Vísir - 08.08.1979, Page 2
VÍSIR
Miðvikudagur 8. ágúst 1979
Hvað gerðir þú um
verslunarmannahelg-
ina?
Kristinn Helgason, lagermaður:
Égvar I bænum, endaþurfti ég ab
sinna ýmsum verkefnum heima.
Lárus Hauksson, húsgagnasmið-
ur: Ég dvaldi i sumarbústað i
Kjósinni! Það var algjör klassi.
Hreinn Agdstsson húsgagnasmið-
ur: Skrapp i veiðitúr upp i Svlna-
dal, en fékk litiö.
Umsjón:
Anna Heiður
Oddsdóttir og
Gunnar E.
Kvaran.
16% GEGNUM þAK
Dæmi um orkutap I einbýlishúsi.
UMTALSVERÐUR KYNDINGAR
SPARNAÐUR ER AUDVELDUR
Orkumálastjóri skipaöi i
febrúarmánuði siðastliðnum
vinnuhóp um orkusparnaö i hit-
un húsa. Vinnuhópurinn hefur
nýverið skilað af sér áfanga-
skýrslu um störf sin og þær
niðurstöður sem komist hefur
verið aö.
t skýrslunni kemur margt
athyglisvertfram, aukþess sem
bent er á leiöir sem fara má til
að draga úr kyndingarkostnaöi
húsa i landinu.
Eins og fram kemur á með-
fylgjandi uppdrætti sem fylgdi
skýrslunni fara 28% af heildar-
orkutapi meðal einbýlishúss
fram i gegnum glugga og hurð-
ir. Næstmest er orkutapiö vegna
loftskipta, eða 25%, þá vegna
varmataps við veggi og þök,
16%, og loks um 15% gegnum
gólf.
Það er þvi ljóst að þeir sem
vilja stuðla aö sem minnstu
varmatapi geta það best með
þvi að hafa glugga sem allra
minnsta. Þáer I skýrslunni talið
algjörlega óverjandi að hafa
aðeins einfalt gler i gluggum, en
á hinn bóginn bent á, að ekki er
endilega nauösynlegt að setja
tvöfalt verksmiðjugler i stað-
inn. Er fullyrt að hvað ein-
angrunarhæfni varði þá sé
óverulegur munur á tveimur
rúöum (svokallað mixaö gler)
og verksmiðjuframleiddu tvö-
földu einangrunargleri.
Svo sem fram kemur eru svo-
kölluð loftskipti stór þáttur I
heildarorkutapi húsnæöis. Loft-
skipti er það þegar upphitaða
loftið i húsinu streymir út i
gegnum rifur og op og kalt loft
kemur I staðinn.
Skýrslan nefnir 5 ráð sem
beita megi til að draga úr óæski-
legu varmatapi vegna loft-
skipta. Þær aöferðir sem nefnd-
ar eru eiga það sameiginlegt að
vera hvort tveggja i senn, ódýr-
ar og einfaldar i framkvæmd.
1. Endurbæta glerisetningu þar
sem gustar inn meö gleri.
2. Komafyrir þéttilistum á opn-
anlegum gluggum og hurðum
þar sem þeir eru ekki nú þegar.
Endurbæta þarf og skipta um þá
lista sem eru lélegir. Til eru
nokkrar mismunandi gerðir
þéttilista og þétta þeir við mis-
jafnlega mikla samþjöppun.
Talið er að svokallaðir „slöngu-
listar” þétti best.
3. Gluggakrækjur eru oft van-
stilltar þannig að opnanlegu
gluggarnir leggjast illa aö kant-
inum. Eftir að skipt hefur verið
um þéttilista er einnig mikil-
vægt að stilla gluggakrækjur og
dyralæsingarjárn.
4. Þétta skal rifur milli eininga
i svokölluöum einingahúsum
innan frá. Hampi er þá troðið i
rifurnar og gjarnan „etafoam”
frauðlista. Siðan skal sprauta
kitti yfir.
5. Einnig má þétta rifur með
„polyurethan” froöu sem fæst i
túpum. Froðan þenst út og
myndar loft- og rakaþéttan
massa.
Með þessum einföldu aðferð-
um sem hér hafa verið nefndar
er talið að sparnaður við húshit-
un geti orðið 3-5% ef vel tekst til.
-GEK
Kjörhiti I herbergjum er mjög mismunandi og má spara umtals-
verða orku með þvi að stilla hitanum I hóf.
SKATTAR - SKATTAR - SKATTAR - SKATTAR - SKATTAR - SKATTAR
Aðalsteinn Hjálmarsson bifvéla-
virki: Var I bænum lengst af, en
skrapp þó upp á Akranes á sunnu-
dag.
Bryndis Kristjánsdóttir verslun- ■
arkona: Fór upp I Borgarnes i ■
seglbáti. Feröin upp eftir tók 17 ■
timaenaðeins6timal góðumbyr I
heim. |
ÚTTARR MÖLLER HÆSTUR FOR-
STJÖRA STÖRFVRIRTÆKJANNA
Opinber gjöld Sambands
Islenskra samvinnufélaga námu
um 600 milljónum á þessu ári og
næsta fyrirtæki fyrir neðan var
Flugleiðir meðum 287 milljónir.
Vfsi lék forvitni á að vita hvað
forstjórar 10 skatthæstu fyrir-
tækjanna greiða I opinber gjöld
á þessu áriog kom þá I ljós, að
Óttarr Möller, sem nýverið lét
af störfum hjá Eimskip greiðir
hæstu skatta af forstjórum
þeirra fyrirtækja sem þessi út-
tekt nær til.
Óttarr Möller greiöir rúmar
Erlendur Einarsson forstjóri SIS
Sigurður Helgason, forstj. Flugleiða
Óttarr Möller fy rrv. forstjóri Eimskip
Vilhjálmur Jónsson forstj. Oliufélagsins
Jón H. Bergs forstj. Sláturfélags Suðurlands
Indriöi Pálsson forstj. Skeljungs h.f.
Hildur Petersen forstj. Hans Petersen
önundur Asgeirsson forstj. Oliuverslunar Islands
Ólafur Haraldsson forstj. Fálkans
Sigurður Jónsson forstj. Sjóvátryggingafélagsins
Tekju skattur Eigna skattur Útsvar Barna bætur Samtais
3.822.557 594.910 1.441.800 0 6.147.628
6.436.083 338.026 1.879.500 100.660 8.931.477
7.185.049 808.476 2.070.000 0 10.480.535
3.963.957 270.966 1.302.000 0 5.796.669
2.858.562 429.593 1.103.600 0 4.610.837
4.524.254 451.263 1.398.300 100.660 6.654.977
302.313 0 257.400 0 613.135
1.697.719 570.658 928.700 0 3.381.769
1.767.005 164.722 826.700 402.632 2.520.809
3.008.143 463.020 1.227.700 0 4.946.780
10.4 milljónir króna I opinber
gjöld og samkvæmt útsvari hef-
ur hann einnig veriö tekjuhæst-
ur forstjóranna meö tæplega 19
milljónir I árslaun. Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða
greiöir næsthæstu gjöldin eöa
rúmar 8.9 milljónir og sam-
kvæmt útsvari hefur hann einn-
ighaft næsthæstu tekjurnar, um
17 milljónir króna.
Samkvæmt þessari úttekt er
Hildur Petersen, forstjóri Hans
Petersen h.f. meö lægstu gjöld-
in, en þess ber að geta, að hún
mun nýveriö hafa tekið við
starfi forstjóra hjá fyrirtækinu
þannig að hennar tölur gefa
væntanlega ekki rétta mynd af
forstjóratekjum. Þá skal þess
einnig getið, aö Landsbanki Is-
lands er númer niu I röö yfir
skatthæstu fyrirtækin en
stjórnendum þeirrar stofnunar
er sleppt i þessari úttekt.
-Sv.G.