Morgunblaðið - 25.03.2001, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 E 3
Barnagæsla
Barngóð manneskja óskast til að passa rólegan
18 mánaða dreng og sinna léttum heimilis-
störfum í Garðabæ. Upplýsingar gefur Erla í
síma 554 7828.
City Hótel
Óskum eftir að ráða þernu í fullt starf, góð laun
í boði fyrir réttan aðila.
Einnig óskum við eftir að ráða starfsmann í
móttöku og þernu á sumarhótelið City hótel
Garð. Upplýsingar veitir Stefán Örn Þórisson,
hótelstjóri í síma: 511 1155.
Fjölbreytt, gefandi og
spennandi starf fyrir
gott fólk
Liðsmenn óskast
Við óskum eftir traustu fólki eldra en 18 ára
til að taka að sér liðveislu fyrir fatlaða einstak-
linga á aldrinum 6-66 ára.
Liðveisla er persónulegur stuðningur sem
miðar að því að veita fötluðu fólki aðstoð til
að njóta tómstunda og menningarlífs. Um er
að ræða sveigjanlegan vinnutíma allt frá 12
klst. á mánuði. Laun eru greidd skv. kjarasamn-
ingi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkur.
Tilsjónarmenn og persónulegir
ráðgjafar
Starfsmenn óskast sem tilsjónarmenn/
persónulegir ráðgjafar fyrir börn og ungmenni
sem þurfa tímabundinn stuðning eða ráðgjöf.
Starfið gæti m.a. hentað með námi sem tengist
vinnu með fjölskyldum, s.s. uppeldisfræði, fél-
agsfræði/félagsráðgjöf, sálarfræði og námi
í Kennaraháskóla Íslands. Um er að ræða
sveigjanlegan vinnutíma frá allt að 20 klst. á
mánuði. Laun eru greidd skv. kjarasamningi
Reykjavíkur og Starfsmannafélags Reykjavíkur.
Stuðningsfjölskyldur óskast
Félagsþjónustan í Reykjavík er í samvinnu við
marga einstaklinga, sem taka reglubundið börn
til dvalar á heimili sín. Reynslan hefur sýnt að
stuðningsfjölskyldurnar vinna öflugt forvarnar-
starf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi
í lífi þeirra barna sem til þeirra koma.
Við viljum styrkja og styðja enn fleiri reykvísk
börn. Til þess þurfum við liðsinni fólks sem
getur tekið börn í helgarvistun, t.d. eina helgi
í mánuði eða eftir nánara samkomulagi.
Æskileg búseta er Reykjavík og nágrannasveit-
arfélög.
Hafir þú áhuga á mannlegum samskiptum og
að sinna afar gefandi verkefni, þá er stuðnings-
fjölskylduhlutverkið starf fyrir þig. Greitt er skv.
verktakasamningi.
Umsóknareyðublöð fást í Félags- og
þjónustumiðstöðvum að Bólstaðarhlíð
43 og Hvassaleiti 56-58.
Allar nánari upplýsingar veita Guðbjörg
Vignisdóttir, forstöðumaður, í síma 568
5052 og Kristín Jónasdóttir, forstöðumað-
ur, í síma 588 9335.