Vísir - 11.08.1979, Page 20

Vísir - 11.08.1979, Page 20
20 Laugardagur 11. ágúst 1979. hœ krctkkar! Umsjón: Anna Brynjúlfsdóttir Þarna eru systurnar á baki gamla, góöa úlfaidans, sem þær hittu alltaf niöri viö ströndina i Kisi, ana), þar sem villtu dýrin eru f riðuð. Við vorum þar í tjaldi. Við kveiktum allt- af eld fyrir framan tjald- ið til þess að dýrin kæmu ekki of nálægt. En þarna sáum við alls konar dýr rétt hjá, fíla, Ijón, gír- affa, og hýenur. Það var svo skrýtið að heyra hljóðin í þeim á nótt- unum. Það líktist helst hlátri. Aparnir forvitnir Einu sinni fórum við í göngutúr og skildum tjöldin eftir opin. Á meðan komu apar og kúkuðu inni í einu tjald- inu. Aparnir voru ægilega forvitnir. Einu sinni vor- um við í bílnum þá kom einn apinn inn í bílinn og opnaði töskuna hennar tær, og skoðuðum fiskana. Það var mjög gaman, fiskarnir voru alla vega litir, sumir röndóttir og mjög skraut- legir. Þegar við vorum í Afríku áttum við alltaf hunda. Fyrsta tíkin okkar hét Týra og hún eignaðist einusinni 12 hvolpa. Ég á engan hund núna, en nú á ég naggrís, sem heitir llli. Hann er brúnn og hvítur og svartur. í leikskóla Og llli kom í fangið á Ernu, þegar hún var að segja mér frá dvölinni í Afríku, en eitt átti ég eft- ir að spyrja hana um og það var skólavist hennar í Kenýa. — Þegar við vorum í Kisi, sagði Erna, var ég í leikskóla. Þar voru aðal- „Gamía úífaídanum þótti svo gott að drekka kók” — segir Erna Ólafsdóttir, 9 ára, sem segir hér á síðunni frá ýmsu sem gerðist, þegar hún var í Afríku Litil Afrfkustelpa, sem fjölskyldan kynntist. Litla stelpan var á munaöarleysingjahæli, þar sem mamma Ernu vann stundum sem sjálfboðaliöi. Þarna eru Erna og Ingibjörg systir hennar fyrir utan húsiö þeirra I Nairóbí. Þær voru aö fara i afmæli, þegar myndin var tekin og Erna er klædd i Rauöhettubúning. Erna ólafsdóttir heitir níu ára stelpa, sem á heima við Hraunbæinn í Reykjavík. En Erna hef- ur ekki alltaf átt heima þar. Þegar hún var þirggja ára f luttist hún til Kenýa í Afríku með for- eldrum sínum og tveimur eldri systrum. Ég hitti Ernu og mömmu hennar nýlega á heimili hennar og þær sögðu mér ýmis- legt f rá dvölinni í Af ríku, en þar dvöldust þau í rúmlega f jögur ár. Það var ágætt að koma heim til Islands, sagði Erna, en það var líka ágætt að vera í Kenýa. Það var svo skemmtilegt margt þar, t.d. þegar við fórum niður að ströndinni í Kisi. Við bjuggum í Kisi i 2 1/2 ár. Kisi er í Vestur- Kenýa, skammt frá Viktoríuvatni. Fyrir jólin fórum við niður að ströndinni og vorum þar í litlu húsi. Við fórum út og klipptum grein af pálma- tré. Það var jólatréð okk- ar. Við skreyttum það með ýmiss konar skrauti og röðuðum jólapökkun- um í kring. Svo borðuðum við hangikjöt og annan ís- lenskan mat, sem við fengum sendan heiman frá Islandi. A bak úlfalda Þarna niðri á strönd- inni var gamall úlfaldi, sem við heilsuðum alltaf upp á, þegar við komum. Við f engum að fara á bak úlfaldanum og þetta var svo sniðugur úlfaldi, að hann vildi alltaf fá að drekka kók og bjór. Það var sælgætið hans. Stundum fórum við í dýragarðana (þjóðgarð- I Afriku kynntist Erna mörgum dýrum og þarna er hún á bakinu á stórri skjaldböku. Ingibjargar systur. Hann f ann þar sælgætispoka og tók hann og þaut í burtu með hann. Við vorum líka einu sinni að keyra í bílnum og höfðum opna glugg- ana. Þá öskraði mamma allt í einu: slanga. Það var svört mamba rétt fyrir utan gluggann, en hún var svo hrædd, þegar mamma öskraði, að hún hvarf ofan í jörðina. Það sem mér þótti nú einna skemmtilegast í Afríku, var að kafa. Þegar við vorum við ströndina köfuðum við í sjónum, sem var mjög lega innfædd börn og ég átti þar marga vini. I Nairóbí var ég í barna- skóla, þar sem öll kennsla fór fram á ensku. Við systurnar vorum allar jafnlangan tíma á dag í skólanum, frá klukkan 8- 3 og við fengum mat í skólanum. Það var skóla- bíll, sem sótti okkur og ók okkur heim. Nú er ég í Árbæjarskóla i Reykjavík. Ég byrjaði þar í sjö ára bekk og hef verið í tvo vetur. Það er gott að vera í Árbæjar- skólanum, og ég hef góð- an kennara. Hún heitir Halldóra Kristinsdóttir.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.