Morgunblaðið - 30.09.2001, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 45
DAGBÓK
Grecian 2000
hárfroða
Er hárið að
grána og þynnast?
Þá er Grecian 2000
hárfroðan lausnin.
Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í,
greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný,
þykknar og fær frískari blæ.
Einfaldara getur það ekki verið.
Haraldur Sigurðsson ehf.,
heildverslun
Símar: 567 7030 og 894 0952
Fax: 567 9130
E-mail: landbrot@simnet.is
Fæst í apótekum, hársnyrtistofum og „Þín verslun“
NÁMSAÐSTOÐ
við þá sem vilja ná lengra í
grunnskóla háskóla
framhaldsskóla flestar námsgreinar
Innritun í s íma 557 9233 frá kl . 17-19
Nemendaþjónustan sf. Þangbakka 10, Mjódd.
HÖFUÐBEINA- OG SPJALDHRYGGSJÖFNUN
College of Cranio Sacral Therapy London.
3ja ára heildarnám. A. hluti 1. stig 10.-15. nóv.
Námið veitir full réttindi innan bresku og evrópsku samtakanna.
cranio.simnet.is - cranio@simnet.is
Gunnar 699 8064 - Margeir 897 7469
Sími 893 9957 Jón.
Til sölu vinnuskúrar
með rafmagni, hita og snyrtingu
!
" # $# # #
%" &
'
%
()
" (*
+
$$! , --./*-*
-0.1-''
SKOTINN Albert Benja-
min (f. 1909) var þekktur
spilari og mikilvirkur
bridsblaðamaður um 40
ára skeið. Hann skrifaði
dagdálk í skosk blöð og
greinar í breska tímaritið
Bridge Magazine. Við
hann er kennd sú sagn-
aðferð að nota bæði tvö
lauf og tvo tígla sem sterk-
ar kröfusagnir, en mis-
sterkar þó. Opnun á tveim-
ur tíglum er krafa í geim,
en tvö lauf jafngildir Acol-
tveimur í lit og er krafa
um hring. Tilgangur
Benjamins með þessari
„tvöföldu alkröfu“ var sá
einn að gera Acol-spilurum
kleift að opna á veikum
tveimur í hjarta og spaða.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ –
♥ G9
♦ KDG10
♣ ÁKD8432
Vestur Austur
♠ K2 ♠ DG3
♥ Á ♥ D10875
♦ 876543 ♦ Á92
♣ 10976 ♣ G5
Suður
♠ Á10987654
♥ K6432
♦ –
♣–
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Sagnvenja Benjamins
kemur hér ekkert við
sögu, en spilið er hins veg-
ar „samið“ af Benjamin
sem dæmi um „afblokker-
ingar“ í hæsta gæðaflokki.
Suður spilar fjóra spaða og
fær út tígul. Hann trompar
ás austurs og leggur niður
spaðaás.
Og nú hefjast miklar
stífluhreinsanir. Vestur
lætur kónginn undir ásinn
og austur drottninguna.
Suður spilar aftur spaða,
austur drepur á gosann og
spilar sér út á trompþristi,
en þá notar vestur tæki-
færið og hendir hjartaás!
Vörnin hefur nú gefið
sagnhafa tvo slagi, en þeir
koma til baka og sá þriðji í
kaupbæti, því sagnhafi
kemst aldrei inn í borð og
verður að gefa þrjá slagi á
hjarta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert frækinn og forvitinn
og þessir eiginleikar eru þér
dýrmætt veganesti í erli
dagsins.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú getur lært ýmislegt af öðr-
um, einkum vinum þínum.
Láttu þá samt ekki blinda þig,
því þú ert þinnar gæfu smiður.
Vertu umfram allt þolinmóð-
ur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Komdu betra skipulagi á hlut-
ina í kring um þig. Það myndi
létta þér lífið og hjálpa þér til
þess að skila þínu hlutverki
miklu betur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir að finna sköpunarþrá
þinni farveg. Það skiptir engu
hvort þú færð borgað fyrir
verk þína eða ekki, sköpunar-
gleðin tekur öllu fram.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sinntu þínum nánustu sér-
staklega, því þú hefur satt að
segja látið þá sitja á hakanum
að undanförnu. Láttu þá ekki
þurfa að koma til þín.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú getur ekki komist undan
erfiðri dagskrá þinni. Það er
ekki um annað að ræða en
bretta upp ermarnar og
ganga í verkin af fullum krafti.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú getur rætt áætlanir þínar
við þá sem þú treystir. Það
væri óvitlaust að sjá viðbrögð
þeirra og taka þau með í
reikninginn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þetta er þinn dagur; láttu
aðra mæta afgangi að þessu
sinni. Þegar þú hefur hlaðið
batteríin að nýju snýrð þú
tvíefldur aftur öllum til góðs.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að reyna að hvíla þig
eitthvað í dag, því þú hefur
satt að segja gengið ansi
nærri þér. Með sama áfram-
haldi getur þú átt ýmislegt á
hættu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er eðlilegt að gera áætl-
anir fram í tímann, þótt eng-
inn geti séð framtíðina ná-
kvæmlega fyrir. En
fyrirhyggja er vænlegri en að
láta vaða á súðum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ættir að gera skurk í því að
halda sambandi við vini og
vandamenn. Það yrði sjálfum
þér fyrir verstu að láta sam-
böndin koðna niður og deyja
út.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ættir að brjóta upp daginn
með einhverju óvæntu. Slíkt
myndi hafa hressandi áhrif og
hjálpa þér til þess að ná tak-
marki þínu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Farðu þér hægt í öllum fjár-
málaumsvifum og láttu ekki
aðra tala þig inn á hluti, sem
þú ert innst inni andvígur.
Ræddu málin við trúnaðar-
menn þína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
60 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 2. októ-
ber, verður sextugur
Georg Friðrik Kemp Hall-
dórsson, Steinholtsvegi
11, Eskifirði. Eiginkona
hans er Bára Pétursdóttir.
Þau hjón taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Safn-
aðarheimili Eskifjarðar-
kirkju á afmælisdaginn frá
kr. 20.30.
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 30.
september, er sjötugur
José Antonio Fernández
Romero, háskólakennari
og þýðandi, Via Norte 20,
36204 Vigo Spáni. Fern-
ández Romero dvaldist
lengi á Íslandi á yngri árum
við nám og kennslu. Hann
hefur þýtt fjölda íslenskra
bóka, m.a. Íslendingasögur
og þjóðsögur og verk eftir
íslenska samtímahöfunda,
skáldsögur og ljóð.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu dósum og flöskum á Ak-
ureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 4.312
krónur. Þær heita Jóhanna Hildur Ágústsdóttir, Marta
Aníta Arnarsdóttir og Íris Harpa Hilmarsdóttir.
Morgunblaðið/Kristján
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 30.
september, er fimmtugur
Benoný Ásgrímsson flug-
maður. Eiginkona hans er
Kristín Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur. Þau
taka á móti ættingjum og
vinum á afmælisdaginn í
Félagsheimili Seltjarnar-
ness milli kl. 17 og 20.
LJÓÐABROT
VETUR OG VOR
Á fjallatindum fríðum
fönnin hvíta skín,
gróður í grænum hlíðum,
glitrar snjór þar dvín;
þar hjá lindum lifna blóm
og í runnum fugla fjöld
fögrum kveður hljóm.
Vetur efra eg eigi,
en hið neðra eg sé
mey sem höfuð hneigi
hýr í föður kné,
hallast vorið vetri nær,
karls við freðið klakaskegg
kærust dóttir hlær.
Steingrímur Thorsteinsson
Árnað heilla
Söfnun
STAÐAN kom upp á at-
skákmóti sem lauk fyrir
skömmu í Krít. Zahari
Zahariev
(2401) hafði
hvítt gegn
Yaacov Stisis
(2389). 46. e7!
Hc8 46...Hxe7
gekk ekki upp
sökum 47.
Rc6+ og hvít-
ur vinnur. 47.
Rc6+ Kxf5 48.
Rd8 og svartur
gafst upp enda
fátt til varnar.
Lokaumferð
Evrópumóts
taflfélaga er í
dag, 30. sept-
ember. Hægt
er að fylgjast
með umferðinni á Netinu
og geta áhugasamir nálgast
nánari upplýsingar á skak.-
is. 3. umferð Haustmót
Taflfélags Reykjavíkur
hefst kl. 14.00 í dag, 30.
september. Áhorfendur eru
velkomnir en mótið fer
fram í Faxafeni 12.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.