Morgunblaðið - 25.03.2001, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 25. MARS BLAÐE
Barna- og unglingageðlæknir/sérfræðingur
Starf sérfæðings (100%) á barna- og unglinga-
geðdeild er laust til umsóknar. Sérfæðingar BUGL
starfa við göngudeild, 3 innlagnardeildir, samráðs-
þjónustu við aðrar deildir og stofnanir, kennslu
og ráðgjöf. Einnig sinnir sérfræðingurinn gæslu-
vöktum. Verksvið nánar ákveðið í samráði við
yfirlækni.
Umsóknum ásamt upplýsingum um náms- og
starfsferil skal skila í tvíriti til Ólafs Ó. Guðmunds-
sonar yfirlæknis, sem veitir nánari upplýsingar
í síma 560 2500, netfang olafurog@landspitali.is.
Ráðning frá 1. júní 2001.
Deildarlæknar
Sjö stöður deildarlækna við handlækningadeildir
eru lausar til umsóknar. Ein staðan er laus frá og
með 1. apríl 2001 en hinar sex frá og með 1. júlí
2001. Um er að ræða 12 og 24 mánaða stöður.
24 mánaða stöðurnar fela í sér 6 mánuði á
almennri skurðdeild, 6 mánuði á svæfinga- og
gjörgæsludeild og 12 mánuði á sérdeild (hjarta-
og lungnaskurðdeild, æðaskurðdeild, þvagfæra-
skurðdeild, barnaskurðdeild, lýtalækningadeild,
bæklunarskurðdeild, heila- og taugaskurðdeild).
Umsóknum ásamt CV skal skilað til Gunnhildar
Jóhannsdóttur, skrifstofu prófessors/sviðsstjóra
skurðlækningasviðs, Landspítala Hringbraut, fyrir
9. apríl 2001.
Upplýsingar veita Páll Helgi Möller, yfirlæknir,
netfang pallm@landspitali.is, og Sigurður
Blöndal, skurðlæknir, netfang
sblondal@landspitali.is, í síma 560 1000.
Hjúkrunarfræðingar - næturvaktir
Hjúkrunarfræðingar óskast frá 1. maí n.k. á
næturvaktir á Landakoti. Um er að ræða skipu-
lagningu hjúkrunar og vaktstjórn á 2-3 deildum.
Ýmsir vaktamöguleikar á fjölbreyttum öldrunar-
lækningadeildum. Laun í samræmi við umfang
og ábyrgð starfs.
Upplýsingar veita Lúðvík H. Gröndal deildarstjóri
í síma 525 1932, netfang ludvikg@landspitali.is
og Ingibjörg Hjaltadóttir sviðsstjóri í síma 525
1888, netfang ingihj@landspitali.is
Hjúkrunarfræðingar
óskast sem fyrst á öldrunarsvið Landakoti.
Stöðurnar fela í sér klíníska vinnu á deild ásamt
sérverkefnum s.s. umsjón með fræðslu, þróun
hjúkrunarmeðferðar eða þátttöku í rannsóknar-
verkefnum. Einnig eru lausar stöður hjúkrunar-
fræðinga sem eingöngu tengjast klíník. Ýmsir
vaktamöguleikar á fjölbreyttum öldrunarlækninga-
deildum. Starfshlutfall og vinnutími samkomulag.
Laun í samræmi við umfang verkefna eða
ábyrgðar starfs.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Hjaltadóttir sviðsstjóri
í síma 525 1888, netfang ingihj@landspitali.is
Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
óskast til sumarafleysinga og til langframa á
nokkrar skurðlækningadeildir. Góð aðlögun í boði
og möguleiki á tvískiptum vöktum. Leitað er að
áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum
sem eru tilbúnir til að taka þátt í þeim breytingum
sem nú eiga sér stað og eru framundan á skurð-
lækningasviði LSH.
Upplýsingar veitir Elsa B. Friðfinnsdóttir
sviðsstjóri í síma 525 1305/864 4541, netfang
elsafri@landspitali.is
Hjúkrunarfræðingur - næturvaktir
Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir á geð-
deild Kleppi. Um er að ræða mjög fjölþætta og
áhugaverða hjúkrun. Hver vakt er 10,5 klst. og
starfshlutfall eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur Guðný Anna Arnþórsdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 560 2600,
netfang gudnya@landspitali.is
Hjúkrunarfræðingar
óskast á sjúkrahótel Rauða krossins í 40% starf
(vaktavinna).
Upplýsingar veitir Bergdís Kristjánsdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 562 3330,
netfang sjukrahotel@redcross.is
Sjúkraliðar
óskast á deild B-4 Fossvogi, sem er bráðadeild
fyrir aldraða og býður upp á fjölbreytilegan
starfsvettvang. Verið er að þróa verkefnastjóra-
stöður fyrir sjúkraliða á öldrunarsviði og er
möguleiki á slíku verkefni fyrir reynda sjúkraliða.
Starfshlutfall og vinnutími samkomulag.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Hjaltadóttir sviðsstjóri
í síma 525 1888, netfang ingihj@landspitali.is
Hjúkrunarritari
óskast sem fyrst á almenna skurðlækningadeild
B-6 Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa góða
tölvukunnáttu og vera lipur í samskiptum.
Starfshlutfall 100%.
Upplýsingar veitir Anna Ingigerður Arnarsdóttir
starfandi deildarstjóri í síma 525 1058, netfang
annaia@landspitali.is
Símavörður
óskast sem fyrst til starfa við skiptiborð
Landspítala Hringbraut. Um er að ræða almenna
símavörslu. Tölvuþekking æskileg. Vinnutími er
frá kl. 08.00–16.00 virka daga. Starfshlutfall
100%.
Upplýsingar veitir Sólveig Smith forstöðumaður
í síma 560 2220, netfang solsmith@landspitali.is
Umsóknarfrestur ofangreindra starfa er
til 9. apríl n.k.
Tollstjórinn
í Reykjavík
Tollstjórinn í Reykjavík annast alla tollafgreiðslu í stjórnsýsluumdæmi
Reykjavíkur auk innheimtu opinberra gjalda. Hjá embættinu eru
starfandi um 190 starfsmenn í hinum ýmsu deildum. Á innheimtu-
sviði embættisins eru stafandi um 65 starfsmenn í fjórum deildum.
Þar af verða um 20 starfandi í afgreiðsludeild embættisins.
Deildarstjóri
Starf deildarstjóra afgreiðsludeildar, sem
er ný deild innan innheimtusviðs embætt-
isins, er laust til umsóknar.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja
um starfið.
Afgreiðsludeild kemur til með að annast
eftirfarandi verkefni:
● Upplýsingagjöf við gjaldendur.
● Daglegt uppgjör innheimtu.
● Skráningu staðgreiðsluinnheimtu.
● Hefðbundin gjaldkerastörf.
Deildarstjóri afgreiðsludeildar annast
m.a. eftirtalin verkefni:
● Mótun starfsemi deildarinnar í samvinnu
við forstöðumann innheimtusviðs.
● Sér um að afgreiðsla og upplýsingagjöf verði
með greiðum og öruggum hætti.
● Stuðlar að góðu upplýsingastreymi gagnvart
samstarfsmönnum í deildinni og öðrum
stjórnendum hjá embættinu.
● Þátttaka í ákvörðunum um ráðningar starfs-
manna til deildarinnar o.fl.
Hæfniskröfur:
● Starfsreynsla á ofangreindu sviði.
● Tölvukunnátta.
● Þjónustulund og hæfni í mannlegum sam-
skiptum.
● Hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í hóp.
● Nákvæmni og vandvirkni í vinnubrögðum.
Í boði er:
Áhugaverð verkefni við uppbyggingu og mót-
un nýrrar deildar. Góð starfsskilyrði á skrifstofu
embættisins í miðbæ Reykjavíkur. Laun eru
samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda
að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, meðmælendur og annað sem um-
sækjandi vill taka fram, skal skila til starfsmann-
astjóra embættisins sem er með aðsetur á
Skúlagötu 17, 101 Reykjavík, fyrir 9. apríl nk.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigmundur
Sigurgeirsson, starfsmannastjóri, sími
560 0423 og Gunnar Ármannsson, forstöðu-
maður innheimtusviðs, sími 560 0300.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu liggur fyrir.
Tollstjórinn í Reykjavík er þátttakandi í samstarfisverkefni Reykjavíkur-
borgar og Gallup „Hinu gullna jafnvægi" sem miðar að því að auka
sveigjanleika í fyrirtækjum varðandi vinnutíma starfsfólks, með það
að markmiði að samræma betur starf og einkalíf og bæta nýtingu
mannauðsins.
Blikksmíði ehf.
óskar eftir blikksmiðum.
Upplýsingar í símum: 565 4111 og
893 4640.