Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 5
5
Umsjón:
Guönmndnr
Pétursson
VÍSIR
Miðvikudagur 8. ágúst 1979.
Spðir að Kennefly verði I
framboði en ekki carter
Robert Dole, eitt af forseta-
efnum Repúblikana.spáir þvi, að
Edward Kennedy verði fram-
bjóöandi Demókrata i forseta-
kosningunum 1980 — nema til
komi einhver óvænt fylgisaukn-
ing hjá Carter.
1 kvöldverðarboöi með blaða-
mönnum sagði Dole, sem var
varaforsetaefni Repúblikana I
siöustu kosningum, aö Repúblik-
anar ættu að miöa kosningaundir-
búning sinn við aö Kennedy verði
i framboði, en ekki Carter.
Sagði Dole, að eðlilegt væri, að
einkalif frambjóðenda i
forsetakosningum væri dregið
fram á siöur blaðanna, og slysið
við Chappaquiddick, þegar Mary
J Kopechne dó i bifreið Kennedys
fyrirlO árum, væri engin undan-
tekning.
Hinsvegar kvaðst hann sjálfur
ekki mundu hafa frumkvæöi aö
þvi, ef hann yrði i framboöi gegn
Kennedy, að Chappaquiddick-
slysið yrði tekið til umræðu. Sagði
Dole, aö þótt einkalif frambjóð-
enda kæmi til umfjöllunar, ætti
ekki að gera það að kosninga-
máli.
Hreinsanir (írak
Sérstaklega skipaður dómstóll I
írak hefur dæmt til dauða tuttugu
og tvo embættismenn, sem sak-
aðir eru um samsæri gegn stjórn
Saddam Hussein, forseta.
1 fréttatilkynningu frá Bagdad
segir, að dómstóllinn hafi þar að
auk dæmt 33 aðra i eins árs til
fimmtán ára fangelsi fyrir svip-
aðar sakir, en sýknaö 13.
Þessir dómar eru kveðnir upp
þrem vikum eftir að Saddam
Hussein, sem löngum hefur verið
með valdamestu mönnum I Irak,
var formlega viðurkenndur sem
aðalráðamaður og gerður að eft-
irbanni Al-Bakr hershöfðingja,
sem lét af forsetaembætti sakir
veikinda.
Elnu-gos
V-þýska geimrannsóknar-
stöðin Bochum fékk þessa
ljósmynd frá gervihnetti
sinum Tiros-N, en hana tók
gervitunglið af eldgosinu
úr Etnu. Myndin sýnir ljós-
lega Sikiley og meginlandið
i efra horninu, en strókur-
inn stendur upp úr eldfjall-
inu.
Dayan sakar USfl um
aö flraga taum flrada
vegna oiíukreppunnar
Heldur þykir hafa kólnaö
vinátta Bandarikjanna og ísraels
eftir aö Moshe Dayan, utanrikis-
ráðherra Israels, lýsti þvi yfir i
gær, aö stjórn Hvita hússins væri
farinað hallast á sveif með aröb-
um til þess að kaupa sér lausn á
orkukreppu U.S.A.
Þessi ummæli Dayans birtust i
blaðaviðtölum að loknum þriggja
daga beiskum viðræðum i Haifa,
þar sem Israel, Egyptaland og
Bandarikin hafa rætt möguleika á
sjálfstjórn til handa Palestinu-
aröbum á vesturbakka árinnar
Jórdan og á Gaza-svæðinu.
Samkomulag náðist ekki i þess-
um viöræðum nema i nokkrum
minniháttar atriðum, en grund-
vallarágreiningsefni eru enn
óleyst.
Egyptar, sem hafa marglýst
þvi yfir, aö þeir vilji, að
Palestlnuvandamálið verði tengt
friðarsamningum þeirra við
Israel, vilja, að fulltrúar
Palestinuaraba veröi viðstaddir
frekari viðræður um framtlö
þeirra. Þeir vilja leggja til grund-
vallar þeim viðræðum samþykkt
Sameinuöu þjóðanna nr. 242, en
þó breytta. Sú samþykkt er frá
1967 og laut að möguleikum til
friðar i Austurlöndum nær.
Israelsmenn telja sérhverja
breytingu á samþykkt nr. 242
hljóta leiða af sér endurskoðun á
skilmálum friöarsamnings lsra-
els og Egyptalands, sem undir-
ritaður var fyrr á þessu ári.
Skógareldur
á feröaslðö-
um á Spáni
Hundruð orlofsgesta hafa flúið
hinn vinsæla ferðamannastað
Lloret del Mar á Spáni vegna
skógarelda sem geisa þar I kring
og hafa kostað 22 manns lifið.
Yfirvöld staðarins segja, að I-
kveikjan sé af mannavöldum, og
er tjón á verðmætum ómælt.
Slökkviliðsmenn og her börðust
enn i morgun við að reyna að
hefta útbreiðslu eldsins til sumar-
bústaða, sem eru á dreif I skógin-
um umhverfis Lloret del Mar.
Hvasst var á þessum slóðum i
gær og breiddist eldurinn ört út.
Umlukti hann strax átta sumar-
bústaði og lokuðust inni i þeim
þessir 22, sem vita er að hafa orð-
ið eldinum að bráð. Voru það 11
karlmenn 5 konur og 6 börn, en
yfirvöldum er ekki kunnugt um,
hvort einhver þeirra voru útlend-
ingar, enda ógerningur að bera
kennsl á likin.
Enginn vafi þykir leika á þvi,
að eldurinn sé af mannavöldum.
Hann braust út á þrem stöðum
samtimis með nokkurra kiló-
metra millibili.
Lloret del Mar er sjávarþorp
með 10.000 fastaibúa, en mann-
fjöldinn kemst þar um sumar-
timann oft upp i 140.000, þvi að
staðurinn er mjög vinsæll af
frönskum, v-þýskum, breskum
og skandinaviskum ferða-
mönnum.
Skógarverðir segja, að um
1000 hektarar af skóglendi (ösp)
hafi eyðilagst i eldinum. Skógar-
eldar hafa verið tiöir á austur-
strönd Spánar siðustu mánuði og
hafa skógarverðir æ ofan i æ þóst
kenna þar mannshöndina að
verki.
Viða varð rafmagnslaust á
Costa Brava, þegar raflinur slitn-
uðu i eldinum við Lloret del Mar.