Morgunblaðið - 30.09.2001, Page 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 49
Sími 568 6655
Nýjar
vörur
FLESTIR muna eflaust eftirkvikmynd þeirra Coen-bræðra O Brother, Where artThou, sem sýnd var hér á
landi á síðasta ári. Margir þekkja
líka tónlistina úr þeirri mynd, ef ekki
eftir að hafa séð myndina sjálfa þá
eftir að hafa heyrt samnefndan
geisladisk sem selst hefur bráðvel
hér á landi sem og víða annars stað-
ar. Á diskinum er sambland af ým-
iskonar gamaldags tónlist banda-
rískri, enda gerist myndin á fjórða
áratug síðustu aldar og það í Miss-
issippi þar sem liggja rætur blús- og
trúartónlistar og alls þess grúa af
tónlistastefnum sem af þeim eru
leiddar. Vinsældir disksins komu út-
gáfunni víst nokkuð á óvart, en
hefðu þó ekki átt að gera það, því
varla dylst nokkrum manni síaukinn
áhugi tónlistarmanna og -unnenda
vestan hafs og austan á tónlist sem
laus er við markaðsprjál og tilgerð,
kannsi vegna þess að við aldamót líta
menn um öxl, eða þá að tónlistar-
kaupendur eru loks að fá leið á
fjöldaframleiddri froðu.
No Depression
Aukinn áhuga manna á upp-
runalegri tónlist vestan hafs má
rekja að nokkru aftur til þess er
ungir rokklistamenn fóru að spila
sína gerð af sveitatónlist sem sumir
kölluðu No Depression eftir fyrstu
skífu Uncle Tupelo, en í seinni tíð
hafa margir hneigst til þess að kalla
hana alt.country eftir samnefndum
umræðulista á Netinu. Sveitir sem
þannig tónlist leika eru legíó í dag,
en þær eru ekki einar um hituna því
langt er síðan eldri tónlistarmenn og
ráðsettari tóku upp sama sið; sjá til
að mynda frábærar plötur Johns
Cash síðustu ár og einnig hvað gamli
refurinn Bob Dylan er að gera þar
sem hann leitar aftur til fjórða og
fimmta áratugarins í leit að inn-
blæstri og stemmningu, til að mynda
á nýjustu plötu sinni, Love and
Theft. Það kemur einnig í ljós er
rýnt er í plötuumslög að margir þeir
sem um stjórnvölinn halda hafa í
raun sífellt verið á álíka slóðum, sjá
þannig O Brother, Where art Thou
þar sem T-Bone Burnett heldur um
stýrið, en Burnett er svo gamall í
hettunni að hann vann á sínum tíma
með Delaney and Bonnie, spilaði
með Bob Dylan í Rolling Thunder
túr hans 1975 og sá um upptökur á
bestu skífu Elvis Costello, King of
America.
Unnið með ungum tónlistarmönnum
Síðustu ár hefur Burnett unnið
talsvert með ungum tónlist-
armönnum vestan hafs og heyra má
dæmi um það á O Brother, Where
art Thou. Þar koma við meðal ann-
ars sögu gamlar hetjur eins og Fair-
field Four, Ralph Stanley og The
Whites, en einnig láta í sér heyra Al-
ison Krauss, Emmylou Harris og
Gillian Welch. Þær Kraus og Harris
eru heimsþekktar, en Gillian Welch
þekkja aftur á móti færri, ekki síst
hér á landi þar sem ógerningur hef-
ur verið að fá plötur hennar, en þær
eru orðnar þrjár. Vestan hafs er
Welch einna þekktust fyrir túlkun
sína á svonefndri Appalachian-
tónlist, en frá þeim fjallgarði, að-
allega þar sem hann liggur um
Pennsylvaniu, Vestur-Virginiu,
Norður-Carolina, Kentucky og
Tennessee, er ættuð bluegrass-
tónlist og fleiri stefnur og drjúg
áhrif þaðan á sveitatónlistina vestan
hafs. Af listamönnum sem teljast til
Appalachian-tónlistarmanna eru
Carter-fjölskyldan, Bill Monroe,
Doc Watson og Ralph Stanley.
Á fyrstu plötu Welch, Revival,
sem kom út 1996, vísar hún þannig
mjög í Appalachian-tónlistarhefðina,
en á næstu skífu, Among the Year-
lings, sem kom tveimur árum síðar,
eru persónueinkenni hennar orðin
sterkari, þótt enn byggi hún á sam-
eiginlegum þjóðsöngvaarfi, ef svo
má segja. Fyrir stuttu kom svo út
platan Time (The Revelator) sem
menn keppast um að lofa vestan hafs
og austan og víst er hún framúrskar-
andi; með bestu skífum sem út hafa
komið á þessu ári. Á plötunni kveður
við nýjan tón, útsetningar eru mun
einfaldari og naumhyggjulegri en
nokkru sinni, hljóðfæraskipan alla
jafna bara tveir kassagítarar, yrk-
isefnið öllu nútímalegra en forðum
og víða tilvitnanir í nútímamenningu
í textum og stefj-
um.
Gillian Welch er
fædd í Kaliforníu
1968 og af tónlist-
arfólki komin, því
foreldrar hennar
sjá um tónlistina í
sjónvarpsþætti
Carol Burnett.
Welch fékk
snemma áhuga á
bluegrass-tónlist
og þaðan rataði
hún í upprunalega
sveita- og þjóð-
lagatónlist banda-
ríska. Hún nam
tónlist í Berklee-
skólanum í Boston
og hóf um líkt leyti
að flytja eigin tón-
list og annarra op-
inberlega með
samstarfsmanni
sínum David
Rawlings sem hef-
ur unnið með henni
upp frá því. Það
varð þeim til happs að komast í
kynni við T-Bone Burnett sem út-
vegaði Welch plötusamning og
stýrði upptökum á Revival og síðan
Hell Among the Yearlings. Sam-
starfið við Burnett skilaði sér líka í
því að Welch var með á O Brother,
Where Art Thou eins og áður er get-
ið, en hún kemur einnig við sögu á
svo ólíkum skífum sem safnskífu til
heiðurs Dwight Yoakam og Gram
Parsons, fyrstu sólóskífu Ryan
Adams og Sailing to Philadelphia
með gamla rörinu Mark Knopfler.
Gamlar hugmyndir og nýjar
Getið er þriðju sólóskífu Gilliam
Welch, Time (The Revelator), en á
henni bræðir hún saman gamlar
hugmyndir og nýjar á einkar smekk-
legan hátt. Í einu lagi er þjóðsagan
af John Henry, sem flestir þekkja
vestan hafs, orðin saga Elvis Pres-
ley, í My First Lover kemur Steve
Miller við sögu í banjóstefi, upphafs-
og titillag plötunnar sækir inn-
blástur til John the Revelator eftir
slidegítarsnillinginn Blind Willie
Johnson og í lokalagi plötunnar, sem
er fjórtán mínútur, er víða komið við
í bandarískri þjóðlagahefð og þjóð-
menningu.
Eins og getið er hafa plötur Gill-
ian Welch ekki fengist hér á landi, en
fyrri skífurnar tvær gaf Almo útgáf-
an út, fyrirtæki þeirra Herb Alpert
og Jerry Moss, sem þeir komu á
laggirnar eftir að hafa selt A&M út-
gáfuna sem þeir stofnuðu saman.
Almo fór á hausinn fyrir stuttu og
ekki varð það til að auðvelda að ná í
plötur Welch, en hægt er að kaupa
þær á Netinu enn sem komið er að
minnsta kosti. Þau Welch og David
Rawlings stofnuðu síðan eigin út-
gáfu frekar en að ganga til liðs við
eitthvert stórfyrirtækið. Sú útgáfa
heitir Acony og dregur nafn sitt af
lagi á fyrstu skífu hennar. Á vefsetri
útgáfunnar og Gillian Welch, acon-
yrecords.com, er hægt að hlusta á
sýnishorn af eldri skífunum og
kaupa nýju plötuna og þær eldri.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Bandarísk
endurreisn
Á safnskífunni O Brother, Where Art Thou kennir
margra grasa. Árni Matthíasson segir frá söngkon-
unni Gillian Welch sem þar er að finna og aukn-
um áhuga á tónlistararfinum vestan hafs.