Vísir - 11.08.1979, Síða 3
MYNDAMÓT
Laugardagur 11. ágúst 1979.
3
i Los Angeles og vinn i New
York. Þaö hefur alla tiö veriö
þeytingur á manni og hann er
þreytandi til lengdar”..
„Tekuröu þátt I tiskusýning-
um?”
„Nei, ég vinn eingöngu meö
ljósmyndurum. Svo hef ég leikiö
i nokkrum sjónvarpsauglýsing-
um. Ég hef unniö viö þetta i þrjú
ár, þrjú erfiö ár. Þetta hefur
veriö skemmtilegur timi og ég
hef grætt ansi mikiö. Þaö er
nefnilega töluvert upp úr þess-
um „módelbransa” aö hafa i
Bandarikjunum, mun meira en I
Evrópu”.
100 þúsund dollarar
„Ertu þá ekki oröin flugrik?”
„Nei, ég er ekki rik, en þetta
gengur ágætlega hjá mér og ég
er ánægö”.
„Hvaö haföirðu miklar tekjur
i fyrra?”
„Ætli ég hafi ekki haft um eitt
hundrað þúsund dollara i fyrra
(um þrjátiu og fimm milljón Is-
lenskar flotkrónur) en ég tek
þaö fram, aö þetta var mjög
gott ár hjá mér.
Þaö er geysimikil samkeppni
iþessum „bransa” en ef maöur
er nógu haröur og nægilega
framagjarn, þá gengur þetta”.
„Hvers vegna fórstu út I þetta
starf?”
„Ég haföi kynnst þessu aö-
eins. Mamma var módel hér
áöur fyrr en hún vildi helst ekki
að ég færi út I sama „brans-
ann”. En einhvern veginn
æxlaöist þetta þó þannig. Ég
ætlaöi aö vinna mér inn smá-
aukatekjur meö tiskusýningum,
en annars stóö til aö ég yröi
dýralæknir”.
„Hvað auglýsirðu helst?”
„Ýmislegt, en þó aöallega föt,
hárgreiöslur og sjampó, og svo
snyrtivörur. Ég er til dæmis á
samningi viö stórt japanskt
snyrtivörufyrirtæki og sé um
allar auglýsingar fyrirtækisins,
sem fara á Bandarikja-
markað.”
„Hvaö helduröu aö þú eigir
mörg ár eftir á toppnum?”
„Ég held aö ég eigi eftir svona
3-5 ár, kannski lengri tima. Þaö
fer eftir þvi hvaö maður vill
leggja mikiö I þetta.
Bara fallegt andlit!
„Annars hefur það alltaf verið
draumurinn hjá mér aö veröa
leikari. Þess vegna hef ég verið
i leikskóla I New York. En sé
samkeppnin hörö i „módel-
bransanum” þá veröur hún enn
harðari ef ég fer út I leiklistina.
Þá hjálpar þaö ekki, hafi
maöur veriö módel. Fólk segir
bara: Hún getur ekkert leikiö.
Hún var módel og er sjálfsagt
bara fallegt andlit!
Annars finnst mér undarlegt
hvaö þaö eru fáar Islenskar
stúlkur sem vinna sem módel I
Bandarikjunum. Ég hef staðiö
sjálfa mig aö þvi I Reykjavik aö
skoöa stúlkurnar og ég hef séö
fjöldann allan af stúlkum sem
gætu náö langt I U.S.A.”
„Hvernig á módel að lita út?”
„Persónan hefur jafnmikiö
eöa meira aö segja en útlitiö.
Margar fallegar stúlkur
myndast afar illa meöan stúlk-
ur, sem viröast ekkert sér-
stakar, myndast hreint stór-
kostlega”.
Nú var Jens ljósmyndari far-
inn aö ókyrrast. Hann haföi
tekiö heila filmu af Brynju
meðan á viötalinu stóö og vildi
ólmur fá hana til aö sitja fyrir. í
beinu framhaldi af þvi var
Brynja spurð hvaö auglýsinga-
ljósmyndararnir tækju margar
filmur þegar þeir tækju auglýs-
ingamyndir.
„Það er misjafnt. En ætli þeir
taki ekki um þaö bil þrjár filmur
aö meðaltali (rúmlega hundraö
myndir) fyrir hverja mynd,
sem ætlunin er aö nota. Þetta
getur svo fariö allt upp I tuttugu
filmur”.
Aö lokum var Brynja spurð
hinnar slgildu spurningar,
hvernig henni likaði á lslandi.
„Mjög vel. Ég get vel hugsað
mér aö búa hér þegar ég verö
eldri. En meðan ég er i þessu
starfi er allt of rólegt fyrir mig á
tslandi, markaöurinn er of litill.
En mig langar mikiö til aö
halda jól hér og ég kem kannski
aftur I desember”, sagði
Brynja.
—ATA
„Þegar vel gengur er töluvert upp úr „módelbransanum” aö hafa”.
Mazda verksmiöjurnar í
Hiroshima eru taldar meö tæknilega full-
komnustu bílaverksmiöjum í heimi, enda
bera Mazda bílar þaö meö sér í hönnun
og öllum frágangi. Gerið samanburö.
Bílaborg hf. hefur enn einu sinni gert ótrúlega
hagstæða samninga fyrir árið 1980.
Árgerð 1980 byrjar að koma í september.
Vinsamlegast staðfestið pantanir á
MAZDA 323, MAZDA 626, MAZDA 929 I,
MAZDA RX7 OG MAZDA PICUP
BÍLABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 símar: 812 64 og 81299