Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 17
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 17
Nú býðst þér ótrúlegt
tækifæri til þessarar
heillandi borgar á verði sem hefur aldrei fyrr sést. Þú bókar tvö
sæti til Prag, en greiðir bara fyrir eitt, og kemst til einnar feg-
urstu borgar Evrópu á frábærum kjörum. Allar ferðir í október
eru nú uppseldar og þér bjóðast nú síðustu sætin þann 8. og 15.
október á einstökum kjörum. Hjá Heimsferðum getur þú valið
um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela og fararstjórar Heimsferða
bjóða þér spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 16.850
Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1.
33.700/2 = 16.850.-
Skattar kr. 2.870, ekki innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Forfallagjald, kr. 1.800.
Verð hótela:
Verð á mann
Hotel Korunek – 3 stjörnur,
kr. 3.890 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Quality – 3 stjörnur,
kr. 3.900 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Expo – 4 stjörnur,
kr. 4.900 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Síðustu sætin
til Prag í október
2 fyrir 1 til
Prag
8. eða 15. október
frá kr. 16.850
MISJAFNT hafast arkitektar
heimsins að á þessum degi. Sums
staðar eru teiknistofur almennt opn-
ar, fólk kemur í heimsókn, sumir til
að fá góð ráð um hús sín og híbýli,
aðrir til að ræða skipulagsmál lands
og bæja eins og t.d. í Finnlandi, í
öðrum löndum skrifa aðrir lista-
menn, rithöfundar og skáld um arki-
tektúrinn og e.t.v. umhverfismálin í
leiðinni.
Í sumum löndum er boðið upp á
skoðunarferðir um merkileg mann-
virki, gömul og ný, með leiðsögn og
skemmtilegheitum. Sums staðar eru
haldnar ráðstefnur og fundir og í
enn öðrum löndum setja arkitektar
upp sparislaufuna og fara út til að
dást að verkum sínum og e.t.v. láta
dást að sér.
Staða byggingarlistarinnar í
heiminum í dag er margþætt eins og
lýsingin hér að framan ber með sér.
Sums staðar er hún sjálfsagður hluti
af umhverfi fólks eins og veðurfræð-
in, siglingarnar eða mjólkin í búð-
inni. Engum dettur í hug að sigla án
skipstjóra eða fljúga án veðurkorta
eða borða grautinn þurran. Bygg-
ingarlistin er þar hluti af daglegu lífi
og arkitektinn jafnsjálfsagður og
mjólkurfræðingurinn til að lífið
verði gott og heilbrigt.
Annars staðar er byggingarlistin
hluti af menningararfinum, eða rétt-
ara sagt Menningararfinum, því sem
haldið er til haga á tyllidögum, tekn-
ar eru skóflustungur að og gengið er
um á sokkaleistunum. Eins er til í
því að byggingarlistin sé sjaldséð,
hún sé eins og forn minning eða
sögusögn eða ókunnur gestur, sé til í
minningu þjóðar og utan seilingar
eða jafnvel rústir einar og varla við-
eigandi að nefna hana á nafn.
Að hluta til á þetta allt við í okkar
litla samfélagi hér, þar sem allt er
til, sumt í ofgnótt, sumt aðeins til
sparinota. En hún er alls staðar og
allt um kring, horfi maður, hlusti
maður, finni maður og virði maður,
þá má rekja spor byggingarlistar-
innar.
Hún ljær tónlistinni hljóminn,
hún ljær litnum ljósið og blæinn,
hún færir leikaranum rýmið, hún
færir höfundunum (ein)rúmið. Hún
myndar göturýmin og torgin,
garðana og gróðurinn, andrýmið og
þrengslin. Hún skapar reiðu þar
sem óreiðan annars ríkti, og svolitla
óreiðu þar sem hennar er þörf. Hún
skapar öðrum skilyrðin, hún veitir
þeim aðhald og frelsi og hún vill
helst eiga síðasta orðið.
Hún er móðir listanna, hún ann
börnunum sínum og vill þeim allt hið
besta og hana ber að virða sem
slíka.
Samkeppni um stækkun Laugalækjarskóla í september 2000.
Alþjóðlegur dagur
byggingarlistarinnar
Höfundur er formaður Arkitekta-
félags Íslands.
Staða byggingarlistarinnar í heiminum í
dag er margþætt, segir Stefán Örn
Stefánsson, en alþjóðlegur dagur bygg-
ingarlistarinnar er á morgun.
Byggðasafn Hafnarfjarðar,
Smiðjan
Sýningunni Blóðug vígaferli og
götulíf víkinganna í Jórvík lýkur í
dag. Hluti af kumli og haugfé sem
fannst á Hafurbjarnarstöðum á
Reykjanesi árið 1868 verður til sýnis
í Smiðjunni um þessa helgi.
Listasalurinn Man
Sýningu Guðrúnar Öyahals,
Mjaðmarlaus hægri fótur, lýkur í
dag. Sýningin er opin kl. 14-18.
GUK, Selfossi
Sýning Hildar Jónsdóttur í GUK
verður opin í síðasta sinn í dag kl. 16-
18, að staðartíma.
GUK hefur aðsetur í garðinum við
Ártún 3 á Selfossi, í útihúsi við
Kirkebakken 1 í Lejre í Danmörku
og í eldhúsi í Callinstrasse 8 í Hann-
over í Þýskalandi.
Trjásafn Hallormsstaðaskógar
Sýningu fimmtán myndlistar-
manna úr FÍM lýkur á mánudag.
Sýningarlok
TRÍÓ Björns Thoroddsens leikur
djass á Café Ozio í kvöld, sunnudags-
kvöld, kl. 21.30.
Auk Björns, sem leikur á gítar,
eru í tríóinu þeir Jón Rafnsson á
kontrabassa og Ingvi Rafn Ingvason
á trommur.
Djass á Ozio
FIMM menningarnámskeið hefjast í
næstu viku hjá Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Íslands. Á mánudag
hefst námskeiðið Íslenskar sjálfsævi-
sögur. Kennarar eru Soffía Auður
Birgisdóttir bókmenntafræðingur og
gestafyrirlesarar sem ræða um rann-
sóknir sínar á sjálfsævisögum.
Námskeið um Eyfirðinga sögur
hefjast líka á mánudag. Eyfirðinga-
sögur eru þrjár: Víga-Glúms saga,
Svarfdæla saga og Valla-Ljóts saga.
Fimm Íslendingaþættir teljast til Ey-
firðinga sagna og tengjast sumir
þeirra fyrrnefndum sögum. Kennari
er Jón Böðvarsson cand.mag.
Þá hefst námskeiðið Úr smiðju
Gunnlaugs Schevings á þriðjudag.
Kennarar eru Gunnar Árnason heim-
spekingur, Guðbergur Bergsson rit-
höfundur, Viktor Smári Sæmundsson
forvörður, Júlíanna Gottskálksdóttir
listfræðingur og Ólafur Kvaran for-
stöðumaður Listasafns Íslands, en
námskeiðið er haldið í samvinnu við
listasafnið. Markmiðið er að gefa
skýra mynd af listferli Gunnlaugs
Schevings en yfirlitssýning á verkum
hans verður opnuð í Listasafni Ís-
lands 20. október.
Námskeið um Sturlunga hefst á
miðvikudag. Reynt verður að spanna
tímabilið 1183-1238. Kennarar eru
Magnús Jónsson og Jón Böðvarsson
cand. mag.
Námskeiðið Fjórar ýkjusögur:
Flóamanna saga, Gunnars saga
Keldugnúpsfífls, Bárðar saga og
Krókarefs saga, hefst á fimmtudag.
Kennari er Jón Böðvarsson cand.mag.
Námskeiðin um Íslendingasögurn-
ar eru haldin í samstarfi við tóm-
stundaskólann Mími.
Menningarnám-
skeið hjá Endur-
menntunarstofnun
♦ ♦ ♦
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060