Morgunblaðið - 30.09.2001, Síða 56

Morgunblaðið - 30.09.2001, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. V i ð s k i p t a h u g b ú n a ð u r á h e i m s m æ l i k v a r ð a Borgar túni 37 Sími 569 7700W W W. N Y H E R J I . I S v i ð s j á u m u m f j á r m á l i n www.bi.is DANSKIR ráðgjafar sem unnið hafa að úttekt á húsnæðisþörf Landspítala – háskólasjúkrahúss mæla með að meginstarfsemi spítalans verði í Fossvogi. Þar þurfi vissulega að byggja meira en við Hringbraut, en á móti komi að byggingaframkvæmdir raski ekki starfsemi spítalans. Nefnd undir forsæti Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra, skilar um mánaðamótin nóvember/desember tillögum til heil- brigðisráðherra um framtíðarupp- byggingu Landspítala Nefndin lítur m.a. til álits dönsku ráðgjafarstofunn- ar Ementor sem skilaði lokaskýrslu sinni í liðinni viku. Ementor kannaði kosti þess og galla að hafa aðalsjúkrahús landsins á lóðinni í Fossvogi, við Hringbraut eða á Vífilsstöðum. Á Vífilsstöðum þyrfti að byggja frá grunni og það yrði því langdýrasti kosturinn þótt augljósir kostir fylgi því að geta hannað og byggt yfir starfsemina frá grunni. Nægt landrými í Fossvogi Við Hringbraut er nú samtals 60 þúsund fermetra húsnæði og í Foss- vogi 30 þúsund fermetrar en Ement- or mælir samt með uppbyggingu í Fossvogi. Þar sé landrými nóg og fyr- ir sé ágæt og heildstæð bygging. Ekki þurfi að rífa gamlar byggingar til að koma nýjum fyrir, en uppbygging þar tryggi nánast nýjan spítala. Við Hringbrautina séu hins vegar margar og misgóðar byggingar. Sumar þyrfti að rífa og byggja aðrar í þeirra stað en erfitt yrði að byggja á lóðinni án þess að valda truflunum á núverandi starfsemi þar. Kostirnir við uppbyggingu á Hringbraut, að mati dönsku ráðgjaf- anna, eru þeir að þar er að rísa nýr barnaspítali og ágætlega er búið að krabbameinsdeild, geislalækningum og blóðmeinadeild, auk geðdeildar. Þá er Háskóli Íslands á næstu grös- um og fyrirhugaður flutningur Hringbrautarinnar til suðurs stækk- ar lóð spítalans verulega. Úttekt á húsnæðisþörf Landspítala – háskólasjúkrahúss Mælt með uppbygg- ingu LSH í Fossvogi  Meginstarfsemi/10 BIRKIÐ skartaði hinum fegurstu haustlitum á helgistað þjóðarinnar, Þingvöllum, þegar Darri og hund- urinn hans, Símon, fengu sér göngutúr í blíðunni. Grænn mosinn lætur hins vegar haustkomuna ekk- ert á sig fá enn sem komið er. Morgunblaðið/RAX Tvísöngur litanna Á FYRSTU átta mánuðum þessa árs hafa greiðslur úr Ábyrgðarsjóði launa aukist um 74%. Sjóðurinn greiðir laun og lífeyrissjóðsgjöld til launþega sem ekki hafa fengið greidd laun frá fyr- irtækjum sem orðið hafa gjaldþrota. Á fyrstu átta mánuðum ársins námu greiðslur úr sjóðnum 186 milljónum en sömu mánuði í fyrra námu greiðsl- urnar 107 milljónum. Allt árið í fyrra námu útgjöld sjóðsins 170 milljónum. Þessar upplýsingar komu fram á árs- fundi Vinnumálastofnunar. Hrólfur Ölvisson, stjórnarformað- ur Vinnumálastofnunar, sagði að at- vinnuástandið hefði verið gott undan- farin ár en blikur væru á lofti. „Ýmis teikn eru um minnkandi umsvif efna- hagslífsins og koma þau einna sterk- ast fram í verslun og þjónustustarf- semi af ýmsu tagi. Velta heild- verslunar hefur dregist verulega saman það sem af er þessu ári frá árinu 2000, samdráttur í sölu bifreiða er vel þekkt dæmi, erfiðleikar hjá fyr- irtækjum í upplýsinga- og tæknigeir- anum hafa færst í vöxt,“ sagði Hrólf- ur. Á síðasta ári greiddi Atvinnuleys- issjóður 1.304 milljónir í atvinnuleys- isbætur, en árið 1999 námu greiðsl- urnar 1.706 milljónum. Atvinnuleysi í fyrra var 1,3% sem er minnsta at- vinnuleysi síðan 1990. Þróun atvinnu- leysis það sem af er árinu bendir til að meðalatvinnuleysi verði svipað og í fyrra eða um 1,3 til 1,4%. Greiðsl- ur aukast um 74% Aukin útgjöld hjá Ábyrgðarsjóði launa HÖNNUN Steinunnar Sigurð- ardóttur tískuhönnuðar er meðal þess sem sjá má á tískuvikunni í Mílanó sem nú stendur sem hæst. Stein- unn er yf- irhönnuður ítalska tísku- hússins La Perla sem hingað til hefur verið þekkt fyrir nærfatnað fremur en hátískufatnað en nýja línan er fyrsta verkefni Steinunnar fyrir fyrirtækið. Vísun í upprunann og hefðir í nærfata- hönnun leyna sér ekki í fötunum þar sem kvenleikinn er allsráðandi. Kvenleikinn allsráðandi  Íslenskur yfirhönnuður/6 BANDARÍSKI kvikmyndaleikar- inn Keith Carrad- ine hefur tekið að sér annað aðal- hlutverkið í næstu mynd Friðriks Þórs Friðriksson- ar, Fálkum. Carr- adine hefur leikið í alls um 60 bíó- og sjónvarpsmyndum fyrir leikstjóra á borð við Robert Altman, Louis Malle, Walter Hill, Ridley Scott og Alan Rudolph. Hann er einnig tón- listarmaður og hlaut Óskarsverð- launin fyrir besta lagið árið 1975. „Ég hef fylgst með Keith Carrad- ine á tjaldinu gegnum tíðina,“ segir Friðrik Þór. „Hann er látlaus og traustur leikari og hentar vel í hlut- verkið, aðkomumanninn Símon, sem er dulur og dularfullur.“ Carradine leik- ur hjá Friðriki Carradine  Svalur/B20 HÓPUR líffræðinga, sem stundað hefur rannsóknir á blesgæsum, er nú staddur á Hvanneyri. Tólf manna hópur líffræðinga frá Kan- ada, Danmörku, Englandi, Írlandi og Skotlandi vinnur við þessar rannsóknir sem hófust árið 1979 á Grænlandi. Rannsóknirnar eru at- ferlis- og vistfræðilegar, en fuglinn hefur viðdvöl á Íslandi að vori á leið sinni yfir hafið til vesturstrandar Grænlands og einnig á bakaleiðinni að hausti. Hópurinn starfar meiri- hluta ársins á áningarstöðum gæs- arinnar, Grænlandi, Íslandi, Írlandi og NV-Skotlandi, þar sem gæsirnar eiga sér veturstað. Tony Fox, enskur fuglafræðing- ur, búsettur í Danmörku, hóf at- hugun á blesgæsum og stjórnar rannsóknunum. Tony segir að rannsóknir hér beinist að því að skoða hvernig fuglinn byggi sig upp af orku fyrir farflugið og hvaða jurtir hann nýti til beitar. Vísindamennirnir hafa dvalið á Hvanneyri þrisvar að vori, en þetta er í fyrsta sinn sem þeim gefst tækifæri til að fylgjast með komu fuglanna frá Grænlandi að hausti. Kannaður er fjöldi gæsa, hvenær þær koma og fara og hvar einstakar fjölskyldur halda sig á túnunum. Rannsóknirnar eru einnig beitar- fræðilegs eðlis, en munur er á fæðuvali milli vors og hausts. Tony segir að fuglinn fái t.d. mikla nær- ingu úr sóleyjum en þær séu fullar af fitu og orku. Blesgæsin hefur viðdvöl í Árnes- og Rangárvallasýslu frá A-Land- eyjum út að Selfossi og einnig á svæðinu frá Hvanneyri og vestur með suðurströnd Snæfellsness. Árin 1997–99 voru settir gervi- hnattasendar á allt að 20 fugla, sem gerði vísindamönnunum kleift að fylgjast nákvæmlega með öllum ferðum þeirra. Tony segir að stofn- inn sé að minnka. Hann segir ástæður fyrir þessu ekki ljósar, en nefnir að á Grænlandi mæti þær sterkum Kanadastofni þessarar tegundar, sem virðist hafa yfirráð þar. Mjög sterk fjölskyldubönd ein- kenna blesgæsina. Gæsirnar eru gjarnan nokkrar saman í hópi, en ólíkt öðrum gæsategundum má oft sjá einhleypa afkomendur fylgja foreldrum sínum og yngri systkin- um árum saman. Á Íslandi eru veiddar um 3.000 blesgæsir árlega, en skotbann er á Hvanneyri, sem gerir mögulegt að vinna þessar rannsóknir þar. Bann- að er veiða fuglinn á Englandi. Alþjóðlegar rannsóknir á blesgæs á Hvanneyri Fjölskyldutengsl afar sterk ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.