Vísir - 02.07.1979, Blaðsíða 3
3
VÍSIR
Mánudagur
2. júli 1979
Ahrlf sífelldra veröhækkana á hensíni:
MINNI SALA f STÚRUM
FOLKSBÍLUM OG JEPPUM
Saia á stærri bilum hefur
dregist nokkuö saman eftir siö-
ustu bensinhækkanir. A þetta
sérstaklega viö um eldri ame-
riska bila svo og stærri jeppa.
„Þetta hefur heldur minnk-
að”, sagði Þórir Halldórsson
hjá bilasölu Guðfinns, „menn
vita að bensin er alltaf að hækka
og halda þvi frekar að sér hönd-
unum i bilakaupum. Verðið hef-
ur ekki lækkað en nú bjðða
menn betri greiðsluskilmála i
meiri mæli, sérstaklega við sölu
á stærri 8 strokka jeppum og
bilum.
Samfara þessu hefur aukist
sala á minni bilum, og þvi að
fólk með stærri bila vill skipta á
þeim og minni bilum.”
„Salan er frekar róleg i stærri
gerðunum af bilum”, sagði Alli
Rúts, „og hún hefur alveg dottið
niður á stærri jeppum.”
„Salan hefur frekar' dregist
saman á eldri bilum, en hún
stendur i stað á 1 til 3 ára bilum
af þessari stærð, 8 strokka,”
sagði Þorsteinn Sigurðsson hjá
Bilabankanum, „það er nú einu
sinni svo að þeir sem hafa keypt
ameriskan bil á annað borð vilja
ekki aðra bila. En stórir jeppar
ganga seint út.”
Svipaða sögu er að segja frá
öðrum bilasölum. — FI
Frá fundi NTTK sem haldinn var f Reykjavlk á dögunum.
10 MILLJARDAR
í GJALDEYRI
- áriega vegna Dlónustu við
ferðamenn
Aukin kynning milli Norðurlanda, samvinna um
ferðamál og ferðamannaþjónustu, upplýsinga-
skipti, sameiginleg skýrslugerð um þátt ferðaþjón-
ustunnar f efnahags- og atvinnulifi Norðurlandanna
voru m.a. mála sem rædd voru á nýafstöðnum aðal-
fundi NTTK.
NTTK eru samtök ferðamála- tuttugu manns. Fram kom á
ráða Norðurlandanna fimm og fundinum að ferðamannaþjónust-
ferðamálastjóra þeirra og er an færir islenska þjóðarbúinu tiu
aðalfundur samtakanna haldinn i milljarða i beinum og óbeinum
hverju aðildarlandanna fimmta gjaldeyristekjum og brauðfæðir
hvert ár. Að þessu sinni sátu um 6% vinnuafls i landinu.
fundinn hér i Reykjavik rúmlega — Gsal
SPÁNN LÆKKAR TOLL
ÁSALTFISKI
Samningur um friverslun milli
EFTA-rikjanna 7 og Spánar var
undirritaöur i Madrid 26. júnf si.
Samkvæmt honum munu
EFTA-rikin lækka verndartolla á
iðnaðarvörum frá Spáni um 60%
og Spánn mun lækka tolla á
sumum iðnaðarvörum frá EFTA-
löndunum um 60% og á öðrum um
25%. Ennfremur mun Spánn
lækka tolla á nokkrum sjávaraf-
urðum um 25%, þar á meðal
saltfiski.
Samningurinn tekur gildi þegar
öll löndin hafa fullgildt hann.
P.M.
Farmenn móhnæla hækk-
un á farmgjöldum
Stjórn Sjómannafélags Reykja-
vlkur hefur mótmælt harölega
bráöabirgöaiögum rlkisstjórn-
arinnar um stöövun verkfalls
yfirmanna á farskipum og hefur
almennur fundur hjá sjómanna-
félaginu tekiöundir þau mótmæli.
Hinn almenni fundur hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavikur hefur
einnig mótmælt þvi að rikis-
stjórnin verði við þeirri kröfu
Eimskips að farmgjöldin verði
stórhækkuð á sama tima og það
neitar farmönnum um launa-
hækkun. Farmenn segja að verði
rikisstjórnin við þessari kröfu, þá
séum visvitandi verðbólguaðgerð
að ræða.
Fundurinn fól stjórn og starfs-
mönnum sinum að vinna Itarlega
skýrslu um laun, fjarvistir, álag,
ábyrgð o.fl. viðkomandi
starfi þeirraog senda hana siðan
kjaradómi I máli þeirra. -ss
FÉLAGSFUNDUR
Verslunarmannafélag Reykjavfkur heldur fé-
lagsfund að hótel Esju mánudaginn 2. júlí,
1979, kl. 20.30.
Fundarefni:
Kjarasamningarnir.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
Laugavegi 37 Laugavegi 89 Hofnarstrœti 17
12861 Í3ÖÖ8 13303
Varist eftirlikingor