Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 23

Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 23
23 VÍSIR Miðvikudagur 8. ágúst 1979. Umsjón: Sveinn Guðjónsson Jass í útvarpl klukkan 23.20: Peterson, Basle og fleiri ieika af fingrum fram Djassunnendur verða væntan- lega „smurðir” við útvarpstækin sin i kvöld klukkan 23.20 en þá munu Oscar Peterson, Count Basie og fleiri þekktir gæöingar úr heimi djassins leika af fingrum fram „Vinsæl djasslög”, en það er einmitt heiti þáttarins. Það er Ingibjörg Þorbergs sem hefur umsjón þáttarins með höndum en hún er þar öllum hnútum kunnug, þótt Jón Múli hafi reyndar oftar komið við sögu þegar um er að ræða djass i útvarpinu. En hvað um það, — aðalatriðið er aö djassunnendur verða til friðs I kvöld, þann stundarfjórðung sem þátturinn stendur. — Sv.G. Djassunnendur verða væntanlega til friðs I kvöld á meðan þátturinn „Vinsæl djasslög” stendur yfir, en þar koma m.a. fram Oscar Peterson og Count Basie. Slónvarp kl. 20.35: Pétur og barnið hans „Þetta er ekki dæmigerð sænsk þjóðfélagspredikun, heldur miklu frekar skemmtileg saga og ég held að fólk geti bara haft gaman af aö fylgjast með Pétri og barninu”, — sagði Dóra Hafsteinsdóttir, en hún er þýö- andi sænska myndaflokksins „Barniö hans Péturs” sem hefur göngu sina i sjónvarpinu í kvöld klukkan 20.35. Dóra sagði að myndin fjallaöi um unglinga, Pétur og Mariönnu, sem óvart eignast barn saman. Móðirin sér um barniö heima hjá foreldrum sinum en faðirinn, Pétur.sinnir sinum dæmigerðu unglingaáhugamálum og er, þegar myndin hefst, að vinna sér inn fyrir mótorhjóli. Svo kemur að þvi að fjölskylda Mariönnu flyst til höfuðborgarinnar og hún með, enda háð foreldrum sinum i einu og öllu. Hún treystir sér ekki til að fara með ungbarniö og laumast til að skilja það eftir hjá Ekki veröur annaö séð en Pétur sé föðurlegur þarna sem hann heldur á litlu telpunni sinni, en þau feðginin mæta til leiks á skjá- inn klukkan 20.35 i kvöld. Pétri sem fer með barnið heim við lítinn fögnuð foreldra sinna. Þættirnir sem eru fjórir, segja siðan hvernig Pétri gengur með uppeldið. Myndaflokkur þessi er gerður eftir sögu Gun Jacobsson og var hún lesin i útvarp sumarið 1975. Handrit og leikstjórn eru i höndum Hans Dahlberg og með aöalhlutverk fara Peter Malmsjö, Linda Kruger, Ulla Blomstad og Thord Petterson. — Sv.G. Sjónvarp I kvfild kl. 21.25: HJÓLAÐI YFIR ERMARSUND „Það verða tvær bandariskar myndir sýndar i kvöld”, sagöi Sigurður Richter i samtali við Visi.” Sú fyrri fjallar um Scripps hafrannsóknarstofnunina i Kali- forniu. Greint verður frá helstu rannsóknum sem þar eru á döf- inni en eins og flestir vita þá þekja höfin um 70% af yfirborði jarðar og þar er aö finna gifurlegt magn af fæðu og hráefnum til iðn- aðar. Seinni myndin greinir svo frá manni nokkrum sem hjólaöi yfir Ermarsund. Hann smiðaði flug- vél sem gekk aðeins fyrir vöðva- afli og flaug henni yfir Ermar- sund. En þetta var I fyrsta sinn sem slikri fótstiginni flugvél var flogið yfir Ermarsund”. ,,í þessari mynd er einnig greint frá fyrri tilraunum manna til þess að nota aöeins vöövaaflið til þess að fljúga” sagöi Siguröur að lokum. Miðvikudagur 8. ágiist 12X>0 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Viö vinnuna. Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Aöeins móöir”eftir Anne De Moor. Jóhanna G. Möller les þýö- ingu sina (2). 15.00 Miödegistónleikar, Col- ! umbiu-sinfóniuhljómsveitin leikur Litlu sinfóniuna nr. ’ 1 eftir Cecil Effinger, Zoltan Razsnyai stj./ Sinfóniu- hljómsveitin i Westphalen leikur Sinfóniu nr. 2 i C-dúr „Hafiö” op. 42 eftir Anton Rubinstein, Richard Kapp stj. 16.00 Fréttír. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 Litli barnatiminn: Val- dis óskarsdóttir sér um timann og talar viö Gunnar örn Stefánsson (5 ára) um lifiö og tilveruna. 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.00 Vlösjá. (endurtekin frá morgninum). 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 óperutónlist: Atriði úr átta óperum eftir fimm tón- skáid 20.30 (Jtvarpssagan: „Trúöur- inn” eftir Heinrich Böll. Franz A. Gislason les þýð- ingu sina (13). 21.00 Samleikur á fiðlu og pl- anó. Valeri Klimoff og Vladlmi'r Jampolský leika Sónötu I b-moll eftir Alex- ander Babajanjan og „Lót- usland” eftir Cyril Scott. 21.30 „Söngvar frá Sælulundi” Guðrún Alfreðsdóttir les úr ljóðum Harðar Þórhallsson- ar. 21.45 Iþróttir.Hermann Gunn- arsson segir frá. 22.10 Fálkaveiöar á miööld- um, — þriðji þáttur. Ingi Karl Jóhannesson tók sam- an. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Reykjavikurleikar i frjálsum Iþróttum, — fýrri dagur. Hermann Gunnars- son lýsir úrslitum og ein- stökum keppnisgreinum. 23.20 Vinsæl djasslög. Oscar Peterson, Count Basie og fé- lagar þeirra leika. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Mi“gur 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Barbapapa 20.35 Barnið hans Péturs Sænskur myndaflokkur i fjórum þáttum, geröur eftir sögu Gun Jacobssons. Sag- an var lesin i útvarp sumar- iö 1975. Handrit og leik- stjórn Hans Dahlberg. Aðal- hlutverk Peter Malmsjö, Linda Kruger, Ulla Blom- stad og Thord Petterson. Fyrsti þáttur. Pétur og Marianna eru sextán ára, búa úti á landi og eiga litið barn. 21.25 Nýjasta tækni og visindi Umsjónarmaður Siguröur H. Richter. 21.50 Harösviraöir hvala- dráparar Bresk fréttamynd um hiö illræmda hvalveiöi- skip „Sierra”, tekin skömmu áður en það skemmdist 1 ásiglingu. Þýð- andi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 22.20 Dagskrárlok Þegar bækur bvkkna undan sðlslrandarhattl Sú saga er bæði gömul og ný, að menn hafa komist lengra I lifinu en efni hafa staðið til með þvi aösýnastvera stærri en þeir eru. Lögmálið er tiltölulega ein- falt: Ef þú ert ekkert, þá er að sýnast vera eitthvað. Sá sænski menningartöivuheili, sem „vin- ir” okkar á Noröurlöndum settu okkur til höfuðs dti i Vatnsmýri var prógrammeraður fyrir þetta lögmál. Með beinni inn- spýtingu hefur hann haldið sjálfsviröingunni i helftinni af þvifólki, sem hér á landi bjástr- ar við menningarleg efni. H.C. Andersen sagði ein- hverju sinni sögu af stagnál, sem var svo fin með sig að hún hélt hún væri saumnál. Og eftir að hún brotnaði og eldabuskan stakk .henni i klútinn sinn hélt hún að hún værioröin brjóstnál. Þegar strákarnir fundu nálina I göturæsinu og stungu henni I eggskurn sagði hún: Veggirnir hvitir, og sjálf er ég svört, vel fer á þvi, og nú geta menn séð mig. Það fer ekki hjá þvi að þessi saga komi upp I hugann, þegar Thor Vilhjálmsson lætur taka við sig viðtöl i blööum um næstu bók, en þaðer árviss viðburöur, og bækur Thors eru yfirieitt þykkarien annarra höfunda. Nú biða menn spenntir eftir þvi, hversu þykk næsta bók veröur. Ef ekki væri Laxness þá gæti maður haldið af blaðaviðtölum við höfundinn að eitthvað væri að augunum i sænsku akademi- unni. En Thor er semsagt ijóst, að miðað við mannf jölda, eigum við ekki kall til fleiri nóbels- verðlauna Ibráð, hversu þykkar bækur sem viö skrifum. Þaðeróskaplega mikil tilvera aö koma til Parlsar, segir Thor I blaöaviðtali i gær. Og nú situr hann með sólstrandarhatt og puðar við að gera næstu bók lltiö eitt þykkari með degi hverjum. Svo manniegur er rithöfundur- inn að hann er ósköp glaöur, þegar loksins er komið sumar, en tekur fram að hann verði aö halda sig inni sem mest hann má. Það eina sem dregur hann frá vinnunni eru sundlaugarnar siðdegis og kjaftaþing, sem rit- höfundar geta auöveldlega lent á meöþviaö ráfaum borgina og ekkert við það að athuga. Það telst hins vegar til tið- inda, að Thor hefur nú samið við ’ , í \ nýjan forleggjara. Sú var tiöin aö Thor fékk eins og aðrir efni- legir rithöfundar, sem Ragnar I Smára tók upp á sina arma, send heim ritlaun i pósti með reglulegu millibili. En þar kom aö þvi að Thor fékk bréf frá for- leggjaranum, sem ekkihafði að geyma ávisun. 1 þvi var aöeins nóta þess efnis að menn liföu ekki endalaust á þvi að vera efnilegir. Eftir þetta geröi Thor innan- fjölskyldusamning við isafold um útgáfuá þykkum bókum. En sænski menningartölvuheilinn úti i Vatnsmýri var aidrei prógrammeraður fyrir Isa- foldarbækur, svo aö Thor hefur neyðst til aö yfirgefa fjölskyld- una og snúa sér til Iðunnar. Þó að isafoldarprentsmiðju hafi ekki tekist að breyta stagnál i saumnái (jafnvel þótt Thorsari hafi átt I hlut) er ekki þar með sagt að Iðunn geti það ekki. Svo má vel vera að Ragnari I Smára hafi skjátiast. Thor gæti sem- sagt allt i einu veriö kominn yfir þaðað veraefnilegur. Vel færiá þvi eins og stagnáiin sagði. Svarthöfði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.