Vísir - 29.06.1979, Page 5

Vísir - 29.06.1979, Page 5
;Umsjón: Katrin Pálsdóttir VÍSIR Föstudagur 29. jiinl 1979 Baskar hóta sprengingum á feröamannastððum á Spánl Aðskilnaðarsinnar i Baskahéruðunum hafa hótað spönskum stjórn- völdum að þeir láti til sin taka á ferðamanna- stöðum i sumar. Talsmaður Baska hringdi til lögreglunnar og tilkynnti, að þeir myndu nota sprengjur óspart á ferðamanna- stöðunum i sumar. Þá sagði maðurinn að sprengja myndispringa á Benidorm i nótt. Sá sem hringdi nefndi nákvæma staðsetningu sprengjunnar og sagði að fólk skyldi yfirgefa stað- inn. Þessar hótanir Baskanna koma mjög illa við efnahagslif Spánar ef ferðamenn taka þær alvarlega. Rumlega 40 milljón ferðamenn komu til Spánar á siðasta ári og ekki er búist við minni fjölda i ár. Frá ferðamönnunum fá Spán- verjar aðalgjaldeyristekjur sin- ar. Tvær litlar sprengjur sprungu I Torremolinos og Fuengirola á þriðjudag og miðvikudag. Þeim var komið fyrir við stór hótel, en þetta voru nánast púðurkerlingar og ullu þvi engu tjóni. Baskar hafa sagt sig bera ábyrgð á þessum sprengjum. Þeir hafa lagt mikla áherslu á að ná félögum sinum úr fangelsi sem er norð-vestur af Madrid. Ekki er farið fram á að mennirnir verði látnir lausir heldur að þeir veröi fluttir i fangelsi i Baskahéruðun- um. Þeir fangelsuðu eru um eitt hundrað talsins. Baskar hóta nú aðsprengja á K ferðamannastöðum á Spáni. ^ Skutlan er send á loft eins og eldflaug, en hdn lendir eins og flugvéi. SKutlan út í gelm- inn næsta sumar Forstöðumaður geimferðar- stofnunnar Bandarikjanna, Robert Frosch, sagði þingnefnd þar i gær, að geimskutlan gæti farið i sfna fyrstu ferð i mars á næsta ári. Margar tilraunaferðir hafa veriðfarnar, en þetta verður þá i fyrsta skipti sem hún fer mönnuð út i' geiminn. Unnið er af fullum krafti við undirbúning ferðarinnar og Frosch sagði að helmings likur væri á því, að takmarkinu yrði náð. Geimferðaáætlunin um flug geimskutlunnar kostar Banda- rikjamenn um 5 milljarða doll- ara. Búist er við að skutlan kom- ist I loftið ekki seinna en sumarið 1981, ef ekki tekst nógu vel til. Skutlan er þannig hönnuð, að henni er skotið á toft eins og eld- flaug, en hún lendir aftur eins og flugvél. Þannig er hægt að nota hanamörgum sinnum til ferða út i geiminn. Stressaðir Sovétmenn Brauðstritiö tekur á taugarnar hjá borgurum i Sovétrikjunum. Stressið hefur leikið menn svo grátt að yfirvöld sáu sig knúin til að setja upp sérstök heilsuhæli fyrir þá sem eru verst farnir. Flest eru heilsuhælin i Moskvu. Aðsóknin að þeim hefur verið mjög mikil og færri komist að en vildu. • Síldvelðibann Ekkert haggar ákvörðun norsku rikisstjórnarinnar um sildveiðibann. Talsmaður sjávar- útvegsráðuneytisins segir, að sildarstofninn I Atlantshafi þoli alls enga veiði I ár. Norska fiskifélagið hefur sett fram kröfu um að fá að veiða 20 þúsund tonn af sild i sumar, en fékk afsvar. Jarðskláitti Jarðskjálfta varð vart i Júgó- slaviu i nótt. Harðastur var skjálftinn i miðju landi nálægt Zelengora fjalli. Taliö er að upp- tök skjálftans hafi verið um 230 kilómetra suð-vestur af Belgrad. svlhltð: Almennlngur skilur ekki emðættismenn Almenningur i Sviþjóð skilur ekki nema hluta þess boðskapar sem embættismenn senda frá sér. Málfar þeirra er orðið svo sérhæft að ástæða þykir að gefa út sér- staka orðabók til að almenningur geti numið boð frá yfirvöldum. Eftir umfangsmikla könnun sem gerð var á þessu, var ákveðið að gefa úr orðabók sem i veröa um 50 þúsund orð. Henni verður dreift i skóla landsins. • Sovésk klarn- orkusprengia Sovétmenn sprengdu nýverið kjarnorkusprengju neðanjarðar. Hún mun hafa verið stærri en 150 megatonn, en það er það mark sem Bandarikin og Sovétrikin komu sér saman um að fara ekki yfir. Bandarisk yfirvöld hafa farið fram á það við Sovétmenn að þeir geri grein fyrir stærð sprengjunn- ar. Það var árið 1974 að risaveldin tvö gerðu með sér samning um stærð kjarnorkusprengja sem sprengdar yrðu neðanjaröar. Toppfundurlnn: HVORKI GENG- Leiðtogar þeirra þjóða sem sitja toppfundinn i Tokyo.i Japan, hafa ekki enn náð samkomulagi um það hvernig eigi að bregðast við oliuvandanum. Fulltrúar frá sjö þjóðum sitja þennan fund: Þær eru Japan, Vestur-Þýskaland, Frakkland, Bretland, ttalia, Kanada og Bandarikin. Reynt hefur veriö að ná sam- komulagi um einhverja sam- REKUR þykkt sem fundurinn getur sent frá sér varðandi oliuvandann. I uppkasti sem hefur verið lagt fram er lögð áhersla á að kjarn- orkan leysi hluta orkuskortsins i komandi framtið. Ef þetta ákvæði verður sam- þykkt, er liklegt að kjarnorku- andstæðingar viðs vegar i heim- inum láti til sin taka. Þessi sjö riki sem funda I Tokyo kaupa um 70 prósent af allri oll- unni á heimsmarkaði. ÚTVARP OG SEGULBAND i BiLINN BiLINN ÞEGAR A REYNIR M I I I I M I M í i| | I 11 t | I I I M- M 60 70 80 v3> 130 «40 MW Hátalarar og bílloftnet í órvali/ Bestu kaup landsins. Isetning samdœgursl Verð M kr. 24.960,- til 94.200,- _ , Skipholti19 -v

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.