Vísir - 15.10.1979, Síða 9

Vísir - 15.10.1979, Síða 9
Mánudagur 15. október 1979 v v% M * « * Sjoppa heitir söluturn á góðri islensku, ég hef ekki séö margar sjoppur meö kastalasniöi, heldur kappkosta eigendur aö hafa allt sem einfaldast. Þaö viröist falla vegfarendum, ungum sem gömlum og ekki sist skólafólki vel I geö. HVERS VEGNA SJOPPUR? Já, hvers vegna sjoppur? Þeirri spurningu veröur ekki svaraö i stuttu máli. Ekki get ég vitnaö I vfsindalegar rannsóknarskýrslur. Ég veit ekki hvort rannsókn á fyrirbærinu „sjoppa” ætti aö tengjast manneidisfræöinni, félagsfræöinni, sálfræöinni eöa einhverri ann- arri fræöigrein Helst eru þaö heilbrigöisyfirvöld, hagfræöingar og kaupsýslu- menn, sem hafa skipt sér af sjoppum. Bæjaryfirvöldum hefur þótt tilhlýöilegt aö setja einhverjar reglur um sjoppurekstur til þess aö gæta hagsmuna almennings, en sennilega hefur þaö vafist fyrir þeim um hvaöa hagsmuni er aö ræöa. Bæjaryfirvöld I Reykjavfk hafa t.d. sett reglugerö um afgreiöslu- tima verslana. Akvæöi reglugeröarinnar ná ekki til lyfjabúöa, bifreiöastööva og bensfnafgreiöslna og getur borgarráö aö fengnum tillögum lögreglustjóra og heilbrigöismálaráös leyft söluturnum og öörum sambærilegum söfustööum aö hafa opiö til kl. 23.30. Sá varn- ingur sem er á boöstólum á slfkum sölustööum, er meö öörum oröum talinn svo mikilvægur, aö almenningur veröur aö eiga sem greiöastan aögang aö honum. Tilhvers eru sjoppurnar? Sjoppur eru oft staösettar, á fjölförnum feröamannaleiöum.á skemmtistööum alls konar og þar aö auki viröast forráöa- menn sjoppanna hafa tilhneig- ingu til aö staösetja þær nálægt skólum, foreldrum og kennur- um til nokkursama. Sjoppa heitir söluturn á góöri islensku, éghefekki séö margar sjoppur meö kastalasniöi, heldur kappkosta eigendur aö hafa allt sem einfaldast. Þaö viröist falla vegfarendum, ung- um sem gömlum og ekki sist skólafólki vel i geö. Timinn er verömætur nú til dags, viöskiptavinir vilja fá eitthvaö aö borða á fljótlegan og auöveldan hátt, og þaö fá þeir i sjoppunum. Þaö er sennilega aðalástæöan fyrir vinsældum þeirra. Orkugjafar! ísloppum fermest fyrir þeim söluvarningi, sem gefur mikla orku, alveg eins og bensinið ger- ir, enda þykir vist hagkvæmt aö tengja bensinafgreiöslu sjoppu- rekstri og feröamönnum þykir sjálfsagt að eiga aögang aö þessari þjónustu a.m.k. á fjölförnum ferðaleiðum Sælgætiö er sá varningur, sem mest fer fyrir i sjoppunum, enda hefur sælgæti þann kost, aðauövelt er aö geyma þaö, þaö skemmist ekki þótt þaö sé geymt i stofuhita mánuöum saman og þaö er hreinlegur og þægilegur söluvarningur, sem auðvelt er aö ganga frá i umbúöum. Enda er viöast til mikiö og fjölbreytt úrval af sælgæti. Samkvæmt tilkynningu frá verölagsstjóra nr. 16 1979 má álagningásælgætiismásölu vera 43%. Engin vara, sem get- iö er um I þeirri tilkynningu má verameö svona háa hálagningu nema s jálfblekungar, kúlupenn- ar ogskrúfblýantar. A mjölvöru er álagningin 28% ogá ávöxtum 40%, svo aö dæmi séu nefnd. Avextir eru viðkvæmir, þaö getur orðiö allmikil rýrnun á slfkum söluvarningi. Pöddur geta skemmt mjölvöruna, þarf þvi aö vera eftirlit meö þeim söluvarningi, en sælgætiö skemmist yfirleitt ekki. Þaö er vist ekki þorandi að tala mikiö um landbúnaöarvör- urnar eins og er. Þaö má þó skjóta þvi hér inn, aö ekki er nema 10% álagning á smjöri, en smjör er sá varningur sem mik- il hætta er á aö hverfi i sjálfsaf- greiösluverslunum. A bitapakk- aðan ost meö 45% fitu I þurrefn- unum má vera 15,1% álagning, en ef osturinn er meö 30% fitu lækkar álagningin niöur i 12,9% hefur mér verið tjáö. Sælgætinu vel haldið að mönnum Sælgætissala fer ekki einungis fram i sjoppum, heldur i öllum matvöruverslunum að heita má. Það eru ekki nema fisk- búöirnar og fáeinar kjötvöru- verslanir, sem ekki hafa sælgæti á boöstólum. Enda er taliö aö kaupmenn þurfi aö fá einhverja leiöréttingu á lágri álagningu á hinn svokallaða nauösynjavarning, sem áhrif hefur á visitöluna og þvi talið sanngjarnt aö þeir græöi vel á sælgætinu. Fyrirnokkrum árum var taliö rétt aö öryrkjar gengju fyrir, þegar leyfi fyrir sjoppurdcstri var veitt. Var taliö aö þar meö væri unnt aö tryggja nokkrum þeirra allgóöa afkomu. Þetta reyndist misjafnlega vel, öryrkjarnir réöu ekki ætiö viö reksturinn, svo nú er horfiö frá þvi sjónarmiöi. Víöa hefur verið veitt leyfi fyrir sjoppurekstritilaö tryggja vörslu og þrif i biöskýlum strætisvagna. Sælgætissala fer jafnvel fram innan veggja allmargra framhaldsskóla. Upphaflega var þeirri sölu komiö á fót i verslunarskólum, svo að nemendur fengju nokkra verk- lega æfingu i verslunarstörfun- um, siöan hefur þetta þróast þannig, að nú er stundaöur sjoppurekstur I flestum framhaldsskólum til aö efla ferðasjóð elstu bekkjardeildar eöa þ.h., enda hefur sjoppan i einum framhaldsskóla hér I bæ fengið nafniö „Okursjoppan sómalía”. Sælgæti er haldiö vel aö mönnum hér á landi.þaö er alls staðar fyrir hendi, svo aö unnt sé aö seðja hungur sitt á auga- bragði, ef á þarf að halda. A minum dómi er ósanngjarnt aöfreista manna á þennan hátt, sem kannski eru aö berjast viö að losa sig viö hluta af likams- þunga slnum. Rannsóknir hjá Hjartavernd hafa leitt i ljós, aö islenskir karlmenn eru að jafn- aöi lOkilóum of þungir. Svipuöu máli gegnir sennilega um kven- fólkiö. Lítið um ávexti Pylsur meö brauöi er einnig vinsæll varningur i sjoppunum, og hann er einnig orkurikur. Pylsa sem er 50 g á þyngd meö pylsubrauöi, sem er 15 g gefur um 18 hitaeiningar, og ef 10 g af steiktum lauk bætist þar ofan á veröa hitaeiningarnar um 260. 80% af þeirri orku fæst úr fit- unni í máltlöinni. neðanmóls Sigrlöur Haraldsdóttir húsmæörakennari fjaliar hér um fslenska sjoppumenningu. Hún segir m.a.: „1 s joppum fer mest fyrir þeim söluvarningi, sem gefur mikla orku, alveg eins og bensiniö gerir, enda þykir vlst hagkvæmt aö tengja bensinafgreiöslu sjoppurekstri og ferðamönnum þykir sjálfsagt aö eiga aögang aö þessari þjónustu, a.m.k. á fjölförnum feröaleiðum”. (Grein þessi er byggð á erindi, sem höfundur hélt nýlega á fundi Manneldisfélags tslands.) Ef bætt er við 10 g af remúlaðisósu ilt á pylsuna, fást um 320 hitaeiningar úr máltiðinni. Sinnep og tómatsósa eru ekki heldur orkusnauö meö öliu. I sinnepi getur veriö um 23% af sykri og i tómatsósu um 15% Þaö væri hollara aö fá sér pylsumeöbrauðioghráum lauk og eitt elpi i ábæti. Sú máltiö yröi ekki eins fiturlk og ávaxta- sykurinn I eplinu, ekki eins skaöleg fyrir tennurnar og syk- urinn i sælgætinu eöa I gosinu, sem oft er drukkiö meö pyls- unni. En ávextir eru sjaldan á boðstólum i sjoppunum. Franskar kartöflur eru hins- vegar vinsæll sjoppuvarningur, hafa þær einnig mikla fitu aö geyma. 100 g af svokölluöum „pommes frites” gefa um 200 hitaeiningar en 100 g af þunnum kartöfluflögum hinsvegar 560 hitaeiningar eða svipaö orku- magn og 100 g af súkkulaöi. Kaffi meö góöum kökum er viöa á boöstólum 1 sjoppum á feröamannaleiöum.það er orku- rik máltíö, þar sem svo mikill sykur og fita er I kökum. Ef smurt brauö er á boöstólum, kemst sá sem þaö kaupir varla hjá því aö fá dágóöan skammt af majones. Ofan á hangikjöts- sneiöinni er italskt salat, ofan á „roastbeefi ” remúlaöi og hin- ar ágætu rækjur eru þvi miöur útflúraöar meö majones I skrautrendum og toppum. Orkusnautt álegg eins og tómat- ar og gúrkur eru sjaldan á boöstólum. Mínna neytt af hollum mat Aukabitinn, sem skólafólk og feröalangar fá sér i sjoppunni getur hæglega fullnægt einum fjóröa af orkuþörf dagsins og þar meö er hætt viö aö minna sé neytt af hollum mat, sem ekki er eins fitu- og sykurrikur. Venjuleg máltiö, samsett úr matvælum úr hinum 6 fæöu- flokkum, er sjaldan á boöstól- um, þegar feröamaöurinn eöa skólafólkið þarf á henni aö halda, nema greitt sé stórfé fyrir hana. Heimilin sjá ekki lengur um sllkt, þau gegna ekki því hlutverki lengur að sjá aö öllu leyti fyrir þörfum heimilis- fólksins, þegarflest allir stunda vinnu i órafjarlægð frá heimilinu og geta ekki skroppið heim i mat á matmálstímum. En hvers vegna þarf sjoppu- fæðan aö vera svo orkurik? Er þaö kannski vegna þess aö hér áöur fyrr, þegar menn ferö- uöust á hestbaki, þurftu þeir á mikilli orku aö halda? Þá höfðu menn haröfisk og sm jör meö sér i nesti. Slikt orkurikt góögæti er sjaldan á boöstólum i nútima sjoppu, jafnvel þótt við fram- leiöum þaö sjálf hér á landi. En viö þurfum hinsvegar aö flytja inn kartöflur til þess að geta matbúiö almennilegar franskar kartöflur. Viðhorfið til sjoppanna þarf aðbreytast NUtima-feröamaöursem situr kyrr i upphituöum bíl þarf ekki svo ýkja mikla orku til þess að komast leiöar sinnar. Bifreiöin hansþarf hinsvegará sinniorku aö halda. Ef skólafólk heföi ætiö nesti meö sér, væri ef til vill unnt aö takmarka heimsóknir þess I sjoppurnar. En brauömáltiöir hafá ef til vill ekki náö sömu vinsældum hér á landi og á hin- um Norðurlöndunum, sem búa viö svipaöa heimilismenningu og viö, þar sem viö höfum ekki ræktaö korn aö neinu ráöi. Ef til vill væri unnt aö breyta sjoppuvarningnum I betra horf. En þá þarf viðhorf okkar tii sjoppna einnig aö breytast. Þvi til sönnunar langar mig aö lok- um aö skýra hér frá tillögu um vörulist sem Borgarráö Reykjavikur hefur sett saman að fengnum tillögum Kaupmannasamtaka Islands, þar sem tilgreint er, hvaöa vör- ur kemur til greina aö selja megi i söluturnum og sambæri- legum sölustöðum. Listinn ber þaö meö sér aö þaö hlýtur aö hafa veriö mjög erfitt aö ná samkomulagi um hann. Vörulistinn t hverjuleyfi sem veitt veröur tii sjoppurekstrar skal tekiö fram hvaöa vörur á listanum heilbrigöisráö telur fært aö leyfa þar til sölu með hliösjón af aðstæöum. Efst á listanum er aö sjálf- sögöu sælgæti. Svo kemur súkkulaöikex, en skilyröi fyrir þvi aö þaö sé söluhæft eftir venjulegan afgreiöslutima er, aö þaö sé alhúöaö.súkkulaöikex alhúöaö stendur á listanum. Siöan koma tóbaksvörur, öl og gosdrykkir (ávaxtasafi kemur ekki til greina), siðan blöð og timarit, Is, Iskökur, Issósur, Is er meö feitari mjólkurafuröum, venjuleg mjólk eöa mysa viröist ekki koma til greina. Svo stendur á listanum heitar pyls- ur, rafhlööur, skyndiplástur, blöörur og flugeldar (ég skil ekki hvers vegna við þurfum á þeirri þjónustuaö halda fram til kl. 11.30 að kvöldi dags). Afram skal haldið, og nú koma saltstengur og salthnetur handa þeim, sem áhuga hafa á þvi aö veröa þyrstir, ennfremur öryggi, eldspýtur, dömubindi og rakblöö, sjálfsagt best að gera ekki upp á milli kynja. Næst stendur á listanum sólgleraugu, hvernig sem á þvi stendur, siöan kort, frimerki, bolluvend- ir, spil, greiður, hárlakk og hárkrem, en hinsvegar er sjampó ekki á listanum. Stllabækur, reiknibækur og blýantar mega vera á boðstól- um, ætli þaö sé ekki vegna áhrifa frá kennurum, svo koma vinnuvettlingar rakspíritus, raksápa, sokkar.sokkabuxur og að lokum kaffi. Tedrykkjumenn veröa aö útvega sér te á venju- legum afgreiöslutlma. Hvers vegna höfum viö þenn- an lista svona? Hvers vegna sjoppur? Þeirri spurningu er ósvaraö.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.