Vísir - 02.02.1980, Page 3
I
Einsi kaldi úr Eyjunum
Einhverjir sérstakir textar
sem þú heldur mest upp á?
,,Ja, ég man nú eftir laginu
sem Björgvin Halldörsson
söng fyrir nokkrum árum og
tröllreið öllu þá, ,,Ég fann
þig”. Annars held ég að mér
þyki vænst um þau lög sem ég
hef samið bæði texta og tónlist
við.
Það hafa komið út eftir mig 7
lög á plötum, þaðeru lög eins og
„Einsi kaldi úr Eyjunum”, ,,t
kjallaranum”, „Komdu i
kvöld”, „Úti i Hamborg” og
nokkur fleiri. Ég hefði gjarnan
viljað semja fleiri lög en ég hef
haft svo mikið að gera fyrir
aðra að ég hef engan tima haft
fyrir s jálfan mig. Ég hef ekkert
samið i mörg ár en það stendur
nú til bóta, það er í undirbún-
ingiað gefa út lög eftir mig en
það er mjög stutt á veg komið
ennþá.”
Harmóníkan í uppáhaldi
Eins og drepið var á hér áð-
an hefur Jón ekki látið sér
nægja að semja texta heldur og
verið mikilvirkur tónlistar-
maður og spilað i mörgum
hljómsveitum, m.a. með
Bjarna Böðvarssyni, Öskari
Cortez, Carl Billich, Karli
Jónatanssyni...
„Mitt aðalhljóðfæri er
harmónikan, tvöföld harmó-
nika en annars spilaði ég á
hvað sem var, eftir þvi hvað
vantaði. Ég hef spilað á orgel,
pianó, gitar og meira að segja
VÍSIR
Laugar'dagur 2. febrúar 1980
sungið. En ég hætti þvi fljót-
lega, vildi hlifa fólki. Þó söng ég
með Bjarna Böðvarssyni i
nokkurn tima, þá var Ragnar
Bjarnason reyndar trommu-
leikari, aðeins 15 ára gamall.
Hljómsveitirnar i þá daga
byggðust upp á blásturshljóð-
færum og þó aðallega
harmónikum. Það var mjög al-
gengt til dæmis að i hljómsveit
væru tvær harmónikur og
tromma. Einu sinni spilaði ég á
Röðli og þá voru i hljómsveit-
inni fimm harmónikur og svo
ein tromma. En það var of mik-
iö...”
Úr heiðskíru lofti
Við höfðum haft spurnir af
þvi að Jón hefði gert dálitið af
þvi aö semja gamanmál og
gamanvisur.
„Eitthvað var það, já. Eina
reviu setti ég upp með nokkrum
félögum minum, hún hét: Or
heiðskiru lofti og ég átti þar
talsverðan hluta af músikkinni,
talinu og textunum, stjórnaði
auk þess hljómsveitinni. Við
sýndum hana á miðnætursýn-
ingum og vildum kanna grund-
völlinn. Hún var sýnd nokkrum
sinnum og við sluppum skað-
lausir en fyrirtækiö lognaðist
út af.
1 annarri reviu var ég
söngvari ásamt Erlingi Hans-
syni, sem nú er fulltrúi hjá
Rikisbókhaldi. Það var
Fegurðarsamkeppnin sem
reviuleikhúsiö Bláa stjarnan
setti upp og sýndi svona 50
sinnum. Bláa stjarnan tók
eiginlega við af Fjalakettinum
og var með sýningar i gamla
Sjálfstæðishúsinu viö Austur-
völl.”
Semur aðeins á nóttunni
Nú vinnur þú fullan vinnudag
i verðbréfadeild Búnaðarbank-
ans. Gengur ekki illa að sam-
ræma það tónlistarstarfsem-
inni?
„Neinei, það gengur ágæt-
lega. Ég reyni aö sinna minni
vinnu á daginn og hugsa s vo um
hitt á nóttunni. Ég snerti aldrei
á þvi að semja nema á nóttunni
þegar allir sofa, þá hef ég bæði
næði og ró.”
Er munur á skemmtanalif-
inu nú og þegar þú byrjaðir?
„Ja, það er annar svipur yf-
ir þvi og ég vil meina að fólk
hafi skemmt sér betur. Þá
skemmti fólk sér sjaldnar en
þá lengur, til klukkan sex eöa
sjö á morgnana, þá stóðu böllin
ekki bera til eitt eða tvö eins
og nú er. Hins vegar held ég að
drykkjuskapur sé alls ekki
meiri nú þó fólk byrji kannski
að drekka yngra. En ég get ekki
kennt þeim um það, þau gera
það sem þau sjá i kringum sig.
Ég hef spilaö mjög mikið út
um landið og eitt sem hefur
batnaðeru slagsmálin. Þá var
ekki haldiö svo sveitaball aö
ekki yrðu slagsmál, þetta hefur
skánað mikið.”
í-itill munur á tónlistinni
„Það var allt annar still á
tónlistinni hér áður, þegar
harmónikurnar og blásturs-
hljóðfærin voru allsráðandi. En
mér finnst að það séu aðallega
útsetningarnar sem hafi
breyst viö það að rafmagns-
hljóöfærin komu til sögunnar.
Þá eru hljóms veitirnar betur
æfðar nú, i gamla daga var allt-
af spilað eftir nótum sem hver
maður las, þó hann væri
kannski búinn að spila sama
lagið mörgum sinnum.
En ég held að það sé litill
munur á tónlistinni nú og þá,
það eru ákveðin lög sem alltaf
ganga, róleg og falleg lög og
mér finnst tónlistin nú alls ekki
standa að baki þeirri sem spil-
uð var áöur. Það er eitthvað
gott i allri tónlist.
Nú til dæmis finnst mér mest
gaman að „country & western”
tónlistinni. Af þeirri gömlu? Ja,
til dæmis dixieland...”
//Sé ekki eftir timanum"
Uppáhalds tóns miöir ?
„Ætli það sé ekki Sigfús.
Annars áttum við töluvert af
góðum islenskum lögum og
marga góða menn, ég get nefnt
Óliver Guömundsson, óskar
Cortez, nú og Oddgeir Guð-
mundsson i Vestmannaeyj-
um...”
Þú sérð ekki eftir timanum
sem hefur farið i tónlistariðk-
un?
„Nei. 1 upphafi var þetta
fjárhagsatriöi, að spila og
semja en ég hef lika mjög gam-
an af að skemmta fólki og sjá
það skemmta sér. Nei, ég sé
ekki eftir timanum...”
slikt á ekki heima á skemmtun-
um.”
Stundum er sagt að dægur-
lagatextar séu bara þýddir úr
frummálinu en ekki frum-
samdir.
„Ég hef ekki farið út i það.
En hins vegar eru sumir
textarnir stældir og staðfærð-
ir, t.d. textinn við ,Linu og
Geira”. Ef efnið er gott þá
styðst ég við það að einhverju
leyti en aðalatriðið er að hafa
textana vel sönghæfa.”
„Ég tók bii niöur i Þórskaffi og sótti nótur að
laginu...”
...og var svo kominn aftur klukkan eitt um
nóttina — meö textann tilbúinn!”
„Kristján hringdi I mig klukkan átta og bað
mig áö búa til texta...”
STRUMPUR MÁNAÐAR/NS ER
SLEÐA STRUMPUR
Kjósið STRUMP marsmánaðar
Nú gefst öllum kostur á að kjósa STRUMP
marsmánaðar með þvf að fyl/a út seði/inn og
senda hann merktan
STRUMPUR MÁNAÐARINS
Box 7042 - 127 Reykjavík
fyrir 20. febrúar 1980
V/NN/Ð
STRUMPAHÚS
Dregnir verða úr innsendum
miðum fimm vinningar,
æm eru eitt stórt
STRUMPAHÚS í hverjum
STRUMPAR - SÚPERSTRUMPAR
ÓLYMPÍUSTRUMPAR - STRUMPAHÚS
STRUMPABÁTAR
STRUMPABENSÍNSTÖÐVAR
Eg kýs
Nafn__
Strump mánaðarins j
Heimili
Póstnúmer.
Sími
KRÁKUSsf
Suðurgötu 3A — Sími 2-32-22 — Reykjavík