Morgunblaðið - 30.09.2001, Síða 41

Morgunblaðið - 30.09.2001, Síða 41
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 41 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669 Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989 Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343 Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913 Laugarvatn Valdimar Ingi Auðunsson 486 1136 Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400 Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234 Neskaupstaður Ægir Guðjón Þórarinsson 477 1372 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Neskaupstaður Bjartur Sæmundsson 477 1489 Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Agnieszka Szczodrowska 465 1399 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815 Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281 Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Mikið úrval góðra fasteigna á Costa Blanca www.inmovillas.com Netfang: inmovillas@retemail.es Sími 0034 96679 6260 - Ása Björk, sími 0034 650730425 Góð þjónusta er okkar fag FASTEIGNASALA FAXAFENI 5 SÍMI 533 1080 FAX 533 1085 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14 TIL 17 ENGJASEL 67 Sigurjón og Arna sýna þessa fallegu, rúmlega 90 fm íbúð í Steni-klæddu fjölbýli, með bíl- skýli. Stór og björt parketlögð stofa. Mikið útsýni. Baðherb. nýuppgert. Tvö góð svefnher- bergi og rúmgott eldhús. Sameign til fyrirmyndar og verðlauna- garður. Rólegt og barnvænt hverfi. Verð aðeins 11,1 millj. GIMLI GIMLI FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099 Góð 117 fm íbúð á þessum vinsæla og barnvæna stað. Góð stofa með suðursvölum. Þrjú góð svefnherbergi með skápum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuaðstöðu, innrétting og tengi fyrir þvottavél. Eldhús með góðri eldri innréttingu og góðum borðkrók, glæsilegt útsýni yfir borgina. Verð 12,2 millj. Sigurður og Unnur taka á móti ykkur í dag frá kl. 14-16. BLÖNDUBAKKI 13 - MEÐ AUKAHERBERGI  Innilegar þakkir sendi ég börnum mínum, fjölskyldum þeirra, vinum og kunningjum, sem heiðruðu mig með gjöfum og skeytum á áttræðisafmæli mínu 22. september að Álfta- landi á Reykhólum. Guð blessi ykkur öll. Theódóra Guðnadóttir, Höllustöðum. SÁ bókelskur Íslendingur er vand- fundinn, sem ekki hefur lesið Brennu-Njálssögu, gimstein forn- sagna okkar. Það hefur og lengi verið iðja leikra sem lærðra að gera því skóna, hver verið hafi höfundur Njálu. Njálssaga er rituð á seinni hluta 13. aldar en spannar tíma fjær í þjóðarsögunni, frá 950 til 1015. Samt sem áður er hún lifandi og „fersk“ í hugum þjóðarinnar enn í dag, nálægt þúsund árum síðar. Njálsbrennu er víðar getið í forn- um rituðum heimildum, svo sem í Landnámabókum og annálum. Snorri Sturluson nefnir Njál í Eddu. Brennu-Flosa er og getið í konungasögum og víðar. Einar Laxness segir í „Glæpur og refsing í Íslandssögunni“ (Vaka-Helgafell 2001) að „í flestum heimildum sé brennan talin nóttina 21.-22. ágúst 1010“. Það er vart um það deilt að höf- undur Njálu er fremstur forn- sagnahöfunda okkar, frábært skáld, mikill sagnameistari. Menn eru á hinn bóginn ekki á einu máli um sannleiksgildi Njálu, fremur en annarra fornsagna okkar. En sjald- an fellur eplið langt frá eikinni. Ekki mun langt frá marki skotið að telja Njálu skáldsögu með sagn- fræðilegu ívafi eða sögulegum þræði. Maður var nefndur Þang- brandur. Hann var saxneskur eða flæmskur og hirðprestur í Monst- ur. Njála greinir frá hingaðkomu hans þeirra erinda að boða kristni. Meðal þeirra er skírn tóku af Þang- brandi var Síðu-Hallur, sá er síðar fór fyrir kristnum mönnum á Al- þingi á Jónsmessu árið 1000, þá er kristni var lögtekin. Skömmu fyrir komu Þangbrands bárust mikil tíð- indi út hingað. Í Brennu-Njálssögu segir: „Það spurðist þar með, að siða- skipti hefðu orðið í Noregi. Höfðu þeir kastað hinum forna átrúnaði, en konungur hafði kristnað Vest- urlönd, Hjaltland, Orkneyjar og Færeyjar. Þá mæltu margir, svo Njáll heyrði, að slíkt væru mikil firn at hafna fornum átrúnaði. – Njáll sagði þá: Svo lízt mér sem inn nýji átrúnaður muni vera miklu betri, og sá mun sæll, er þann fær heldur, og ef þeir menn koma út hingað, er þann sið bjóða, þá skal ég það vel flytja.“ Í Brennu-Njálssögu segir og: „Þaðan fór Þangbrandur til Berg- þórshvols, og tók Njáll við trú og öll hjú hans…“. Njála færir heim sanninn um, svo enginn þarf um að efast, að Njáll var maður mikilla vitsmuna. Ólíklegt er hann hafi tek- ið svo afgerandi afstöðu með hinum nýja sið, sem hann gerði, nema þekkja vel til hans. Hvort tveggja hefur til komið: 1) Að kristnir menn vóru í hópi landnámsmanna og fyr- ir í landinu um daga Njáls. 2) Að flest lönd Evrópu höfðu þá við kristni tekið. Njáll á Bergþórshvoli var á Al- þingi árið 1000, þá er kristni var lögtekin. Ekki fer á milli mála, hver afstaða hans var til hins nýja siðar. Þorgeir Ljósvetningagoði las upp hin kristnu lög, þar sem kveðið er á um, að Íslendingar „hafi einn sið og ein lög…“ og „að allir menn skuli kristnir vera og skírn taka, þeir er áður vóru óskírðir á landi hér“. Ekki er ólíklegt að fleiri menn en Þorgeir hafi komið að þeirri þjóð- arsátt, sem kristnitakan og hinn nýi lagatexti var, spakir menn og framsýnir. Víkur nú sögunni að Grágás. „Grágás er mesta lagasafn, sem germönsk þjóð á frá þjóðveldistíma sínum á eigin tungu“, segir Einar Laxness í Íslands sögu. Þar stend- ur: „Það er upphaf laga vorra, að allir menn skulu kristnir vera á landi hér og trúa á einn Guð, föður son og heilagan anda.“ Það er til kristnitökulaga og forns lagatexta Grágásar, sem þjóðkirkjan rekur rætur. Ákvæði stjórnarskrár lýð- veldisins tengja kjarna þessara fornu laga við samtímann. Það gera og þjóðfáninn (krossfáninn) og þjóðsöngurinn. Sigurbjörn biskup Einarsson sagði á þjóðhátíð á Þingvöllum árið 1974 „að hvert barn sem fæðist sé landnámsmaður. Þar heilsa ný augu ókunnu landi og eignast þar heimkynni.“ Þannig séð fetum við öll í fótspor landnámsmannanna, er skópu íslenzkt þjóðveldi. Og við fet- um í fótspor þeirra er við trúnni tóku á þingi árið 1000, bæði við skírn og móttöku heilags sakra- mentis. Og gleymum því ekki, að Hann, sem nam land í þjóðarsálinni fyrir þúsund árum, er enn að helga sér land með Íslendingum, í huga þeirra og hjarta. „Megi það vera samhuga íslenzk bæn á dýrum degi“, sagði Sigurbjörn biskup á Þingvöllum 1974, „að börn Íslands megi um aldur festa rætur í land- námi hans og helgast af eldi hans og anda“. Kristniþáttur Njálu Líklegt er að Njáll á Bergþórshvoli hafi ver- ið viðstaddur kristni- tökuna á Alþingi árið 1000. Stefán Frið- bjarnarson staldrar við kristniþátt Njálu og Grágásar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þingvellir DAGUR hjúkrunarfræðideildar HÍ verður haldinn hátíðlegur þriðjudag- inn 2. október nk. Dagskrá og mót- taka verða í hátíðarsal Háskóla Ís- lands kl. 17–19 og eru allir velunnarar hjúkrunarfræðideildar velkomnir . Björg Árnadóttir, formaður Holl- vinafélags hjúkrunarfræðideildar flytur ávarp og afhentar verða við- urkenningar fyrir rannsóknarstörf í þágu hjúkrunar og hjúkrunarmennt- unar. Einnig flytja erindi Erla K. Svavarsdóttir, varaforseti hjúkrun- arfræðideildar, Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Landspítala – há- skólasjúkrahúss, og Marga Thome, deildarforseti hjúkrunarfræðideild- ar. Fundarstjóri verður Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga. Dagur hjúkr- unarfræðideildar JÓN Egill Egilsson sendiherra af- henti miðvikudaginn 26. september 2001, dr. h.c. Johannes Rau, forseta Sambandslýðveldisins Þýskalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Ís- lands í Þýskalandi. Afhenti trúnaðarbréf ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.