Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 29

Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 29 í m r a m r á a á t t n á r í r r á l f m r u m r a m r n í t r i r i i u r m g r l r r m f i m a um sem í slíkri markaðssetningu felast, sér- staklega í ljósi þess hve hálendið og óbyggð- irnar eru viðkvæmar fyrir bílaumferð. Fyrir réttu ári, í september 2000, sáu for- stjóri Náttúruverndar ríkisins og formaður Landverndar ástæðu til að senda auglýsinga- stofum á landinu tilmæli þess efnis að ekki sé gefið til kynna að akstur utan vega sé leyfileg- ur og segir það sitt um þann vanda sem um er að ræða. Nokkru seinna voru hér í blaðinu fréttir af hreinsunarátaki sem Ferðamálaráð Íslands gekkst fyrir á hálendinu, en afrakstur þess var um 15 rúmmetrar af varahlutum sem hirðulausir bílstjórar höfðu skilið eftir sig úti í náttúrunni. Að sjálfsögðu eru auglýsingar á borð við þær sem hér er verið að vísa til þar að auki í algjöru ósamræmi við hversdaglegan veruleika yfirgnæfandi meirihluta fólks í þéttbýli, sem upp til hópa notar bílana sína fyrst og fremst til að sinna daglegum erindum sínum á malbik- uðum borgarstrætum. Þó enginn efist um gildi jeppa á slæmum vegum eða í vondu veðri, verða þær aðstæður sem betur fer æ fágætari að jeppar teljist nauðsyn. Meira að segja úti á landsbyggðinni er vegakerfi landsmanna orðið það gott að hægt er að ferðast greiðlega á venjulegum fólksbílum, eða jafnvel á litlum bíl- um, mestan hluta ársins. Þá er einnig mun ódýrara að leigja sér jeppa þá sjaldan að nauð- syn krefur t.d. við ferðalög á hálendinu, heldur en að standa straum af rekstri slíks farartækis allt árið um kring að óþörfu. Snjómokstri er víðast hvar sinnt með miklum ágætum og á þéttbýlissvæðinu á suðvesturhorninu eru þeir dagar orðnir æði fáir á ári hverju þar sem jeppar koma sér vel. Hvað öryggissjónarmið varðar hafa jeppar vafalaust vinninginn í árekstri við venjulegan fólksbíl. Það er þó hæpin forsenda til þess að hvetja fólk til að fjárfesta í jeppa. Þvert á móti má álykta sem svo að jeppar séu óæskilegri í umferðinni en aðrir bílar þar sem þeir auka líkur á meiðslum þeirra sem eru á minni bílum, auk þess sem þeir valda mun meira eignatjóni. Hér á landi hafa á undanförnum árum orðið fjölmörg slys sem staðfesta þetta. Það er því ljóst að venjulegir fólksbílar með hefðbundn- um öryggisútbúnaði ættu að öllu jöfnu að duga flestum til að komast leiðar sinnar með góðu móti, jafnt innan bæjar sem utan. Nú í byrjun september birtist hér í blaðinu frétt þess efnis að stýrihópur, sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skipaði, væri með til athugunar að taka notendagjald af bíl- um sem fara um tiltekna vegi landsins. Hug- myndin miðar að því að þróa kerfi til að setja í bíla, sem tryggi að notandi ökutækis greiði réttlátlega fyrir allan þann kostnað sem hann veldur með notkun sinni á vegakerfinu, svo sem vegna umhverfisspjalla, tafa, slysa og slits. Í fréttinni kom fram að gjaldtaka vegna flutningabíla sé nú þegar hafin í Sviss, Þjóð- verjar ætli að taka upp álíka kerfi árið 2003 og í Hollandi eru uppi áform um að á árunum 2006-10 verði búið að koma upp gjaldtökukerfi í öllum hollenskum einkabílum. Leiðir til að stemma stigu við óheftri bíla- notkun Þó mörgum hér á landi kunni að þykja hugmyndir á borð við þessa fremur fjar- stæðukenndar, verð- um við fyrr eða síðar nauðbeygð til að taka róttækar ákvarðanir til þess að stemma stigu við óheftri bílanotkun almennings. Að öðrum kosti mun vaxandi umferðarþungi, mengun, hávaði og streita samfara því að komast leiðar sinnar í daglegu lífi, verða sífellt meira vanda- mál. Einn hvati í slíkri hugarfarsbreytingu gæti verið gjaldtaka af þeim bílum sem valda mestu sliti á vegakerfinu, menga mest og eru óhagkvæmastir í rekstri. Er þá fyrst um að ræða ökutæki sem notuð eru til þungaflutninga, enda ekki nema eðlilegt þar sem starfsemi þeirra er þáttur í rekstri fyrirtækja. Í öðru lagi mætti hugsa sér að láta stórar bifreiðar, sem vega mun þyngra í óæski- legum umhverfisáhrifum en minni bílar, sæta gjaldtöku sem yrði þá hugsuð til að stemma stigu við almennri og ónauðsynlegri notkun þeirra. Jeppar eru t.d. nú þegar mun dýrari í rekstri en minni bílar, auk þess sem afföll af þeim eru mikil. Samkvæmt frétt sem birtist hér í blaðinu í byrjun maí í vor eru afföll af þriggja milljóna króna jeppa um 500.000 kr. á fyrsta árinu, en að auki má taka inn í dæmið 130.000 kr. þungaskatt sem leiðir til þess að kostnaður við hvern ekinn kílómetra getur orðið gríðarlega hár, eða um 35 kr. á ekinn kílómetra, án þess að tillit sé tekið til fjár- magnskostnaðar eða annarra liða. Gjaldtaka af stórum og þungum bílum gæti því án efa orðið áhrifarík hvatning til aðhalds og raunhæfari viðmiða við bílainnkaup hins almenna borgara sem komið gætu samfélaginu til góða jafn- framt því að stuðla að umhverfisvænna lífs- mynstri. Enda má heldur ekki gleyma að vegna skuldbindinga okkar samkvæmt Kyoto- bókuninni er óhjákvæmilegt að grípa til raun- hæfra aðgerða til að draga úr eldsneytisnotk- un og útblæstri. Frakkar eru sú Evrópuþjóð sem hvað lengst hefur gengið í því að innheimta gjald af bílum fyrir afnot af vegakerfinu. Gildir þá einu hvort um er að ræða þungaflutningabifreiðar eða einkabifreiðar. Þar í landi hefur þróunin enda orðið sú að uppbygging almenningssamgangna er til mikillar fyrirmyndar, lestir á lands- byggðinni með því hraðskreiðasta sem gerist og neðanjarðarlestarkerfið, t.d. í Parísarborg, afar fullkomið. Frakkar virðast fljótt hafa gert sér grein fyrir því að einkabíllinn myndi ekki mæta þörf- um samfélagins á jafn áhrifaríkan máta og al- menningssamgöngur og viðhaft þær hömlur sem t.d. grönnum þeirra í Þýskalandi þóttu óþarfar. Afleiðingin er sú að í Þýskalandi eru mun alvarlegri vandamál tengd vegakerfinu og almennri bílanotkun en í Frakklandi. Þar er til að mynda enginn vegaskattur innheimtur á hraðbrautum sem leitt hefur til þess að álagið á hraðbrautakerfinu er slíkt að miklar tafir skapast á álagstímum, ekki síst á þeim þétt- býlu stöðum þar sem lagt hefur verið í ótrúleg- ar framkvæmdir, með tilheyrandi kostnaði, við byggingu margra hæða gatnamóta, brúa og margfaldra akreina. Að auki hafa Þjóðverjar ekki takmarkað hraða á hraðbrautum sínum, eins og nánast allar aðrar Evrópuþjóðir, þrátt fyrir að mengun af útblæstri vaxi í réttu hlut- falli við aukinn hraða. Í kringum helstu hrað- brautir Þýskalands hefur mengunin því orðið slík að spjöll á skóglendi eru stórfelld og úr bílunum blasa við sótsvartir stofnar dauðra trjáa. Framtíðarsýn í samgöngu- málum Að sjálfsögðu er al- gjörlega óraunhæft að ímynda sér að þeirri bílvæðingu sem átt hefur sér stað í heiminum verði snúið við í einu vetfangi, hér á landi eða annars staðar. Saga bílsins er rétt um aldarlöng og það á án efa eftir að taka lungann úr annarri öld að stemma þannig stigu við notkun einka- bíla að hægt verði að snúa þeirri óæskilegu þróun við sem hún hefur valdið í samfélaginu. Á málþingi um framtíðarsýn í samgöngu- málum sem haldið var í byrjun febrúar á þessu ári, kom fram að um 90% farþegaflutninga um landið fara fram með bílum. Það er því nokkuð ljóst að Íslendingar hafa ekki lagt mikla áherslu á þróun almenningssamgangna, en það getur átt eftir að reynast afdrifaríkt þegar litið er til framtíðar. Á sama málþingi komu fram þau sjónarmið að vegakerfið stæði ekki undir álaginu af bílaumferðinni og brýnt væri að bregðast við aukinni bílaeign landsmanna með samgöngubótum. Þetta er algengt viðhorf, reyndar svo algengt að fæstir draga sannleiks- gildi þess nokkru sinni í efa. Reynsla annarra þjóða, svo sem Bandaríkjamanna og Þjóðverja, hefur þó sýnt fram á að uppbygging flókinna og kostnaðarsamra vegakerfa hefur ekki leyst umferðarvandann. Þvert á móti er eins og slík uppbygging kalli einungis á enn meiri bíla- notkun, eins og sannast best í borgum á borð við Los Angeles og hraðbrautaflækjunum í kringum Mannheim og nálægar borgir í Þýskalandi. Og þá er ekkert tekið tillit til um- hverfissjónarmiða, áreitis, slysahættu og eignatjóns sem eru óhjákvæmilegur fylgifiskur þessarar óheillavænlegu þróunar. Veðráttan hér á landi ýtir að sjálfsögðu und- ir notkun einkabíla og er iðulega sú réttlæting sem fólk notar í daglegu lífi. Að sjálfsögðu þarf því að verða nokkur viðhorfsbreyting til þess að fólk fáist til að takmarka notkun sína á einkabílnum, en jafnframt þurfa almennings- samgöngur einfaldlega að verða það skilvirkar að almenningur sjái sér hag í að nota þær, eins og reyndar var fjallað um á ítarlegri máta í Reykjavíkurbréfi því sem vísað var til hér að ofan. Þá er ef til vill von til þess að fólk geri sér grein fyrir að bílar, hvort sem þeir eru stórir eða litlir, eru nokkuð fyrirferðarmikil og þunglamaleg yfirhöfn. Vonir manna standa nú til þess að hægt verði að þróa sparneytnari og umhverfisvænni bifreiðar. Jafnvel þó til byltingar kæmi á því sviði leysir það ekki nema brot af þeim vanda sem af bílum stafar, umferðarþunginn yrði t.d. samur við sig og áhrifin á borgarlandslagið og lífsmynstur fólks sömuleiðis. Skattborgarar borga nú þegar mikið fyrir uppbyggingu vega- kerfisins, auk þess að bera mikinn kostnað af rekstri sinna eigin bíla, en afföll af nýjum bíl voru samkvæmt upplýsingum frá því í vor um 50-55% á þremur árum. Ef öllum þessum fjár- munum væri varið til uppbyggingar annars konar samgöngumöguleika er ef til vill ekki fjarri lagi að takast mætti að draga úr nei- kvæðum áhrifum byltingarinnar hans Henrys Ford, svo sá hreyfanleiki sem hann lagði grunninn að í nútímasamfélagi sé okkur til framdráttar en taki ekki af okkur völdin. Sem stendur er þó erfitt fyrir venjulegt fólk að gera sér í hugarlund með hvaða hætti það mætti verða, en víst er að hugarfarsbreyting gæti markað fyrsta skrefið. Morgunblaðið/Rax Austurfjörur við Skarðsfjörð. Viðhorf almennings víða í Evrópu eru með öðrum orðum að breytast í þá veru að stór og eldsneyt- isfrekur bíll er álit- inn tákn um græðgi og tillitsleysi gagn- vart náunganum og umhverfinu, en litlir og umhverfisvænni bílar tákn um sam- kennd og félagslega ábyrgðartilfinningu. Laugardagur 29. september

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.