Vísir - 28.08.1979, Blaðsíða 8
8
VÍSIR
|Þri6judagur
28. ágúst 1979.
Útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davfð Guömundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Höröur Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaöamenn: Anna Heiður Oddsdóttir, Axel Ammendrup, Friðrik Indriðason,
Gunnar E. Kvaran, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir,
Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður
Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V.
Andrésson, Jens Alexandersson, Þorir Guðmundsson. Utlit og hönnun: Gunnar
Trausti Guðbjörnsson, Magnús Ölafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar og skrifstofur:
Siöumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Ritstjórn: Siöumúla 14, simi 86611 7 linur.
Askrift er kr. 3.500 á mánuöi
innanlands. Verö i lausasölu
kr. 180 eintakið.
Prentun Blaöaprent h/f
Skæruhernaður „jafnaðarmanna”
Skipulagsleysi verkalýðs-
hreyfingarinnar hér á landi er
með þeim eindæmum, að á öðru
eins mun vera leitun í víðri
veröld. Hver smákóngur stjórnar
sínu félagi, og hver þeirra leikur
þann leik að reyna að semja við
vinnuveitendur á eftir öðrum í
von um, að honum takist að fá
eitthvað fleiri verðbólgukrónur í
kauphækkun fyrir sitt fólk en
smákónginum i næsta ríki hafði
áður tekist. Auðvitað leiða þessi
vinnubrögð ekki til bættra lífs-
kjara hjá launþegum, heldur að-
eins til sífellds óvissuástands í
skiptum vinnuveitenda og
launþega og endalausrar tog-
streitu milli launþegahópanna.
Launþegaforingjarnir reyna
að telja sjálf um sér og öðrum trú
um, að baráttan sé á milli þeirra
og vinnuveitenda. En í raun og
veru eru þeir alltaf í verðbólgu-
kapphlaupi hver við annan.
Alræmdust hafa vinnubrögð
skæruliðaforingjanna í hópi
íslenskra verkalýðsrekenda orðið
í sambandi við atlögur þeirra
gegn flugfélögunum og skipa-
félögunum. Þar hefur það marg-
oft gerst, að sárafámennir
starfshópar hafa stöðvað allan
flug- eða skipaf lotann. Það blasir
nú við allra augum, hvernig þessi
Nú eru allar horfur á þvf, aö útgáfa a.m.k.
fjögurra dagbltöanna stöövist vegna verk-
fallstveggja manna. Ástæöan: Þeir, sem
stjörna skæruhernaöi þeirra,haga sér eins
og skæruliöaforingjar flugmannahópanna.
vinnubrögð hafa leikið okkar
stærsta flugfélag, sem á i svo
miklum erfiðleikum, að ekkert
nema kraftaverk virðist geta
orðið því til bjargar. Auðvitað
eiga ytri aðstæður mikinn þátt i
þeim erfiðleikum, en skæruhern-
aður harðsvíraðra sérhagsmuna-
hópa gegn félaginu hefur átt
stóran þátt í að grafa undan
afkomumöguleikum þess. Jafn-
vel eftir að Ijóst var um af-
leiðingar hinna stórfelldu áfalla,
sem félagið varð fyrir á sl. ári,
gátu skæruliðaforingjar annars
f lugmannahópsins ekki á sér set-
ið að lama starfsemi þess á
mesta annatíma nú í sumar. Og
einmitt þessa dagana skrifa
skæruliðaforingjar hins flug-
mannahópsins þingmönnum og
fleirum bréf, þar sem þeir
óskapast yfir því, að forráða-
menn félagsins muni hafa í
hyggju að taka í notkun flugvél-
ar, sem hugsanlegt er, að það
geti staðið undir að reka, en ekki
einhverjar flugvélar, sem flug-
mennirnir vilja sjálfir fá. Nú
segja þeir áhuga sinn á
þjónustunni við landsmenn fyrst
og f remst ráða gerðum sínum, en
sá áhugi hefur viljað gleymast,
þegar þessir umhyggjusömu
menn hafa langtímum saman
stöðvað alla flugþjónustu við
fólkið í landinu.
Einn skæruliðahópurinn í svo-
kallaðri verkalýðshreyf ingu,
sem hugsar sér til hreyfings
þessa dagana, er félagsskapur,
sem nefnist Grafíska sveina-
félagið. Félagsmenn þess starfa
við offsetprentun. Af þeim sök-
um starfa þeir m.a. við prentun
dagblaðanna, en eru þó aðeins
örlítið brot af þeim prenturum,
sem við þau starfa. Þessi hópur,
sem kvað vera stjórnað af hinum
mestu „jafnaðarmönnum" allra
jafnaðarmanna, hefur nú boðað
takmarkaðar verkfallsaðgerðir
vegna þess að hann sættir sig
ekki við sömu kauphækkanir og
aðrar starfsstéttir hafa fengið,
þ.á.m. vinnufélagar þeirra í
prentsmiðjunum. Þannig eru nú
hugmyndir þessara „jafnaðar-
manna" um jöfnuð í
framkvæmd! Þeir ætla sér að
auki að hef ja aðgerðir sínar með
vaktavinnubanni, sem myndi
hafa í för með sér, að sum dag-
blaðanna a.m.k. mundu stöðvast.
Þar á meðal er Þjóðviljinn! En á
hinn bóginn getur vel verið, að
t.d. Morgunblaðinu takist að
halda áfram útgáfu sinni, þótt
erfiðleikum verði það sjálfsagt
bundið.
Reynslan er búin að sýna það
margsinnis, að menn kaupa sér
aðeins örstuttan stundarf rið með
því að láta undan sérhagsmuna-
klíkum verkalýðsrekendanna,
hvort sem þær eru litlar eða stór-
ar. (slenskur atvinnurekstur er
ekki svo í stakk búinn um þessar
mundir, að«hann geti litið fram
hjá þessari reynslu.
Þaö vakti athygli I siöasta
Vlsisralii, hve oft starfsmenn
ralisins gátu sýnt stööuna i
keppninni, og hve fljótir þeir
voru aö reikna hana út. Skýr-
ingin er sú, aö þeir höföu tölvu
sér til aöstoöar og fyrir utan þaö
aö reikna út stööuna, sýndi töiv-
an hana iika á sjónvarpsskerm-
um, sem komiö var fýrir viös-
vegar um Sýningahöilina. Þessi
tölva, sem notuö var, er af teg-
undinni Digital PDP 11/3 frá
töivudeiid Kristjáns ó. Skag-
fjörö hf.
Visir forvitnaðist fyrir
skömmu um tölvuna hjá fyrir-
tækinu og fyrir svörum af þess
hálfu var Frosti Bergsson,
deildarstjóri i tölvudeildinni.
Frosti sagöi, aö tölvan væri
örtölva meö tvöfaldri „disk-
ettustöö”, en þaö þýöir aö minni
tölvunnar rúmar allt aö einni
milljón stafa.
„Þetta er mjög fjölhæf tölva
og hægt að nota hana i hinum
margvislegustu verkefnum.
Þaö fer einungis eftir forritinu
og hvernig vélabúnaöur er val-
inn saman hvaö hægt er aö láta
hana gera,” sagöi Frosti.
Stækkunarmöguleikar tölv-
unnar eru miklir, og hægt er aö
bæta ýmsum útbúnaöi viö tölv-
una eftir þeim verkefnum sem
talvan þarf aö leysa.
„Sem dæmi um fjölhæfni tölv-
unnar er ágætt aö telja upp
nokkur af þeim fyrirtækjum
sem nota hana,” sagði Frosti.
„Þaö er til dæmis Islensk end-
urtrygging, Verkfræöistofa Sig-
uröar Thoroddsen, Borgarbók-
haldiö, Orkustofnun. auk þess
sem tölvan er notuö sem
kennslutæki á Bændaskólanunu
á Hvanneyri og í Fjölbrauta-
skólanum i Breiöholti.
Þaö má stækka vélina all
verulega. Þaö má setja i hana
stærri minnisdiska þannig að
hún muni allt að 20 milljónir
slikar tölvur?
„Nei. Prógrammiö var þaö
einfalt aö starfsmenn BtKR
gátu séö algjörlega um stórn á
tölvunni allan timann og þeir
höfðu ekki til aö bera neina
tölvuþekkingu fyrir.
Annars er það forritið, sem er
mestur vandinn aö gera, en eftir
þvi vinnur tölvan. Forritið er
eftir Snorra Agnarsson hjá
Reiknistofnun háskólans og
hann var eina til tvær vikur aö
vinna það”.
— Hvað er tölvudeildin hjá
Kristján ó. Skagfjörð stór?
„í dag eru starfsmenn deild-
arinnar niu. Sem dæmi um það
hve deildin hefur stækkað má
nefna, að starfsmenn deildar-
innar voru þrir fyrir þremur ár-
um í tæplega 15 fermetra hús-
næöi. Nú erum viö aftur á móti
niu og erum i um 300 fermetra
húsnæöi og deildin er enn aö
vaxa,” sagöi Frosti.
Hérlendis munu vera um 40
tölvur af tegundinni PDP. 11 i
gangi viö hin margbreytilegustu
verkefni.
Tölvudeild Kristjáns C. Skag-
fjörð hf. hefur reynt að fremsta
'megni að lækka sem mest verö
tölva og i þeim tilgangi hefur
deildin reynt aö komast aö sem
hagstæöustum kaupum á auka-
búnaöi og er hann þess vegna
ekki alltaf frá sama fyrirtæk-
inu. Má hér nefna minnisdiska
og minniseiningar og fleiri hluti.
„Viö viljum byggja upp al-
hliöa tölvufyrirtæki með þekk-
ingu til þess aö bjóöa upp á sesn
hagkvæmasta lausn án þess aö
binda okkur við einn aöila,”
sagöi Frosti.
Aö lokum spuröum viö Frosta
hvaö tölva eins og sú.sem notuð
var i Visisrallinu. kostar. Kvaö
hann hana kosta einhverstaðar
á bilinu 6-7 milljónir króna.
- SS
Tölvan getur munað
um 20 milljónlr slafal
Tölva svipuö þeirri er notuö var til útreikninga i Visisrallinu, nema hvaö viö þessa tölvu er tengdur
ýmiskonar aukabúnaöur. Þessi töiva sér m.a. um bókhald Kristjáns Ó Skagfjörös.
Visismynd. ÞG.
stafa, siöan má breyta henni
meö þvi aö taka úr henni prent-
kort og bæta öörum viö og má
meö þvf auka afköst hennar allt
að þrefalt og eru þá 7-10 út-
stöövar tengdar við vélina, sem
allar geta unniö samtimis.”
— Ef viö vikjum aftur aö Vis-
israllinu. Nú skilst mér að
starfsmenn rallsins hafi unnið
viö tölvuna. Þarf ekki sérhæft
starfsfólk til þess aö vinna viö