Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 1
Meginefni tillagna Benedikts um Jan Mayen: Norska blaðið Aften- posten skýrir frá þvi i morgun, að i þeim um- ræðugrundvelli sem Benedikt Gröndal hafi kynnt fyrir islensku rikisstjórninni i gær, sé gert ráð fyrir þvi að ís- lendingar viðurkenni 200 milna fiskveiðilög- sögu Norðmanna við Jan Mayen gegn rétti til nýtingar auðlinda innan þeirrar lögsögu ásamt Norðmönnum. „Ég vil byrja á aB lýsa furöu minni á þvi, aö norskt blað segi frá máli sem okkur i Landhelg- isnefnd hafði verið gert að fara meðsem algjört trUnaðarmál”, sagði Ólafur Ragnar Grimsson, alþingismaöur, þegar Visir bar undir hann frétt i Aftenposten I morgun. Visir innti Ólaf einnig efár þvi hvort I þeim tillögum að um- ræðugrundvelli, sem Benedikt Gröndal lagði fram I gær, hafi verið gert ráð fyrir einhvers konar helmingaskiptum Islend- inga og Norömanna varöandi nýtingu auðlinda innan norsku 200 mílnanna. „Ég læt utan- rikisráöherra eftir formlega staðfestingu á innihaldi þessara tillagna, en itreka það, að viö eigum ekki að ganga til samn- inga á grundvelli hótana Norð- manna um að þeir ætli sér að veiða meira en þau 90 þiisund tonn af loðnu, sem áður hafði náðst samkomulag um”, sagði Olafur. Tillögur Benedikts Gröndal að umræðugrundvelli varðandi Jan Mayen-máliö voru fyrst kynntar á fundi Landhelgis- Norsk skip við loðnuveiðar á Jan Mayen-svæðinu. nefndar i gærmorgun, en i rikis- stjórninni siðdegis I gær. Akvarðanatöku var frestað þar til ráðherrum gæfist tóm til að kynna málið innan rikisstjórn- arflokkanna. Gert er ráö fyrir að það geti orðið strax I dag. „Það er verið aö ræða það núna hvaða hugmyndir viö eig- um aðsetja fram og meðan þær eru i mótun, tel ég ekki rétt að ræða þær opinberlega, slíkt kemur Norömönnum einum að gagni”, sagði Ragnar Arnalds, menntamálaráðherra, er Visir bar undir hann frétt Aftenpost- en um umræðugrundvöll Bene- dikts Gröndal. I Þjóðviljanum i morgun seg- ir, aö þeim Benedikt Gröndal, Ragnari Arnalds og Ólafi Jó- hannessyni hafi á rikisstjórnar- fundinum i gær verið falið að fylgja málinu eftir á næstu dög- um og ræða næstu skref, sem taka eigi. Reynt var að ná tali af bæði Benedikt Gröndal og Kjartani Jóhannssyni sjávarútvegsráð- herra i morgun, en án árangurs. 1 Aftenposten i morgun segir ennfremur að búist sé viö að Benedikt Gröndal muni koma með mótaðar tillögur á fundi norrænna jafnaðarmanna i Kaupmannahöfn um næstu helgi og leggja þær fyrir Knut Frydenlund, utanrikisráöherra Noregs. Þá segir að 10-12 bátar séu komnir til hafnar i Noregi með 16 þúsund lestir af loðnu og haft eftir einum skipstjóra, að loðnan sé bæði stdr og góð og að ekki muni taka langan tima að veiða 90þúsundlestir meðsama áframhaldi. —GEK/PM/JEGOsió. 200 MÍLNA LÖGSAGA SEM ÞJÖBIRNAR NÝTI SAMEIGINLEGA vandræöl á spænskum feröamannastððum, sem Islendlngar sækia: SkÖGARELDAR 00 RAN Miklir skógareldar loga viö ferðamannabæinn Lloret de Mar á Costa Brava á Spáni. Þegar hafa 22 farist, en um þúsund hektarar lands hafa brunnið. Hundruð manna hafa flúið svæð- ið, en slökkviliösmenn berjast við eldinn. Um 130 Islendingar eru I Lloret de Mar á vegum ferðaskrifstof- unnar Útsýnar. Að sögn Arnar Steinsen skrifstofustjóra búa þeir allir á hótelum og I fbúðum niður við ströndina, nokkuð frá skóg- inum. örn sagöi aö ekki hefði tekist að ná sambandi viö Lloret de Mar í morgun þrátt fyrir Itrekaðar til- raunir. Vopnaðir og meö nælonsokka fyrir andlitinu ruddust þrlr menn inn i anddyri Hotel Iris á Torre- molinos sl. laugardag og kröfðu starfsmenn um fé, auk þess sem greipar voru látnar sópa um hirslur hótelsins. Talið er að þeir hafi haft upp úr ráninu jafnvirði átta milljóna islenskra kr. Ræn- ingjarnir komust undan á vélhjól- um og hafa þeir ekki náðst. Á þessuhóteli búa allmargir ís- lendingar á vegum ferðaskrif- stofunnar Útsýnar og voru nokkrir þeirrai anddyri hótelsins er stigamennirnir létu til skarar skriða. Miðuöu þeir m.a. riffli á eina islenska stúlku. Gsal/KP Heimsókn á Þingvelli SJÁ BLS. 12-13 Vlslsrallið: Keppendur kynntir SJÁ BLS. 9 SKATTAR F0RSTJÓRA STÓRRA FYRIRTÆKJA MARGRA MILLJ- ARBA VERBMÆTI ERU I HÆTTU SJÁ BLS. BARNALEIKRIT EFTIR GUBRÚNU HELGADÚTTUR I ÞJÖÐLEIKHÚSINU SJÁ BLS. 16 1 i i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.