Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 4

Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ís- lenska ríkið af kröfu útgerðarfélags sem vildi fá veiðileyfi fyrir skip sem fyrrverandi eigendur höfðu afsalað til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins gegn greiðslu úreldingarstyrks. Kröfu útgerðarfélagsins um tæplega 50 milljóna króna skaðabætur var vísað frá dómi. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður ógilt stað- festingu sjávarútvegsráðuneytis á þeirri ákvörðun Fiskistofu að veita ekki veiðileyfið og dæmt útgerðinni 30 milljóna króna bætur. Dóm Hæstaréttar skipuðu að þessu sinni þau Garðar Gíslason, Guðrún Er- lendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. Árið 1994 sótti þáverandi eigandi Stokksness VE 700, nú Stokksness RE 123, um úreldingarstyrk til Þró- unarsjóðs sjávarútvegsins á grund- velli þágildandi laga. Fallist var á umsóknina og var greiddur úreld- ingarstyrkur að fjárhæð rúmlega 39 milljónir króna. Skilyrði styrkveit- ingar var að skipið yrði tekið af skipaskrá, réttur til endurnýjunar ekki veittur og veiðiheimildir sam- einaðar aflaheimildum annars skips. Í dómi Hæstaréttar segir að þetta hafi gengið eftir af hálfu styrkbeið- anda og lýsti hann því yfir að af- skráning skipsins væri varanleg af sinni hálfu. Í því fælist að hann myndi aldrei eiga neinn þátt í því að skipið kæmi á ný á íslenska skipa- skrá, hvorki sem fiskiskip né skip annarrar gerðar. Fólst í úrelding- unni að annaðhvort yrði skipinu fargað eða það selt úr landi. Skipið var síðan selt til Hagangur Corporation Inc., sem skráð var í Belize, með kaupsamningi 28. mars 1995. Skipið lá þó áfram við bryggju á Fáskrúðsfirði. Forsvarsmaður út- gerðarfélagsins Eystrasalts keypti skipið 15. maí 1996 fyrir hönd V.H. Viðskipta ehf. af North Ocean Ltd., sem hafði sama heimilisfang í Belize og fyrrgreindur kaupandi. Útgerð- armaðurinn sótti í desember 1998 um leyfi til veiða í atvinnuskyni fyrir skipið, sem skráð hafði verið Stokks- nes RE 123 hinn 20. febrúar 1998. Með ákvörðun Fiskistofu 19. ágúst 1999 var beiðninni hafnað og vísað til þess að endurnýjunarrétti og veiðileyfi skipsins hefði verið af- salað til Þróunarsjóðs sjávarútvegs- ins 17. febrúar 1995 af þáverandi eigendum gegn greiðslu úreldingar- styrks. Staðfesting ráðuneytis ógilt Ákvörðun Fiskistofu var kærð til sjávarútvegsráðuneytisins, sem staðfesti hana í janúar 2000. Héraðs- dómur ógilti hins vegar staðfestingu ráðuneytisins og taldi að útgerðar- félagið gæti ekki verið bundið við samning, sem forsvarsmenn þess hafa ekki átt aðild að, og ekki hefði verið þinglýstur sem kvöð á skipinu. Hæstiréttur taldi hins vegar að Eystrasalt væri bundið af þeim samningi, sem gerður var um úreld- ingu skipsins. Sá samningur, sem væri reistur á skýrum fyrirmælum laga, væri enn í gildi og bakaði Eystrasalti sömu skyldur og styrk- þega á sínum tíma. Því var íslenska ríkið sýknað af kröfunni. Fær ekki leyfi fyrir úrelt skip úrlega að gæta okkur á að virða það þak,“ segir Guðmundur. ,,Framundan eru frekari viðræður um það sem nefnt hefur verið áfram- hald umbótaferlisins innan WTO, þar sem ríkin taki á sig frekari skuldbind- ingar. Þegar við horfum fram í tím- ann mun þetta þak, sem við erum háð- ir í dag, einungis lækka, þannig að svigrúm íslenskra stjórnvalda er lítið ef nokkuð til að taka upp nýjar fram- leiðslutengdar stuðningsaðgerðir um- fram þær sem eru í gildi í dag.“ Aðildarríkin veita hvert öðru aðhald í nefndastarfi Guðmundur bendir á að WTO starfar ekki á sama hátt og t.d. Eft- irlitsstofnun EFTA, heldur veita að- ildarríkin hvort öðru aðhald í nefnda- starfi innan stofnunarinnar. Einstök aðildarríki, ekki síst sauð- fjárútflutningsríki á borð við Ástralíu og Nýja-Sjáland, hafi gert athuga- semdir við röksemdir Íslands fyrir að telja beingreiðslur til sauðfjárbænda sem grænar stuðningsaðgerðir. ,,Við höfum gefið okkar svör og skýrt þessar aðgerðir eins og best við getum og hvernig við teljum þær samræmast samningnum. Þetta er bara eitt af þessu fjölmörgu álitamál- um sem eru í skoðun hjá nefndinni hverju sinni,“ segir Guðmundur. Aðspurður hvort hann teldi að því gæti komið að Íslendingar þyrftu að endurskoða þessa túlkun á greiðslum til sauðfjárbænda, sagði Guðmundur erfitt að spá fyrir um það. ,,Ég á von á því að í framhaldinu muni sjónir manna beinast í miklu meiri mæli að framkvæmd skuldbind- inga en var í upphafi, þar sem aðal- viðfangsefnið í Úrúgvæ-viðræðunum var að ramma landbúnaðinn inn, ef svo má að orði komast. Þetta er atriði sem við þurfum að vera meðvitaðir um, eins og bent er réttilega á í bréfi utanríkisráðuneytisins. Það gæti vel til þess komið á einhverjum tíma- punkti að við þyrftum að breyta þessu. En við erum ósammála þeim þeim þjóðum sem hafa gagnrýnt þetta og það yrði þá sjálfsagt að koma til einhvers konar málsmeðferðar inn- an stofnunarinnar áður en að því kæmi,“ segir Guðmundur. um hætti tengdar framleiðslu. Þessar greiðslur eru háðar lækkunar- skuldbindingum samningsins, þar sem aðildarríkin skuldbinda sig að draga úr markaðstruflandi innan- landsstuðningi við landbúnað í áföng- um, alls um 20% á sex ára fram- kvæmdatímabili 1995-2000. Svo- nefndar bláar greiðslur eru undan- þegnar greiðslur en þær grundvallast á að um framleiðslutakmarkandi stuðningsaðgerðir sé að ræða og geta t.d. miðast við fastan fjölda dýra. Grænu greiðslurnar eiga hins veg- ar ekki að tengjast framleiðslu land- búnaðarafurða. Grænn stuðningur á að standast þær kröfur að hafa ekki áhrif á framleiðslu eða vera verð- stuðningur við framleiðendur. ,,Minnt er á í bréfinu [bréfi utanrík- isráðuneytis til landbúnaðarráðu- neytis] að við erum háðir ákveðnu þaki í WTO hvað varðar gular greiðslur, þ.e. framleiðslutengdan innanlandsstuðning og að þegar horft er til framtíðar þá þurfum við nátt- GUÐMUNDUR B. Helgason, ráðu- neytisstjóri landbúnaðarráðuneytis- ins, er sammála þeim sjónarmiðum sem fram koma í bréfi utanríkisráðu- neytisins til landbúnaðarráðuneytis þar sem vakin er athygli á gagnrýni Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) á að íslensk stjórnvöld skuli skilgreina beingreiðslur til sauðfjár- bænda sem ,,grænar“ greiðslur. Enn- fremur er bent á að Ísland geti ekki gengið lengra í stuðningi við landbún- aðinn eins og fram kom í frétt Morg- unblaðsins sl. sunnudag. ,,Þetta eru sjónarmið sem við erum mjög vel meðvitaðir um og sammála í alla staði,“ segir Guðmundur. Gular, grænar og bláar greiðslur til landbúnaðarins Innanlandsstuðningi við landbúnað er yfirleitt skipt upp í þrjá flokka skv. landbúnaðarsamningi WTO, eða í svonefndar gular, grænar og bláar greiðslur. Gular greiðslur eru stuðn- ingsaðgerðir sem eru með einhverj- Landbúnaðarráðuneytið um gagnrýni WTO Sammála sjónarmiði utanríkisráðuneytis UMFERÐ verður í fyrsta skipti hleypt yfir nýja brú mislægra gatna- móta Breiðholtsbrautar og Reykja- nesbrautar í Mjódd í dag en brúin tengir saman Nýbýlaveg og Breið- holtsbraut. Einnig verður umferð beint að flestum að- og fráreinum gatnamótanna en frárein af brúnni niður á Reykjanesbraut til norðurs verður þó ekki opnuð fyrr en um miðjan október. Þeir sem koma nið- ur Breiðholtsbraut og hyggjast aka Reykjanesbraut til norðurs þurfa því enn um sinn að aka um bráðabirgða- tengingu við Stekkjarbakka. Þá verður tenging frá Nýbýlavegi að Skemmuvegi opnuð síðar. Flestar leiðir verða hins vegar greiðar um gatnamótin en í frétta- tilkynningu frá Vegagerðinni segir að væntanlega taki það ökumenn tíma að átta sig á öllum aksturs- stefnum. Ökumenn eru því hvattir til að sýna aðgát og tillitssemi og hafa jafnframt í huga að gatnamótin verða áfram vinnusvæði. Vegagerð- in vekur sérstaka athygli á því að nú þurfa þeir sem aka suður Reykjanes- braut og ætla upp Breiðholtsbraut að halda sig á hægri akrein. Morgunblaðið/Árni Sæberg Horft til norðurs yfir mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar, sem eru að komast í gagnið. Umferð hleypt á nýju brúna ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Spáni í dag í undankeppni HM. Leikurinn fer fram í bænum Teurel á spænsku hásléttunni, hefst kl. 10 að ís- lenskum tíma og er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni TVE sem næst á Breiðbandinu hér á landi. Jör- undur Áki Sveinsson landsliðs- þjálfari tilkynnti byrjunarliðið í gær sem er óbreytt frá sigurleikn- um gegn Ítalíu á Laugardalsvelli á dögunum, að því undanskildu að Eva Sóley Guðbjörnsdóttir Breiðabliki kemur inn í stað Guð- laugar Jónsdóttur, sem leikur með Bröndby í Danmörku, en hún er meidd. Nær óbreytt lið Kvennalandsliðið leikur á Spáni í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.