Vísir - 12.12.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 12.12.1979, Blaðsíða 11
Miövikudagur 12. desember 1979. 11 Fyrsta alíslenska teiknisagan Kynningarverð til áramóta kr. 2810 Pétur og vélmenn- ið eftir KJARNÓ í fyrri viku hélt Fjölvi blaöamannafund um „fyrstu teiknisögu prentaða í fullum litum á íslandi." Þaó var Valerían geimfari. Kannski var þaó íslenskur prent- söguviöburður? En nú stígur Fjölvi skrefiö til fulls. Alíslensk teiknisaga eftir lítinn meistara Kjarnó eöa Kjartan Arnórsson, sem þó er ekkert lítill, þriggja álna sláni, þó hann sé ungur aö árum. Kannski er þaö merkilegur bókmenntaviö- buröur?? Frumbók íslenskra teikni- sagna, Pétur og vélmennið eftir Kjarnó er á kynningar- verði kr. 2810 til áramóta, en hækkar þá í kr. 3415. Einstakt tækifæri til að eignast bók sem á eftir að verða sögufræg og mjög verðmæt. Munið að Fjölva- bækur aukast að verðgildi. Þær eru góð eign. Nýjustu teiknisögur á jólamarkaðinum! Fjórir heimsfrægir gaurar í þjónustu Fjölva Hvað er þetta með Fjölva?! Nú slær hann fjórar flugur í einu höggi! Sendir út á markaðinn í einu lagi fjórar teiknisögur um fræga gaura, sem allir eru eftirlætisgoö yngstu kynslóðarinnar! ^„"n'n^nx, Denni dæmalausi, Stjáni blái. Yngsta kyn- slóðin bíður með öndina í hálsinum eftir að sjá og lesa þessar litum skreyttu bækur spjald- anna milli. Þær fara nú sigurför um öll lönd. Klapparstíg 16 Sími 2-66-59 Velkomin að öndvegis súlum Fjölva! Og takið eftir! Það allra besta er! Þessar stórfall- egu bækur eru á kynn- ingarverði til áramóta kr. 2810, en þá hækka þær í kr. 3415. Svo nú er að missa ekki af tæki- færinu. Bókmennta viðburður Víða um lönd eru teiknisögur viður- kennd bókmenntagrein. Nýlega gaf Belgía út frímerki til virðingar við Tinna. íslenskir menningarvitar eru íhaldssamari og gam- aldags. Enginn þeirra fæst til að skrifa heiðarlega gagnrýni um teiknisögur nema að taka upp gamla vælió um torfbæ uppi í sveit og hjásetu yfir rollum. En yngsta kynslóðin hefur skilið kall tímans. Þegar tímar líða kann þessi fyrsta frumraun að verða mjög verðmæt, enda er fyrsta upplag ekki mikið. Fyrsta íslenska teiknisagan er um Pétur og vélmennið eftir Kjarnó og kallast Vís- indaráðstefnan. Hún er á margan hátt mjög snjöll, morandi af gríni og gaman- semi. Og það merkilegasta er að bókin er fullkomlega sambærileg í verði við er- lendar útgáfur, því hún er á hagstæðu kynningarverði til áramóta. Síðan verður hún miklu dýrari ekki síst ef prenta verður nýtt upplag. Stórskemmtileg bók fyrir yngri kyn- slóðina. Og nú slær Fjölvi hvorki meira né minna en fjórar flugur í einu höggi með því að gefa út feiknisögur fyrir yngstu kynslóðina um gaurana Bleika pardusinn Köttinn Felix, Denna dæmalausa og Stjána bláa Úrval teiknisagna Fjölva er nú næstum óþrjótandi. Gjörið svo vel, velkomin að líta í öndvegissúlur Fjölva á útsölustöðunum. Valið er frjálst og úrvalið mikið. Fjölvi er í fararbroddi í útgáfu teiknisagna hér á landi. Þær eru orðnar snar þáttur í þjóðlífi og menningu og verða það í vaxandi mæli. Fleiri út- gefendur munu sjálfsagt feta í fótsporin og reyna að hefja samkeppni, en Fjölvi mun enn um fyrir- sjáanlega framtíð hafa forskot með lang fjöl- breyttasta úrvali teiknisagna. Útgáfa Fjölva hefur valið úr vinsælustu og bestu teiknisögum veraldar. FJÖLVI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.