Vísir - 02.08.1979, Blaðsíða 27
27
vísm
Fimmtudagur 2. ágúst 1979.
1 Umsjún:
Friftrik
Indri&ason
4 K
*
f >~~4~ / L
Nú eru allir starfsmenn sjónvarpsins væntaniega komnir úr sumarleyfi, hressir og kátir, og þeir byrja útsendingar nú annaö kvöld.
SJÚNVARPID BYRJAR A MORGUN
Annað kvöld byrjar sjónvarpið
aftur eftir mánaðarsumarfrl.
Ýmislegt veröur á boðstólnum
fyrstu helgina. Prúðuleikararnir
verða aö vanda á föstudagskvöld
en gestur þeirra verður James
Coca. Laugardagsmyndin verður
eftir hinn þekkta leikstjóra Alfred
Hithcock óg á sunnudagskvöld
byrjar flokkurinn Astir erfða-
prinsins sem margir hafa eflaust
beðið eftir með eftirvænting;u en
hann fjallar um ástir Edwards
VIII og frú Simpson. En hún var
tvi-fráskilin og varð hann að af-
sala sér konungdómi til þess að
geta gifst henni. Einhver ágætur
náungi kallaði þennan þátt „sæt-
súpu með rjóma” og er það við-
eigandi að ég held.
Utvarp f kvðld ki. 20.10
í kvöld verður fluttleikritið ,,Gestir hr. Birowski”
eftir Gunter Eich, i þýðingu Ingibjargar Stephen-
sen. Leikstjóri er Lárus Pálsson en með helstu hlut-
verk fara Þorsteinn ö. Stephensen, Arndis Björns-
dóttir og Ingi Þórðardóttir.
Gestlr hr
Birowski lifir á ellistyrk og býr
ásamt tveim gömlum konum i
húsi utan við bæinn, þar sem talið
er reimt enda hafði þar verið bú-
staður böðuls fyrr á öldum. Þetta
getur varla talist skemmtilegur
staður en Birowski þarf ekki að
láta sér leiðast, þvi hann á vini
sem stytta honum stundirnar.
Gunter Eich fæddist I Lebus við
ána Oder árið 1907. Hann stundaði
nám i lögfræði og klnverskri
sögu, barðist I heimsstyrjöldinni
siðari og var tekinn til fanga af
Bandarikjamönnum. Um 1950 fór
hann að skrifa útvarpsleikrit og
náð mikilli leikna á þvi sviði.
Eich fékkst einnig við ljóðagerð,
einkum siðari ár ævinnar. Hann
náði mikilli leikni á þvl sviði.
1 leikritum Eichs kemur oft
fram dulúð og sum þeirra eru á
mörkum þess raunverulega og
yfirnáttúrulega. En hann hefur
djúpa samkennd með þvi fólki
sem farið hefur halloka I lifsbar-
áttunni. Jafnframt kann hann þá
list að blanda hæfilegum
skammti af gamni :við alvöruna.
Meðal leikrita sem útvarpiö
hefur áður flutt eftir Eich má
nefna: „Rakara greifans” 1959,
„Allah heitir hundrað nöfnum”
1962, „Stúlkurnar frá Viterbo”
1968 og „Tinbresti” 1976.
Leikritið er endurflutt frá 1960
og er 50 mln I flutningi.
Lárus Pálsson ieikstjóri fimmtu
dagsleikritsins
úlvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Viö
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan:
„Korriró” eftir Asa f Bæ
Höfundur les sögulok (14).
15.00 Miödegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
17.20 Lagiö mitt.
18.10 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Arni
Böðvarsson flytur þáttinn.
19.40 tslcnskir einsöngvarar
og kórar syngja
20.10 Leikrit: „Gestir herra
Birowskis” eftir Gunter
Eich Aður útv. 1960. Þýö-
andi: Ingibjörg Stephensen.
Leikstjóri: Lárus Pálsson.
Persónur og leikendur:
Birowski ... Þorsteinn ö.
Stephensen.Paula ... Arndls
Björnsdóttir, Theresa ...
Inga Þórðardóttir, Leonard
... Steindór Hjörleifsson,
Cecilia ... Margrét Guð-
mundsdóttir, Erdmuthe ...
Kristbjörg Kjeld, Emil ...
Arni Tryggvason. Aörir
leikendur: Helga Valtýs-
dóttir og Anna Guðmunds-
dóttir.
20.55 tslandsmótiö I knatt-
spyrnu — fyrsta deild
Hermann Gunnarsson lýsir
siðari hálfleik Vlkings og
Keflvikinga á Laugardals-
velli.
21.50 Smátrió fyrir flautu,
selló og pianó eftir Leif Þór-
arinsson, Jón Sigurbjörns-
son, Pétur Þorvaldsson og
Halldór Haraldsson leika.
22.00 A ferö um landiöFimmti
þáttur. Geysir. Umsjónar-
maður: Tómas Einarsson.
Talaö við dr. Trausta Ein-
arsson prófessor og Armann
Kr. Einarsson rithöfund.
Lesari meö umsjónar-
manni: Snorri Jónsson.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Afangar Umsjónar-
menn: Asmundur Jónsson
og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Þefað utan í framboðssæti
Morgunblaöiö hefur veriö aö
gera heilmikla hluti vegna
fyrirsjáanlegra framboösrauna
Alþýöubandalagsins á Vestur-
landi, og hafa Halldóri Blöndal
varaþingmanni veriö kennd þau
skrif. Þessar bollaleggingar
hafa viöýmis rök aö styöjast, en
veröa ekki slitnar úr tengslum
viö þær umræöur, sem nú fara
fram I öllum flokkum, um ný
andlit á framboöslistum.
Hermt er aö á Vesturlandi
vilji Jónas Arnason koma
tengdasyni sinum, sem nú er
afleysingaritstjóri á Þjóövilj-
anum, til þeirra metoröa aö
skipa efsta sæti framboöslist-
ans. Þar á móti er Bjarnfrlöur
Leósdóttir mjög fús til þess aö
draga sig I hlé fyrir tengdasyni
sinum Einari Karli Haraldssyni,
ritstjóra Þjööviljans. Llklegast
er taliö aö annar hvor þessara
ungu manna veröi tromp
Alþýöubandalagsins gegn Eiöi
Guönasyni, sem enn nýtur sjón-
varpsvinsælda sinna I kjördæm-
unu.
Sjálfstæöismenn á Vestur-
landi finna nú mjög til þess aö
þeir veröi eins og I ýmsum
öörum kjördæmum aö skipta
um liö. Inga Jóna Þóröardóttir
sækir þar fast á og þykir Hkleg
til aö ýta Jósef Þorgeirssyni til
hliöar. Og ekki kæmi á óvart þó
aö sterkir menn i kjör-
dæminu myndu kulla á Björn
Bjarnason til forystu I staö
Friöjóns Þóröarsonar, sem
virtist dauöur úr öllum æöum I
pólitik. Meö þessu mynda Vest-
lendingar auka áhrif sin I valda-
kjarna flokksins.
Þá munu vinsældir Pálma á
Akri fara mjög þverrandi heima
fyrir enda fremur litiö á hann
sem þriöja þingmann Fram-
sóknar á Noröuriandi vestra en
fyrsta þingmann Sjálfstæöis-
flokksins. Aframhaldandi fram-
sóknarþingmennska Pálma á
Akri gæti orðiö Sjálfstæöis-
mönnum dýrkeypt. Bakhjarlar
Pálma vilja ekki Eykon I fyrsta
sætiö en telja aö meö þvl aö
kalla á JónMagnússon formann
ungra sjálfstæðismanna fái þeir
bæöi ungt blóö og flokksmann á
toppinn.
A Suöurlandi hafa menn tekiö
eftir þvl aö sá pólitfski fundur er
ekki haldinn þar aö Baldur
Óskarsson framkvæmdastjóri
verkalýösráös Alþýöubanda-
lagsins sé ekki mættur til leiks. 1
Vestmannaeyjum er hann tiöur
gestur I frystihúsunum oggefur
sér tima til þess aö ræöa viö
verkafólkið og er öörum seigari
viö aö sýna þvl fram á aö þaö
skipti máli I pólitlk. Talið ér
öruggt aö hann ryöji Garöari
Sigurössyni úr þingsæti slnu I
kjördæminu, enda gefur hann
sig litt aö verkalýönum i seinni
tiö.
A Noröurlandi eystra er
hafinn mikill slagur milli
Halidórs Blöndal og Gunnars
Ragnars um sæti Jóns Sólness,
sem menn óttastað muni ganga
af flokknum dauöum, haldi
hann áfram. Þá er hermt aö
Bjarni Magnússon ábyrgðar-
maöur Alþýöublaösins sé llk-
legur til þess aö fara I framboö
meö Arna Gunnarssyni á
Norðurlandi eystra og gæti þaö
kostaö átök yiö unga krata
heima fyrir.
Endurnýjunin hjá Framsókn
verður fólgin i EirDd Tómas-
syni, Guömundi G. Þórarins-
syni og Jóni Sigurössyni.
Akveöiö er aö Guömundur reyni
I þriöja sinn viö þingsætiö I
Reykjavlk og vist er aö Jón
Sigurðsson er mjög sterkur I
Reykjaneskjördæmi, sérstak-
lega Kópavogi. Eirikur Tómas-
son hyggst á hinn bóginn biöa
átektaog s já til þegar nær dreg-
ur kosningum i hvorukjördæm-
inu meiri árangurs sé aö vænta.
Þannig er þefaö: af framboös-
sætum I öllum flokkum.
Svarthöföi.