Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 30
SKOÐUN
30 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
með af öðrum tegund-
um. Fiskurinn var ís-
aðaður í aðra lestina
en í hina var sturtað
beint úr pokanum, þar
sem sá fiskur átti alltaf
að fara og fór beint í
fiskimjöl. Þá var ekk-
ert brottkast. Ég man
líka þá tíð að Akureyr-
artogarar og ef til vill
fleiri fóru einhverjar
veiðiferðir í Axarfjarð-
ardýpi og fengu þar
mjög mikinn afla.
Lestar voru fylltar og
dekkin líka af smá-
þorski, sem síðan var
landað í mjölbræðslu.
Þar var ekkert brottkast. Það var
ef til vill ekkert óeðlilegt þó að
þessi rányrkja færi fram, þar sem
sannfæring þess tíma vísinda-
manna í fiskifræðum var sú, að Ís-
landsmið yrðu alltaf full af fiski
hvernig sem umgengnin yrði.
Fyrir um 50 árum tóku skip-
stjórar á þorsknetabátum í Eyjum
eftir því að stærsti þorskurinn
safnaðist saman á litlum hraun-
blettum. Þessir blettir urðu að
sjálfsögðu eftirsóttir, þar sem á
þeim fékkst verðmætur afli. Það
kom fljótt í ljós hverskonar fiskur
þarna var á ferðinni og fóru menn
að hugleiða, hvort þessi fiskur væri
ekki ennþá verðmætari fyrir fram-
tíðar aflabrögð fengi hann að lifa
lengur. Á vetrarvertíð 1953 fékk
skipstjóra- og stýrimannafélagið
Verðandi þáverandi forstjóra Haf-
rannsóknastofnunar á fund til sín,
og var hann meðal annars spurður
hvort ekki væri ráðlegt að friða
þessa ákveðnu bletti fyrir þorsk-
netaveiðum. Vísindamaðurinn svar-
aði eitthvað á þá leið. Drengir mín-
ir það er nógur fiskur í sjónum og
ykkur er óhætt að drepa eins og
þið getið af öllum tegundum og auk
þess er sá fiskur, sem þið hafið
áhyggjur af orðinn það gamall að
hann á ekkert annað eftir en að
drepast. Þarna varð vísindunum á
eins og svo oft síðar, þar sem 90%
af þessum stóra fiski voru hrygnur
með margra kílóa hrognapoka í
kviðnum sem þær áttu eftir að
skila frá sér, að minnsta kosti þetta
árið, sem góðu innleggi í þorsk-
veiðar framtíðarinnar. Auðvitað
urðu lítt lærðir sjómenn að virða
svör sprenglærðs vísindamanns,
þótt ekki væru allir sáttir við svör-
in, og rányrkjan hélt áfram.
Ekki tókst okkur þó að ganga
verulega á stórþorskstofninn í
ÞAÐ er eflaust borið í bakkafullan
lækinn að vera enn að skrifa um
þessi mál, þar sem svo margar
lærðar greinar sem þetta varðar
hafa birst í blöðum, sér í lagi nú
eftir að svartasta skýrslan frá
Hafró var kunngerð. Líklega er
það einnig tæpast við hæfi, að gam-
all sjóhundur fari að blanda sér í
álit þeirra stjórnspekinga og vitr-
inga, sem um þetta hafa fjallað nú
á síðustu og verstu tímum. Og þó,
einmitt þessi mál eru það þýðing-
armikil fyrir íslenskt þjóðlíf og
efnahag, að það ætti ekki að spilla
að sem flestir láti ljós sitt skína og
setji fram sína skoðun.
Mitt álit er, að það þurfi enginn
að vera hissa á því þó að allir flóar
og firðir á Íslandi séu ekki fullir af
fiski í dag, þar sem allt frá því að
við eignuðumst skip sem gátu elt
fiskinn, og frá því tæknin færði
okkur tæki til þess að finna hann
og veiðarfæri til þess að ná honum
hvert sem hann reyndi að forða
sér, höfum við gengið mjög sóða-
lega um þessa dýrmætu auðlind
sem fiskimiðin eru, og það með
fullri vitund og vilja þeirra sem
stjórnað hafa þessum málum
hverju sinni sem og vísindanna.
Ég fór nokkrar veiðiferðir sem
háseti á togaranum Bjarnarey fyrir
50 árum. Við veiddum á Fjöllunum
sem kölluð voru. Aflinn var að-
allega karfi en eitthvað slæddist
þetta skiptið enda
óheimilt að hafa
stærri möskva í
þorsknetum en 8
tommur. En fljótlega
komu önnur og stór-
tækari veiðarfæri til
sögunnar og tóku
drjúgan þátt í útrým-
ingarherferðinni. Upp
úr 1960 fór að bera
mikið á sterkum lóðn-
ingum upp um allan
sjó á veiðislóð okkar í
Eyjum. Að sjálfsögðu
lögðum við þorsknetin
okkar í þessar lóðn-
ingar en fengum mjög
lítinn afla. Aftur á
móti drógu handfæramenn bolta-
þorsk úr þessum lóðningum. Glögg-
ir nótaskipstjórar sáu fljótlega að
hér var um þorsktorfur að ræða, en
fiskurinn fór aldrei niður að botni
og slapp því við að festast í net-
unum. Mörgum fannst alveg ótækt
að geta ekki drepið þennan þorsk,
þar sem kenning vísindanna var
enn í gildi. Að alltaf yrði nógur
þorskur á Íslandsmiðum hvað sem
veitt yrði. Stjórnvöld trúðu þessu
og veiðar í þorsknót voru leyfðar,
illu heilli. Aflinn lét ekki á sér
standa. Nótabátarnir mokuðu upp
stórþorski, sem að miklu leyti voru
hrygnur langt komnar að goti, og
svo mikill var aflinn, að veturinn
1964 að mig minnir, var landað svo
miklu af óslægðum nótaþorski í
Vestmannaeyjum að ekki hafðist
nærri undan að slægja og gera mat
úr aflanum. Var tugum eða hundr-
uðum tonna ekið í gúanó, skemmd-
ur matur, vegna lélegrar geymslu í
alltof langan tíma. Þarna var skotið
illa yfir markið og unnið mikið
ólánsverk með fullri vitund og vilja
vísindamanna, því þarna var drepið
mikið af þeim fiski sem séð hafði
um nýliðunina. Smá saman voru
þorsktorfurnar veiddar og svo fór
að það veiðarfæri var ekki arðbært
og því aflagt. Eitthvað slapp lifandi
af stóra þorskinum og hann hélt
því eðli sínu, að fara ekki niður á
botninn en virtist kunna best við
sig á grunnsævi. Fljótlega fundu
menn upp nýtt herbragð og með
fullri vitund og vilja stjórnvalda og
vísindanna var möskvinn í þorska-
netunum stækkaður í 9 og 10
tommur, og auk þess voru netin
dýpkuð mikið frá því sem verið
hafði og náðu nú helmingi lengra
upp frá botninum, og þar með lentu
þeir stóru fiskar, sem sloppið höfðu
frá þorsknótinni, í háfnum og voru
veiddir. Enda mun nú svo komið,
að samkvæmt rannsóknum Guð-
rúnar Marteinsdóttur fiskifræðings
hefur stóra þorskinum, sem hélt
nýliðuninni og þar með stofninum
gangandi nánast verið útrýmt, svo
mjög illa horfir með framtíðarvið-
gang og vöxt og þar með aflabrögð.
Þarna hafa farið saman stjórnviska
og skólabókarvísindi og útkoman
orðið rányrkja.
Ég hef sem sjómaður hlustað á
fiskifræðingana alla tíð, fylgst með
rannsóknum þeirra, ráðleggingum,
útreikningum og útkomum. Stund-
um hef ég undrast kokhreysti
þeirra, þegar þeir fullyrða í
skýrslum sínum, að þetta mörg
tonn af hverri fisktegund syndi nú
á Íslandsmiðum eða jafnvel í norð-
urhöfum. Ég held að þetta séu að
miklu leyti ágiskanir, enda verða
skekkjurnar margar og stórar.
Mín skoðun er sú, að það verði
ekki lært af bók eða tölvu, jafnvel
þótt í háskóla sé, að telja fiskana í
sjónum og því síður að veiða þá. Ég
hef því oft verið hissa á því hvað
sumum fiskifræðingum virðist vera
illa við að ráðfæra sig við reynda
sjómenn. Hluti þessara hámennt-
uðu vísindamanna virðast líta á
okkur sem fávísa karla, sem ekki
sé hlustandi á né mark á takandi.
Við höfum þó skóla reynslunnar
fram yfir þá og dreg ég í efa að sá
skóli og sú þekking, sem þar fæst
sé minna virði en skólabókarlær-
dómur í þessum vísindum. Þá hefur
mér oft fundist að flestir fiskifræð-
ingar taki ekki nógu mikið mark á
ástandi sjávar og lífríkinu á þeirri
fiskislóð, sem þeir eru að rannsaka
hverju sinni, því þó að fiskurinn sé
með kalt blóð þá hefur hann sporð
og ugga og á því auðvelt með að
koma sér á sína kjörstaði, þar sem
sjávarhiti er mátulegur og umfram
allt þangað sem ætið er. Ég tel
engan vafa leika á því hvaða skyn,
sem fiskurinn hefur þá leggur hann
mikla áherslu á, eins og aðrar líf-
verur, að hafa nóg að éta..
Það er sannfæring mín að alltof
mikið mark sé tekið á svonefndu
togararalli og að það sé alls ekki
aðferð til þess að bera saman
ástand fiskistofna ár frá ári. Þó að
sömu skipin séu notuð og þau dragi
sömu vörpur á sömu blettum ár
eftir ár eftir ár, fer aflinn fyrst og
fremst eftir ástandinu á slóðinni
þegar holið er tekið. Það vita allir,
sem lengi hafa migið í saltan sjó, að
víða á landgrunninu næst fiskur
miklu betur í vörpu á öðru hvoru
fallinu. Sumstaðar er það nokkuð
öruggt að besta holið á sólar-
hringnum fæst um fallaskiftin, á
liggjandanum sem kallað er og á
grunnsævi eru dimmumótin oft
drjúgur veiðitími. Fiskur er stöð-
ugt á hreyfingu, ekki einungis á
milli svæða, heldur er hann einnig
ýmist uppundir yfirborði sjávar eða
niður við botn. Algengt er að fiskur
slái sér niður sem kallað er, það er
fari að botni einu sinni til tvisvar á
sólarhringnum, en þá þarf veiðar-
færið að vera á réttum stað eigi afli
að nást. Öllum fiskimönnum finnst
vænlegra til veiða að leggja net sín
eða kasta vörpunni, þar sem vel
lóðar á fisk eða æti en í dauðan sjó,
enda kemur aflamunurinn oftast í
ljós þegar veiðarfærið er innbyrt.
Ég leyfi mér að fullyrða, að enginn
þessara miklu áhrifaþátta í hegðun
fisksins, sem hafa mikla þýðingu
við veiðarnar, annar en dimmumót-
in, ber upp á sama dag á sama
veiðisvæði ár eftir ár. Þessvegna
tel ég að togararallið og jafnvel
netarallið skili alls ekki þeim gögn-
um, sem vísindamennirnir telja að
þau geri, vegna þess að ástand
sjávar og lífríkið á þeim svæðum,
sem þessir rannsóknarleiðangrar
erja geta verið og eru gjörbreytt á
milli ára og því engan veginn sam-
anburðarhæf.
Þá finnst mér Hafró ekki leggja
nógu mikla áherslu á jafnvægi í líf-
ríki sjávar. Þeir eiga að benda á
með sterkum rökum hvað hin stóru
friðuðu sjávarspendýr, sem éta
meira en við veiðum, raska lífríkinu
mikið og það ójafnvægi eykst eftir
því sem friðun þeirra stendur leng-
ur og hlýtur að enda illa verði ekk-
ert að gert.
Nú á síðustu og verstu tímum
virðist brottkast fisks vera aðal-
áhyggju- og deiluefni margra.
Sannleikurinn er sá að brottkast og
ýmis önnur rányrkja hefur alltaf
verið stunduð á Íslandsmiðum og
því miður virðist gamli hugsunar-
hátturinn, að Íslandsmið séu
ódræp, ennþá vera við lýði. Kvóta-
kerfinu hefur á síðustu tímum verið
kennt um brottkastið og trúlega á
það einhvern þátt í því. Það gefur
auga leið, að eftir að farið var að
skammta mönnum veiðar á hverri
fisktegund fyrir sig, hlutu að koma
upp allskonar erfiðleikar. Tökum
sem dæmi trollbát með heldur
nauman kvóta, en af fimm teg-
undum. Á miðju kvótaári lendir
hann í ýsuskoti og kvótinn af þeirri
tegund veiðist upp en nokkuð er
eftir af öðrum tegundum. Því er
breytt í ýsu sem breyta má en
áfram veiðist ýsa. Til þess að geta
veitt það sem eftir er af kvótanum
er ákveðið að leigja ýsukvóta eftir
þörfum, þótt það standi tæpast
undir sér, en þá kemur babb í bát-
inn. Vegna mikillar ýsugengdar,
sem vísindin reiknuðu ekki með, er
enginn ýsukvóti falur. Hvað nú?
Kostirnir eru fáir og allir slæmir. Á
að leggja bátnum og leigja óveidd-
an kvóta? Við það yrði skipshöfnin
atvinnulaus. Á að reyna að landa
ýsunni sem öðrum tegundum, eða
framhjá vigt í skjóli nætur? Á að
sætta sig við sektir, veiðibann og
hneysu eða fara auðveldustu leiðina
og henda ýsunni? Reynt er að forð-
ast þessa fisktegund en ýsuskömm-
in veit ekki að aldrei þessu vant á
hún að synda framhjá trollinu, og
brottkastið eykst.
Trúlega væri hægt að koma í veg
fyrir allt brottkast með því að
breyta núverandi fiskveiðistjórn og
kvótakerfi verulega. Ég á hér við
að hætt yrði að úthluta hverju skipi
árlega ákveðnu magni af hverri
fisktegund, en í staðinn kæmi að á
hverju ári fengju öll skip einn verð-
mætakvóta og yrðu þá að sjálf-
sögðu stuðst við aflareynslu og
veiðihæfni. Þetta er trúlega allt of
mikil einföldun á erfiðri skömmtun,
sem þyrfti réttláta meðferð. Ég
geri mér enga grein fyrir hvort
svona breyting sé framkvæmanleg.
Ef til vill er hugmyndin fyrsta
skrefið hjá mér í það að verða elli-
ær, en væri eitthvað í þessa átt
mögulegt þá myndi ýmislegt í fisk-
veiðistjórnuninni breytast til batn-
aðar. Þá kæmi verðminni fiskurinn,
sem sagt er að nú sé hent öllum í
land, þar sem þá drægist verðmæti
hans frá heildarkvótanum en ekki
magnið eins og nú er, þá lægi það
ljóst fyrir hve mikið væri drepið af
hverri fisktegund, en það hefur
enginn hugmynd um í dag og þá
yrði örugglega meiri sátt um fisk-
veiðistjórnunina en nú er og væri
ekki vanþörf á.
Okkur sjómönnum hefur oft
reynst erfitt að átta okkur á og
framfylgja þeim lögum og reglu-
gerðum í málefnum sjávarútvegs-
ins, sem samin eru á fínu skrifstof-
unni í ráðuneytinu eða Hafró eða
jafnvel á hinu háa Alþingi, og
stundum hefur hvarflað að mér, að
þessi eða hin reglugerðin hljóti að
vera samin af þorskum á þurru
landi.
HAFRANNSÓKNIR
Hilmar
Rósmundsson
Það þarf enginn að vera
hissa á því þó að allir fló-
ar og firðir á Íslandi séu
ekki fullir af fiski, segir
Hilmar Rósmundsson,
því við höfum gengið
mjög sóðalega um þessa
dýrmætu auðlind.
Höfundur er fyrrverandi skipstjóri
í Vestmannaeyjum.
Happdrætti Hjartaverndar sími 535 1825.
Einnig er hægt að panta miða í gegnum tölvupóst á happ@hjarta.is
Greiðslu- og gírókortaþjónusta
Sendum um land allt
Stuðningur þinn skiptir máli
HJARTAVERND
OD
DI
HF
-H
20
18
Rautt Panax
Gingseng
FRÁ
5
2
0
m
g
G
e
ri
a
ð
ri
r
b
e
tu
r H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Rótsterkt - Úrvals rætur
með gmp gæðaöryggi