Vísir - 03.04.1979, Blaðsíða 15
15
VISIR Þriðjudagur 3. apríl 1979.
Skiðaiþróttinni hefur vaxið fiskur um hrygg en bréfritara finnst heldur djarflega farið með ungabörn
Hæthilegt athætl I Blállöllum:
MÆÐUR Á SKÍDUM MED
DðRN í DURDARPOKUM
JH hringdi:
„Skiðaiþróttinni hefur vaxið
fiskur um hrygg hér i Reykjavik
á undanförnum árum og fjöldi
manns á skiðum um hverja
helgi.
Það er ekki lengur einn og
einn áhugamaður sem iðkar
þetta heldur er þetta orðiö fjöl-
skylduiþrótt.
Þessu ber að fagna. Hins veg-
ar sá ég i Bláf jöllunum um dag-
inn nokkuð sem hneykslaði mig
mikið.
Ég sá að nokkrar mæður voru
með ungabörn i burðarpokum á
bakinu á fljúgandi fart niður
brekkurnar.
Þetta finnst mér vera hættu-
legur leikur. Aumingja börnin
voru alveg ringluð og hausinn á
þeim dinglaði eins og dúskur á
skfðahúfu.
Enginn stuðningur var við
höfuðið á börnunum og sjá allir
hvað þaðer hættulegt. Og hvaða
vörn hafa þau ef móðirin dettur
á skiðunum?
Mér finnst full þörf á að vekja
athygli á þessu til þess að fólk
geti varast þetta.
Ef til vill væri þörf á þvi að
koma upp gæslu á krökkum i
skiðalandinu á meðan for-
eldrarnir geta áhyggjulaust
notið þessarar hollu útiveru”.
TAKA VERBIIR HART
A EITURLYFJASÖLU
Nokkrir vinnufélagar
skrifa:
„Við höfum fylgst með skrif-
um um þessi fikniefnamál Is-
lendinga erlendis og erum sam-
mála um að þarna sé stórmál á
ferðinni sem verður að taka
hart á.
Einn af okkur las frásögn
danskrar konu sem hafði þekkt
tvo unga menn er lent höfðu á
kafi i eiturlyfjum. Hún lýsti þvi
átakanlega hvernig þeir voru
haldnir um tvitugsaldur vegna
neyslu þessara efna.
Þessi kona sagðist leggja til
að þeir sem seldu þessi efni
fengju hörðustu dóma sem um
gæti i hverju réttarfarsriki. Hún
vildi einnig að á Kastrupflug-
velli yrði settupp sérstakt skilti
þar sem lýst væri hve Danir
hefðu góð lög til verndar mann-
réttindum, en þar yrði einnig
tekið fram, að eiturlyfja-
smyglurum yrði engin miskunn
synd. Menn myndu þá ef til vill
hugsa sig um tvisvar áður en
þeir reyndu smygl á eiturlyfj-
um.
Við vinnufélagarnir erum
sammála um, að þótt aðstand-
endur þeirra sem uppvisir
verða að svona smygli og sölu
þurfi að liða nokkuð þá sé það
litið miðað við þá sem verða
eiturlyfjum að bráð og aðstand-
endur þeirra. Eiturlyfjasölum á
ekki að sýna neina miskunn”.
FYRIR FIRMIN6UNA
Snittur og brauðtertur
Pantanir i sinaa 16740
Brsuðbankinn
Laufásvegur 12, simi 16740.
L- - -—------------------ J
Húsbyggjendur
ylurinn er
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavikursvæðið frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað,
viðskiptamönnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarpiast
Borgarnetil 5imi93 7370
kuoki 09 helgammi 93 7355
ÞURRKAÐIR ÁVEXTIR
Þurrkaöir ávextir frá CASTUS
eru í hæsta gæðaflokki.
Biðjið um CASTUS rúsínur, döðlur,
sveskjur, gráfíkjur og apríkósur.
Góð feeilsa ep úæfa feveps iwarercs