Vísir - 03.04.1979, Side 1
Fyrrverandl starfsmaður Raunvísindastofnunar háskólans:
FEKK 15 MANABA LAIIN
EFTIR AB HANN HÆTTII
tók samtais vlð um 3ja mllljóna króna launagreiðslum sem hann átll ekkl að lá
Fyrrverandi starfsmaður hjá Raunvísindastofnun
Háskólans hefur fengið greidd full laun í eitt ár og
þrjá mánuði frá ríkinu eftir að hann var hættur störf-
um og átti að fara út af launaskrá. Mun maðurinn
hafa fengiðgreiddar um 3 milljónir króna í laun þenn-
an tíma.
„Það barst engin tilkynning i
launadeildina um að maðurinn
væri hættur störfum. Við send-
um út launalista mánaðarlega
til allra stofnana þar sem fram
kemur hverjir þiggja laun og
hve mikil.
Forstöðumenn hverrar
stofnunar eða deildarstjörar
eiga síöan að bera þennan
launalista saman við starfs-
mannalistann en i þessu tilviki
virðist hafa orðið misbrestur á
þvi,” sagði Guðmundur Karl
Jónsson deildarstjóri i launa-
deild fjármálaráðuneytisins i
samtali við Visi.
Guömundur sagði að þess
væru örfá dæmi að menn fengju
laun greidd 1 til 2 mánuðum
lengur en þeim bæri en ekkert
hefði komið upp þessu likt sem
hann kannaðist við.
Guðmundur Karl sagði að við-
komandi starfsmaður væri hér
að taka á móti fé sem hann ætti
ekkert i og væri það saknæmt
athæfi.
Hins vegar væri verið að
kanna það hvort ætti að krefia
starfsmanninn endurgreiðslu
beint eða fara með málið i sak-
sóknara. Guðmundur sagði aö
þetta heföi ekki komist upp fyrr
en fyrir um hálfum mánuði.
Rektorskjör hófst í Háskóla islands I morgun kl. 9 og var þá þessi mynd tekin. Allir stúdentar, kennarar og þeir starfsmenn við Háskólann,
sem hafa háskólapróf eiga atkvæðisrétt, en greidd atkvæði stúdenta vega 1/3 af atkvæðum annarra. A bls. 11 eru viðtöl við þá tvo menn, sem
I reynd er kosið á ntilli. VIsismynd:GVA
Akranes:
Kennarar
ieggja
niður
kennslu
Kennarar við
Fjölbrautaskólann á
Akranesi stunduðu ekki
kennslu i morgun heldur
þinguðu um launamál
sin.
Ástæðan er sú að beir telia að
launadeild fjármálaráðuneytisins
hafi brotið á þeim aðalkjara-
samninga með þvi aö hunsa að
afgreiða launagreiðslu og önnur
launamál.Kennararnir vilja mót-
mæla afgreiðslu ráðuneytisins á
samþykktum reikningum, sem
hafaboristfráskólanum, með þvi
að leggja niður kennslu.
„EG fann snigilinn
SKRAFA A MÉR LEGGINN”
- seglr Elnar Hannesson, sem slapp ðbrotlnn úr slorpró Fiskimjölsverksmlðjunnar I Eyjum
„Viö misstum einu sinni bretti ofan í snigilinn og það
var bara spýtnarusl á eftir. Ég var einmitt að hugsa
þetta, þar sem ég flaut á bakinu i slorþrónni með fót-
inn fastan i sniglinum og fann hvernig hann skrapaði
á mér legginn," ságði Einar Hannesson,66 ára starfs-
maður i Fiskimölsverksmiðjunni í Vestmannaeyjum í
spjalli við Vísi i morgun.
,,Við vorum að brasa við að ná
slorinu úr þrónni, en það vildi
ekki úr þrónni, svo við höfðum
ýmsar kúnstir við þetta. Til þess
að komast að sniglinum þurft-
um við að leggja planka yfir
þróna, sem er um fjórir metrar i
þvermál. Þetta var sex tomma
planki og ég fór út á hann til að
reyna að koma þessu i lag.
Þegar ég er kominn út á plank-
ann, þá slettist úr þrónni á
plankann og ég rann og féll i
þróna. Vinstri fóturinn á mér
fór 1 snigilinn og ég hugsaði ekki
um annað en að ná honum úr og
einhvern veginn tókst það. En í
þann mund sem fóturinn losnaði
þá fór ég á bólakaf i slorið. Mér
fannst ég aldrei ætla að komast
upp úr þessu, þvi þetta er svo
þykkt. En einhvern veginn tókst
mér að krafla mig upp og að
þróarbarminum og vega mig
upp úr”.
Einar Hannesson liggur nú á
sjúkrahúsinu i Eyjum mikið
marinn á vinstri fæti, en ekki
brotinn.
,,Það er eitthvert lán sem
hvilir yfir mér, ég á mér ein-
hvern fylgdarmann. Þetta er i
annað sinn sem ég lendi i slysi. 1
hitteðfyrra féll á mig tveggja
tonna bretti og það var i byrjun
aprilÉg slasaðist mikið, svo nú
held ég að ég komi ekki nálægt
húsunum hérna á þessum
tima,” sagði Einar.
— KP.