Vísir - 12.12.1979, Blaðsíða 4
vism
Mibvikudagur 12. desember 1979.
We§l&nm
ÉG GRÆT
að wiorgni
Bókin sem vekur okk-
ur til umhugsunar.
Bókin sem segir að
hægt sé að kaupa sér
heilsuleysi fyrir stórfé.
Bókin sem bendir
okkur á leiðir í seil-
ingarfjarlægð til betra
lífs.
Bókin sem er talin
bezt skrifaða ævisaga
alkóhólista á þessari
öld.
Bókaútgáfan Hildur
Skemmuvagi 36 Kópavogi Sími 76700
?
I
r ■■ ,»
GOLFAHOLD TIL
JÓLAGJAFA
Mikið úrval golfáhalda og fatnaðar fyrir alla
f jölskylduna.
GOLFPOKAR • KYLFUR • PÚTTARAR
KÚLUR •PEYSUR •SKYRTUR • SKOR
HANSKAR, o.m.fl.
Veljið rétt — koupið v
golf-gjöfino hjá
JOHN NOLAN
atvinnugolfkennara :ÍIS
Wrai inhao OA ,
5
Hraunbæ 26 -
Sími 31694
.■.VAW.W.V.y.WMNVW.W^AW.WMW.'A.wS
Járniðnaðarmaður óskast
Argon kolsýru- og gassuðumaður,
handfljótur með góða æfingu óskast á Púst-
röraverkstæðið, Grensásvegi 5, (Skeifumeg-
in).
Aðeins algjör reglumaður kemur til greina.
Uppl. á verkstæðinu hjá Ragnari Jónssyni.
Ekki í síma.
Nýjar gerðir aff
SÓFASETTUM
Cott vorð.góðir groiðslwtkilmálar
Trésmiðjan
Gjórið ivo vel
eg litiS ien
Laugavegi 166
Simar 22229 og 22222
t:\il
U j',1 I f’i' f i\f
r/
I 4 ij , 4
Allir eru þeir rétttrúandi umkringdir einskærum heiðingjum og menning þeirra sú eina sanna, sem
vernda verður fyrir áhrifum spillingarinnar frá villimönnunum á vesturlöndum.
Jafnvel vllll-
menn fornaldar
vlrtu frlðhelgl
sendlfulltrúa
Diplómatiiö, eins og menn kalla
þann siö að skiptast á sendiherr-
um er rakið allt aftur til upphafs
siðmenningar, og jafnvel lengra
aftur I timann.
4.000 ára gamlar heimildir og
rúmlega það — frá Kina, Ind-
landi, Egyptalandi, Persiu og
Mesópótamiu — greina frá mót-
tökum sendimanna frá öörum
rikjum. Sumir fræðimenn rekja
upphaf diplómatísins allt aftur til
þess, aö frumstæðustu ættkvisiir
hófu innbyröis samskipti áður en
þekktist að skipta mannkyninu i
þjóðir.
Jafngömul þessu er svo viður-
kenning þess — til þess aö tryggja
áframhaldandi samskipti — að
þessir sendifulltrúar séu alger-
lega friðhelgir og þá bæði persóna
þeirra og dvalarstaður. Upp úr
þvi viöhorfi hafa siðan þróast
ýmis sérréttindi og heföir varö-
andi diplómata, eftir þvi sem
utanrikisviðskipti þjóða hafa
aukist aö umsvifum.
1 tilefni töku bandaríska sendi-
ráðsins i Teheran birtist nýlega i
bandariska blaðinu „Washington
Post” grein eftir George
Ball, fyrrum aðstoðarutanrikis-
ráðherra, þar sem hann bendir á,
að jafnvel Persar til forna, her-
skáir eins og þeir voru, hafi virt
friðhelgi erlendra sendimanna,
þótt þeir hafi sjálfir ekki alltaf
veriö látnir njóta þess sama.
Hann minnir á, þegar sendi-
menn Dariusar Persakonungs
komu til Aþenu og Spörtu, en var
varpað i ormagryfju og brunn.
Ball segir, að sagnaþulurinn
Heródótus hafi velt vöngum yfir
þvi, hvort þaö hafi ekki einmitt
verið i hefndarskyni fyrir þessa
meöferð á sendimönnunum sem
Persar eyöilögðu Aþenu.
1 bók sinni „The Diplomatic
Kidnapping” skifar Carol Baum-
an, að friðhelgi sendifulltrúa til
forna hafi meir byggst á trúarleg-
um viöhorfum en lagagrundvelli.
Lög Islams segja til dæmis, að
„bannað sé að hefta frelsi nokk-
urrar menneskju, nema hún sé
bendluð viö glæp,” eftir þvi sem
Ismail R. A1 Faruqi, prófessor i
múhammeðstrúarfræöum viö
Templeháskóla, skrifar i The
Wall Street Journal. — Og meira
en þaö. „Lög íslams viöurkenna,
að erlendir sendimenn i mú-
hammeðstrúarriki njóta fullrar
friðhelgi og má ekki sækja þá til
saka fyrir brot á lögum viðkom-
andi lands, einungis visa þeim úr
landi.”
Mörg eru dæmin i sögunni um,
að til forna hafi stjórnvöld rikja
ólikra trúarbragða (kaþólskra,
mótmælenda, múhammeðstrúar,
búddatrúar) séð sig knúin til þess
að veita erlendum gestum vernd
gegn trúarofstækismönnum
heima fyrir eða öörum skril.
Upp úr þvi þróaðist heföin um
diplómatapassa og lausn undan
tollskoðunarskyldum, auk ann-
arrar friðhelgi.
Lög Rómaveldis litu á sendi-
herra sem persónugervinga við-
komandi rikis og árás á þá jafn-
gilti árás á land þeirra. Nánast
styrjaldaástæða.
I Indlandi til forna voru dipló-
matar friðhelgir og Indland taldi
sér skylt að tryggja öryggi
þeirra. Og þrátt fyrir meðferð
þeirra á sendimönnum Dariusar
Persakonungs töldu Grikkir
erlenda sendiboöa (frumherjar
diplómatisins) friðhelga.
Með undirritun Vestfala-
samninganna (Frakkland, Svi-
þjóð og Rómverska keisaraveld-
ið) við lok þrjátiu ára striösins
1648 hófust diplómatasamskipti
rikja, sem okkar tima millirikja-
samskipti grundvallast á.
Grotius, sem stundum er kall-
aður „faðir alþjóðalaga”, lagði
og hönd á plóginn viö mótun
diplómatiskra sérréttinda og
friðhelgi. Hann sagði á 16. öld: „A
nær hverri siðu mannkynssög-
unnar má finna dæmi um frið-
helgi sendiherra og öryggi þeirra,
öryggi, sem helgast af öllum
mannúðarsjónarmiöum og alls
staðar, þar sem einhver lög
rikja.”
A sautjándu öld settu Hollend-
ingar lög, sem bönnuðu aö sendi-
herrum væri varpað I skulda-
fangelsi. A átjándu öld samþykkti
breska þingið lög um sérréttindi
diplómatsins.
bótt rekja megi diplómatiskar
heföir langt aftur I aldir, eru
fyrstu formlegu samningarnir
um helgi sendifulltrúa tiltölulega
nýlegir. Fyrstu fjölþjóðasamn-
ingar um sendifulltrúa og ræðis-
menn voru samþykktir á sjöttu
ráðstefnu Amerikurikja og undir-
ritaöir i Havana árið 1928. Þar
var tekið fram, aö allir sendifull-
trúar, hvert sem verksvið þeirra
væri, skyldu njóta sömu réttinda
og friðhelgi i eigin persónu og
sömuleiðis dvalarstaðir þeirra og
eignir.
Nýjasta samþykktin, og sú,
sem gildir viöast, var gerö á
Vinarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna 1961, en hún fjallaöi um
diplómatísk sambönd og friö-
helgi.
Sú samþykkt öðlaðist gildi 1964,
og voru f jörutiu rikisstjórnir aðil-
ar aö henni. (Þar á meðal Banda-
rikjastjórn og íransstjórn.)
Þaö er núna almennt viður-
kennt og viðtekin venja, aö dipló-
matar eigi kröfu til þessara hefð-
bundnu réttinda um leið og þeir
stiga fæti á land gestgjafanna.
Þeir halda þeim réttindum allan
timann, sem þeir gegna embætt-
inu, gildir jafnt þótt styrjöld geisi
milli landanna tveggja. Reyndar
eru gestgjafarnir skyldugir til
þess að ganga enn lengra i aö
vernda diplómatana á slíkum ó-
friðartimum og þá lika gegn
„hverskonar móögunum og árás-
um”. Sérstök áhersla er lögð á þá
skyldu gestgjafanna að tryggja,
aö diplómatarnir komist óhultir
frá landi, ef svo ber upp á.
Þótt leitaö sé aftur til myrkustu
fornalda, finnast ekki margar
hliðstæður slikrar villimennsku
og Iran undir stjórn Khomeinis
hefur gert sig sekt um.