Vísir - 11.08.1979, Page 5
VlSIR
Laugardagur 11. ágúst 1979.
Hughes þandi út umsvif
sin frá því aö framleiöa
og selja áhöld til oliubor-
ana, i hönnun nýrra flug-
vélategunda og kvik-
myndageröar meö fræg-
um stjörnum eins og Jean
Harlow, Lönu Turner og
Katharine Hepburn.
Howard Hughes kvaddur hinstu kveöju f april 1976.
myndinni „The Outlaw”. A
sinum tima gengu skopsögur
um gerö þeirrar myndar, en
Hughes lét hanna nýja gerö af
brjóstahöldum fyrir myndina til
aö brjóst leikkonunnar nytu sin
sem best.
Flugkappinn og
hönnuðurinn Hughes
Flugið átti jafnan hug hans og
á þvi sviði vann hann afrek sem
hafa skipað honum á bekk meö
hinum ódauölegu i flugsögunni.
Hann tók til viö smiöi flugvéla
og átti hann um skeiö 78% i
Trans World Airlines, TWA
flugfélaginu og flugvélaverk-
smiöjur sem framleiddu nýjar
geröir flugvéla sem hann hann-
aði sjálfur. Hann var sjálfur
mikill flugkappi og af afrekum
hans á þvi sviöi má nefna
heimsmet i hraðaflugi sem hann
setti 1937 og timamet i flugi um-
hverfis jöröina áriö 1938.
Hann var einmitt i reynslu-
flugi i stærstu flugvél, sem
smiöuö hafði veriö i þá daga (aö
sjálfsögöu i hans eigin flugvéla-
verksmiöju), þegar hann lenti i
flugslysinu, sem olli straum-
hvörfum i lif hans. Eftir þaö
kom hann ekki fyrir almenn-
ingssjónir.
Furðusögur
Ýmsir getgátur voru uppi'um
þaö aö Howard heföi skaddast
svo I andliti aö hann vildi ekki
láta nokkurn mann sjá sig. Siö-
ari ljósmyndir hröktu þó þær
hugmyndir. Arið 1957 gekk hann
að eiga kvikmyndaleikkonuna
Jean Peters, sem var 21 ári
Hér er Hughes 28 ára gamall.
Ungur ofurhugi meö glæsta
framtiöardrauma.
yngri en hann, en hann var þá 52
ára. Hún hvarf inn i einangrun-
arheim hans, en gafst upp eftir
14 ár og þau skildu 1971.
Þaö má vissulega segja, aö lif
hans i einangrun siðustu tuttugu
ár ævinnar hafi verið alger and-
stæöa við liferni hans á yngri
árum. Furðusögurnar voru lika
fljótar að komast á kreik og oft-
ar en einu sinni var hann áiitinn
dauður.
Eitt sinn höföuðu hlutafjár-
eigendur i ýmsum fyrirtækjum
hans mál til þess að fá úr þvi
skoriö hvort hann væri lifs eða
liöinn. Dómarinn gaf honum
tveggja vikna frest til aö sanna
að hann væri á lifi.
Sumar þessar sögur tóku
jafnvel fram römmustu drauga-
lýsingum, eins og sú, sem komst
á kreik skömmu eftir að honum
var smyglað út úr spilaviti i Las
Vegas um miönæturbil áriö
1970. Hann var sagöur lita út
eins og hálftröll, með hár niöur
á mitti og tuttugu sm. langar
neglur á fingrum og tám.
Fáir útvaldir fengu aö sjá
hann á flakkinu milli eyja I
Karibahafi þar sem hann var
stöðugt að leita aö nýju hæli, þar
sem hann gat veriö óhultur um
aö einangrun hans yrði ekki rof-
in. Hann var jafnan umkringdur
lifvöröum og þeim fáu, sem
fengu að hitta hann i eigin per-
sónu, bar flestum saman um aö
lýsingarnar á útliti hans hefðu
ekki viö rök aö styöjast. Hann
heföi litiö breyst i útliti, það
væri þá helst skeggiö sem hann
lét sér vaxa.
Þegar Howard Hughes lést, 5.
april 1976, skildi hann eftir sig
mörg hundruö miiljaröa i eign-
um og peningum en enga erföa-
skrá. Hafa af þeim sökum
sprottiö upp málaferli, sem enn
er ekki séö fyrir endann á.
— Sv.G.
Um miðjan aldur
uröu þáttaskil I lifi
Hughes. Hann seldi
hlutabréf sin f TWA,
kvæntist ieikkonunni
Jean Peters og tók
yfir i spilavitum Las
Vegas
coMair
Bláu greiðurnar
V íí'í I
ní U t f u > '? r
Uinboö:
Eldborg sf
simi 2.5818
Klapparstig 25" 27
verð og gæði eru miðuðvið Fagfolk
• • • Fasteignakaup Fasteignasala Fasteignaskipti
Fasteignamiðlunin
SBIIv Ármúla 1 - 105 Reykjavík Símar 31710-31711