Vísir - 11.08.1979, Blaðsíða 19

Vísir - 11.08.1979, Blaðsíða 19
Laugardagur 11. ágúst 1979. 19 hljómplata vlkunnar Gunnar Salvarsson skrifar: I Steve Forbert - Ative On Arrival Það gerist alltaf annað veifið að rekið er upp eins konar hróp i bandariskum blöðum og tiikynnt með við- eigandi irafári að nýr Bob Dylan sé kominn fram á sjónarsviðið, likt og sjálfur Messias væri að ganga i salinn. Flestir eru eflaust wðnir hálfleiðir á þess- um kunstum, enda eng- inn hinna nýju Bob Dyllanna staðið undir nafni, varla sinu, og hvað þá Bob Dylans. Fyrir nokkru ráku bandarlsku blööin upp enn eitt öskrið og bentu á Steve nokkurn Forbert sem nýjan Dylan. Aöur en lengra er haldiö skal þess getiö aö Loudon Wainwright III, Steve Goodman, Tom Waits og Randy Newman hafa allir veriö taldir nýir Dyllanar.CÞessi nöfn eru hér tlunduð til þess eins aö gera frásögnina trúveröugri). Ég gleymdi næstum þvi aö geta þessaö á slöasta ári geröist þaö dæmalausa undur aö náungi nokkur kom fram á þetta um- rædda sjónarsviö og hélt þvl blákalt fram aö hann væri raun- verulega Bob Dylan. Sumir hlógu, aörir mynduöu snyrti- lega grettu, og einhver geipsaði gtottandi. — Þetta var Dylan sjálfur þegar allt kom til alls. Jæja, 23ja dra stráknaggur, Steve Forbert, söngvari og lagasmiöur frá Meridian I Miss., er kominn á kreik meö Not Play” eöa Þú getur ekki unniö nema þú leikir meö” er heitiá lagi af þessari plötu For- berts og eftir þessu hefur dreng- urinn fariö. Fyrir tveimur árum kvaddi hann kóng og prest I heimabæ slnum og tókstefnuna áNew York. Hann fékk aö lúraí KFUM-heimili og tók siöan stefnuna á Greenwich Village. Þarna tók hann aö visu skakkan pól I hæöina þvl hann hélt I sinni barnslegu einfeldni aö Greenwich Village væri sami tónlistarstökkpallurinn og áriö 1966. En hann var bara tíu árum á eftir tlmanum. Hann létþó skyssu sem þessa ekki stöðva sig og hóf nú upp raust sína og gitarhljóma á strætum úti. Eftir langa mæöu kom Hilly Krystal eins og frels- andi engill og bauö Steve aö leika nokkra söngva sina I CBGB, sem er nafnkunnur rokkklúbbur, og geröi Steve svo um hrlö viö allþokkalegar und- irtektir. Þarna heyröi Danny nokkur Fields I pilti og geröist hans manager eins og þeir segja upp á ensku. 10. april skrifaöi Forbert undir samning viö Nemperor Records. Enn hefur ekki nokkur maöur mér vitanlega hallmælt þessari fyrstu plötu Steve Forberts, Alive On Arrival. Spurningin er bara hver veröur fyrstur til þess. Ekki ég. —Gsal. slna fyrstu plötu, Alive On Arrival, oghannfær sem sé ekki lakari auglýsingu en þá frá bandarlsku pressunni aö enn einn nýr Dylan sé fram kominn. Nú skal enginn dómur á þaö lagöur hvort Steve Forbert stendur undir þessu, enda sllkt aukaatr iöi aö lfcja má viö hvern annan tittlingasklt. Hitt er víst aö drengurinn er um margt býsna frambærilegur tónlistar- maður. Hann viröist metnaöar- gjarn og oft glettilega naskur á orö og tóna, sem er vlst meira en hægt er aö segja um marga aöra sem bera frumburði slna á borö f vinylumbúöum anno 1979. You Cannot Win If You Do eldhúsiö Umsjón: Þórunn l. Jónatans* dóttir RABARBARAKAKA 1. Skeriö rarbarbarann i bita 3, Þeytiö eggjarauöur og sykur vel saman 2. Blandiö saman sykri og dreifið yfir 4. Blandiö ffnskornum möndlum út I Algengast er að matreiöa rabarbara í graut og sultu. En hvernig væri að matreiöa rabarbaraköku, sem ljúffengan eftirrétt og jafnvel aö bera meö þeyttan rjóma. 6-700 gr. rabarbaraleggir u.þ.b. 1 1/2 dl. sykur 2 tsk. maisenamjöl Krem: 4 egg 1 1/2 dl. sykur 100 gr. möndlur eöa valhnetukjarnar Þvoiö og þurrkiö rabarbarann og skeriö hann 1 bita. Leggiö bit- ana I smurt eldfast form. Blandiö saman sykri og maisenamjöli og dreifiö yfir. Látiö lok eöa álpappir yfir mót- iö. Setjið mótiö inn I 225 C heitan ofn I u.þ.b. 15 minútur. Krem :* Hrærið vel eggjarauöu og sykur. Finskeriö eöa hakkiö möndlurnar og blandiö saman viö. Stifþeytiö eggjahvltur og blandið þeim varlega saman viö kremið. Breiöiö kremið jafnt yfir rabarbarann og setjiö loklaust mótiö inn I 175 C heitan ofn I u.þ.b. 30 mln. Berið rabarbarakökuna fram heita meö þeyttum rjóma. 5. Setjiö eggjahvítuna út I og blandiö henni varlega saman viö kremiö 6. Berið síöan kremiö jafnt yfir rabarbarann.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.