Vísir - 02.02.1980, Blaðsíða 30

Vísir - 02.02.1980, Blaðsíða 30
Laugardagur 2. febrúar 1980 30 Stjórn SkipaútgerOar rikisins. Frá vinstri= Gunniaugur Sigmundsson, deildarstj. FjármálaráOuneytb HéOinn Eyjólfsson, deildarstj. Fjárlaga- og hagsýslustofnun.Haildór S. Kristjánsson, form. stjórnar, deiidarstj. SamgönguráOun. GuOmundur Einarsson, forstjóri SkipaútgerOar rikisisn. SKlpaútgerð rikísins 50 ára: NÝLI0IÐ ÁR METÁR í SÖGU RÍKISSKIPS Um þessar mundir er haldió upp á SO ára afmæii Skipaút- gerOar rikisins, Rikisskips, en 1. desember 1929 var Páimi Lofts- son skipaöur útgeröarstjóri skipa rikissjóös. Miklar breytingar hafa oröiö á þjónustu og stööu Skipaút- geröarinnar á þessum 50 árum og vantar mikiö á aö hún skipi nú þann sess, sem mestur hefur veriö i sögu hennar. Nú hin siö- ustu ár hefur þó brugöiö nokkuö til hins betra og hlutverk hennar hefur vaxiö. Skipaútgerö rlkisins er ekki rekin meö hagnaöarsjónarmiö i huga og hefur aldrei veriö, en engu aö siöur er þaö mikilvægt markmiö aö rekstur hennar beri sig og aö þvi er stefnt. Hlutverk Skipaútgeröarinnar hefur veriö, og er enn, þjónustuhlutverk viö þá landshluta og einstöku staöi, sem þurfa á þjónustu hennar aö halda og ber nokkur höfuöatriöi hæst I þvl sambandi. Aö bjóöa upp á ódýra og hag- kvæma flutningaþjónustu viö hina ýmsu landshluta og stuðla þannig aö sem lægstu vöruveröi og sem bestum skilyröum til at- vinnuþróunar, meö hagkvæm- um flutningi til aöfanga og af- uröa, aö veita þjónustu stööum og svæöum sem ekki eiga mögu- leika á aröbærri flutningaþjón- usut, og aö auövelda þróun I átt til hagkvæmari millilandaflutn- inga meö þvi aö bjóöa milli- landaskipafélögum upp á hag- kvæma söfnunar- og dreifingar- þjónustu á ströndinni. Þriggja skipa leiðarkerfi. Skipaútgerö rlkisins á nú tvö skip, Heklu og Esju, en I nóv- ember 1979 var norska skipiö Coaster Emmy tekiö á leigu. Var þá tekiö upp nýtt leiöakerfi 3 skipa og þar meö bætt úr RÍKISSKIP SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS Þetta er hiö nýja merki Rikis- skips. ágöllum fyrra kerfis og þjón- usta aukin mjög viö Noröur- land, Austurland og Vest- mannaeyjar. Jafnframt þessum breytingum hefur veriö komiö á heimkeyrsluþjónustu I Reykja- vlk á stærri sendingum, og sams konar þjónusta er ýmist komin á eöa er I undirbúningi á stærstu höfnum úti á landi. Arangur af þessum breyting- um hefur oröiö mjög verulegur og hafa flutningar á stykkja- vöru aldrei veriö meiri I sögu útgeröarinnar en ivö hin siö- ustu ár. Veröbólga og verölags- ákvaröanir stjórnvalda hafa hins vegar valdiö þvl, aö rekstrarafkoma útgeröarinnar hefur ekki batnaö. Nýliöiö ár varö metár I sögu Rlkisskips hvaö snertir flutn- inga á stykkjavöru og væru flutningarnir 59.270 tonn eöa rúmlega 10 þúsund tonnum meiri en áriö áöur. Farþegaflutningar svo til úr sögunni. Farþegaflutningar Rlkisskips duttu nær alveg niöur I lok sjö- unda áratugarins enda voru far- þegaskip útgeröarinnar seld á þessum árum. Áriö 1966 var m.s. Hekla seld, en hún gat flutt 166 farþega i ferö, og áriö 1969 var m .s. Esja II seld, en hún gat tekiö 148 farþega. Aöur voru farþegaflutningar snar þáttur i rekstrinum og hámarki náöu þeir áriö 1944, en þá voru far- þegarnir 26 þúsund. Aö undanförnu hefur veriö unniö aö hönnun nýrra strand- feröaskipa. Hin nýju skip munu hafa 60-70% meiri flutningsgetu en núverandi skip, auk þess sem þau veröa 2 mllum gangmeiri og lestun og losun hraövirkari. Ahafnarstærö er áætluö 9 menn, en i áhöfnum Esju og Heklu eru nú 15 manns. A næstu sjö árum er áætlaö aö flutningur meö hin- um nýju skipum aukist I rúm 200 þúsund tonn á ári og aö þá veröi unnt aö reka útgeröina án rfkis- styrks. Enn hefur ekki veriö tekin ákvöröum um smiöina en undir- búningsstarfiö mun halda áfram. Þá er útgeröinni nauö- synlegt aö fá nýja vöruskemmu I Reykjavlk og aö bæta aöstöö- una úti á landi. Andlitslyfting. 1 tilefni af 50 ára afmælinu hefur veriö gerö andlitslyfting á fyrirtækinu. Er þar átt viö nýtt merki og nýjan fyrirtækislit. Hinn nýi litur uppfyllir þær öryggiskröfur, sem gera þarf til litar á vinnuvélum og gámum, en þaö gerir núverandi litur ekki. Jafnframt hinu nýja merki er gerö gagnger breyting á fylgibréfum og öörum papplr- um og er þaö gert til aö einfalda vinnu viö afgreiöslu og til ann- arrar hagræöingar. Núverandi stjórn Skipaút- geröar rikisins er skipuö þeim Gunnlaugi Sigmundssyni, Héöni Eyjólfssyni, Halldóri S. Kristjánssyni, sem er formaöur stjórnar, og Guömundi Einars- syni, en hann er forstjóri Skipa- útgeröar rikisins. — ATA Verða 20 strælisvagn- ar smíðaðir á ísiandi? „Viö teljum okkur hafa aöstööu aö gera þetta. Viö þyrftum aö auka viö okkur húsnæöi og erum meö þaö I byggingu aö ööru leyti erum viö I stakk búnir til aö tak- ast á viö þetta verkefni” sagöi Höskuldur, Jónsson hjá Nýju bilasmiöjunni þegar Vlsir spuröi um tilboö fyrirtækisins I yfir- byggingu á tuttugu nýjum strætisvögnum á næstu þrjátlu mánuöum. Tilboöiö var hiö eina sem barst frá Islenskum aöilum og mun vera fyllilega sam- keppnisfært viö erlendu tilboöin. Meöal þeirra eru tilboö frá Scania, Benz, Volvo, Leyland og Man. Eirlkur Asgeirsson forstjóri SVR segir I samtali viö eitt blaö- anna I morgun aö ákvöröun veröi hraöaö eins og kostur er til aö fá vagnana á götuna sem fyrst og stefnt sé aö þvl aö átta fyrstu vagnarnir veröi komnir á götuna um næstu áramót. Vísir bar þetta undir Höskuld, en hann sagöi aö þetta væri gjör- samlega útilokaö. Þaö þyrfti tvo til þrjá mánuöi til aö kanna málin tæknilega til aö geta ákveöiö hvaöa tilboöi ætti aö taka og af- greiösla á grindum undir vagn- ana væri 4-6 mánuöir lágmark. Ekki væri hægt aö byrja á yfir- byggingunni fyrr en undirvagn- inn væri kominn. Þeir heföu gert ráö fyrir aö geta skilaö fyrsta bflnum um næstu áramót og slöan einum bll meö 45 daga millibili. — JM Oánægja í samslarfsnelnd um reyk- ingavarnlr með afslöðu stjórnvalda: TVeip af Drem neindarmðnnum segja ai sér Tveir af þremur nefndarmönn- um I Samstarfsnefnd um reyk- ingavarnirhafa sagt sig úr nefnd- inni vegna óánægju meö afstööu stjórnvalda til reykingavarnar- starfsins I landinu. Heilbrigöis- ráöherra hefur veitt þeim lausn enaörir menn ekki veriö skipaöir i þeirra staö. Þeir tveir, sem hætt hafa I nefndinni eru Ólafur Ragnarsson, ritstjóri, sem var formaöur nefndarinnar og Asgeir Guö- mundsson, skólastjóri, en auk þeirra sat I nefndinni Þorvaröur örnólfsson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavlkur. „Nefndin hefur talaö fyrir daufum eyrum, þegar leitaö hef- ur veriö eftir frekari stuöningi stjórnvalda viö reykingavarnar- starfiö og áskorun sex samtaka á sviði heilbrigöismála til rikis- stjórnarinnar I fyrrahaust um að gert verði verulegt átak á þessu sviöi hefur ekki veriö svaraö” sagöi Ólafur Ragnarsson, fyrrum formaöur Samstarfsnefndarinnar i samtali viö VIsi. „Aö minu mati hafa fjárveit- ingar til þessa varnaöarstarfs fremur veriö ákveðnar meö tilliti til þess aö friöa samvisku ráöa- manna en aö hægt yröi aö ná með þeim verulegum árangri, enda hafa þær ekki veriö nema brota- . brot af þeim upphæöum, sem rik- issjóöur fær i' sinn hlut af sölu tó- baks til landsmanna” sagöi Ólaf- ur. Taldi hann aö þótt tekist heföi aö draga talsvert úr tóbaksnotk- un hér á landi á siðustu árum, næöist ekki verulegur árangur á þessu sviöi nema stjórnvöld styddu reykingavarnarstarfiö heilshugar. Ráöamenn virtust eiga erfitt meö aö skilja, hversu þýðingarmikiö þetta starf gæti verið til aö koma I veg fyrir heilsutjón og ótimabær dauðsföll I þjóöfélaginu. 1 sliku starfi fælist góð fjárfesting á sviöi heilbrigöis- málanna. Samstarfsnefnd um reykinga- varnir er skipuö af heilbrigöis- ráöherra og starfar samkvæmt lögum frá 1977 um aö draga úr tó- baksreykingum. Sömu þrir menn hafa átt sæti I nefndinni frá upp- hafi. Samstarfsnefndin hefur gengist fyrir margvislegri upplýsinga- miðlun um skaösemi reykinga á síöasta ári gekkst hún meöal annars fyrir svonefndum „Reyk- lausum degi”. Þá rekur nefndin skrifstofu i Reykjavík. Fram- kvæmdastjóri Samstarfsnefndar- innarer Esther Guömundsdóttir, þjóöfélagsfræöingur. — E.S.J. Slarfsfólkl skinna- saumaslofunnar á Akureyri sagt upp „Megninu af starfsfólkinu á skinnasaumastofunni eöa 27 manns, var sagt upp i gær meö tveggja mánaða fyrirvara”, sagöi Hjörtur Eirfksson, fram- kvæmdastjóri Iðnaöardeildar Sambandsins á Akureyri. „Þaö er ákaflega þungt fyrir I þessari iöngrein, og viö náum ekki sölu á því magni á þvl veröi, sem gerir þaö mögulegt aö reka sllka starfsemi. Viö erum ákaflega óánægöir meö þaö óvissuástand, sem rlkir I þjóðfélaginu Idag. Þaö er i reynd- inni alveg vonlaust aö stunda út- flutningsiönaö I þeirri verðbólgu, sem hér þegar kostnaöurinn hækkar um 55% milli ára en tekjurnar aöeins um 38-40%. Uppsagnirnar voru eins konar varúöarráöstöfun hjá okkur, viö vonumst til aö ekki þurfi aö koma til þeirra og aö saumastofan veröi starfrækt áfram. En ef til kemur, munum viö útvega starfsfólkinu vinnu annars staöar”, sagöi Hjörtur. —ATA Forsetakosningarnar 29. lúní: • FRAMB0Ð GETA B0R- IST FRAM í MAÍL0K Forsetakosningarnar hér á landi munu fara fram sunnudag- inn 29. júni og skai skila framboö- um til forsetakjörs I hendur dómsmálaráöuneytisins ekki seinna en fimm vikum fyrir kjör- dag. Kemur þetta fram I auelVsineu frá forsætisráöuneytinu oj segir þar aö forsetaefniö skuli hafa meömæli minnst 1500 kosninga- bærra manna en mest 3000 sem skiptist þannig eftir fjóröungum: Úr Sunnlendingafjóröungi minnst 1070 meömælendur en mest 2145, úr Vestfiröingafjóröungi minnst 115 en mest 230, úr Norölendinga- fjóröungi minnst 220 en mest 440 og úr Austfiröingafjóröungi séu minnst 95 meömælendur en mest 185. Asamt meömælendum skal skila meö framboöum samþykki forsetaefnis og vottoröum yfir- kjörstjóra um aö þeir séu á kjör- skrá. —HR Forsetasetriö aö Bessastööum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.