Vísir - 15.10.1979, Blaðsíða 18
VISIR Mánudagur 15. október 1979
------------
sandkorn
Fláriagafrumvarplð:
22
1
Óli Tynes
skrifar
Veiði-
maðurinn
Dóri var i yfirheyrslu hjá
lögreglunni fyrir aö skjóta á
og særa félaga sinn, á hrein-
dýraveiöum.
„Hvernig 1 ósköpunum stóö
á þessu?” spuröi löggan.
„Nú, ég hélt aö hann væri
hreindýr”, svaraöi Dóri
vesældarlega.
,,Og hvenær geröiröu þér
grein fyrir aö svo var ekki?”
..Þegar hann svaraöi skot-
hrlöinni”.
Einar Karl
Viðhorfið
Þjóöviijinn er kominn meö
nýjan dálk á forsiöu, sem heit-
ir Viöhorf og hefur ekki sést aö
honum annar höfundur enn en
Einar Karl Haraldsson, rit-
stjóri.
Svo viröist sem þessidálkur
muni fá nokkra sérstööu i is-
lenskri fjölmiölun vegna oröa-
iags, eöa kannski væri réttara
aö segja vegna oröbragðs.
Einar Karl er aö jafnaöi
dagfarsprúöur og ljiifur maö-
ur, en þessa dagana viröist
hann vera i mikilli geðshrær-
ingu, þegar hann sest viö rit-
vélina.
Sérstaklega er honum upp-
sigaö viö Benedikt Gröndai,
sem lannski er ekki nema
von. JJnar hefur kaliaö Bene-
dikt lygara, betlara og viö-
bjóðslega undirlægju.
Núer ekKi nema eðlilegt aö
menn veröi ósammála og þá
er allt f lagi aö vera hvassyrt-
ur. En heldur er þetta
óskemmtilegt Viöhorf.
Benedikt
„Harkaleg aðfðr að hags-
munum Iðnaðarlns í landinu”
- seglr Hlörlelfur Gullormsson. Iðnaðarrððherra
„Iðnaðarráðuneytið telur, að með frumvarpi til fjárlaga, sem fjármála-
ráðherra lagði fram á fimmtudaginn, sé um að ræða svo harkalega aðför að
hagsmunum iðnaðarins i landinu, að ráðuneytið hljóti að vekja á henni sér-
staka athygli um leið og fram er tekið, að öll þessi málsmeðferð sé alfarið á
ábyrgð fjármálaráðherra”.
Þetta kom fram á blaöa-
mannafundi, sem iðnaöarráö-
herra hélt á föstudaginn, en á
fundinn voru einnig mættir
nefndarmenn úr Samstarfs-
nefnd um iönþróun. Hjörleifur
Guttormsson, iönaöarráöherra,
sagöi að fjárlagafrumvarpiö
hafi aldrei fengist til skoðunar I
heild, hvorki i rikisstjórn né hjá
ráöuneytum áður en þaö var
fullbúiö og prentaö.
Viö framlagningu frum-
varpsins heföi hins vegar komiö
I ljós, að fjármálaráöherra
hafi á eigin spýtur og án nokk-
urs samráös viö iönaöarráö-
herra gert tillögur um ráöstöf-
un tekna af jöfnunargjaldi
til aö fjármagna ýmis hefö-
bundin framlög á fjárlögum
til iönaöarmála. Þá hafi fjár-
málaráöherra einnig gert
tiilögu um, aö allt framlag til
Útflutningsmiöstöövar iönaöar-
ins, svo og hækkun á framlagi til
Iðnrekstrarsjóðs, veröi fjár-
magnaö af þessum markaöa
tekjustofni.
Fjárlagafrumvarpiö fékkst
aldrei til skoöunar i heild,
hvorki i rikisstjórn né hjá ráöu-
neytum”, sagöi Hjörleifur Gutt-
ormsson, iönaöarráöherra.
Engar athugasemdir
við málsmeðferðina
Þá sagöi Hjörleifur: „Viö
undirbúning fjárlagatillagna
fyrir iðnaöarráðuneytiö var
lögð á þaö rik áhersla af ráöu-
neytisins hálfu, aö tekjur af
jöfnunar- og aölögunargjaldi
yröu færöar óskiptar á sér-
stakan fjárlagaliö „Til
iönþróunar”, þegar tekjuáætlun
lægi fyrir. Engar athugasemdir
komu þá fram af hálfu Fjár-
laga- og hagsýslustofnunar viö
þá málsmeðferö, sem Itrekuö
var á viöræðufundum af hálfu
iðnaöarráöuneytisins”.
Hjörleifur sagöi, aö ekki tæki
betra viö, er litið væri á ráö-
stöfun aölögunargjaldsins en
jöfnunargjaldsins.
„Aðlögunargjaldiö er fært
rikissjóði einhliöa til tekna og
veröur ekki ráöstafaö I þágu
iönþróunar fyrr en á árinu 1981.
Þetta striöir beint gegn anda
og ákvæðum 7. greinar laga um
sérstakt, timabundiö
aölögunargjald, en gjaldinu var
ekki sist ætlað aö skjóta stoöum
„Veröi tillögur fjármálaráöherra samþykktar, er lltil von til þess, aö almennur iðnaöur veröi á næstu
árum sá vaxtarbroddur atvinnu- og efnahagslifs, sem komiö geti I veg fyrir atvinnuleysi og landflótta,
sem mannaflaspár benda nú til”.
undir öfluga iönþróun, áöur en
islenskur iönaöur lenti i fullri og
óheftri samkeppni viö inn-
flutning um áramótin 1980-’81.”
Framlög rikisins
til iðnaðar lækka
Vilhjálmur Lúöviksson, for-
maöur Samstarfsnefndar um
iönþróun, sagöi, aö samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu muni
framlög rikisins til iönaöarmála
lækka úr 0,46% af fjárlögum
ársins ’79 I 0,32% af fjárlögum
1980.
„Þetta hlutfall hefur fariö
stööugt lækkandi frá árinu 1973,
þegar þaö var 0,81% af fjár-
lögum”.
Þá sagöi Vilhjálmur: „Meö
skirskotun til allra þeirra
umræöna, sem fram hafa fariö
á undanförnum árum og
mánuðum um nauösyn
aðlögunar aö friverslun og meö
skírskotun til þess aö samkomu-
lag viö EFTA um aðlflgunar-
gjald byggðist á þvi, aö veriö
væri aö gera stórátak I iön-
þróun, telur Samstarfsnefndin
um iðnþróun, aö hér sé kippt
grundvellinum undan allri
alvarlegri umræðu um aðgeröir
til eflingar iönaði”.
Full samstaða með
stofnun iðnaðarins
og ráðuneytinu
Þá kom fram, aö á vegum
Samstarfsnefndar um iönþróun
og þeirra aðila, sem aö henni
standa, sé nú umfangsmikiö
starf hafiö til eflingar hinum
ýmsu greinum iðnaðar. Fyrir
liggur tillaga um útvikkun á
starfsemi Iönrekstrarsjóös til
stuönings viö viötækar umbætur
I iðnaði, miöaö við aö hann fái
verulega aukiö fjármagn, m.a.
af aðlögunargjaldi. Full
samstaöa hefur veriö meö sam-
tökum og stofnunum iönaöarins
og iönaöarráöuneytinu um
stefnumótun I þessum efnum.
Að lokum sagöi Vilhjálmur
Lúðviksson: „Fyrirsjáanlegt
er, aö allt þetta starf og áætlanir
um aögeröir verður aö leggja á
hilluna, ef tillögur fjármálaráö-
herra ná fram aö ganga um ráö-
stöfun jöfnunargjalds og
aðlögunargjalds. Veröi tillögur
fjármálaráöherra samþykktar,
er litil von til þess aö almennur
iönaður veröi á næstu árum sá
vaxtarbroddur atvinnu- og
efnahagslifs, sem komiö geti I
veg fyrir atvinnuleysi og land-
flótta, sem mannaflaspár benda
nú til.”
—ATA
Yuk, vuk
„Ég datt i gegnum rúm-
botninn i nótt”.
,,Það er ekki nema von, þú
sefur svo fast.”
Lausnin
Stjórnmálamennirnir segja
aöófærtséaö hafa kosningar i
janúar eöa febrúar, þvi aö þá
sé svo erfitt aö halda kosn-
ingafundi úti á landi. Sam-
göngur séu óvissar og sumir
staöir geti veriö einangraöir i
viku eöa tiu daga.
Væri þaönú ekki góö lausn á
vandanum aö senda allt liöiö
þangaö sem liklegast er aö
einangrist og kjósa svo, laus
viö allt froöusnakkiö?
Aö sjálfsögöu fengju Ibúar
viökomandi einangraös bæjar
bætur úr viölagasjóöi.
— ÓT
—Ðifreiðaeigendur----------
ÐÍL AÞVOTTUR—DÓN — RYKSUGUN
Vitið þið, að hjá okk-
ur tekur aðeins 15-20
min. að fá bílinn
þveginn — bónaðan
og ryksugaðan.
Hægt er að fá bilinn
eingöngu handþveg-
inn.
Komið reglulega.
Ekki þarf að panta
tíma, þar sem við
erum með færi-
bandakerfi.
Ödýr og góð þjón-
usta.
W
DON- OG ÞVOTTASTOÐIN HF.
Sigtúni 3, sími 14820.