Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 25

Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 25 Eftirmenntunarnámskeið Undanfari: Fornám í Kvikmyndaskóla Íslands eða reynsla í kvikmyndagerð. Kvikmyndataka 1 Kvikmyndataka í myndveri. Nemendur þjálfaðir í upptökuvinnu í myndveri. Kvikmyndataka 2 Tæknileg umfjöllun um mismunandi upptökutækni, DV, SP beta, Digi beta. Mismunandi vélar þaulskoðaðar og reyndar. Kvikmyndataka 3 Filma og filmuvinnsla. Mismunandi tegundir og eiginleikar. Ljósmælingar og lýsing. Skoðun og prófun á mismunandi vélum. Kvikmyndataka 4 Aðstoðartökumenn. Sérþjálfun í starf 1. aðstoðartökumanns (focus puller) og 2. aðstoðartökumanns (clapper/loader). Kvikmyndataka 5 Lýsing í bíómyndum. Lampabúnaður, tæki og gripbúnaður. Verklegar æfingar. Klipping 1 Grunnkennsla á Avid klippiforritið. Klipping 2 Framhaldsnámskeið í notkun á Avid klippiforritinu. Klipping 3 Frekari þjálfun í klippivinnslu. Ýmis hjálparforrit. Handrit 1 Byrjendanámskeið. Fjallað um ýmis grundvallaratriði í vinnslu og uppsetningu á kvikmyndahandritum. Hljóðvinnsla 1 Hljóðupptökur og eftirvinnsla. Tæki og tækni. Fræðileg umfjöllun og verklegar æfingar. Framleiðsla 1 Þáttagerð í sjónvarpi. Fjallað um hlutverk og starf framleiðandans í vinnslu á sjónvarpsefni. Framleiðsla 2 Framleiðsla bíómynda. Fjallað um hlutverk og starf framleiðandans í vinnslu á bíómyndum. Námskeið fyrir fyrirtæki og sérhæfða hópa Námstækni fyrir starfandi kennara Kvikmyndir í kennslu 1 Fjallað um hvernig beita má kvikmyndum í kennslu á áhrifaríkan hátt. Kvikmyndir í kennslu 2 Hvernig stýra má kvikmyndagerð nemenda. Námskeið fyrir markaðs- og kynningarstjóra Hámarksárangur í myndmiðlum Auglýsingar, framkoma í fjölmiðlum, mismunandi miðlar: sjónvarp, margmiðlun, kvikmyndahús. Námskeið fyrir fræðafólk Miðlun fræða.1 Hvernig beita má kvikmyndum og margmiðlun við framsetningu fræðiefnis. Umfjöllun um vinnsluaðferðir og framsetningu. Miðlun fræða 2 Verkleg kennsla í beitingu þeirrar tækni sem notuð er við gerð myndefnis. Námskeið fyrir almenning Kvikmyndagerð fyrir unglinga Kennsla í kvikmyndagerð fyrir unglinga: gerð stuttmynda. Vinnsla fjölskyldumynda Hvernig hægt er að fullvinna myndir í heimilistölvunni. Upptökur, klipping, hljóðsetning, titlar. Skráning og nánari upplýsingar í síma 588 2720 Kvikmyndaskóli Íslands Skúlagötu 51, 101 Reykjavík kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is Skráning í Fornám á vorönn hafin Ókeypis kvikmyndasýningar – meistararnir skoðaðir Kvikmyndaskóli Íslands býður ungum kvikmyndaáhugamönnum á kvikmyndasýningar á sunnudagskvöldum í vetur. Fjallað verður um gömlu meistarana og ýmsar myndir sýndar. Luis Buñuel og Rainer Werner Fassbinder verða til skoðunar í október og nóvember. LEIKLISTARSKÓLI Borgarleikhússins og Kvikmyndaskóla Íslands Við óskum þeim hundruðum barna og unglinga sem sóttu skólann í sumar til hamingju með frábæran árangur. Þau sem ekki hafa enn sótt myndbandsspólurnar sínar geta nálgast þær hjá Kvikmyndaskólanum. NÚ hinn 2. október eru liðin hundrað ár síðan Ársæll Jónasson fædd- ist, en föstudaginn 16. janúar árið 1998 fór fram afhending fyrstu styrkja úr Minningar- sjóði Ársæls Jónasson- ar. Í erfðaskrá Ársæls voru fyrirmæli um að eftirlátnar eigur hans skyldu renna í minn- ingarsjóð sem bæri nafn hans og er tilgang- ur sjóðsins að styrkja menningar- og mann- úðarstarfsemi sem Ár- sæli var hugleikin. Helmingi af árlegum tekjum sjóðs- ins skyldi varið til að styrkja björg- unarsveit Slysavarnafélags Íslands til kaupa á björgunartækjum og Ferðafélag Íslands til að stuðla að heilbrigðu útilífi almennings. Farið hafa fram þrjár úthlutanir úr þess- um minningarsjóði, síðast nú í ár. Ársæll á að ýmsu leyti óvenjulega sögu. Hann eignaðist m.a. herskip. „Þann 11. apríl 1968 birti Magnús Finnsson á bls. 6 í Morgunblaðinu merkilega grein um tundurspillinn Skeena sem strandaði í Viðey. Ár- sæll Jónasson kafari keypti flakið af tundurspillinum og er það í eina skiptið sem nokkur einstaklingur í heiminum hefur verið skrifaður fyrir herskipi. Þetta kom í Jyllandspóst- inum og þótt mikil frétt,“ sagði Hilmar Foss löggiltur skjalaþýðandi sem var góður vinur og samstarfs- maður Ársæls. „Ég kynntist Ársæli þegar ég kom heim á stríðs- árunum frá Bretlandi 1942. Hann hafði þá verið erlendis í par ára- tugi og starfaði m.a. við björgunarstörf á Mið- jarðarhafinu á þriðja og fjórða áratugnum. Hann var einn af þess- um traustu mönnum sem maður kynntist vel og var mikið fyrir að skipta sér af góðum málum, þar á meðal slysavarnamálum. Við unnum saman á þeim vettvangi. Ársæll stofnaði slysa- varnadeildina Ingólf í Reykjavík sem síðan hefur verið gefið hans nafn og heitir nú Ársæll – flest tæki samtakanna, sem nú heita Lands- björg, eru merkt nafni Ársæls. Þetta er ekki að ófyrirsynju, hann á þetta skilið, svo mikill stuðningsmaður björgunarmálefna sem hann var. Hann var og mikill frönskumaður og starfaði fyrir Alliance Francaise. Ársæll er samkvæmt minni bestu vitneskju fyrsti íslenski kafarinn.“ Heljarmenni að burðum Ársæll fæddist í Hlíðarhúsum í Reykjavík 2. október 1901, sonur Jónasar trésmiðs Jónassonar frá Rútsstöðum í Flóa og konu hans Þuríðar Markúsdóttur frá Flögu í Flóa, en þar var Ársæll í sveit sem drengur. Hann varð aðstoðarpiltur á b/v Snorra goða sumarið 1914 og fór fleiri túra á öðrum skipum, vann svo hjá Magnúsi Guðmundssyni í Skipa- smíðastöðinni við skipaviðgerðir. Hann nam reiða- og seglagerð hjá Sigurði Gunnlaugssyni og fékk sveinspróf í þeirri grein 1935 og meistarapróf 1940.Hann var m.a. við björgun m/s Ingibjargar á Snæfells- nesi 1917. Ársæll lærði björgunar- störf og köfun hjá Em. Z. Svitzer’s Bjergnings-Enterprise í Kaup- mannahöfn, réðst á björgunarskipið e/s Geir 1918 og starfaði hjá því fé- lagi í fimmtán ár. Hann vann víða í Evrópu, Asíu og Afríku á átta björg- unarskipum Svitzersfélagins. Hann var kafari á Geir 1921-24 og var þá m.a. sendur til Konstantínópel í Tyrklandi og vann að því að bjarga gríska farþegaskipinu Atteky sem var sokkið í Píræushöfn í Grikklandi. Ársæll starfaði einnig við björgunar- störf í Danmörku og Noregi og sem 1. kafari á björgunarskipinu e/s Freyju og starfaði í vesturhluta Mið- jarðarhafsins, mest við Norður-Afr- íku og Frakkland. Hann hafði aðset- ur í Marseille á árunum 1929 til 1933. Vorið 1933 flutti Ársæll til Reykja- víkur og var forstjóri þar síðan. Hann kenndi einnig við Stýrimanna- skólann í 18 ár og vann við björg- unarstörf og mannvirkjagerð víða um land. Hann var stjórnarformaður h/f Skipanausta frá stofnun 1945 og stjórnarformaður h/f Skjaldbreið sem keypti m.a. Hótel Valhöll á Þingvöllum og gerði í stand fyrir þjóðhátíðina 1944. Ársæll gegndi marvíslegum trún- aðarstörfum, var formaður Reiða- og seglagerðarmeistarafélags Reykja- víkur, sat í stjórn slysavarnardeild- arinnar Ingólfs í 16 ár og í varastjórn Slysavarnafélags Íslands í mörg ár. Hann var fyrsti formaður Björgun- arsveitar Slysavarnafélags Íslands í Reykjavík sem stofnuð var 10. jan- úar 1944. Heiðursfélagi Kafara- félags Íslands varð hann 1958 og heiðursfélagi Slysavarnafélags Ís- lands 1972. Hann fékk ýmsar viður- kenningar, m.a. orðu fyrir björgun- arstörf sín í Frakklandi. Ársæll samdi ritið Verkleg sjóvinna I-II ásamt Henrik Th. S Thorlacius. Í bókinni er ítarlegur kafli um kennslu í köfun. Hann lagði með útgáfu bók- arinnar um 2000 orð við íslenskt mál. „Sæli, eins og hann var gjarnan nefndur, var myndarlegur maður og stoltur, heljarmenni að burðum fram á efri ár, en hann náði nær níræð- isaldri,“ sagði Hilmar Foss ennfrem- ur. „Hann var maður áræðinn og dugnaðarforkur, svo jafnvel gat ver- ið um of. Hann var góður félagi og borgari sem ekkert mannlegt var óviðkomandi.“ Saa kan Direktör Jónasson köbe kanonerne og begynde for sig selv Sem dæmi get ég sagt frá því að Sæli fregnaði eitt sinn að Páll Sveinsson frönskukennari við Menntaskólann í Reykjavík hefði aldrei átt þess kost að komast til Frakklands. Sæli gekkst þá fyrir fjársöfnun til að kosta ferð kennar- ans þangað. Hann lagði að venju vel af mörkum sjálfur en stillti sér síðan upp í forstofu góðkunningja síns Ólafs Thors við Garðastræti, en Ólaf- ur hugðist um þær mundir mynda rétt eina ríkisstjórn sína. Krafði Ár- sæll komandi ráðherraefni um fram- lög. Auðveld bráð reyndust áhuga- mennirnir um franska tungu, þeir Björn Ólafsson og Jóhann Þ. Jósefs- son. Eins og fyrr kom fram keypti Ár- sæll herskip. Hann varð skömmu eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari eini maðurinn fyrir utan þáverandi Bretakonung sem skrifaður var fyrir herskipi persónulega. Hertól höfðu þó verið fjarlægð úr kanadíska tund- urspillinum Skeena en mér er kunn- ugt um að Jyllandsposten bætti við frétt sína: „Saa kan Direktör Jonas- son köbe kanonerne og begynde for sig selv“.“ Kona Ársæls var Gudrun dóttir Rantzau Geisler vélstjóra hjá Björg- unarfélagi Em.Z. Svitzer’s Gedser, Falstri. Þau voru barnlaus. „Fátt hefur verið sagt frá frægð- arverkum Ársæls,“ sagði Hilmar Foss að lokum. „Hann starfaði m.a. við björgun fjölda skipa sem sökkt hafði verið í heimstyrjöldinni fyrri 1914 til 1918. Þegar hann kom heim á kreppuárunum stofnaði hann og starfrækti sitt eigið kafara- og björgunarfyrirtæji ásamt reiða- og seglagerð og er Sæli sagður hafa leitt heimskreppuna mikið til hjá sér. Eftir að Ísland var hernumið varð mikil þörf fyrir mann eins og Ársæl. Hann leysti alls kyns vanda fyrir fiskiskipaflotann íslenska er flutti björg í bú fyrir Bandamenn, svo og fyrir skip breska flotans, margan kaðalinn skar Sæli úr skrúfum skipa flotans, verkefni sem áhafnir gátu ekki leyst. Sæli kafari var lands- þekktur maður sem vert er að minn- ast nú á hundrað ára ártíð hans.“ Sæli kafari Hundrað ár er liðin síðan Ársæll Jónasson kafari fæddist. Hilmar Foss þekkti Ársæl vel og segir hér Guðrúnu Guðlaugsdóttur ýmislegt um feril Ár- sæls sem kafara og framkvæmdamanns. Ársæll Jónasson kafari. Kanadíski tundurspillirinn Skeena strandaði við Viðey í janúar 1945. Aftaka- veður geisaði þegar strandið varð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.