Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 15

Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 15 OFNAR BJÓÐUM ÝMSAR GERÐIR AF OFNUM TIL HÚSHITUNAR FRÁ: VEHA, BAUFA SUPERIA OG FLEIRUM Ofnasmiðjan Flatahrauni 13 220 Hafnarfirði Leitið tilboða hjá okkur. Sími 555-6100 Fax 555-6110 TVÆR konur, fyrrverandi for- sætisráðherrar og svarnir óvinir, berjast um völdin í þingkosningum sem fram fara í Bangladesh á morgun. Hvernig sem kosningarnar fara þykir ólíklegt að þær verði til þess að lát verði á pólitísku ofbeldi og allsherjarverkföllum sem hafa grafið undan efnahagnum á síð- ustu kjörtímabilum. Hvorug kvennanna tveggja hefur lofað að virða úrslit kosninganna. Hasina Wajed, leiðtogi Awami- sambandsins, og Khaleda Zia, leið- togi Þjóðarflokks Bangladesh, heilsast aldrei þá sjaldan þær hitt- ast. Hasina er 54 ára dóttir fyrsta forseta landsins, Mujiburs Rahm- ans, sem var ráðinn af dögum. Hasina kennir fjölskyldu Zia um morðið. Zia er 56 ára ekkja Ziaurs Rahmans, fyrrverandi forseta, sem var myrtur í valdaráni árið 1981. Hún telur að fjölskylda Hasina hafi verið viðriðin morðið. Talið er nánast öruggt að önnur þessara kvenna gegni embætti for- sætisráðherra eftir kosningarnar. Þegar Zia var forsætisráðherra á árunum 1991–96 stóð Hasina fyr- ir allsherjarverkföllum og hætti störfum á þinginu. Zia beitti síðan sömu aðferð á síðasta kjörtímabili þegar Hasina var við völd. AP Hasina Wajed, fyrrverandi for- sætisráðherra Bangladesh (t.h.), á kosningafundi í Dhaka með systur sinni. Bangladesh Konur berjast um völdin Dhaka. AP. RITSTJÓRI dagblaðs í Egypta- landi, sem birti frétt um meint kynlífshneyksli í koptísku klaustri sem varð kveikjan að ofbeldis- fullum óeirðum og ól á ótta kristna minnihlutans í landinu um öryggi sitt, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að grafa undan almenningsöryggi. Ritstjórinn, Madouh Mahran, birti í júní síðastliðnum frétt sem vakti gríðarlega athygli, en í henni var því haldið fram að kopt- ískur munkur hefði stundað kynlíf með ungum konum í frægu klaustri og beitt þær síðan fjár- kúgun. Þúsundir koptísk-kristinna Egypta efndu í kjölfarið til há- værra götumótmæla og stjórn- málaleiðtogar vöruðu við því að deilur, sem blossuðu upp vegna fréttarinnar, myndu geta kynt undir trúarlegum ofsóknum. Þegar fréttin birtist sögðu kirkjuleiðtogar að maðurinn sem samkvæmt henni var sagður hafa gerzt sekur um hið ósiðlega at- hæfi hefði áður verið rekinn úr söfnuðinum. Neituðu þeir því al- farið að nokkuð af því sem haldið væri fram í fréttinni hefði gerzt í klaustrinu, en það er talið vera reist á þeim stað sem Jesús og María dvöldu á um hálfs árs skeið eftir að þau flúðu undan Heródusi konungi til Egyptalands. Ritstjóri dagblaðs í Egyptalandi dæmdur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.