Vísir - 15.10.1979, Síða 4

Vísir - 15.10.1979, Síða 4
vtsm Mánudagur 15. oktáber 1979 Nauðungaruppbúð sem auglýst var I 26., 27. og 29. tbl. Lögbirtingablaösins 1979 á fasteigninni Fitjabraut 6c i Njarövlk, þinglýstri eign Harðar hf., fer fram á eigninni sjáifri aö kröfu Hauks Jónssonar hrl., Landsbanka Islands, Garöars Garöars- sonar, Einars Viöars hrl., Jóns Finnssonar hrl., póstgiró- stofunnar, Skarphéðins Þórissonar hdl., Jóns G. Briem ' hdl. og Gústafs Þórs Tryggvasonar hdl. fimmtudaginn 18. okt. 1979 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Njarövfk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 50., 52. og-55. tbl. Lögbirtingablaösins 1979 á fasteigninni Suöurgata 38 I Keflavik, þingiýstri eign Rakelar Gisladóttur, fer fram á eigninni sjálfri, aö kröfu Ævars Guömundssonar hdl. fimmtudaginn 18. okt. 1979 kl. 13.30. Bæjarfógetinn I Keflavik. Nauðungaruppboð annaö og sföasta á fasteigninni Bjarg I Grindavik, þing- lýstri eign Bjarg hf., fer fram á eigninni sjálfri, aö kröfu Guömundar Ingva Sigurössonar og Landsbanka íslands, fimmtudaginn 18. okt. 1979 kl. 16.30. Bæjarfógetinn IGrindavik. . Nauðungaruppboð sem auglýst var 150., 52. og 55. tölublaöi Lögbirtingablaös- ins 1979 á eigninni Lambastaöabraut 2, Seltjarnarnesi, þingl. eign Eyþórs Arnórssonar og Margrétar Guömunds- dóttur, fer fram eftir kröfu Inga R. Helgasonar, hrl. á eigninni sjálfri.fimmtudaginn 18. október 1979 kl. 3.30 e.h. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi Nauðungaruppboð sem auglýst var I 105. 1978/1. og 4. tölublaöi Lögbirtinga- blaösins 1979 á eigninni Merkjateigur 4, efri hæö, Mos- fellshreppi, þingl. eign Bjarna Bærings, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbanka tslands, á eigninni sjálfri fimmtudaginn 18. október 1979 kl. 4.30 e.h. Sýslumaöurinn I Kjósarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var I 81., 83. og 89. tbl. Lögbirtingablaðsins 1978 á fasteigninni Lyngholt 17, neöri hæö, I Keflavik, þinglýstri eign Þórhalls Guöjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu innheimtumanns rlkissjóös, fimmtudag- inn 18. okt. 1979 kl. 10.00 f.h. Bæjarfógetinn I Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I Lögbirtingablaöinu á fasteigninni Akur- braut 6 I Njarövik, þinglýstri eign Kristmundar Arnason- ar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu veödeildar Lands- banka íslands, Hafnarfjaröarbæjar, innheimtumanns rlkissjóös IHafnarfiröiog Jóns G. Briem hdl., fimmtudag- inn 18. okt. 1979 ki. 11 f.h. Bæjarfógetinn I Njarövik. Hua leggur land undlr fót Þjóöarleiötogi Kína, Hua Guo- feng, forsætisráöherra og flokks- formaöur, á nú fyrir höndum fjögurra vikna feröalag um slóö- ir,þar sem fyrirrennarihans Mao formaöur sté aldrei fæti. Huaformaöurætlar aö lita hinn kapitaliska heim eigin augum, og gerir sér sérstakt far um aö heimsækja þau rlki, sem hann treystir helst til þess aö standa i hárinu á Kremlverjum, utan Bandarikjanna. Kinverski kommiínistafor- maöurinn er væntanlegur til Parfsar f dag, sem veröur fyrsti viökomustaöur hans á feröalagi til Frakklands, Vestur-Þýska- lands, Bretlands og Italiu. Þar meö er brotin sú hefö, sem rikt hefur I samskiptum þessara rikja viö Kína, þar sem leiötogar þeirrahafa sótt heim æösta mann klnversku þjóöarinnar, ánþess aö fá þá kurteisi endurgoldna. Chou Enlæ,heitinn forsætisráö- herra, feröaöist aö visu viöa um 1 sinni embættistiö, en Mao Tse- tung formaöur fór aldrei lengra en til Moskvu. 1 Klna hefur þessarar feröar veriö beöiö meö nokkurri eftir- væntingu af þorra fólks. Vitaö er, aö Itarlega veröur greint frá feröalagi formannsins I sjónvarp- inu kinverska, og mun þá heima- mönnum gefast færi á aö sjá um leiö ýmsa heimshluta, sem for- vitni þeirra hefur vakiö, án þess aö þeir eigi sjálfir tök á aö komast þangaö. Þegar Hua skýröi frá feröalagi slnu, sagöi hann, aö tilgangur hennar væri'aö auka skilning þjóöanna I milli, efla vináttu, færa út samskiptin og treysta heimsfriöinn. ,,A þessum ólgutimum tel ég, aö Vestur-Evrópa eigi aö gegna þvi hlutverki I alþjóöamálum, sem stendur I réttu hlutfalli viö mikilvægi hennar. Oflug samein- uö Vestur-Evrópa er mjög mikil- væg til þess aö viöhalda friöi og öryggi, ekki aöeins I Evrópu held- ur og i' heiminum öllum,” sagöi forsætisráöherrann á fundi meö fréttamönnum fyrir viku, þegar hann sagöi frá feröalaginu, sem hann átti fyrir höndum. Þetta var raunar annar fundur- inn, sem Hua efnir til meö frétta- mönnum frá þvi, aö hann reis til valda í klnverska kommUnista- flokknum. Þótti vestrænum blaöamönnum I Peking eftir- tektarvert, hversu léttilega hann blandaöi geöi viö þá. 1 mestu. makindum leysti hann lipurlega úr spurningum þeirra, geröi aö gamni slnu á stundum, en gætti þó viröingar sinnar og hélt fullri alvöru, þegar honum þótti þannig mál bera á góma. Erlendir diplómatar höföu orö á þvi, hversu öruggt lag Hua virt- ist hafa á fréttamönnunum og fundinum. Sérstaklega þótti þeim til um, hversu skýrt hann lagöi málin fyrir. Finnst þeim hann óllkt öruggari i framkomu oröinn i dag, heldur en þegar hann tók viö af Mao formanni fyrir þrem árum. Hua var aö visu oröinn for- sætisráöherra, áöur en hann tók viö formannsembættinu. í raun réttrier hvorugt embætt- iö þjóöarleiötogastarf, þótt menn hafi vanist þvi aö llta flokksfor- manninn sem leiötoga Klna vegna stööu Maos. Getur þvl Hua vænst þvi aö móttökurnar i Evrópu veröi eins og þjóöarleiö- toga ber. Um manninn Hua Guofeng er fátt vitaö, en þegar fréttamenn véku aö þvi á blaðamannafundin- um, neitaöi hann alveg aö ræöa um fjölskyldu sina. Kvaöst hann ekki vilja kalla yfir hana óþæg- indi meö lausmælgi um einka- hagi. Hua skaust upp á metoröatind- inn í flokknum og rikisstjórninni á skömmum tima tiltölulega lítt þekktur hálfu ári áöur. Þegar hann var settur forsætisráöherra til bráöabirgða eftir fráfall Chou Enlæs I jafnúar 1976, haföi Hua til dæmis ekki setiö I æösta ráöi flokksins nema þrjú ár. Hann var ekki talinn nema tölftií rööinni af helstu áhrifamönnum Kína. Á niu mánuðum var hann orðinn bæöi forsætisráöherra og flokksfor- maður eftir aö Mao hafði sagt viö hann nánast á dánarbeöinu: „Meö þig viö stýriö get ég verið rólegur.” Það er vitaö, aö Hua vakti fyrst athygli Maos heitins formanns á sér, þegar Hua haföi eftirlit meö byggingarframkvæmdum skammt frá fæöingarþorpi Maos I Hunanhéraöi. Hanner fimmtíu og níu ára aö aldri og er af fátækum smábændum kominn Ur Shanxi-héraöi. Hann gekk i Rauöa herinn skömmu eftir lok göngunnar löngu um endilangt Klna. Li'tiö annaö er vitaö um hann meö vissu. Um hriö á árinu 1976 hófst um hann töluverö per- sónudýrkun, en fljótlega var bundinn endi á þaö. í einni blaöagreininni frá þeim tima var því lýst, hvernig hann hafi leiðbeintþorpsbUum i Shanxi i aö koma fyrir jarösprengjum i striðinu gegn Japan. Hvernig spilla mætti birgöaflutningum óvinanna, eitra drykkjarvatn þeirra og gera þeim aörar skrá- veifur. Þar var minnst á dóttur, sem send var til starfa uppi i sveit, eftir aö hún lauk námi. íitlendingar, sem hittu Hua, fyrst eftir aö hann varö formaöur áttu erfitt meö aö glöggva sig á honum. En þeir luku flestir upp einum rómi um þaö, aö hann væri aödáunarlega vel heima I heims- málunum. A blaöamannafundinum fyrir viku þurfti hann nær aldrei aö leita til aöstoðarmanna sinna til þess aö svara spurningum. Varla haföi fyrirspyrjandi fyrr sagt slö- asta oröiö, og fyrirspurnin þýdd, en Hua svaraöi reiprennandi. Stöku sinnum veifaöi hann hendi oröum slnum til áherslu, eða lét meiningarmikla þögn fylgja orö- um slnum eða dró úr alvöru þeirra meö geislandi brosi. Hua hefur sýnt, aö hann hefur lag á aö komast á forslöur heims- pressunnar, eins og t.d. I Búka- rest I fyrra, þegar hann upp Ur þurrutók aö stiga þjóödansa með heimamönnum úti á stræti. Fyrir utan heimsókn til Norö- ur-Kóreu, sem var fyrsta ferö Hua út fyrir Klna, fór hann til Rúmeniu, og þaðan til Júgóslaviu meö viökomu á heimleiöinni i Iran, en þaö er eina landiö, sem hannhefurkomiö til, sem ekki er kommúnistariki. Kina hefur um þessar mundir sérstakt dálæti á Vestur-Evrópu. Bæöi kemur þar til, að Efnahags- bandalagiö býöur upp á mikla viöskiptamöguleika, og eins eru flest riki þar aðilar aö Noröur-At- lantshafsbandalaginu. I augum Pekingsstjórnarinnar er NATO gagnlegur bandamaöur, sem dregur herliö Sovétmanna frá landamærum Klna. Þaö er búist viö þvi, aö Hua muni mjög brýna fyrir vesturálfumönnum aö efla varnir sínar og slaka ekki á verðinum gagnvart Kreml.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.