Vísir - 03.04.1979, Blaðsíða 6
Umsjón:
Gu&mundur
Pétursson
VÍSIR
Þriöjudagur 3. april 1979.
Margaret Trudeau meö syni sinum, Justin.
Heimsókn Beglns
í Egypialandi
lýkurí dao
Menachem Begin, forsætisráö-
herra Israels, lýkur i dag sögu-
legri heimsókn sinni til Egypta-
lands með viðræðum við gest-
gjafa sinn, Anwar Sadat forseta,
um Palestinuvandamálið.
Hann mun Ijúka heimsókn sinni
á þvi að skoða fjársjóði frá timum
faróanna og á fundi með blaða-
mönnum, áður en hann snýr heim
til Israels.
1 kvöldverðarboði i gær, sem
Sadat forseti hélt Begin til heið-
urs, skoraði Begin á önnur araba-
riki að taka þátt i friöunarumleit-
unum Egypta. — ,,Viö vonumst til
þess, að friöarsamningur okkar
verði fyrsta skrefið til viðtækari
lausnar á öllum ágreiningi okkar
heimshluta, þar sem við hljótum
öll að verða að búa saman, sagði
Begin.
Heimsókn hans er til endur-
gjalds á heimsókn Sadats forseta
til Jerúsalem 1977, sem varð upp-
haf þeirra friðarumleitana, er
loks leiddu til undirritunar
samninga á dögunum.
Mörg arabariki eru enn fjand-
samleg samningnum og hafa lýst
Sadat algjöran svikara við mál-
stað araba.
Sadat svaraði borðræðu Begins
á þann veg, að enn væru mikil á-
tök framundan, en það væru átök
fyrir skilningi og væntumþykju i
staö haturs.
Stjórnmálagagnið Al-Ahram
sagði i morgun, að viðræður leið-
toganna i dag lytu að samkomu-
lagi um sjálfstjórn til handa
Palestiunuaröbum á vesturbakka
Jórdan og á Gazasvæðinu. Sagði
blaðið, að samningaviðræður um
þann þátt mundu svo hefjast eftir
fimm vikur i bænum El-Arish i
Sinai.
Margaret Trudeau reyndi að
stinga sig með eldhúshnifi, þegar
eiginmaður hennar, Pierre
Trudeau, forsætisráöherra komst
á snoöir um, að hún væri oröin
ástfangin af valdamiklum
Bandarikjamanni fyrir fimm ár-
um, eftir þvi sem kanadiska blað-
ið „Toronto Star” hélt fram i gær.
Blaðið birti glefsur úr sjálfs-
ævisögu Margaretar sem ber
titilinn „Beyond Reason”, en
blöö viða um heim eru byrjuö aö
birta ágrip hennar þessa siðustu
viku, áöur en bókin kemur sjálf
út.
Margaret, sem nú er þritug
orðin, kynntist Bandarikjamann-
inum, sem ekki er nafngreindur
en lýst sem „aðlaðandi Suður-
rikjamanni”, við tenniskeppni i
New York 1974, þegar hjónaband
þeirra Pierre átti aö heita enn
hamingjusamt, eftir þvi sem
Toronto Star segir.
„Þegar hún kom heim til
Ottawa, gekk Pierre á hana: Ég
veit, að þú hefur veriö mér ótrú.
Ég veit það!” segir i forsiöufrétt
blaðsins.
„örvita af sektarkennd greip
Margaret eldhúshnif og hljóp út I
snjóinn. Svipti hún sig klæðum
yfir brjóstin og lagði hnifnum
þar,” heldur frásögnin áfram.
„Hún æpti að Pierre: „Ókei!
Ég er oröin ástfangin.”
„Þú ert sjúk,” svaraði hann,
eftir þvi sem blaðið segir.
Blaðið segir, að það hafi veriö
að ráði sálfræðings, sem Pierre
Trudeau sendi konu sina til
Bandarikjanna á fund vina henn-
ar til hvildar.
Gripið er siðan niður i ævisög-
una, þar sem Margaret segir frá
heimsókn smni til Marokko á
hippadögum sinum, þar sem hún
neytti ýmiskonar fikniefna. Þaö
var i Marokko, sem.... „ég loks
læröi að umgangast karlmenn
sem bræður mina og að njóta
ásta með þeim á þann veg, sem
strangkristið uppeldi mitt haföi
áður meinað mér.”
Pierre Trudeau er nú I miöri
kosningabaráttu, þar sem hann
keppir að endurkjöri. Hann hefur
borið á móti fréttum, sem haföar
eru eftir eiginkonu hans um, að
hún hafi reykt marijúana i for-
sætisráðherrabústaðnum I
Ottawa.
Margaret og Pierre, þegar allt lék i lyndi.
Hættan llðin hjá
Mikið og kostnaðarsamt tjón
hefur orðið i kjarnorkuverinu viö
Harrisburg, og er ekki vitað,
hvort svara muni kostnaði að
ráðast i viðgerðir á þvi.
Mesta hættan er nú liðin hjá,
eftir þvi sem sér fræðingar
segja, og gætti i gær miklu minni
geislunar frá verinu en fyrri
Bilun kom upp i' kælikerfi orku-
versins á miövikudag og leiddi tii
þess aö eldsneytisstengur hitnuöu
og kjarnaofninn. Geislunin leiddi
af þvi, en aöalhættan lá i þvi að
eldsneytisstengurnar bráðnuðu I
hitanum. Hefði þá Utgeislunin
orðið óskapleg.
Kjarnorkuveriö kostaöi á
sinum tima 780 milljónir doDara.
Þaö er tryggt fyrir tjóni upp að
300 milljónum doUara, en hvort
heildartjóniö að þessu sinni fer
upp fyrir þaö liggur ekki ljóst
fýrir ennþá.
daga. Hitinn hefur
kjarnaofninum.
minnkað i
Amin býr slg unflir
úrslltaorrustuna
Idi Amin, forseti Uganda, hefur
búið um sig i bænum Jinja i
austurhluta landsins, þar sem
hann hyggst heyja úrslitaorrust-
una viö innrásarliðið frá
Tansaniu.
Ugandaútvarpiö hafði eftir
Amin, að hann hefði verið i Jin ja,
þegar herþotur frá Tansaniu
gerðu loftárás á þennan iðnaöar-
bæ. Var haft eftir Amin, að ein
flugvélin hefði veriö skotin niður
og „að fiugmaöurinn sé lDdega i
góðum félagsskað meö krókódil-
unum núna”.
Tiðindamenn Reuters fréttu hjá
ibúum Jinja, að Ainin forseti
hefði birst á aðaltorgi bæjarins,
umkringdur Libýuhermönnum og
skæruliðum Palestinuaraba, sem
eru meginuppistaðan i leifum
hers hans. Sagði hann bæjarbú-
um, að þarna mundi hann nema
staðar á undanhaldinu og berjast
til siðasta manns.
1 morgun var allt hljótt og með
kyrrum kjörum i' höfuðborginni
Kampala. en I nótt dundi þar
sprengjuhriðin og byssusmellir.
vopnahléð vlrt
að vettugi
Ákafir götubardagar hafa aftur
brotist út i bænum Gonbad Kavus
við landamæri Sovétrikjanna,
eftir að Iransstjórn lýsti yfir
vopnahléi i átökunum við
Turkomana.
En naumast hafði vopnahléinu
fýrr verið lýst yfir á vikulöngum
bardögum en vélbyssurnar
byrjuöu aftur að gelta og
sprengjuvörpurnar drundu.
Hermenn stjórnarinnar hafa
umkringt bæinn, og eru sagöir
reiðubúnir til áhlaups, tD þess að
skilja í sundur hinar striöandi
fylkingar. Hafa þeir dregið aö
nokkra skriðdreka og marga
bry nvagna.
Styrrinn hefur staðið milli
manna af ættflokki Turkomana
og herskárra Persa, stuðnings-
manna Khomeinis. Hinir siðar-
nefndu gengu um götur i gær
fylktu liði og kröfðust vopna en
höfnuðu vopnahléi.
Persar segjast hafa misst
fimmtiu menn faDna i átökunum
siðustu daga, og ætla að þeir hafi
fellt hundraðog fimmtfu menn af
Turkomönum.
Ætlaðl Margaret
að fyrlrfara sér?
Dotmsrsae