Vísir - 11.08.1979, Blaðsíða 9
Laugardagur XI. ágúst 1979,
9
Spáð í
vindinn
Seinni hluti
Fyrri hluti greinarinnar birtist i siðasta Helgarblaöi (4. ágúst)
Þar var m.a. rætt um orkukreppuna, sem skolliö hefur á, meöal
annars vegna hækkandi olluverös, og hvernig hún hefur breytt af'
stööu okkar til vindsins sem hugsanlegs orkugjafa. Þar var og f jall
aöum vindhverfla og vangaveltur um þaöhvernig geyma má vind
orkuna.
Texti: Jóhann J. Jónsson
AL
Hversu mikil orka?
En hversu stór er sú orkulind
sem þýtur i lofti yfir landiö. Skv.
frétt i rikisútvarpinu nýlega
telja Danir aö þeir gætu full-
nægt 20% af orkuþörf sinni um
næstu aldamót meö vindorku.
En vindur er sagöur helmingi
öflugri hér en á meginlandinu.
Vindorka eykst i 3ja veldi af
aukningu vindhraðans. Þannig
myndi helmingi meiri vind-
styrkur á islandi ekki skapa aö-
eins helmingi meiri orku heldur
átta sinnum meiri.
Þessi staðreynd hefur mikla
þýðingu þegar velja á vind-
hverfli stað. Þvi hærri staður
eða þvi meiri „vindrass”, þeim
mun meiri orka i 3ja veldi.
Þvi er spáð að um næstu alda-
mót geti vindorka framleitt 10%
þeirrar raforku sem Banda-
rikjamenn þarfnast.
öll orkuþörf yrði 13 TWh/a á
íslandi skv. áöurnefndri grein
Dr. Jóhannesar Nordal. Ef að-
stæður hér yrðu sambærilegar
og i Bandarikjunum ætti
vindorka að geta framleitt 1,3
TWh/a fyrir Islendinga. Raf-
orkuþörf árið 2000 er spáð 6 TWh
I sömu grein og gæti vindorka
þvi framleitt 0.6 TWh/a eða 600
GWh. Þetta er jafnt og einoghálf
Búrfellsvirkjun i fyrra tilfelli en
70% af Búrfellsvirkjun i þvi
siðara.
En þetta eru aðeins getgátur.
Ýtarlegar rannsóknir eru
nauðsynlegar til þess að meta
möguleika okkar á þessu sviði.
Hinn aðal*ókostur vindorkunnar
(annar var lognið) er hversu
dreifð þessi orka er og erfitt að
safna henni saman til þess að
beisla hana. Vindelfan er glfur-
lega stór eins og að framan er
getið. Vatnsorkan byrjar I
rigningardropunum, sem falla á
jörðina en náttúran er okkur svo
hliðholl að safna þeim saman i
stórfljót sem við getum virkjað
á hagkvæman hátt. Þessu er
ekki þannig farið með vindinn,
þótt viða séu strengir. Ef við
notuðum gömlu hollensku vind-
myllurnar, þyrftum við slikt
gifurlegt magn að kostnaðurinn
yrði upp úr öllu valdi og þar að
auki myndum við aöeins nota
neðsta og lygnasta hluta vinds-
ins. En framfarir i smiði vind-
hverfla eru stórstigar. í timariti
Consolidated Aluminium
„Reflections” 1978 segir frá þvi
að verið sé að reisa á eyjunni
Magdalen i St. Lawrence flóa i
Canada stærsta vindhverfil I
heimi sem sé 50 metrar á hæð og
framleiði 230 KWh. Rafmagnið
á aö fara inn I rafveitukerfi
eyjarinnar og sjá 600 heimilum
fyrir rafmagni. Það myndi
þurfa 652 slika hverfla til þess
að framleiöa 0,6 TWh raforku.
Fyrirtæki það, sem er að smiða
vindhverfilinn fyrir Magdalen
eyju er að þróa annan hverfil,
sem á að geta framleitt 5 MWh.
Sá yrði 350 metrar á hæð. Þaö
þyrfti 30 slika til þess aö fram-
leiöa 0,6TWh/a raforku. 12 slik-
ir hverflar gætu séð járn-
blendinu á Grundartanga fyrir
raforku eftir stækkun bræðsl-
unnar. 1 þessum dæmum er gert
ráð fyrir að vindur blási 4000
tima á ári. Ef til vill getur meiri
vindstyrkur hérlendis breytt
þessum tölum eitthvað.
17.600 hverflar
En hægt er aö skoöa aðrar
viðmiðanir.
Vindelfan, sem þýtur yfir landiö, er gifurlega stór og gerir stærstu vatnsföllin okkar á jöröu niöri nánast
litilsmegn’Ug. Myndin sýnir veöurkortaf tslandi og er kröpp lægöyfir Iandinu.
Ef 230 KW vindhverflar væru
að meðaltali á hverjum 5 fer-
kilómetrum landsins (vötn og
jöklar ekki meðtaldir) væri
hægtað framleiða 4 TW/h á þótt
vindur blési ekki nema fjórða
hluta úr ári, tæplega þó. Þá
þyrfti sautján þúsund og sex-
hundruð hverfla.
Ef 5 MW hverflar væru
notaðir á hverja 10 ferkflómetra
landsins að meðaltali væri hægt
að framleiöa 88 TW/h á ári ef
vind gæfi fjórðung úr ári tæp-
lega. Þá þyrfti átta þúsund og
áttahundruð 5 MW hverfla. Þá
væri vindorkan orðin lang-
stærsta orkulind landsins/jafn-
stór og 105 Búrfellsvirkjanir.
1 viðræöum við menn um
þessi mál, sérstaklega tækni-
menntaða menn, hefur komið
fram sú skoðun að vindorkan sé
ekki þess virði að virkja hana. í
fyrsta lagi sé hún svo dreifð að
kostnaðurinn við virkjunina
verði allt of mikill. Þetta leiði
svo af sér að þeirra mati svo-
kallaða sjónmengun. Það þurfi
slikan fjölda af vindmyllum að
sá fjöldi verði til lýtis.
Þá hafa náttúruverndarmenn
áhyggjur af fuglalifi.
Þetta eru hvort tveggja gild
sjónarmið. Það er ljóst að við
þurfum að biöa þeirrar þróunar
að vindhverflar verði stórir og
afkastamiklir. Land vort er
strjálbýlt og nægilegt landflæmi
þar sem slikir vindhverflar yrðu
úr augsýn lengst af, I óbyggðum
eða uppi á háum fjöllum.
Náttúrufræðingar vorir þurfa
að skýra hegðun fugla og vara
við staðsetningu vindhverfla
þar sem fuglum getur stafað
hætta af. Til hvers er að hug-
leiöa orkuvinnslu með vindorku,
þegar við eigum slika gnótt
orkumöguleika I vatni og jarð-
varma,37 TWh umfram þarfir
áriö 2000?
Islenskur iðnaður.
Astæðurnar eru margar.
Þegar kostnaður við virkjun
vindorku er oröinn hinn sami og
virkjun vatnsorku hefur enn
einn valkostur til orkuöflunar
bæst við. Möguleikarnir eru
orönir fleiri. Einn kostur vind-
orku fram yfir sólarorku og
vatnsorku er sá, að hún er meiri
á vetrum þegar meiri orku er
Vetnisbili, sem Mercedes Benz sýndu á vörusýningunni I Hannover I aprii s I.
Vindmyllur, eins og listamenn
„National Geographic” sjá
þær.
þörf. Hún gæti þvi styrkt orku-
öflunina.
Vindhverflar þeir, sem að
framan getur, eru sérsmiðaðir
úr áli. Hér gæti orðiö grundvöll-
ur að islenzkum iðnaði.
Ef aðrar þjóðir geta framleitt
rafmagn úr vindorku, þá getum
við þaö ekki aðeins lika, heldur
höfum við að mörgu leyti betri
aðstöðu til þess en aðrar þjóöir.
Þannig er vindorkan mikil við-
bót við þá orkumöguleika sem
við eigum fyrir. Isiand er að
verða eitt hagkvæmasta land til
orkuframleiöslu I heiminum.
Vindorkan bætist við þær orku-
lindir, sem fyrir eru, og er hrein
og ómenguð og endurnýjar sig
stöðugt.
Landsvirkjun hefur gefið út
rit eftir Dr. Agúst Valfells,
verkfræðing, þar sem hann
leggur áherslu á nauðsyn þess
aö við hagnýtum okkur orku
landsins og hér hefjist skeið
orkubúskapar. Ég er honum
mjög sammála. Þá gæfist um
leið tækifæri til þess að veita
fiskveiðum og landbúnaöi
nauðsynlegt skjól og svigrúm,
svo endurskipuleggja megi
þessa atvinnuvegi. Lifsbeltin
tvö fái frið til að gróa sára sinna
og ná betri og meiri afkasta-
getu.
Útflutningur
Orkuframleiðsla til út-
flutnings (vetni) þarf að verða
ein af hinum styrku undirstöð-
um atvinnulifs okkar I framtið-
inni. Allar iðnaðarþjóðir heims-
ins leggja mikið fé i rannsóknir
á þvi hvernig nota megi aðra
orku til þess að knýja farartæki
framtiðarinnar, þegar bensin og
olia eru þrotin. A vörusýningu I
Hannover var sýndur bill knú-
inn af vetni og læt ég mynd af
honum fylgja þessari grein.
Við Islendingar þurfum að
fylgjast með þessari þróun
vegna mikilla möguleika okkar.
Ekki væri i of mikið ráðist þótt
lagt væri I kostnað við að
mennta nokkra menn til þess að
fylgjast með möguleikum og
þróun I hagnýtingu vindorkunn-
ar. Þessir menn ynnu að sjálf-
sögöu á vegum Orkustofnunar
Islands. Hafa þarf gott sam-
band við orkustofnanir annarra
þjóða. Evrópubúar og Japanir
hljóta að leggja mikiö i slikar
rannsóknir. Gert er ráð fyrir að
orkustofnun Bandarikjanna
(ERDA) legði 12 milljónir doll-
ara (4milljarða króna) til rann-
sókna á nýtingu vindorku árið
1976.
Tæknikreppa
Vatn og loft hafa lengi verið
litils metin á Islandi, talin ódýr
og einskis virði. Slik eru jafnan
áhrif ofgnóttarinnar. Hérlendis
hefur tæknikreppa jafnan rikt
lengst af. Forfeður okkar
króknuðu úr kulda á landi, en
eldur brann undir. Þeir sultu
með eitt auðugasta matarbúr
heimsins undan ströndum sin-
um. Vatn og loft eru einhver
dýrmætustu og hreinustu efni
jarðarinnar. Hvern skyldi hér
áður hafa grunað að forsjónin
hafi hlaðið okkur Islendinga
slikum auöæfum, sem við höf-
um jafnan forsmáð og litilsvirt.
1 sögunum þúsund og ein nótt
segir frá þvi aö þegar Aladin
kemur til móður sinnar með
gimsteina á stærð við egg, halda
þau mæðginin i fáfræði sinni að
þeir séu skrautkúlur úr gleri,
einskis viröi og leggja þau til
hliðar i nokkur ár.
Hvenær er hið ótrúlega fjar-
stæðukennt?
I sögu Jóns Trausta, Heiðar-
býlinu, sér Kjartan framtlöina I
hillingum. Bætta mannabústaði
og bættar samgöngur, jafnvel
járnbrautir. Bleika akra og
slegin tún, afl ánna beislað til
framfara. Ef slikur Kjartan
þeirra tima gæti litast um i dag,
myndi hann sjá aö þróunin
hefur farið langt fram úr þvi,
sem menn þá töldu „fagra fjar-
stæðu”.
Andi töfralampans hans
Aladins blæs um Island og mun
geta skapað slik óþrjótandi
verðmæti að gimsteinarnir sem
sagan I ævintýrinu sagði frá,
eru aðeins glerkúlur hjá þvi.