetta er i sjötta skipti sem
styrkur er veittur úr sjóðnum
sem er i vörslu Félags íslenskra
leikara.
—SG