Vísir - 02.07.1979, Page 4
vtsm
Mánudagur 2. júll 1979
ASKRHT
ER
AUÐVELD!
/ Ég óska eftir aö gerast áskrifandi aö Vísi \
\______________________________________/
Sendu seðilinn til Vísis Síðumúla 8 eða hringdu
í síma 86611 og við sjáum um framhaldið.
Karlmannabuxur
á aðeins kr. 6.900-
Verksm.-salan
Skeifan 13
Suðurdyr
Samkvæmt lögum nr. 22 frá 18. maí 1979
verður 15 milljónum króna ráðstafað úr
Gengismunarsjóði til orlofshúsa sjómanna-
samtakanna.
Umsóknir um framlög úr sjóðnum óskast
sendar ráðuneytinu fyrir 15. júlí 1979.
Umsóknum fylgi upplýsingar um fjölda
starfandi manna í félögunum.
Sjávarútvegsráðuneytið,
29.júní1979.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Staða framkvæmdastjóra H.f. Raftækjaverk-
smiðjunnar í Hafnarfirði er hér með auglýst
til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist til formanns stjórnarinnar,
Guðmundar Árnasonar, Sunnuvegi 1, Hafnar-
firði fyrir 1. ágúst n.k. STJÓRNIN
AUGLÝSING
4
Hver íbúl 10 sinnum (
sundlaus í fyrra
Kostnaöur viö starfrækslu
almenningssundstaöa á landinu
nam á siöasta ári rúmum hálf-
um milljaröi króna eftir þvi sem
segir i skýrslu frá Þorsteini
Einarssyni, iþróttafulltrúa
rikisins. Á hvern Ibúa landsins
veröur kostnaöurinn 3070 krón-
ur, en þess er aö geta aö hver
maöur hefur sótt aö meðaltali
sundlaugar landsins 10 sinnum
á árinu.
Sundlaugargestir á slöasta ári
voru 1.630.066 og hefur sóknin
staöiö I stað frá þvi var 1977.
í skýrslu Þorsteins Einars-
sonar er aö finna töflur um 27
sundlaugar. 1 þeim er getið um
fjölda baðgesta, reksturskostn-
að á hvern baðgest ofl.
1 skýrslunni kemur fram að
heildarsókn i sundlaugarnar i
Reykjavik, Sundhöllina,
Laugardal og Vesturbæ, var
950.070 manns og samsvarar
það þvi að hver ibúi borgarinnar
hafi farið 11.37 sinnum i
laugarnar. Langflestir komu i
Laugardalslaugina eða rúm
hálf milljón, þvi næst i Sundlaug
vesturbæjar 340 þúsund manns
og fæstir i Sundhöllina eða 115
þúsund.
í skýrslu iþróttafulltrúans
kemur m.a fram hvenær flestir
komu i hverja og eina sundlaug
á árinu 1978. 1 sundlaugina I
Laugardal komu flestir 25. mai
1978 eða 3396 manns og er það
langmesti fjöldi i eina laug á
dag á þvi ári.
—SS—
Benda á nauð-
syn albiðða-
tungumáls
Fjciröa landsþing tslensk
esperantosambandsins var haldiö
fyrir skömmu. Þingiö samþykkti
almenna ályktun um nauðsyn tjá-
skipta millimanna hvar sem er
,úr heiminum. Þjóömálin séu
hindrun i samskiptum manna og
ekki virðist önnur leið úr þessum
vanda en aö tekiö veröi upp aö-
gengilegt hlutlaust aiþjóöamál.
Þingið beinir einnig þeirri
áskorun til yfirvalda Islenskra
menntamála að fylgjast meö
þeirri sókn sem esperanto er nú I
og fylgjast með kennslufræðileg-
um tilraunum sem standa viða
yfir. Nám i esperanto sé ótrúlega
góður undirbúningur undir nám I
öðrum tungum og stuðli að skiln-
ingi á eöli og byggingu tungumála
almennt.
Forseti esperantosambandsins
var endurkjörinn Baldur
Ragnarsson. —SS—
ASÍ semur við
rlkl og borg
Undirritaður hefur verið samn-
ingur milli rikisins og Reykja-
vikurborgar og Alþýöusambands
Islands um 3% grunnkaupshækk-
un er taki gildi frá 25, þ.m.
Samningarnir voru undirritaðir
af Snorra Jónssyni, forseta ASI,
Guðmundi Karli Jónssyni, f.h.
rikisins og Magnúsi Óskarssyni
f.h. Reykjavikurborgar. —SS—
Opnuð hefur verið ný matstofa
hér í borg, Lauga-ás, og er hún til
húsa að Laugarásvegi 1. Það eru
Ragnar Guðmundsson og Gunn-
laugur Heiðarsson, sem eiga
hana.
Matstofan er öll hvltmáluð og
mjög björt. Hún tekur um 40
manns i sæti og er opin frá átta á
morgnana fram til klukkan hálf
tólf á kvöldin.
Eigendurnir hyggjast gefa
laugargestum kostá þvi að koma
i morgunkaffi eftir laugarferð á
morgnana og verður þá á boðstól-
um morgunverður eftir óskum
hvers og eins.
Þeir Ragnar og Gunnlaugur
hafa verið mats-veinar I 14 ár.
Þeir lærðu listina á Hótel Borg og
Hressingarskálanum. Siðan hafa
þeir verið viöa. Ragnar á Aski,
Hressingarskálanum og viðar.
Gunnlaugur hefur verið á Mat-
stofu Austurbæjar og viðar.
Innréttingarnar á matstofunni
teiknaði Jón Kaldal.
— SS —
íslandsdeild Amn-
esty mjðg virk
Aöalfundur Islandsdeildar
Amnesty International var
haldinn fyrir stuttu.
A yegum deildarinnar starfa
nú f jórir starfshópar. Tveir hóp-
ar beita sér fyrst og fremst fyrir
frelsi svonefndara samvisku-
fanga, þ.e. manna sem fangels-
aðir hafa verið fyrir stjórnmála-
eöa trúarskoðanir sinar eöa
vegna kynþáttar, kynferðis,
þjóðernis eða tungu sinnar.
Hafa hóparnir á liðnu starfsári
unnið fyrir slika fanga i Sovétr-
ikjunum, Taiwan, Rhodesiu,
Argentinu, Júgóslaviu og
Malasiu. Þrir þeirra voru látnir
lausir á árinu, einn i Sovétrikj-
unum og tveir i Rhodesiu, en
annar þeirra hefur nú veriö
handtekinn á ný. Þriðji hópur-
inn hefur unnið að svonefndum
skyndiaðgeröum, þ.e. þátttöku i
samræmdum alþjóðlegum
bréfaskriftum vegna 130 fanga I
ýmsum löndum. Fjórði hópur-
inn hefur unnið að bréfaskrift-
um og öðrum aðgeröum vegna
mannréttindabrota i tilteknum
löndum, Rúmeniu, Eþiópiu,
Argentinu og Taiwan.
I tilefni 30 ára afmælis
mannréttindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna var af
hálfu Islandsdeildar Amnesty
International sent bréf til utan-
rikisráðherra Islands og hvatt
til þess, að íslendingar staðfestu
og lögfestu hið fyrsta allar þær
aiþjóðasamþykktir, sem gerðar
hafa verið á grundvelli mann-
réttindayfirlýsingarinnar á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Deildin tók þátt i alþjóðlegum
mótmælaaðgerðum vegna
liflátsdóma byltingardómstóla i
Iran og tilraunum til að fá
þyrmt lifi Zulfikars Alis
Bhuttos, fyrrum forsætisráð-
herra Pakistans og manna
þeirra, sem með honum voru
dæmdir, — ennfremur aðgerð-
um vegna fangelsana og
ofsókna á hendur forystumönn-
um verkalýðsfélaga i Túnis og
vegna fanga i Uruguay.
Mjög ýtarlegar breytingar
voru gerðar á lögum deildarinn-
ar á þessum fundi, margar
þeirra með hliðsjón af
samræmingu á lögum allra
landsdeilda Amnesty
International.
Samkvæmt tilmælum
framkvæmdastjðrnar alþjóða-
samtakanna hefur stjórn
tslandsdeildarinnar auglýst
meðal félagsmanna starf
framkvæmdastjóra aðalbæki-
stöðva samtakanna I Lundún-
um, en núverandi
framkvæmdastjóri, Martin
Ennals, lætur af störfum á
miðju næsta ári. Starfið hefur
verið auglýst i öllum landsdeild-
um og nokkrum útbreiddustu
dagblöðum heimsins, en gert er
ráð fyrir að umsóknum sé skilað
til aðalskrifstofu Amnesty
International i Lundúnum fyrir
1. júli. Framkvæmdastjóri aðal-
stöðvanna er helsti fulltrúi
Amnesty International i
samskiptum við rikisstjórnir og
alþjóðasamtök og vegna eðlis-
samtakanna og þeirrar áherslu,
sem þau leggja á pólitiskt hlut-
leysi og jafnvægi koma
umsækjendur frá smáþjóðum
ekkert siður til greina i starfið
en umsækjendur frá hinum
stærri þjóöum.
Stjórn íslandsdeildar
Amnesty International skipa
nú: Margrét R. Bjarnason,
formaður, Sigurður Magnússon,
varaformaður Erika Urbancic,
ritari, Friörik Páll Jónsson,
gjaldkeri og Anna Atladóttir,
skjalavörður. Formenn starfs-
hópa eru, Bergljót Guðmunds-
dóttir, Linda Jóhannesdóttir og
Þórir Ibsen.