Morgunblaðið - 30.09.2001, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 30.09.2001, Qupperneq 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. MYNDBANDIÐ Úr starfi Knattspyrnufélags Reykjavíkur er komið út, en það eru svipmyndir úr starfi félagsins frá árunum 1944 til 1949. Upphaflegu kvikmynd- ina tók Vigfús Sigurgeirs- son ljósmyndari, en út- dráttur úr henni hefur nú verið settur á myndband. Í myndinni getur að líta KR-inga og aðra þekkta íþróttamenn frá fimmta áratug aldarinnar. Myndirnar voru teknar á íþróttaæfingum, á kapp- leikjum og mótum og einn- ig á fimleikasýningu í Hljómskálagarðinum. KR- konur gáfu félaginu mynd- ina á 90 ára afmæli KR ár- ið 1989. Nú er unnið að gerð myndar um árin frá 1950– 1975. Til að auka fjölbreytni í myndinni eru KR-ingar og aðrir sem eiga í fórum sín- um kvikmyndir úr starfi KR frá því tímabili vin- samlegast beðnir um að láta skrifstofu KR vita í síma 510-5305, Elínu í síma 552-8205 eða Geir- laugu í síma 552-0731. Óvirðing við íslenska hestinn ÍSLENSKI hesturinn er búinn að fylgja okkur gegnum aldirnar; oft kall- aður þarfasti þjónninn. Hann vekur allsstaðar at- hygli fyrir fegurð, gang- snilli og vitsmuni. Svo fór að hann vakti athygli ann- arra þjóða og nú er svo komið að hann er fluttur út til margra landa, bæði í keppni og til ræktunar. Við lesum fréttir af afrek- um hans utanlands enda þótt þessi heitari lönd séu ekki hans kjörlendi. Heyrst hefur um hestaex- em sem hrjáir hann vegna hita. 11. september sl. las ég grein í Morgunblaðinu: „Hin döpru augnablik hestamótanna“ eftir Valdi- mar Kristinsson. Þar kem- ur fram það sem mig hefur lengi grunað. Hestunum er iðulega misboðið í harðri keppni í allt of miklum hita, svo ofþreytu má oft sjá á þeim. Svo er annað sem ég vil vekja athygli á. Við sjáum oft glæsihesta og stolta knapa þar sem fax hest- anna er svo sítt og ósnyrt að þeir sjá ekki fram úr augum nema á hlaupum móti vindi. Auk þess að sjá ekki fram fyrir sig svitna þeir mikið undir svona miklu faxi. Sagt er að sum- um finnist þetta fallegt, hestanir sýnist villtari. Ís- lenski tamdi hesturinn á ekki að sýnast villtur. Ég spurði einu sinni hreykinn hestamann hvernig hann gæti boðið hestinum þetta. Hann svaraði því að hest- urinn ætti að geta treyst knapanum, þetta væri í lagi. Þvílíkt svar! Íslenski hesturinn hefur ratað um vegi og vegleysur í gegn- um tíðina og stundum bet- ur en menn. Að lokum vil ég minnast á útigöngu- hross, oft með frosið faxið langt niður fyrir augu. Hestamenn góðir; takið þetta til athugunar varð- andi velferð hestsins. Gott væri að heyra frá fleirum varðandi þetta. Dýravinur. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU, með fer- kantaðri dökkbrúnni þunnri umgjörð í gras- grænu hulstri með mynd, týndust 13. nóvember sennilega fyrir utan Broadway. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551- 2296, 695-2269 eða 694- 4974. Dýrahald Trítla er týnd LÍTIL, brúnbröndótt persnesk læða með brún augu fór úr Grafarvogi að- faranótt miðvikudags. Hún er ómerkt og ólarlaus. Hennar er sárt saknað. Þeir sem hafa orðið henn- ar varir hafi samband í síma 692-4712. Júlla er týnd TÍKIN Júlla týndist í Hafnarfirði 24. ágúst sl. Hún er brún með hvíta bringu, hvítar lappir og svart trýni. Hún var með ól og er merkt. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 865- 5860 eða 869-6711. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Mynd um sögu KR Víkverji skrifar... HEIMASÍÐA Mjólkursamsöl-unnar á Netinu (www.ms.is) er afskaplega glæsileg og skemmtileg. Þar fann Víkverji eft- irfarandi fróðleik, sem honum finnst rétt að koma á framfæri: „Vissir þú … … að beinagrindin er geymsla? Beinin hafa margvísleg steinefni að geyma. Ef þú færð ekki öll þau steinefni sem þú þarft á að halda úr daglegri fæðu tekur líkaminn þau úr beinunum. Athugaðu samt að forðabúrið getur tæmst og þá er voðinn vís! … að samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar virkar líkams- rækt jafnvel betur gegn þunglyndi en þunglyndislyf? … að samkvæmt nýlegri sænskri rannsókn eru karlmenn sem neyta mikilla mjólkurvara grennri og hafa nokkuð hagstæð- ara kólesterólinnihald í blóði en þeir sem neyta minna af mjólk- urvörum? Hluti skýringarinnar er talinn sá að þeir séu vel meðvitaðir um heilbrigt líferni og velji mjólk- urvörur sem sjálfsagðan þátt í hollu mataræði. … að líkaminn endurnýjar sig á um það bil sjö ára fresti um það sem samsvarar heilli beinagrind? … að beinin eru ekki bara stein- efnaforði líkamans – auk þess auð- vitað að halda okkur uppi? Þau gera okkur einnig kleift að hreyfa okkur, verja mikilvægustu líffæri okkar og síðast en ekki síst: Fram- leiða blóðkorn. Sérstakur bein- mergur í höfuðkúpunni, mænunni og bringubeininu framleiðir 2.500.000 rauð blóðkorn á sek- úndu.“ x x x VÍKVERJI vafrar talsvert umNetið. Nýverið skoðaði hann ýmsar heimasíður skólastofnana hér á landi sem eru skiljanlega jafn misjafnar og þær eru margar. Athygli vekur hversu vel er staðið að síðu Menntaskólans á Akureyri (www.ma.is), en aftur á móti ollu síður Menntaskólans í Reykjavík (www.mr.is) og Menntaskólans á Laugarvatni (www.ml.is) Víkverja vonbrigðum. Ekki síst vegna þess að þær höfðu augljóslega ekki ver- ið uppfærðar í töluverðan tíma. Á heimasíðu MR var aðeins frétt undir liðnum Tilkynningar. Hún hefst svona: „Skólaslit Mennta- skólans í Reykjavík verða í Há- skólabíói fimmtudaginn 7. júní. At- höfnin hefst kl. 14.“ Þá er greint frá því að umsóknir um skólavist fyrir næsta skólaár, 2001–2002, þurfi að hafa borist skólanum í síðasta lagi föstudaginn 8. júní, skólinn verði settur 23. ágúst og kennsla hefjist daginn eftir. Það er sem sagt rúmur mánuður síðan skólinn hófst, en enn er þetta samt eina fréttin á heimasíð- unni. Nýjasta fréttin á heimasíðu ML var sú að skólinn yrði settur mið- vikudaginn 29. ágúst kl. 14.00. „Nýnemar eru kallaðir til skóla daginn áður, hinn 28. ágúst. Þá munu skólastjórnendur og náms- ráðgjafi funda með forráðamönn- um þeirra um ýmis mál er varða samskipti milli skólans og heim- ilanna. Á meðan koma nýir nem- endur sér fyrir í herbergjum sín- um. Eftir fundinn mun for- ráðamönnum, sem þess óska, gefast kostur á viðtölum við skóla- meistara, aðstoðarskólameistara og námsráðgjafa.“ ML „verður“ settur 29. ágúst og kennsla „hefst“ skv. stundaskrá morguninn eftir. Skipin Reykjavíkurhöfn: Ocean Castle, Selfoss og Kyndill koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Stella Rigel kemur í dag. Rán og Selfoss koma á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 10 boccia, kl. 14 fé- lagsvist. Enskunámskeið hefjast þriðjudaginn 3. okt. Skráning í af- greiðslu og síma 562- 2571 einnig er hæt að komast að í bókbandi sem er á föstudögum kl.13. Árskógar 4. Á morgun kl. 9-12 opin handa- vinnustofan, kl. 10:15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13:30-16:30 opin smíða- stofan/útskurður, kl. 13:30 félagsvist, kl. 10-16 púttvöllurinn opinn, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9-16 handa- vinna, kl. 9-12 bútasaum- ur, kl. 10-11:30 sam- verustund, kl. 13:30-14:30 söngur við píanóið, kl. 13-16 búta- saumur. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20:30. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16:30-18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 9 myndlist, kl. 9:30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10-12 versl- unin opin, kl. 11:10 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Enska framhaldsflokkur, kennsla hefst mánudag- inn 1. október kl. 13:30 og miðvikudaginn 3. október kl. 13:30, byrj- endur. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Á morg- un kl. 9 böðun og hár- greiðslustofan opin. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Á morgun félagsvist kl. 13:30. Á þriðjudag saum- ar og bridge. Pútt á vell- inum við Hrafnistu kl. 14. Þriðjud. 2. okt. pútt- keppni við púttklúbb Hrafnistu á Hrafn- istuvelli mæting kl. 13:30. Kaffi á eftir í Hraunseli. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Félagsvist kl. 13:30 í dag og dansleikur kl. 20 í kvöld Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánu- dagur: Aðalfundur bridsdeildar FEB kl. 13 spilað á eftir. Þriðjudag- inn 2. október kl. 12 koma eldri borgarar frá Svíþjóð í heimsókn til okkar í Ásgarð Glæsibæ. Skák kl. 13 á þriðjudag og alkort kl. 13:30. Mið- vikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Brids- námskeið byrjar mið- vikudagskvöldið 3. októ- ber kl 19:30 í Ásgarði Glæsibæ, kennari Ólafur Lárusson. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxafen 12 sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsi- bæ. Upplýsingar á skrif- stofu FEB kl. 10-16 í síma 588-2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Á morgun kl. 9-16:30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 14 félagsvist. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9-16:30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13:30-14:30 banka- þjónusta, kl. 14 kóræfing hjá Gerðubergskórnum, stjórnandi Kári Frið- riksson, dans hjá Sig- valda fellur niður og byrjar aftur 8. okt. (Ekk- ert skráningargjald.) Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 9-17, kl. 9:30 gler og postulínsmálun, kl 13 lomber, kl. 13:30 skák, kl. 20 skapandi skrif. Gullsmári Gullsmára 13. Á morgun kl. 9 vefnaður, kl. 9:05 leikfimi, kl. 13. brids, kl. 20:30 fé- lagsvist. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 perlusaumur, postulínsmálun og korta- gerð, kl. 10 bænastund. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 föndur, kl. 10 boccia, kl. 13 frjáls spilamennska. Bænastundir hefjast þriðjudaginn 2. október nk. og verða kl. 13:30 í umsjá sóknarprestsins í Grensáskirkju, séra Ólafs Jóhannssonar. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10-11 ganga, kl.12- 15 bókasafn. Vesturgata 7. Á morgun kl. 9:15-15:30 handa- vinna, kl. 10-11 boccia, kl. 12:15-13:15 dans- kennsla, kl. 13-16 kóræf- ing. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smíði, kl. 9:30 bókband, bútasaumur og morg- unstund, kl. 10 sund, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla, leikfimi og spil- að. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 alla mánu- daga og fimmtudaga. Skráning kl. 12:45. Spil hefst kl. 13. Bridsdeild FEBK í Gullsmára. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13-15, kaffi. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Á morgun brids kl. 19. Kvenfélag Kópavogs vinnukvöld vegna basars mánudag kl. 20, í Hamraborg 10. Safnaðarfélag Graf- arvogskirkju. Fyrsti fundur haustsins verður mánudaginn l. október kl. 20 í safnaðarsal Graf- arvogskirkju. Jónína Benediktsdóttir íþrótta- fræðingur flytur erindið: „Á eigin vegum?“ Ábyrgð einstaklinga á eigin lífi. Kaffiveitingar. Kvenfélag Garðabæjar heldur fyrsta félagsfund vetrarins á Garðaholti, þriðjudaginn 2. okt kl. 19:30. Munið að tilkynna þátttöku í síðasta lagi sunnudagskvöldið 30. sept. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Mánudagur kl. 9 leir , kl. 9:45 boccia, kl. 11:15 leikfimi, kl. 13 leikfimi og glerskurður. Leshringur Bókasafni Garðabæjar kl. 10:30, tölvunámskeið kl. 15:10, Þriðjudagur kl. 9 vinnu- hópur 1 í gleri, kl. 13 málun, 13:30 tréskurður, 13:30 spilað í Kirkju- hvoli, brids, vist, lomber og tafl. Miðvikudagur kl. 11:15 leikfimi, kl 13 leik- fimi. Tölvunámskeið kl. 15:30. Bútasaumur kl. 16. Fimmtudagur kl. 9:45 Boccia, kl 10 ker- amik. Snyrtinámskeið kl. 9. Spænska kl. 12:15. Vinnuhópur 2 í gleri. Spiladagur í Holtsbúð fimmtudaginn 4.október kl. 13:30. Leshringur á Bókasafni Álftanesi byrjar 10. okt. kl. 15. Föstudagur:Japanskur pennasaumur – nokkur pláss laus. Upplýsingar í S: 565 6622 e. hádegi sjá www.fag.is. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði. Fyrsti fundur vetrarins verður þriðjudaginn 2. október í Safnaðarheim- ilinu, Linnetstíg 6, kl. 20:30. Kvenfélag Seljasóknar heldur fyrsta fund haustsins 2. okt kl 20. í Seljakirkju.Tískusýning o.fl. Kvenfélag Háteigs- sóknar. Fundur verður þriðjudaginn 2. október kl. 20 í safnaðarheim- ilinu. Kynning á fatnaði frá Friendtex. F.E.B.K. Haustlitaferð. Farið verður í haustlita- ferð þriðjud. 2. okt. ef veður leyfir. Farið frá Gjábakka kl. 13 og Gull- smára kl. 13:15. Boðið upp á kaffi í ferðinni. Þátttökulistar í Gjá- bakka s: 554-3400 og Gullsmára s: 564-5260. Skráið ykkur sem fyrst. Kvenfélag Laugar- nessóknar, fyrsti fundur vetrarins er á morgun 1. okt. kl. 20 í safnaðar- heimili kirkjunnar. Dansk Kvindeklub, heldur fund í Norræna húsinu þriðjudaginn 2. október kl. 20:30. Skoð- aðar verða myndir úr 50 ára sögu klúbbsins. Allar danskar konur velkomn- ar. Samvinnuferðir- Landsýn. Vegna útkomu skíðabæklings verður haldinn kynning- arfundur fimmtud. 4. október á Kringlukránni kl. 18. Í dag er sunnudagur 30. sept- ember, 273. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Auga þitt er lampi líkamans. Þegar auga þitt er heilt, þá er og allur líkami þinn bjartur, en sé það spillt, þá er og líkami þinn dimmur. (Lúk. 11, 33.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 götumál, 4 vesældarbú- skapur, 7 ávöxtur, 8 styrk, 9 tannstæði, 11 nabbi,13 skjóla, 14 bjarta, 15 bjarndýrshíði, 17 munnur, 20 borða, 22 hnappur, 23 afkvæmi, 24 hvalaafurð, 25 lifir. LÓÐRÉTT: 1 skjögra, 2 ímugustur, 3 hlaupalag, 4 stirð af elli, 5 æðarfugl, 6 brengla, 10 fráleitt, 12 flýtir, 13 flík, 15 stykki, 16 slagbrand- urinn, 18 votur, 19 sér eftir, 20 hlífi, 21 tómt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 rummungur, 8 lóðar, 9 fæðir, 10 inn, 11 tíran, 13 aurum, 15 stúfs,18 Eddur, 21 lof, 22 gubba, 23 illum, 24 farkostur. Lóðrétt: 2 urðar, 3 mærin, 4 nefna, 5 Urður, 6 slit, 7 gröm, 12 arf, 14 und,15 segl, 16 útbía, 17 slark, 18 efins, 19 dældu, 20 rúma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.