Vísir - 03.04.1979, Page 13

Vísir - 03.04.1979, Page 13
13 VÍSIR Þriöjudagur 3. april 1979. einn af framkvæmdastjórunum hjá einhverjum stærstu bifreiöaverk- smiöjum i Vestur-Þýskalandi. Nemandinn hafði lært ensku á sinum skólaárum en ekki notað hana siðan að heitið gæti. Nú er hann hinsvegar kominn þaö hátt upp i fyrirtækinu að enska er hon- um nauðsynleg. Þessi kennslustund var ákaflega frjálsleg, fór mest i það að við þrir röbbuðum saman um heima og geima. Það var ekki fyrr en á eftir að ég gerði mér grein fyrir aö Stephen Key, kennarinn, gerði það af ásettu ráði að leiða umræðurnar aö hinum og þessum atriðum sem gáfu honum ástæðu til að spretta úr sæti sinu og skrifa eitthvað sem við höföum sagtá töfluna til að útskýra frekar. Hann gleymdi þvi aldrei kennarahlutverkinu, þótt viö virt- umst bara vera að skiptast á skoðunum um mál eins og kven- réttindi og þar frameftir götunum. ,/Open the window". Ég komst raunar að þvi eftir þvi sem á kynnisför mina leiö að kennararnir hætta aldrei aö kenna, hvort sem þeir eru i skólastofunni eða ekki. Hvert einasta tilefni sem gafst var notað til aö leggja áherslu á eitthvað tilheyrandi náminu. Viðbótartækifærin voru lika gripin I skólastofunni. t einum tim- anum sem ég sat var ung og falleg stúlka, Virginia að nafni,að kenna algerum byrjendum: ,,My name is Virginia, your name is...” Þaö var heitt i skólastofumii og einhver benti á gluggann og bablaði eitthvað á arabísku eða ööru torkennilegu máli. Virginia hætti samstundis að kenna upp úr bókinni og notaði þetta tækifæri. „Window”, hrópaðihún. „This is a window”.„It is hot"(hér notaði hún skólabókina eins og blævæng og lét eins og hún væri að kafna úr hita „Hot, it is hot”.) Og nemendurnir voru látnir endurtaka þetta. Svo stökk hún út I glugga , opnaði hann og hrópaði: „OPEN the window”. Þannig gekk þetta til þangað til nemendurnir gátu (með mismunandi góðum framburði) sagt á ensku aö þegar væri heitt ætti að oþna gluggann. Æpa á nemendur Kennslan i Anglo-Continental er frjálslegri og skemmtilegri en i öðrum skólum sem ég hef heimsótt. Kennararnir sitja ekki við borð, heldur ganga um gólf meðal nem- endanna. Þetta á einkum við þegar þeir eru með byrjendur. Þeir nota látbragð til að leggja áherslu á það sem þeir eru að segja og til að út- skýra það betur. Þeir hrópa orð sem þeir vilja leggja áherslu á, stundum heilar setningar og þeir láta nemendurna hrópa þau lika. Enginn fær að muldra i barminn. Oft og tiðum eru nemendur látnir spyrja hver annan spurninga og þá er það gjarnan nemandinn á fyrsta borði sem á að spyrja þann á aft- asta. Hann veröur þvi að hrópa svo að til hans heyrist. Feimnin fer af- skaplega fljótt af fólki við svona meðferð og það segir óhikað það sem það kann. Fullkomnustu hjálpartæki eru notuð við kennsluna, t.d. innanhússsjónvarp. Fullkomin hjálpargögn í einni kennslustundinni sem ég sat voru fimm bankamenn frá Noregi að læra ensku þá sem bankamenn þurfa helst að nota. Fyrir þá hafði verið útbúiö sér- stakt verkefni. Þ^ð var búiö til fyrirtæki (á pappirnum auðvitað) og nemendurnir voru látnir taka aö sér hlutverk hinna ýmsu stjórn- enda, starfsmanna og bankastjóra sem þeir þurftu að hafa samband við. Þeir þurftu svo að reka sin viðskipti á ensku og David Griffiths, kennarinn, vakti yfir öllu og kom með leiðréttingar og aðstoð eftir þvi sem þurfti. Ekki ósvipuð aðferð var notuð við að kenna verslunarensku. Þar var raunar skrifað leikrit og nem- endurnir (frá Argentinu, Þýska- landi og ttaliu) voru látnir leika hlutverkin. Þótt meginhluti kennslunnar fari fram i skólastofunum eru til ýmis- konar hjálpargögn. Anglo- Continental notar yfirleitt öll full- komnustu og bestu hjálpargögn sem vöf er á, svosem video-sjón- varp, segulbönd og fleira. Búið á einkaheimilum t Bournemouth er 8 milna iöng sandströnd fyrir sóldýrkendur. En menn læra af lifinu ekki siður en bókum, og Anglo-Continental leggur mikla áherslu á að nem- endurnir tali ensku daglega. Með það fyrir augum eru samlandar helst ekki hafðir i sömu bekkjum og það er lögð áhersla á að þeir tali ensku þegar þeir hittast. Þá er og ekki siður mikilvægt að nemendurnir dvelja á einkaheimil- um þann tima sem þeir stunda nám við skólann. Það eru geröar ákaf- lega strangar kröfur til þessara einkaheimila. Fulltrúi frá Anglo- Continental fer og kynnir sér ná- kvæmlega aðstæður þeirra fjöl- skyldna sem vilja taka að sér nem- endur og þau eru heimsótt reglu- lega til að tryggja að allt sé i lagi. 1 sérhæfðri kennslu eru stundum settir á svið hálfgeröir leikþættir og nemendur taka t.d. að sér hlutverk stjórnenda fyrirtækja, eða banka- stjóra. Heimsókn (enskuskóla Anglo- Continental í London og Bournemouth Nemendur eru af ýmsu þjóðerni. Hér er einn islenskur (tv.), Sigurður Hreiðar, blaðamaður og kennari. Nemendur eru á ýmsum aldri og fristundaáhugamálin misjöfn. 1 spjaldskrá AC er aö finna upp- lýsingar um allar fjölskyldurnar, hverskonar nemendur þær geta tekiö.karlkyns, kvenkyns, aldur og þar frameftir götunum. Greiöslan fyrir þessa gistingu og máltiðirnar er innifalin i skólagjaldinu, þannig aö það verða aldrei vandræðaleg augnablik vegna fjármálahliðar- innar. Og það er best aö sleppa ekki al- veg f jármálahliðinni. Anglo- Continental eru liklega dýrari en margir aðrir málaskólar og það er ekki dregin dul á þaö. En kostnaðurinn er svo mikill vegna þess að þarna er aðeins það besta sem völ er á, og þá er sama hvort tekur til kennara, kennslu- tækja eða húsakynna. Þaö er lika fjarri þvi að menn þurfi að vera milljónerar til að stunda þarna nám. Námskeiöin eru mismunandi löng og þvi auðvitað mismunandi dýr og svo er hægt að komast þangað niður eftir meö góöum kjörum. Það er Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar sem hefur umboö fyrir Anglo-Continenta) hér á landi og hún tekur að sér að útbúa „pakka” fyrir þá sem héðan vilja fara,til aö þeir sleppi sem ódýrast. Þó nokkrir Islendingar hafa lært ensku við Anglo-Continental. I fyrstu voru þeir aö tinast niðureftir einn og einn en siðan Feröaskrif- stofa Kjartans Helgasonar tók við umboðinu hefur þeim fjölgað tölu- vert og voru til dæmis um tuttugu i fyrra. Sumarnámskeiðin eru ekki sist vinsæl hjá Islendingunum. Dramatískt kvöld Sambandið milli kennara og nemenda er sérstaklega skemmti- legt hjá Anglo-Continental. Kennararnir eru margir ungir og þeir sem eru komnir á eða yfir miðjan aldur eru ungir i anda. Auk þess að kenna nemendunum og fara meö þeim i kynnisferðir, bregða þeir oft á leik. Eitt kvöldiö sem ég var þarna héldu kennarar það sem þeir kalla „Drama Evening”. Það er eins og hálfs tima pró- gram af stuttum leikþáttum sem kennararnir hafa samiö og leika i sjálfir. Ekki voru tilburðirnir bein- linis hádramatiskir, heldur veltust áhorfendur um af hlátri. Þarna var óspart gert grin að ýmsum sérkennum nemenda af mismunandi þjóðerni og ekki varð annað séð en allir kynnu að taka gamninu. Kennararnir og raunar skóla- stjórnin i heild, láta sér ákaflega annt um velferð nemendanna. Kennararnir hjálpa oft til við að leysa ýmis vandamál en svo er lika sérstök „velferðarskrifstofa” sem hægt er að leita til ef eitthvað bját- ar á. Innifalið i skólagjaldinu er einnig að nemendur eru sóttir út á flugvöll og þeim skilað þangað að nám- skeiði loknu þannig að segja má að þeir séu undir verndarvæng Anglo- Continental frá þvi þeir stiga á breska grund og þar til þeir létta aftur af henni fæti. Shakespeare eða Redford Hvað umhverfið snertir þarf auðvitað ekki aö hafa mörg orð um London. Hinsvegar væri hægt að hafa mörg orð um Bournemouth og sveitirnar þar i kring, þótt þeim verði haldið i lágmarki aö þessu sinni. Bournemouth er ákaflega hlýlegur og hreinlegur bær og sveitirnar i kring eru bæöi fagrar og merkilegar. Þarna ættu allir að geta fundið eitthvaö við sitt hæfi i tómstundum. Hvort sem þeir vilja hlýöa á Sinfóniuhljómsveit borgar- innar eöa geggjaða Travolta- músik. Hvort sem þeir vilja sjá Shakespeare-leikrit undir berum himni úti á litilli eyju eða nýjustu kvikmyndina með Robert Redford. Hvort sem þeir vilja borða ham- borgara á nýtisku grillsjoppu, eða fasana i þrjúhundruð ára gömlum enskum pöbb. Og ef verið er þarna aö sumarlagi er mjög auðvelt að ná i sólbrúnku sem hver spánarfari gæti verið stoltur af. I stuttu máli má kannske segja aö Bornemouth sé lærdómsrik Paradis.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.