Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 33

Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 33                                             !  "        #       !""! # $ %" $ &$'!(( )! # $ %"  $# '!(( & *%& $ %" +$ $ '!(( ,$&"- $ %" )$ .$ '!(( !""$ / 0%& $ '!(( !"-"$ $#" %" 0$"$01"0$"$0$"$01" %&  (" ""$ 2("                                                   !  "#$%& & ' # "#& & # ( "#!  )*  $+ #&  # "#& ,-# "#& # # . /# 0!  "# ! )* !                                                                 !    "  ! " !## $#% " $&  '%( )  *$!## +& '%(, " !## % # +  -$$&   % # " $&  &.  !## & /  /(                                                                       ! ! " #  ! ""#$%& #'"##&"  "(  ! ""#) ''  ! *+ , -.##&" /+""$ ! ""#) ''  - $ ! ""#) ''   -)+  "##&"  - $ ! ""#) ''    '$+* +")##&"  "!-)+  ! ""#) ''  +"" + *##&" &"  ! ""#) ''  - .+   " , "$  0 &$ " " , "                                                          ! " #!   $%    % % ! &   % !   '  ( !     % ! ) * " ( ! )   % !   ( ! + +, (  +,                                                             !!"# !!"$       %&'   ( *       ! "  # #  $  %!   ! &'! "    (!$  "  )! !!   !  %! ! * % $  %! +' # #  "  , - # #  "  * % $!  !" "  % ! '! ✝ Kristín Eva Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 12. mars 1979. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 23. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar Kristínar Evu eru Bryndís Ísaks- dóttir, f. 7.5. 1947, og Jón Torfi Jónas- son, f. 9.6. 1947. Systkini hennar eru Ragnheiður, f. 5.4. 1972, Guðrún Anna, f. 23.8. 1974, gift Jó- hannesi Magnússyni, f. 19.6. 1975, og Stefán Árni, f. 2.8. 1988. Kristín Eva gekk í Safamýrarskóla og stundaði síðan nám í Fullorðinsfræðslu fatlaðra. Hún naut dagþjónustu Styrkt- arfélags vangefinna í Lyngási og síðar í Lækjarási. Hún átti einnig margar góð- ar stundir bæði í Álfalandi og í Víði- hlíð. Útför Kristínar Evu fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík á morg- un, mánudaginn 1. október, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Lífsins stærstu sigrar vinnast í kyrrþey. Bróðurdóttir mín Kristín Eva Jónsdóttir er dáin, aðeins tutt- ugu og tveggja ára. Hún þurfti að heyja mikla baráttu allt frá blautu barnsbeini við alvarlegan heilsu- brest sem að lokum bar hana ofur- liði. En þrátt fyrir á köflum mikla vanlíðan og veikindi, var hún aldrei þunglynd. Þvert á móti var hún alltaf glöð og jákvæð. Allir sem kynntust henni voru henni þakklátir fyrir hennar ljúfu lund og hennar bjarta bros. Óneitanlega tóku þessir erfiðleik- ar, allar stundir foreldra hennar. Þau sinntu Kristínu Evu, alla tíð í blíðu og í stríðu. Í þessa tvo áratugi hafa þau, vakin og sofin, staðið við hlið yngstu dóttur sinnar. Og þrjú saman unnu þau sigur sem enginn skilur til fulls, sem ekki þekkir slíkt stríð. Þrautseigja þeirra og lífsgleði vakti alla til umhugsunar, var öllum hvatning og leiðarvísir. Nú ertu farin, um himin háan, og við sólar unað. í fagra dali. Guð launi þér, um allan aldur, uns við sjáumst aftur, ljúflingur. Björn Jónasson. „Fegursta blóm jarðar er brosið“, segir skáldið Henrik Wergeland. Einkenni Kristínar Evu frænku minnar var brosið, fallegt og full- komlega fölskvalaust. Kristín Eva tjáði sig ekki með orðum nema að takmörkuðu leyti. En hún bjó yfir undraverðum skilningi, hafði gaman af vísum og stuðluðu máli og naut þess að vera með fólki og taka þátt í mannfagnaði. Kristín Eva var hvers manns hugljúfi. Ófáa hef ég hitt sem sagt hafa að hún hafi jafnan haft mannbætandi áhrif á umhverfi sitt. Þrátt fyrir sár og erfið veikindi stafaði alltaf gleði frá Kristínu Evu og óendanlegri góðvild og hlýju. Okkur frændfólki hennar, vinum og nágrönnum er nú harmur í huga. Hennar verður sárt saknað. En svo lengi sem við lifum mun brosið henn- ar Kristínar Evu vera með okkur og ylja okkur um hjartarætur. Hún var rík af fegursta blómi jarðarinnar og af því miðlaði hún óspart til vina sinna og allra annarra sem urðu á vegi hennar. Við erum þakklát fyrir samfylgdina. Hugurinn er hjá for- eldrum hennar, systkinum og öðrum aðstandendum á erfiðri stundu. Ögmundur Jónasson. Kristín Eva frænka okkar var yndisleg manneskja. Hún var á sama aldri og við og var ómissandi í hópi okkar frændsystkinanna. Enginn hafði jafngaman af söng og tónlist og hún. Þegar spilað var á spil eða sung- ið gat hún vakað langt fram á nótt og smitaði þá alla sem voru nærstaddir af meðfæddri lífsgleði sinni. Fjöl- skylduboðin verða ekki söm án henn- ar. Í minningunni er einhvern veginn alltaf sól í kringum Kristínu. Það var alltaf sól þegar hún kom í heimsókn „yfir“ eða tók strikið út í Hólabrekku þar sem hún undi sér vel hjá frænku sinni. Eða þegar hún sat með Ísak afa sínum og spilaði. Brosið hennar og gleðin sem stafaði frá henni er það sem einkenndi hana og það sem stendur upp úr í minningu allra sem kynntust henni. Minning Kristínar Evu er „blíð og hrein og skær“ eins og segir í kvæði Heines um bláa blómið. Fyrir þá minningu erum við þakklát og hana munum við ætíð varðveita í hjarta okkar. Andrés, Guðrún og Margrét. Kristín Eva kom til okkar í Lækj- arás 12. mars síðastliðinn, á afmæl- isdegi sínum. Hún var fljót að aðlag- ast daglegu lífi á Lækjarási. Hún varð strax mikill gleðigjafi enda allt- af í góðu skapi, brosandi og kát. Allir sem unnu með henni voru fyrr en varði farnir að brosa með henni. Allt hennar viðmót einkenndist af já- kvæðni og gleði. Hún kenndi okkur að líta björtum augum á lífið. Kristín Eva hafði gaman af mörgu en þó sér- staklega að spila lottó og því að leika sér í tölvunni. Á 20 ára afmæli Lækj- aráss, sem haldið var 6. september síðastliðinn, kom hún ljómandi af gleði með foreldrum sínum, sem hún var í mjög góðum tengslum við eins og aðra í sinni stóru fjölskyldu. Við viljum þakka fyrir þann tíma sem við áttum með Kristínu Evu og munum sakna hennar sárt en yljum okkur við minningarnar um ljúfa og glaðlynda stúlku. Tendraðu lítið skátaljós láttu það lýsa þér, láttu það efla andans eld og allt sem göfugt er. Þá verður litla ljósið þitt ljómandi stjarna skær, lýsir lýð, alla tíð nær og fjær. (Hrefna Tynes.) Kveðja frá Lækjarási. Á morgun kveðjum við með sökn- uði vinkonu okkar hana Kristínu Evu. Við á Lyngási viljum með þess- um orðum þakka allar ánægjulegu stundirnar sem við áttum með henni. Kristín Eva var mikill gleðigjafi og átti alltaf til bros sem yljaði og kallaði fram það besta í hverjum manni. Fallega minningin um Krist- ínu Evu lifir og á eftir að verma okk- ur um langa framtíð. Hún átti því láni að fagna að fæðast inn í góða og samheldna fjölskyldu þar sem hún var umvafin gleði og hlýju. Við þökkum Kristínu Evu sam- fylgdina um leið og við vottum fjöl- skyldu hennar og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Við biðjum algóðan Guð að vernda þau og styrkja á erfiðum stundum. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf . (Hallgrímur Pétursson.) Kveðja frá Lyngási. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Bryndís, Jón og fjölskylda, við vottum innilega samúð. Guð geymi ljúfu stúlkuna ykkar. Blessuð sé minning hennar. Starfsfólk Skammtíma- vistunar, Álfalandi 6. KRISTÍN EVA JÓNSDÓTTIR Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.