Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 10
10 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Inngangur bráðamóttöku við Landspítala Hringbraut er bæði ætlaður starfsmönnum og sjúklingum. Við hlið inngangsins eru aðkoma sjúkrabíla, vörumóttaka og sorpgámar. Dönsku ráðgjafarnir taka þenn-
an inngang sem dæmi um þá ringulreið sem ríki á spítalalóðinni við Hringbraut.
Morgunblaðið/Ásdís
FYRIR árslok verða lagðar fram tillög-ur um framtíðaruppbyggingu Land-spítala – háskólasjúkrahúss. Spítalinner stærsti vinnustaður landsins, meðhátt í fimm þúsund starfsmenn og þar
stunda um 500 nemar í heilbrigðisgreinum nám
á ári hverju. Flestir landsmenn eiga einhvern
tímann á ævinni leið um ganga Landspítalans,
t.d. koma nær sjö af hverjum tíu börnum sem
fæðast á landinu í heiminn á fæðingardeildinni
við Hringbraut. Síaukin starfsemi undanfarna
áratugi, án þess að hægt væri í öllum tilfellum
að ganga að sérhæfðu húsnæði vísu, hefur kall-
að á ýmsar bráðabirgðalausnir. Sífellt er verið
að breyta húsnæði og lagfæra til að leysa brýn-
asta vandann, t.d. byggja smáhýsi fyrir rann-
sóknarstofur á lóðinni við Hringbraut, setja nið-
ur lausar stofur á lóðinni í Fossvogi fyrir
skrifstofur lækna og svo mætti lengi telja. Nú
er hins vegar lögð áhersla á að leysa þennan
vanda til frambúðar, en þar eru ýmsir kostir.
Nefnd undir forsæti Ingibjargar Pálmadótt-
ur fyrrverandi heilbrigðisráðherra vinnur nú að
tillögum um framtíðaruppbyggingu spítalans
og byggir þar m.a. á ýmsum hugmyndum sem
ráðgjafar heilbrigðisyfirvalda hafa mótað á
undanförnum árum um sameiningu þeirrar
starfsemi sem nú fer fram við Hringbraut og í
Fossvogi, í kjölfar sameiningar sjúkrahúsanna
á síðasta ári.
Fjórir kostir
Þeir kostir, sem litið hefur verið til vegna
framtíðaruppbyggingar Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH), eru fjórir. Sá fyrsti er að
flytja alla meginstarfsemi að Hringbraut, en
geðdeildir, endurhæfing o.fl. yrði í Fossvogi.
Gera tillögur ráð fyrir að áfram megi nýta
stærstan hluta bygginga við Hringbraut, ein-
hverjar þarf að rífa og byggja nýjar á grunni
þeirra, sem og að byggja nokkur ný hús á lóð-
inni sem nú er sunnan Hringbrautar.
Annar kosturinn er að byggja upp aðalspítala
í Fossvogi, en hafa geðdeildir, endurhæfingu og
skylda starfsemi við Hringbraut. Sjúkrahúsið í
Fossvogi, sem margir nefna enn Borgarspítal-
ann í daglegu tali þótt starfsemi sjúkrahúsanna
hafi nú öll verið sameinuð undir heiti Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss, yrði nýtt áfram, en
reisa þyrfti fleiri hús á lóðinni. Í Fossvogi er
landrými nóg, en byggja þyrfti meira þar en við
Hringbrautina.
Þriðji kosturinn er að byggja nýtt aðalsjúkra-
hús frá grunni á landi Vífilsstaða í Garðabæ.
Þessi kostur þýðir að sjálfsögðu mestu upp-
bygginguna, en ekki vantar landrýmið.
Fjórði kosturinn, og sá sem hefur kannski
minnst verið haldið á lofti, er að halda starfsemi
áfram bæði við Hringbraut og í Fossvogi, en
byggja upp á báðum stöðum til að hægt verði að
ná fram sem mestri hagræðingu í rekstrinum.
Sjúkrahúsin í Reykjavík, þ.e. ríkisspítalar og
Sjúkrahús Reykjavíkur, voru sameinuð í mars á
síðasta ári. Frá þeim tíma hafa komið upp fjöl-
mörg álitamál, því misvel hefur gengið að færa
starfsemi saman til að ná fram sem mestri hag-
ræðingu.
Fyrir skömmu samþykkti stjórnarnefnd
Landspítalans tillögur framkvæmdastjórnar
um sameiningu sérgreina og tilflutning deilda.
Gert er ráð fyrir að sameiningu sérgreina verði
að mestu lokið í árslok 2002. Ýmsar tilfæringar
þarf að gera innan LSH á meðan á þessum
breytingum stendur, jafnvel draga úr starfsemi
tímabundið í sumum greinum, þar til þær kom-
ast á ætlaðan stað.
Með samþykkt stjórnarnefndarinnar er end-
anlega ákveðið að næstu árin, eða þar til ætluð
uppbygging LSH verður komin í gagnið, skipt-
ist starfsemin sem hér segir: Í Fossvogi verður
slysa- og bráðamóttaka, bæklunarskurðdeild,
heila- og taugaskurðdeild, lýtalækningadeild,
háls-, nef- og eyrnadeild, smitsjúkdómadeild,
lungnadeild, taugadeild, almenn lyflækninga-
deild og lítil barnadeild tengd sérgreinum á
sjúkrahúsinu í Fossvogi.
Við Hringbraut verður kvennadeild, barna-
deild, geðdeild, þvagfæraskurðdeild, almenn
skurðdeild, brjóstholsskurðdeild, augndeild,
krabbameins- og blóðmeinadeild, hjartalyfja-
deild, gigt- og nýrnasjúkdómadeild, almenn
lyfjadeild og sú bráðamóttaka sem þarf fyrir
sumar deildanna, t.d. barnadeild og kvenna-
deild.
Miklar tilfæringar
Af yfirliti yfir sameiningu sérgreina er ljóst,
að mikið verk verður að sameina þær. Sem
dæmi má nefna að þrengt verður tímabundið að
barnadeild við Hringbraut, því hún þarf að gefa
eftir hluta af núverandi húsnæði sínu í maí á
næsta ári. Það húsnæði verður tekið undir
skurðdeild í september, að loknum endurbót-
um. Hagur barnadeildarinnar vænkast svo um
munar í nóvember á næsta ári, þegar hún verð-
ur flutt í nýjan barnaspítala.
Annað dæmi er af lungnadeild, sem nú er
rekin í Vífilsstaðaspítala. Hún verður flutt í
Fossvog í þremur áföngum, fyrst legudeildin í
janúar nk., ný aðstaða starfsmanna verður
tilbúin í mars og í apríl verður göngudeild
lungna- og ofnæmislækninga komin í Fossvog-
inn, í uppgert húsnæði þar.
Þá flytjast taugalækningadeildir frá Hring-
braut og Grensás í Fossvoginn í ágúst á næsta
ári og um leið fær blóðskilunardeild við Hring-
braut úrlausn sinna mála.
Loks má svo nefna dæmi af skurðlækninga-
sviði. Nú er hafin vinna við endurnýjun hús-
næðis við Hringbraut og í janúar verður það
tilbúið fyrir almenna skurðdeild. Þá flytur al-
menna skurðdeildin frá Fossvogi að Hring-
Tillögur danskra ráðgjafa um framtíðaruppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss
Tillögur um framtíðaruppbyggingu Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss eiga að liggja fyrir í desember. Ragnhildur
Sverrisdóttir segir að helst sé litið til sjúkrahúslóðanna við
Hringbraut, í Fossvogi og á Vífilsstöðum, en danskir ráðgjafar
telji vænlegast að aðalspítali landsins verði í Fossvoginum.
Meginstarfsemi
LSH verði í Fossvogi