Vísir - 15.10.1979, Blaðsíða 27
vtsm
Mánudagur 15. október 1979
........31
Umsjón:
Halldór \
iReynisson
..Þriðji maöupinn” í Morgunpóstinum:
„Dálílið kulfla-
legl að vera I
belnnl útsendlngu”
,,Mér fannst það dálitið kulda-
leg tflhugsun til að byrja með að
vera I beinni útsendingu, en þetta
venst með timanum”, sagði
Sigurður Einarsson, tannsmiður,
en hann er þriðji maðurinn eða
félaginn f M orgunpóstinum
ásamt þeim Páli Heiðari og Sig-
mari.
„Ég kynnist þeim félögum,
þegar ég sótti dagskrárgerðar
námskeið á vegum útvarpsins i
fyrrahaust, en Páll var um-
sjónarmaður þess og Sigmar var
einn af kennurunum. Siðan þá hef
ég einnig gertýmsa þætti fyrir Ut-
varpið, viðtalsþætti, ferðaþætti
o.s.frv. en ég geri ráð fyrir, að
þeir hafi valið mig eftir kynnin á
námskeiðinu.”
Sigurður sagðist hafa mjög
gaman að vinna við Morgunpóst-
inn, þrátt fyrir það að hann væri
býsna ólikur þeim þáttum, sem
hann hefði unnið að áöur. Vinnan
byrjaði kl. 6 á morgnana, en þá
strax hæfist undirbúningur að út-
sendingunni. Hann ynni svo til kl.
10 á morgnana, en tíminn eftir að
útsendingu lyki, færi i að undir-
búa endurflutninginn siðdegis.
Sigurður sagðist að lokum hafa
mjög mikinn áhuga á að vinna við
útvarp og bjóst hann við að halda
Sigurður „þriðji maöur” við dag-
iega iöju sina, en hann er tann-
smiður. Visismynd J.A.
dagskrárgerð áfram eftir að sinn
timi væri Utrunninn i Morgun-
póstinum. — HR
Slónvarp kl. 2150:
Verður landsleikurinn
sýndur í sjónvarplnu?
Winston Churchill fyilu- svo til
Ut i sjónvarpsdagskrána á mánu-
dag, en auk þess þáttar er aðeins
einn annar liður á dagskrá, en
það eru iþróttir.
Ef að likum lætur verður eitt-
hvað fjallað um iþróttir helgar-
innarí þættinum, en ekki er held-
ur ósennilegt að sýndir verði
a.m.k. kaflar Ur landsleik Islend-
inga og Tékka f handknattleik,
sem fram fer þetta sama kvöld.
Ekki tókstað hafa upp á Bjarna
Felixsyni til að fá þetta staðfest,
en Utsendingartimi iþróttaþáttar-
ins virðist þó staðfesta þetta, en
hann hefst kl. 21.50.
Ef að likum lætur má því búast
við, að Iþróttaunnendur fái vænan
spón i askinn sinn, þar sem er
fyrsti handknattleikslandsleikur-
inn, sem fer fram hérlendis á
þessum vetri. —HR
Ólafur H. Jónsson veröur fyrirliði landsliðsins I leiknum á móti Tékk-
um á mánudag. Liklega fáum viö, sem heima sitjum yfir sjónvarps-
tækjunum, aðsjá eitthvað tii hans i Iþróttaþættinum ef aðlikum lætur.
Mánudagur
15.október
11.15 Morguntónleikar.
Brigitte Fassbander,
Renate Holm, kór Vinar-
óperunnar, Sinfóniuhljóm-
sveit Vinarborgar o.fl.
flytja tónlist eftir Strauss
12.00 Dágskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.40 Miðdegissagan: „Fiski-
menn” eftir Martin Joensen
Hjálmar Arnason les þýð-
ingu sinar (6).
15.00 Miðdegistónleikar:
tslensk tónlista. Fjögur isl.
þjóðlög fyrir f.lautu og pianó
eftir Arna Björnsson. Averil
Williams og GIsli Magnús-
son leika. b. Divertimento
fyrir sembal og strengjatrió
eftir Hafliða Hallgrimsson.
Helga Ingólfsdóttir, Guöný
Guðmundsdóttir, Graham
Tagg og Pétur Þorvaldsson
leika.c. „Of Love and
Death” (Um ástina og
dauðann), söngvar fyrir
baritonrödd og hljómsveit
eftir Jón Þórarinsson.
Kristinn Hallsson syngur.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur-. Stjórnandi: Páll P.
Pálsson d. Rapsódia
fyrir hljómsveit op. 47 eftir
Hallgrim Helgason.
Sinfóniuhljómsveit íslands
leikur, Páll P. Pálsson stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn: Þorgeir Ast-
valdsson kynnir.
17.05 Atriði úr morgunpósti
endurtekin .
17.20 Sagan: „Grösin i giugg-
húsinu’’ eftir Hreiðar
Stefánsson. Höfundurinn
heldur áfram lestri sögu
sinnar (2).
18.00 Viðsjá-Endurtekinn þátt-
ur frá morgninum
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál , Arni
Böðvarsson flytur þáttinn
19.40 Um daginn og veginn
Jón Haraldsson arkitekt
talar.
20.00 Sinfónia nr. 38 i C-dUr,
„Linzar-hljómkviðan”
(K425) eftir Mozart.Fil-
harmoniusveitin i Vinar-
borg leikur, Leonard Bern-
stein stj.
20.30 Ctvarpssagan : Ævi
Elenóru Marx 1855—98 eftir
Chushichi Tsuzuki. Sveinn
Asgeirsson hagfræðingur
byrjar lestur þýðingar sinn-
ar á völdum köflum bókar-
innar.
21.00 Lög unga fólksins. Asta
Ragnheiður Jóhannesdóttir
kynnir.
22.10 Þáttur
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Kvöldtónleikar . Svja-
tolsav Rikhter leikur á
pianó Prelúdiur og fúgur nr.
1-8 Ur „Das wohltemperi-
erte Klavier”, fyrstu bók
eftir Johann Sebastian
Bach.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok .
Mánudagur
15. október
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Undir örlagastjörnu
Breskt sjónvarpsleikrit um
Winston Churchill og hina
válegu þróun mála i Evrópu
á árunum 1936-1940.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
21.50 tþrdttir. Umsjónar-
maður Bjarni Felixson.
22.55 Dagskrárlok
VILMUNDUR KOMINN í MðPPURNAR
Flest virðist nú til fjörugra
kosninga benda, og flokksvélar
allar komnar af stað. Mestum
tiðindum sætir þó að Vilmundur
er nú orðinn ráðherra og sonur
Hermanns glfmukóngs fær það
hlutverk að afhenda honum
lyklana að dómsmálaráðuneyt-
inu og með þeim alræðisvald
yfir öllum helstu möppudýrum
landsins án þéss að nokkur nöfn
séu nefnd I þvi sambandi, enda
óviðeigandi að draga Hæstarétt
um of inn I þjóðmálaþrætuna.
Vilmundur hefur sótt mjög
fast á um að hljóta ráðherra-
dóm I þeirri platríkisstjórn sem
sjálfstæðismenn hafa eftir
mikla ihugun og nokkur matar-
hlé fallist á að leyfa krötum að
mynda. Vilmundur bjó til úr
engu þá hreyfingu, sem skilaöi
fjórtán krötum inn á þing I sið-
ustu kosningum m.a. mönnum
eins og Braga Nfelssyni lækni,
er tók sæti á listanum á Vestur-
landi i allt öðrum tilgangi en
þeim að detta inn á Alþingi, af
þvi að það er eins konar nátt-
úrulögmál að læknar virka eins
og segull á atkvæðin. Vilmundur
kom harðinda-Arna inn á þing
fyrir norðan og gerði Alþýðu-
flokknum kleift að skipta einu
uppbótarþingsæti milli forseta
Alþýðusambandsins og mesta
stóratvinnurekenda landsins.
Æ sér gjöf til gjalda. Þessir
þingmenn ásamt með þeim
Gunnlaugssonum úr Hafnarfiröi
vita allir, að þeir öðluðust þing-
lif sitt út á Vilmund, en þeim er
um leiö ljóst, að dómsmálaráð-
herratign Vklmundar f plat-
rikisstjórn virkar eins og góð-
látlegt grfn eins og málum er
komið. Málið er svo einfalt, að
maffumál og ráðherrabflar
verðá ekki kosningamál að
þessu sinni.
Við gamlir og grónir stuðn-
ingsmenn Vilmundar hefðum
fremur kosið að hann héldi sér i
stól gagnrýnandans fram að
kosningum. Og svo var einnig
farið hugsunum margra krata á
þingflokks- og framkvæmda-
stjórnarfundum Alþýðuflokks-
ins I gær. Það sem úrslitum réöi
að Vilmundur fékk sitt fram var
samkomulag þeirra Benedikts.
Vilmundurhefurlátiðþað liggja
i loftinu upp á siökastið, að hann
myndi fara i harða baráttu gegn
form anninum I fyrsta sæti
fra mboðslistans I Reykjavlk.
Kemur þar bæði til fullvissa um
dgin foringjahæfileika og svo-
lltill föðurhefndarhugur.
1 gær hét Vilmundur flokks-
formanninum þvi aö hann
myndiláta kyrrt Bggja framboð
i fyrsta sæti og út á það fékkst
ráðherradómurinn. Nýi dóms-
málaráðherrann mun nú hefja
yfirferð yfir allar möppur ráöu-
neytisins I grimmilegri leit að
skandalmálum. Þingmenn Vil-
mundar óttast á hinn bóginn að
slikar reykbombur hafi svipuð
áhrif og flugeldar um hábjartan
dag. En héðan af verður ekki til
baka snúið. Benedikt er öruggur
með fyrsta sætið og Vilmundur
er kominn I möppurnar. Og vel
má vera að hann komi þjóðinni
enn á ný á óvart, ef Baldur
Möller hleypir honum þá á ann-
að borð I möppurnar.
Hvað sem öllum hrakspám
liöur, munu áhugamenn um Vil-
mund treysta þvi að hann finni
alvöru möppuskandal, sem
hresst gæti upp á kosningabar-
áttuna og eytt tortryggni og öf-
und þingmannanna, er hann
skautúr vonlausum sætum inn á
Alþingi. Þá gætu sjálfstæðis-
menn farið að sjá eftir öllusam-
an.
Svarthöföi.