Morgunblaðið - 30.09.2001, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.09.2001, Qupperneq 22
Morgunblaðið/Kristinn ÞÓTT framburður barna,sem hafa orðið fyrir kyn-ferðisofbeldi sé í heildskýr og nákvæmur þegarmál þeirra koma fyrir dóm og þau gefi greinagóða lýsingu á at- burði má framburður barns sín lítils gegn staðfastri neitun sakbornings og oftast er einungis dæmt fyrir þau atriði sem sakborningur játar á sig. Þetta er ein af nokkrum athygl- isverðum niðurstöðum sem koma fram í nýrri rannsókn þar sem kann- aður er framburður 60 barna sem komu í Barnahús vegna lögreglu- rannsóknar á árinu 1999 þar sem grunur var um að þau hefðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Markmiðið með rannsókninni var að athuga eðli þessara mála og fram- gang þeirra í refsivörslukerfinu. Einnig hvort framburður barnanna sé tekinn gildur og skilaði sér inn í orðalag ákæru og niðurstöðu dóms og hvort ákært væri fyrir sama al- varleika brots og barn tilgreindi í framburði sínum. Rannsóknin er liður í BA-ritgerð þeirra Jóhönnu Kristínar Jónsdóttur og Þorbjargar Sveinsdóttur í sál- fræði við félagsvísindadeild HÍ. Rannsóknin fór meðal annars þannig fram að þær horfðu á mynd- bandsupptökur af rannsóknarviðtöl- um sem tekin voru við börnin í Barnahúsi. Viðtölin, sem hér um ræðir, eru að sögn þeirra Jóhönnu og Þorbjargar alþjóðleg aðferð til að tala við börn sem hafa orðið fyrir kynferðislegu of- beldi og þykja mjög góð til að fá fram trúverðugan og greinargóðan fram- burð. Þau eru síðan notuð sem sönn- unargagn ef ákært er í málinu og það fer fyrir dóm. Hundruð tilkynninga berast árlega Samhliða því að horfa á viðtölin við börnin fylltu þær inn í gátlista ýmis atriði sem máli skiptu til dæmis varð- andi aldur og tengsl geranda og þol- anda og atriði er varða þroska og hugtakaskilning barna, framburð barnsins og fleira. Framburður barnanna var kannaður svo og eðli málanna og lyktir þeirra. Eins og kemur fram í ritgerðinni berast barnaverndaryfirvöldum á Ís- landi árlega hundruð tilkynninga vegna gruns um að barn hafi sætt kynferðisofbeldi. Allar tilkynningar af þessu tagi eru teknar alvarlega og er það skylda barnaverndarnefnda að setja af stað frumkönnun í hverju máli fyrir sig. Í þeim tilvikum þar sem frumkönnun styður grunsemdir frekar er barn sent í rannsóknarvið- tal sem þá er liður í lögreglurann- sókn. Börnin sem hér um ræðir voru flest á aldrinum 6–9 ára. Af þessum 60 börnum greindu 45 þeirra frá því að þau hefðu verið beitt kynferðisof- beldi, en 12 börn neituðu að hafa orð- ið fyrir slíku og 1 barn dró uppruna- legan framburð sinn til baka, 2 börn komu með ranga ásökun. Algengara var að yngri börnin neituðu að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi þegar þau voru spurð í Barnahúsi. Í þeim tilvikum höfðu grunsemdir vaknað á annan hátt en að barn hafði sagt frá til dæmis vegna hegðunarbreytinga eða að komið var að börnum í grófum kynferðisleikjum með jafnöldrum. Hversu áreiðanlegur er vitnisburður barna? Að sögn Jóhönnu Kristínar og Þorbjargar hefur athygli manna beinst í auknum mæli að börnum sem þolendum í kynferðisbrotamálum og stöðu þeirra í réttarvörslukerfinu. „Réttarvörslukerfinu er ætlað að bera hag þessara barna fyrir brjósti og vernda hagsmuni þeirra en reynslan hefur sýnt að á því eru mikl- ar brotalamir,“ segir Þorbjörg. „Það heyrir til undantekninga að einhver vitni séu til staðar þegar kynferðis- brot eru framin. Vegna þessa er barnið oft eitt til frásagnar um at- burðinn. Einnig eru ummerki fljót að gróa og ólíklegt að læknisskoðun leiði í ljós sönnun um að kynferðisof- beldi hafi átt sér stað. Mál sem fer fyrir dómstóla hvílir því nær undan- tekningalaust á vitnisburði barnsins þar sem önnur sönnunargögn skortir oft. Þetta vekur upp spurningar um hversu áreiðanlegur vitnisburður barnsins er og hvort að treysta megi því að það segi satt og rétt frá.“ Í ritgerðinni er rætt um áreiðan- leika vitnisburðar barna. Þar kemur meðal annars fram að á síðustu 10–15 árum hefur fagleg umræða í Banda- ríkjunum um getu barna til að bera vitni skipst í tvö horn. Annars vegar halda fagaðilar því fram að börn ljúgi ekki og þeim beri að trúa og hins veg- ar þeir sem segja að börn séu mjög sefnæm og taka beri vitnisburði þeirra með fyrirvara. Segir að taka megi mið af báðum þessum fylking- um að einhverju leyti því rannsóknir hafi sýnt misvísandi niðurstöður þeg- ar kemur að áreiðanleika vitnisburð- ar barna. Nýjustu rannsóknir einskorðast á hinn bóginn ekki við hvort börn séu sefnæm heldur undir hvaða kring- umstæðum þau séu það. Rannsókn- arviðtalið, segja þær, er hannað með það í huga að minnka áhrif þeirra þátta sem geta leitt til sefnæmis hjá börnum. Mikilvægt að rétt sé staðið að rannsóknarviðtalinu Það kemur fram í máli þeirra Jó- hönnu Kristínar og Þorbjargar að hin síðari ár hafi athygli manna beinst í meira mæli að þeirri viðtals- tækni sem stuðst er við þegar tekin eru viðtöl við börnin. „Nýlegar rann- sóknir sýna að hér getur verið um vandmeðfarnasta og viðkvæmasta hluta málsins að ræða. Ekki síst vegna þess að framburður barna er oftar en ekki það eina sem unnt er að byggja framhald máls og lyktir á,“ segir Jóhanna Kristín. „Rannsóknir sýna að læknisfræðileg sönnun er að- eins fyrir hendi í innan við 10% mála og vitnum er sjaldan til að dreifa. Það er því mikilvægt að sá aðili sem tekur rannsóknarviðtal við barnið búi yfir sérhæfðri þekkingu og reynslu á því sviði.„Talið er að fá megi skýra frá- sögn frá barni í viðtölum sem sér- fræðingur annast við aðstæður sem mæta þörfum barnsins að fullu.“ Ekki verður hér farið nákvæmlega út í það hvernig þessi viðtöl fara fram en eins og kemur fram í ritgerðinni er lögð áhersla á að kanna þroska barnsins og skilning þess á hugtök- um. Barnið er beðið að koma með al- menna frásögn af hlutlausum atburð- um í lífi sínu. Því næst er umræða um hugsanlegt kynferðisofbeldi opnuð og barninu gerð grein fyrir því að óhætt sé að segja frá. Þegar barn hefur sagt að kynferðisofbeldi hafi átt sér stað er það hvatt til að koma Trúverðug en ekki treyst Brotalamir eru í refsi- vörslukerfinu gagnvart börnum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Trúverðugleiki þeirra er dreginn í efa fyrir dóm- stólum, jafnvel þótt mjög vel sé staðið að rannsókn málsins og viðtali við barnið. Dómar fyrir kynferð- isafbrot gegn börnum eru mjög vægir. Hildur Einarsdóttir kynnti sér niðurstöður nýrrar rannsóknar og ræddi við rannsakendurna og fagfólk sem kemur að þessum málum. Í RITGERÐ þeirra Jóhönnu Kristínar Jónsdóttur og Þor- bjargar Sveinsdóttur kemur fram gagnrýni á refsivörslukerfið þeg- ar börn sem orðið hafa fyrir kyn- ferðisofbeldi eiga í hlut og rétt- indi þeirra ekki talin tryggð sem skyldi. Hjörtur O. Aðalsteinsson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur var beðinn að segja álit sitt á nokkrum þessara atriða. Eitt þeirra var að þótt fram- burður barna sem hafa orðið fyr- ir kynferðislegu ofbeldi sé í heild skýr og nákvæmur þegar mál þeirra koma fyrir dóm og þau gefi greinargóða lýsingu á at- burði má framburður barns sín lítils gegn staðfastri neitun sak- bornings og er oftast einungis dæmt fyrir þau atriði sem sak- borningur játar á sig. Hvernig stendur á þessu? „Meginreglan er sú að sakborn- ingur er saklaus uns sekt hans er sönnuð. Það er hlutverk ákæru- valdsins að sanna sektina. Síðan er ákvæði um það að allan vafa skuli skýra sakborningi í hag. Þetta er regla sem gildir í öllum sakamálum. Framburður barns- ins er metinn af þremur héraðs- dómurum sem skoða framburð þess af myndbandi eða þeir hlusta sjálfir á barnið. Síðan er málið vegið og metið eftir því sem kom- ið hefur fram í málinu.“ Hver er skoðun þín á rannsókn- arviðtölunum sem fara fram í Barnahúsi? „Ég er einn af fjórum í dóm- arahópi sem tekur skýrslu af brotaþola í málum sem þessum. Skýrslutakan fer annað hvort fram niður í héraðsdómi í sér- útbúnu húsnæði þar eða í Barna- húsi. Ég held að meginreglan sé sú að yngstu börnin eru yfirheyrð í Barnahúsi en það er þó mis- jafnt eftir dóm- urum. Yf- irheyrslan fer alltaf fram undir stjórn dómara, hvort sem hann ann- ast yfirheyrsl- una sjálfur eða lætur sér- fræðing um það. Sá sem spyr barnið er einn með því í herbergi en aðrir fylgjast með, í Barnahúsi af sjónvarpsskjá og í Dómhúsinu í gegnum gler. Ég reyni að fara í Barnahús vegna þess að ég hef góða reynslu af sérfræðingum í Barnahúsi og treysti þeim fyllilega til að annast yfirheyrsluna. Þetta er mín per- sónulega skoðun en ef þú talar við einhvern annan dómara getur hann verið á annarri skoðun hvað þetta varðar.“ Þegar verið er að meta trú- verðugleika framburðar barna finnst þér að eigi að gilda sömu viðmið og þegar fullorðinn á í hlut? „Það má deila um það í hverju máli fyrir sig. Ég tel að það mætti leggja fyrir dóminn sérfræðiálit, þ.e. mat á hversu trúverðugur framburður barnsins er svo dóm- arar hafi eitthvað til að styðjast við í þessum málum.“ Hvers vegna telur þú að ger- endurnir gangist ekki við nema hluta brotanna og þá við þeim sem eru veigaminni eins og kem- ur fram í rannsókninni? „Sakborningar í þessum málum sem öðrum játa ekki nema það allra nauðsynlegasta. Ef eitthvað er alveg borðliggjandi og hægt er að færa sönnur fyrir brotinu þá játa sakborningarnir. Ef orð stendur gegn orði þá er freistandi að neita til að sleppa.“ Hvers vegna eru dómar í kyn- ferðisofbeldismálum jafn vægir og raun ber vitni og miskabætur lágar? „Ef maður er sakfelldur fyrir vægara tilvik en hann var í upp- hafi ákærður fyrir er það skýring á vægum dómi. Segja má að dóm- ar séu að sumra áliti vægir fyrir kynferðisbrot.“ Nú er í lögunum heimild til strangari viðurlaga. Hvers vegna er þeim ekki beitt? „Það er rétt að þessum há- marks refsiramma er ekki mikið beitt í málum sem þessum.“ Er einhver skýring á því? „Nei, ég hef hana ekki að öðru leyti en því að sú hefð hefur skap- ast með dómum í gegnum árin að hafa refsingar vægar í þessum málum. Ég skoðaði árið 1994 dóma í málum barna sem höfðu orðið fyrir kynferðisofbeldi á Norðurlöndunum og birt var grein um það í tímariti lögfræð- inga. Kom í ljós að þeirri athugun lokinni að refsingar á Íslandi og hinum Norðurlöndunum eru sam- bærilegar.“ Hefðin skýrir vægar refsingar Hjörtur Aðalsteinsson 22 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.