Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 6

Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BT KRINGLAN OPIÐ Í DAG 13-17 BARA Í DAG 1.899 VHS 899 VIKAN 23/9 – 29/9 ERLENT INNLENT  14 AÐILAR, flestir er- lendir, skiluðu inn yfirlýs- ingu um að þeir hefðu áhuga á að gerast kjöl- festufjárfestir í Landssím- anum. Þeirra á meðal eru Telenor í Noregi, Detecon í Þýskalandi og JP Morg- an Partners í Bandaríkj- unum.  27 MILLJÓNA króna vinningur kom á tromp- miða í Heita potti Happ- drættis Háskólans á mánudag. Tvær vinkonur eiga miðann í félagi.  Einbýlishúsalóðir í Arn- arneslandi verða boðnar til kaups á næstu vikum, að sögn Jóns Ólafssonar, eiganda landsins.  ELDUR kom upp á Hótel Lind á fimmtudags- kvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en mikinn reyk lagði um hótelið svo að þurfti að rýma það en það hýsir einnig sjúkra- hótel Rauða krossins.  AUSTURRÍKISMAÐUR var tekinn með 67.485 e- töflur á Keflavíkur- flugvelli. Markaðsvirði efnisins er um 240 millj- ónir.  TVÆR bifreiðir brunnu til kaldra kola eftir kapp- akstur á kvartmílubraut- inni í Kapelluhrauni á þriðjudagskvöld. Fernt var í bílunum og slösuðust tveir alvarlega.  FRIÐRIK Ólafsson, sonur Ólafs Guðjónssonar, fyrrv. flugumferðarstjóra, lék sér við Osama bin Laden í Sádi-Arabíu sem barn. Bin Laden kom við á Keflavíkurflugvelli árið 1989. Ríkisábyrgð á trygg- ingum flugfélaga RÍKISSTJÓRNIN ákvað að gefa út bráðabirgðalög sem heimila ríkisstjórn- inni að veita ábyrgð á tryggingum ís- lenskra flugfélaga vegna hernaðarað- gerða, hryðjuverka eða áþekkra atvika. Ríkisábyrgðin hljóðar upp á 2.700 millj- arða króna og gildir til 25. október. Flugfélögin stóðu frammi fyrir því að flug stöðvaðist á miðnætti sl. mánudag hefði ábyrgð ríkisins ekki komið til. Dómstólar taka sér óheimilt vald DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í erindi á málþingi Lögfræðinga- félags Íslands að það gæti haft alvar- legar afleiðingar fyrir allar forsendur lýðræðislegra stjórnarhátta í þjóðfélag- inu þegar dómstólar tækju sér óheimilt vald til að blanda sér í fjárstjórn rík- isins án þess að bera á nokkurn hátt ábyrgð á að endar nái saman eða á af- komu og tekjuöflun ríkissjóðs að öðru leyti og vísaði þar í öryrkjadóm hæsta- réttar. Davíð sagði að dómstólar ættu að setja niður deilur en ekki magna þær. Uppsagnir hjá Flugleiðum SIGURÐUR Helgason, forstjóri Flug- leiða, gerir ráð fyrir að afkoma félags- ins versni um einn milljarð á þessu ári vegna áhrifa af hryðjuverkunum í Bandaríkjunum. Félagið ætlar að bregðast við þessu með því að segja upp 183 starfsmönnum og fækka stöðugild- um um 273, verð á flugferðum verður hækkað um 5–10% og dregið verður saman í flugi félagsins um 18% í vetr- aráætlun og um 11% í sumaráætlun næsta árs. 32% samdráttur verður í flugi til og frá Bandaríkjunum, 39 flug- mönnum verður sagt upp og 53 flug- freyjum. Bandaríkjamenn og Pakistanar sammála BANDARÍKJASTJÓRN upplýsti á miðvikudaginn bandamenn sína í Atl- antshafsbandalaginu (NATO) um það til hvaða aðgerða hún vill grípa í því skyni að hafa uppi á meintum bakhjörl- um þeirra sem frömdu hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september. Fóru Bandaríkjamenn þó ekki fram á beina aðstoð bandalagsins. Þá lauk á mið- vikudaginn viðræðum Bandaríkja- manna og herforingjastjórnarinnar í Pakistan, nágrannaríki Afganistans, og var haft eftir hershöfðingja að á fundunum hefðu menn verið fullkom- lega á eitt sáttir um það hvernig brugð- ist skyldi við hryðjuverkastarfsemi og hvernig reynt skyldi að uppræta hana. Blóðbað í Sviss ÓÐUR maður vopnaður hríðskota- byssu, riffli, skammbyssu og hand- sprengju réðst á fimmtudaginn inn á þingfund í héraðsþinginu í svissnesku kantónunni Zug og gekk berserksgang og myrti fjórtán manns auk þess að svipta sjálfan sig lífi. Er þetta mesta blóðbað sem orðið hefur í Sviss. Mað- urinn var 57 ára Svisslendingur, og að sögn lögreglu fannst „játningarbréf“ heima hjá honum þar sem hann talar um „dag hefndarinnar á Zug-maf- íunni.“ Hafði maðurinn lengi átt í úti- stöðum við dómskerfið í Zug. Leiðtogafundur í Mið- austurlöndum STJÓRN Ísraels og heimastjórn Pal- estínumanna sömdu á miðvikudaginn um að vinna að varanlegu vopnahléi, um það bil ári eftir að nýjasta bylgja intifata-uppreisnar Palestínumanna hófst. Shimon Peres, utanríkisráð- herra Ísraels, og Yasser Arafat, forseti heimastjórnar Palestínumanna, urðu ásáttir um þetta á fundi á miðvikudag- inn.  ALLAR áburðarflug- vélar í Bandaríkjunum voru kyrrsettar á mánu- daginn eftir að í ljós kom að Mohammed Atta, einn þeirra sem talinn er hafa framið hryðjuverkin 11. september, hafði fyrr á árinu kannað möguleika á að festa kaup á slíkri flugvél. Munu hann og fé- lagar hans hafa kynnt sér náið rekstur slíkra flug- véla. Óttast er að með slíkum vélum geti hermd- arverkamenn beitt sýkla- vopnum á byggð með skelfilegum afleiðingum.  SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði á fundi með frétta- mönnum á miðvikudaginn að „vestræn siðmenning hefði yfirburði yfir hinn íslamska menning- arheim.“ Vöktu þessi orð Berlusconis hörð við- brögð bæði í arabaheim- inum og Evrópu. Sagði framkvæmdastjóri Araba- bandalagsins, Amr Mussa, þetta ganga „langt út fyrir öll skyn- semismörk,“ og krafðist þess að ítalska stjórnin bæðist afsökunar. Evr- ópusambandið fordæmdi einnig orð Berlusconis.  SAMTÖK flugmanna í Norður-Ameríku, sem í eru 67 þúsund bandarísk- ir og kanadískir flug- menn, hafa hvatt til þess að lög verði sett sem heimili að flugmenn beri vopn í stjórnklefum flug- véla. Segja samtökin að þetta gæti komið í veg fyrir flugrán. TÍSKUVIKAN í Mílanó stendur nú sem hæst og hátískuhúsin keppast við að sýna hvað þau hafa upp á að bjóða fyrir vorið 2002. Eitt þeirra er ítalska tískuhúsið La Perla sem lagði línurnar í kvenfatnaði fyrir vorið á föstudag en yfirhönnuður tískuhússins er íslenskur fatahönn- uður, Steinunn Sigurðardóttir. Línan sem kynnt var á sýningunni er sú fyrsta sem Steinunn hannar fyrir fyrirtækið en það hefur hing- að til verið þekkt fyrir nærfatnað fremur en hátískufatnað. La Perla er rótgróið ítalskt fjöl- skyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1958 og er í eigu Masotti- fjölskyldunnar. Fyrirtækið hóf fer- il sinn sem eins konar saumastofa en starfsemin fólst í fyrstu ein- göngu í handgerðum nærfatnaði fyrir yfirstéttarkonur á Ítalíu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og nú er fyrirtækið í fremstu röð í framleiðslu hágæða- nærfatnaðar sem seldur er um all- an heim. Alls eru verslanir La Perla um 50 talsins í öllum heims- álfum en á Ítalíu eru 15 verslanir. Fyrirtækið er vel þekkt víðsvegar um heim fyrir vandaðan kven- nærfatnað en með tískusýningunni á föstudag hóf það innreið sína á hátískumarkaðinn. Að sögn Steinunnar er La Perla að breyta stefnu sinni töluvert með því að færa sig inn á hátískumark- aðinn. Steinunn var ráðin sem yf- irhönnuður (design director) til fyrirtækisins í mars og hún segir það hafa verið skemmtilegt verk- efni að fá að byggja upp alveg frá grunni. Steinunn er þó fjarri því að vera nýgræðingur í tískuheiminum en hún hefur starfað hjá nokkrum af þekktustu tískuhúsum heims. Hún útskrifaðist sem fatahönn- uður frá Parsons School of Design í New York árið 1986 og hefur síð- an þá starfað hjá Calvin Klein, Gucci og Ralph Lauren. La Perla hefur getið sér orð í gegnum tíðina fyrir hönnun nær- fatnaðar og var eigendum þess því mikið í mun að hátískulínan bæri þess merki að vera af sama meiði og hin vinsælu nærföt. Vísun í upp- runa fyrirtækisins og hefðir í nær- fatahönnun leyna sér því ekki í nýju línunni þar sem kvenleikinn er allsráðandi. La Perla hefur mikla þekkingu á kvenlíkamanum eftir að hafa hannað kven- nærfatnað í nær hálfa öld og í nýju vorlínunni er sú þekking nýtt í bland við þekkingu og reynslu al- íslensks fatahannaðar en Steinunn vann náið með Masotti-fjölskyld- unni við hönnunina. Útkoman var sérlega glæsileg sýning sem vakti mikla athygli fjölmiðla og annarra ytra. Íslenskur yfir- hönnuður hjá ítölsku tískuhúsi Steinunn Sigurðardóttir, yfir- hönnuður hjá La Perla. Mílanó. Morgunblaðið. GÓÐ staða er á vatnsbúskap Lands- virkjunar um þessar mundir. Þrjú stærstu uppistöðulónin; Þórisvatn, Hágöngulón og Blöndulón, eru nán- ast full og miðað við árstíma telst það mjög gott. Að sögn Eggerts Guðjónssonar hjá orkusviði Landsvirkjunar er staðan líka góð miðað við hvernig væntingar voru um vatnsbúskapinn fyrir sumarið. Lítill snjór var á há- lendinu í vor og af þeim sökum var búist við slöku sumri hvað þetta snertir. Góð tíð að undanförnu hefur hins vegar lengt sumartímann og bráðnun jökla haldið lengur áfram en vanalega. Stóru lónin að fyllast Landsvirkjun FLUGFÉLAGIÐ Jórvík hf. hefur yfirtekið rekstur Leiguflugs Ísleifs Ottesen en samningar hafa tekist milli flugfélaganna þess efnis. Jórvík „hyggst með því auka við flugvéla- kost sinn til leigu- og áætlunar- flugs,“ að því er segir í fréttatilkynn- ingu. „Afgreiðsla Jórvíkur verður í hús- næði leiguflugs við flugskýli númer eitt við flugturninn í Reykjavík. Flugfélagið Jórvík er með þessu að efla rekstur sinn til að geta boðið við- skiptavinum sínum víðtækari og öfl- ugri þjónustu,“ segir í tilkynning- unni. Jórvík tekur yfir flug- rekstur LÍO TVEIR grímuklæddir menn reyndu að ræna pítsusendil í undirgöngum í Seljahverfi í Breiðholti aðfaranótt laugardags. Mennirnir ógnuðu sendlinum með skrúflykli. Hann kastaði í þá pítsunum sem hann hafði meðferðis og tókst að koma sér und- an mönnunum á hlaupum og síðan í bíl. Hann sakaði ekki og tókst mönn- unum ekki að ræna hann peningum. Lögreglunni í Reykjavík hefur ekki tekist að hafa hendur í hári mannanna en talið er að um unga menn sé að ræða. Ekki liggur ljóst fyrir hvort árás- armennirnir pöntuðu pítsurnar sjálf- ir en pöntunin var gerð úr leyninúm- eri. Mjög fámennt var utandyra í mið- borginni aðfaranótt laugardags og heldur rólegt, að sögn lögreglu. Nokkuð var um að ökumenn ækju ölvaðir og voru t.d. sex staðnir að slíku af lögreglunni í Reykjavík. Reynt að ræna pítsusendil FLUGFÉLAG Íslands mun ekki hætta að fljúga til Hornafjarðar fyrr en í lok október. Til stóð að hætta þessu flugi í lok september. Bæjaryfirvöld á Hornafirði höfðu tjáð flugfélaginu áhyggjur sínar vegna óvissu um þróun í flugi til Hornafjarðar í kjölfar ákvörðunar þess um að hætta flugi þangað í lok septembermánaðar. Flugfélagið ákvað að verða við áskorun bæjaryf- irvalda á Hornafirði um að endur- skoða ákvörðun sína og hefur því frestað lokun flugleiðarinnar um einn mánuð. Flogið verður átta sinnum í viku á leiðinni í október og mun afgreiðsla Flugfélags Íslands því verða áfram opin þann tíma. Flogið verður í október Flug til Hafnar ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.