Morgunblaðið - 30.09.2001, Side 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 35
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Skrifstofa „með öllu“ á mjög
góðum stað í Reykjavík til leigu
Fyrirtæki, sem er að flytja starfsemi sína til útlanda, óskar eftir
að losna undan leigusamningi í ca 120 fm húsnæði í miðborg
Reykjavíkur. Glæsileg funda- og vinnuaðstaða eftir hentugleika
fyrir 4-6 einstaklinga. Einnig eru til sölu húsgögn og allur nauð-
synlegur búnaður til skrifstofureksturs á sanngjörnu verði. Mjög
hentugt fyrir lögfræðistofu, fasteignasölu, teiknistofu, umboðs-
skrifstofu o.þ.h. Húsnæðið er laust til afhendingar fljótlega.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Fasteignasalan Valhöll sími 588 4477.
Til sölu - Arnarsmári 20
Arnarsmári 20, með bílskúr og
glæsilegu útsýni. Stórglæsileg
105 fm endaíbúð á 3. hæð í fal-
legu fjölbýli, ásamt bílskúr.
Glæsilega innréttuð íbúð á
vandaðan hátt með sérsmíðuð-
um innr. og merbau parketi.
Glæsilegt útsýni.
Opið hús í dag, sunnudag frá kl. 15-18.
Gunnlaugur og Erla taka á móti áhugasömum.
Áhv. 7 m. Verð: 16,5 m. (5540)
Opið hús í Lækjasmára 60
sunnudag frá kl. 16-18
Til sölu glæsileg 3ja herbergja íbúð við Lækjasmára 60 í
Kópavogi. Góðar suðursvalir, sérinngangur, þvottahús í íbúð,
bílskýli. Hrafnhildur sýnir. Ásett verð 13,4 millj.
Þórey Aðalsteinsdóttir hdl., Skeifunni 19,
sími 550 3707 eða 849 1233 - Netfang: thorey@logmenn.is
Hægt að fá sendar myndir á tölvupósti.
Vinur okkar Sigurður Pétursson
var hlýr og velviljaður maður. Hann
var skapgóður og fannst gaman að
slá á létta strengi. Hann var ljúfur og
blíður og oft viðkvæmur. Mestan
hluta ævinnar var hann sjómaður en
í landi vann hann við múrverk hjá
tengdaföður mínum og þá kynnt-
umst við honum. Hann fékk hjarta-
sjúkdóm um 1985 og fór í hjartaað-
gerðir bæði hér heima og í London.
Siggi var sannur Skagamaður og
hafði mjög gaman af fótbolta og fór á
völlinn eins og heilsan leyfði. Einnig
var hann mikill barnakall, þótt ekki
SIGURÐUR RAFN
PÉTURSSON
✝ Sigurður RafnPétursson fædd-
ist 27. janúar 1925.
Hann lést 22. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar Sigurðar
Rafns voru Pétur
Sigurbjörnsson, f.
1900, d. 1966, og
Helga Jónsdóttir, f.
1905, d. 1996. Systk-
ini hans eru Lilja,
Sigríður, Guðjón,
Jón, Minney og
Kristinn.
Sigurður Rafn var
ókvæntur og barn-
laus.
Útför Sigurðar Rafns fer fram
frá Akraneskirkju á morgun,
mánudaginn 1. október, og hefst
athöfnin klukkan 14.
ætti hann nein sjálfur,
og ekkert vissi hann
fallegra en ungbörn og
við hverja læknisheim-
sókn á spítalann notaði
hann tækifærið til að
kíkja í gluggann hjá ný-
fæddu börnunum á
barnastofu fæðingar-
deildar SHA. Fjöl-
skyldu minni sýndi
hann óendanlega hlýju,
velvild og tryggð, fyrir
það þökkum við honum
ævilangt og hann mun
alltaf eiga stóran sess í
hjarta okkar.
Sárt er vinar að sakna,
sorgin er djúp og hljóð.
Minningarnar mætar vakna,
svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta,
húm skuggi féll á brá,
lifir þó ljósið bjarta
lýsir upp myrkrið svarta
vinur þó falli frá.
Góðar minningar geyma,
gefur syrgjendum ró.
Til þín munu þakkir streyma,
þér munum við ei gleyma,
sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Systkinum Sigga og þá sérstak-
lega Kidda bróður hans sendum við
samúðarkveðjur.
Elín, Sveinn, Þorgerður
og Ögmundur.
þurfa að fylgja Guðrúnu til grafar –
hún er sú fjórða af níu systkinum
sem fallin er í valinn – ekkert þeirra
náði sextugsaldri. Hvað sem allri trú
líður eru þeim eflaust ætluð merk
verkefni á öðrum stað og efast ég
ekki um að bræður Guðrúnar muni
taka á móti henni með hlýju og ástúð.
Sölva, Bjarka, Hilmari og öllum sem
þekktu Guðrúnu – þessa frábæru
konu – votta ég samúð mína og bið
um styrk þeim til handa til að komast
í gegnum þessa erfiðu tíma.
Agla Sigríður Björnsdóttir.
Með sorg í hjarta og tár í augum
tek ég mér penna í hönd og langar að
kveðja elskulega frænku mína og
vinkonu, Guðrúnu Steinu Þorláks-
dóttur. Okkar fyrstu kynni voru þeg-
ar Gunna kom á heimili foreldra
minna á vorin til að læra sund í Selja-
vallalaug. Það var ætíð mikið til-
hlökkunarefni hjá okkur systrunum
þegar Gunna var væntanleg og var
ýmislegt brallað á þeim tíma. Eftir-
minnilegast var það þegar við vorum
að hlusta á danslögin í útvarpinu á
laugardagsköldi. Eitthvað var það
víst spennt hátt því pabbi kom og tók
tækið af okkur. Þegar við töldum að
hann væri sofnaður værum blundi þá
varst það þú Gunna sem þorðir að ná
í það. Ég sé fyrir mér brosið þitt og
gleðina í fallegu skærbláu augunum
þínum þegar þú komst til baka.
Svona varst þú alltaf, til í saklaust
sprell.
Gunna var vönduð kona til orðs og
æðis, hún var eins við alla og gott var
að ræða við þig elsku Gunna mín og
fá þínar skoðanir, því þær voru
hreinar og beinar og lýstu því hversu
trúverðug þú varst.
Það verður tómlegra að aka gegn-
um Selfoss á leiðinni austur og geta
ekki komið við í Álftarimanum, feng-
ið kaffi og tilheyrandi og rifjað upp
liðnar samverustundir.
Þeir Sölvi og Bjarki, tengdadæt-
urnar og litlu sonarsynirnir, sem þér
þótti svo vænt um, hafa misst mikið
og votta ég og fjölskylda mín ykkur
innilega samúð og aðstandendum öll-
um.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Þín frænka,
Þórhildur Jónasdóttir.
Nú er hún Guðrún frænka mín dá-
in og nú finnur hún ekki lengur til.
Gunna var móðursystir mín og
mamma var litla systir hennar. Þeg-
ar ég og bróðir minn vorum lítil
bjuggum við í Reykjavík og komum
oft á Selfoss að heimsækja Gunnu og
okkur fannst við ekki vera komin á
Selfoss fyrr en við vorum komin heim
til Gunnu og Hilmars á Engjaveginn.
Við hlupum yfirleitt úr bílnum til að
geta verið sem fyrst inn til Gunnu og
komum þangað syngjandi Gunna,
tunna, grautarvömb og hún spurði
okkur hvað við værum að segja og
elti okkur og þóttist ætla að flengja
okkur en það gerði hún ekki heldur
faðmaði okkur og gaf okkur eitthvað
gott að drekka.
Eftir að við fluttum á Selfoss vor-
um við daglegir gestir hjá Gunnu og
hún fékk aldrei leið á okkur. Eitt sinn
komu mamma og pabbi mér fyrir hjá
Gunnu og Hilmari á meðan þau fóru
til Spánar. Ég var þá níu ára. Þá voru
í tísku einhverjir stelpujakkar sem
þóttu voðalega smart og mömmurn-
ar voru í að sauma á dætur sínar.
Gunna fór með mig út í búð og keypti
efni og saumaði á mig og fór svo með
mig til Reykjavíkur og keypti á mig
buxur í stíl og eyrnalokka og ég var
eins og prinsessa hjá henni. Hún
Gunna var svo góð við okkur og öll
áttum við sérstakt pláss í hjarta
hennar. Þrátt fyrir að við systkina-
börn hennar séum mörg hafði hún
pláss fyrir okkur öll og hún var besta
frænka okkar allra.
Þegar ég eignaðist dóttur komu
mamma og Gunna upp á sjúkrahús
að sjá nýfædda barnið. Gunnu fannst
handtökin hjá mér eitthvað klaufaleg
svo að hún klæddi hana í fyrstu fötin.
Ég veit að Gunna skipar alveg jafn
mikilvægan sess í hennar lífi eins og
hún gerði í mínu, því hún tók fullan
þátt í því að dekra hana og „eyði-
leggja“ uppeldið fyrir mér eins og
amman gerir. Hún Gunna var ynd-
isleg og góð manneskja og hennar er
nú sárt saknað.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku Sölvi, Bjarki og litlu ömmu-
strákar, Ingileif og Marjaana, guð
veri með ykkur.
Silja Dröfn Sæmundsdóttir.
Elsku Gunna frænka, eins og við
kölluðum þig alltaf, nú ertu farin og
baráttu þinni lokið. Þú munt skilja
eftir stórt skarð hjá öllum sem
þekktu þig.
Margar eru minningarnar sem
verða varðveittar um ókomna tíð, ég
veit að þér líður betur núna og að þér
hefur verið ætlað annað hlutverk á
öðrum stað þó að við sem eftir erum
séum ekki sátt, þú áttir svo mikið eft-
ir.
Við kveðjum þig með trega og
söknuði, elsku Gunna okkar.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Þú ert stjarnan mín.
Elsku Sölvi, Marjaan, Bjarki,
Ingileif, Hákon, Eyleifur, Arnþór og
Hilmar.
Megi góður guð vaka yfir ykkur.
Guð veri með þér, elsku Gunna.
Kveðja,
Emma, Einar, Berglind Ósk
og Guðrún Ósk.
Elsku Guðrún frænka. Okkur þyk-
ir svo leitt að þú þurftir að fara frá
okkur aðein 59 ára. Þú varst alltaf
Gunna frænka, alltaf svo góð við okk-
ur, hafðir gaman af börnum og vildir
allt fyrir þau gera. Við óskum þér
velfarnaðar í betri og bjartari heimi
þar sem þjáningar þínar hefta þig
ekki lengur. Við vitum það líka að það
verður tekið vel á móti þér í nýjum
heimkynnum. Það var gaman að fá
þig til okkar í sumar þegar við vorum
í útilegu. Þú borðaðir með okkur og
þar áttum við góða stund saman.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað.
Krjúpa niður, kyssa blómið,
hversu dýrlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað,
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur Geir Halldórsson.)
Ástarþakkir fyrir allt elsku
frænka. Guð geymi þig.
Guð styrki ykkur og ykkar fjöl-
skyldur, elsku Sölvi og Bjarki.
Viðar, Axel Ingi, Andrea
Rún og Karen Thelma.
Mín elskulega vinkona Guðrún
Steina, það er svo sárt að þurfa að
sætta sig við það að þú sért dáin. En
ég veit að þér líður betur núna. Mig
langar að þakka þér fyrir allar þær
samverustundir sem við áttum. Þær
eru mér dýrmætar og ég sakna þín
sárt, en þú átt stóran stað í hjarta
mínu og munt alltaf eiga. Það er svo
erfitt að hugsa til þess að geta ekki
komið oftar í heimsókn til þín eða
hringt í þig. Það var alltaf svo nota-
legt að koma til þín. Ég gat alltaf tal-
að við þig um allt, þér var treystandi
fyrir öllu. Við áttum góðar stundir
saman þótt það væru mörg ár á milli
okkar. Þú varst alltaf svo góð við mig.
Eitt skiptið sem ég var stödd hjá
þér á sjúkrahúsinu áttum við yndis-
lega stund saman, gátum faðmast
eins og við gerðum oft og héldumst í
hendur. Ég gat sagt það sem mig
langaði að segja við þig. Það voru líka
falleg orðin sem þú sagðir við mig,
því verður aldrei gleymt. Þetta var
einstök stund, takk fyrir það elsku
Guðrún mín. Ég tel mig ríka að hafa
fengið að kynnast þér og þinni ein-
stöku persónu. Ég trúi því að þú sért
ein af fegurstu stjörnunum þarna
uppi og veit að þú ert alltaf hjá okkur.
Ég sé þú ert ljósið sem vísar veginn,
þú vekur hjá mér þrá.
Um veröld ég veginn fer,
ég veit að þú fylgir mér.
Ég fegurðina fæ að sjá.
Í myrkri um nætur finn ég feginn
að frelsið bíður mín.
Þótt nóttin sé niðamyrk
þá náð þín mér veitir styrk.
Þú ert stjarnan sem stöðugt skín.
Í ljósinu sé ég lífsins mynd,
í ljósinu birtist þú mér.
Ljósið það eyðir lygi og synd
því ljósið er mynd af þér.
(Kristján Hreinsson.)
Elsku Sölvi, Bjarki og fjölskyldur,
ég sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Nína Björg Borgarsdóttir.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Formáli
minning-
argreina