Vísir - 19.02.1980, Qupperneq 23
Umsjón:
Hannes
Sigurósson
Það er vonandi að skattarnir hafi
ekki höggvið eins nærri mönnum
og þeir virðast hafa gengið þess-
um unga manni.
Sjónvaro ki. 21.30:
Skaltafrumvarpið
lll umræðu
„Ég ætla aö fjalla um skatta-
frumvarpið, sem væntanlega
verður afgreitt í dag af Alþingi”,
sagði Ingvi Hrafn Jónsson, um-
sjónarmaður Þingsjár.
Ingvi sagði að þátturinn væri
ekki enn fullunninn, en llklega
yrði rætt við þrjá fyrrverandi
fjármálaráðherra, þá Matthlas
Mathiesen, Tómas Arnason og
Sighvat Björgvinsson, auk núver-
andi fjármálaráðherra.Ragnars
Arnalds.
Einnig verða einhverjir sér-
fræðingar með I umræöunum, til
halds og trausts.
Þingsjáin átti I raun að vera
eftir hálfan mánuð, en kemur nú i
staðinn fyrir breska mynd, sem
átti að vera 1 kvöld, um ástandið I
Afganistan. Verður sú mynd þvl
sýnd á morgun.
Astæðan til þess, að þetta var
gert, er sú, að engir hafa getað
gert sitt framtal ennþá, vegna
þess að ekki er enn búiö aö ganga
frá breytingatillögum og öðru
sllku, sem verið er aö afgreiöa, en
einnig vegna þess, að þing veröur
sent heim, væntanlega I þrjár
vikur. Ef svo hefði ekki verið,
hefði Þingsjáin verið sýnd 'aö
hálfum mánuði liðnum, eins og
áður hafði verið ráðgert.
utvarp ki. 16.20:
SOGUR EFTIR
UNGA HÖFUNDA
I þættinum Ungir pennar, sem
hefur verið I umsjá Hörpu Jósefs-
dóttur Amin frá því I byrjun mai i
fyrra, er að vanda lesið efni eftir
börn og unglinga.
Að sögn Hörpu verða lesnar
sögur eftir krakka vlðsvegar af
að landinu, meðal annars frá
Garðabæ, Hofsósi, Akureyri,
Reykjavík, Mosfellssveit og
Austur-Húnavatnssýslu. Verða I
þessum þætti lesin uml2 bréf, og
er i nokkrum þeirra að finna hug-
myndir krakkanna, um hvað þau
myndu gera, ef þau væru rlk.
Harpa sagði, að oft gengi
brösuglega að fá krakkana til að
skrifa þættinum, og hefði hún
stundum gripið til þess ráðs áð
hafa viötöl við þau, biðja þau um
að skrifa eða leggja þeim til hug-
myndir um hvað þau eigi að
skrifa um. Hafa yfirleitt borist á
milli 10 og 15 bréf, en stundum
ekki nema 7-8 bréf.
Það standa þó vonir til að þetta
batni, þvi að þó að barnaárið sé
liðið I aldanna skaut, þá var nú
áriö 1979 einu sinni titlað þessu
nafni til þess að börnin mættu
betur tjá sig og þeim væri sýndur
meiri skilningur en áður.
HS
Harpa Jósefsdóttir Amin
Ulvarp Kl. 111 lyrramáliö:
upphaf rríkirkju-
hreyfingar á ísiandi
Rétt er að vekja athygli á er-
indi, sem flutt verður i útvarpinu
klukkan ellefu i fyrramálið. Þar
ræðir séra Kolbeinn Þorleifsson
um upphaf frikirkjuhreyfingar á
Islandi fyrir réttum hundrað
árum. Þá sögðu um 200 Eskfirð-
ingar sig úr lögum við þjóðkirkj-
una og stofnuðu frikirkju.
Þá verður rættum Jón Ólafsson
og Hans Jakob Beck á Sóma-
stööum, sem höfðu forgang um
stofnun frikirkjunnar. Meðal ann-
ars verður sagt frá heimsókn séra
Daniels Halldórssonar til Hans
Jakobs Beck og er heimildin bréf,
sem ekki hefur birst fyrr. Einnig
segir frá séra Lárusi Halldórs-
syni I Valþjófsdal og brottrekstri
hans úr þjóðkirkjunni árið 1883 og
rætt um upphafsár hans sem
frikirkjuprests á Eskifirði.
Næstkomandi miðvikudag
verður fjallað um Fríkirkjuna i
Reykjavik og rætt um presta
hennar og orgelleikara.
útvarp
Þriðjudagur
19. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn
7.25 Morgunpósturinn.
9.20 Leikfimi. 9.30.
Tilkynningar. 9.45
Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 „Man ég það, sem löngu
leiö” Ragnheiður Viggós-
, dóttir sér um þáttinn.
11.00 Sjávarútvegur og sigl-
ingar. Umsjónarmaður:
Jónas Haraldsson. Fjallað á
ný um atvinnuréttindamál
vélstjóra og skipstjórnar-
manna.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. A frl-
vaktinni Margrét
Guömundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.40 islenskt mál. Endur-
tekinn þáttur Gunnlaugs
Ingólfssonar frá 16. þ.m.
15.00 TónleikasyrpaTónlist úr
ýmsum áttum og lög leikin á
ólík hljóðfæri.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Ungir pennar Harpa
Jósefsdóttir Amin les efni
eftir börn og unglinga.
16.35 TónhorniðSverrir Gauti
Diego sér um þáttinn.
17.00 Slðdegistónleikar
George London syngur með
Filharmóniusveitinni i Vln
atriði úr fyrsta þætti óper-
unnar „Hollendingsins
fljúgandi” eftir Richard
Wagner: Hans Knapperts-
busch stj. / Hljómsveit La
Scala óperunnar i Mílanó
leikur Sinfóniu nr. 5 i e-moll
op. 64 eftir Pjotr
Tsjaikovský: Guido Cantelli
stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Víösjó. 19.50
Tilkynningar.
20.00 Nútimatónlist Þorkell'
Sigurbjörnsson kynnir.
20.35 A hvltum reitum og
svörtum Guömundur
Arnlaugsson rektor flytur
skákþátt.
21.05 „Fljúgandi diskar”,
smásaga eftir Finn Söeborg
HalldórS. Stefánsson þýddi.
Karl Guömundsson leikari
les.
21.20 Samleikur I útvarpssal
Einar Jóhannesson Gunnar
Egilson, Kjartan óskarsson
og Siguröur I. Snorrason
leika á klarinettur. a.
„Homage ton Pan” eftir
Jenö Takacs. b. „Divertim-
ento” eftir Alfred Uhl.
21.45 Útvarpssagan: „Sólon
tslandus" eftir Davlð
Stefánsson frá Fagraskógi
Þorsteinn ö. Stephensen les
(14).
,22.15 Fréttir. Veöurfregnir.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Lestur Passiusálma (14)
22.40 Frá tónlistarhátlðinni
Ung Nordisk Musikfest I
Sviþjóð I fyrra Askell Más-
son kynnir. Fyrsti þáttur.
22.05 A hljóöbergi. Umsjónar-
maður: Björn Th. Björns-
son listfræöingur.
Þjóðsögur ættflokka I
Afrlku. Söngkonan Eartha
Kitt segir fjórar sögur: Frá
Hottintottum, Efik-Ibibio-
mönnum, Masalðnum og
ættbálki Ashantla.
22.35 Harmonikulög Sone
Banger leikur með hljóm-
sveit Sölve Strands.
22.45 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
Þriðjudagur
19.febrúar
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Tommi og Jenni.Banda-
risk teiknimynd.
20.40 Dýrlingurinn . Breskur
myndaflokkur. Þýöandi
Guðni Kolbeinsson.
21.30 Þingsjá. Umsjón Ingvi
Hrafn Jónsson.
22.20 Vetrarólympiuleikarnir.
Ganga (Evróvision — upp-
taka Norska sjónvarpsins).
23.10 Dagskrárlok.
vtsm
Þriðjudagur 19. febrúar 1980
STJORNUMESSA GUNNARS TH0R0DDSENS
Dagblaðið fer mikinn, talar
við sex hundruð manns og
reiknar út að 76% landsmanna
taki „Gunnar Thor fram yfir
Geir”. Þetta gæti veriö merki-
leg niðurstaða, ef það hefði ekki
sýnt sig að skoðanakannanir af
þessu tagi hafa ósköp litiö aö
segja um hug manna til málefna
og einstakiinga.
Fyrir siðustu kosningar
leiddu skoðanakannanir blaða I
ljós, að Sjálfstæðisfiokkurinn
myndi fá alit að þvi meirihluta á
þingi. Úrslitin urðu hins vegar
tuttugu og einn þingmaður, og
má segja, að þingflokkurinn
hafi jafnvel minnkað aö mun
siðan. Vegna þess að skoðana-
kannanir höfðu heppnast nokk-
uð fyrir fyrri kosningar, þar
sem Framsókn var spáð tapi og
Aiþýðubandalagi og Alþýðu-
flokki umtalsverðum kosninga-
sigrum, höföu menn trú á könn-
unum um tima. Nú árar aftur á
móti illa fyrir þær, þótt jafn
gifurlegur munur og kemur
fram I skoðanakönnuninni núna
ætti að taka af öll tvimæli um
það, aö Gunnar sé vinsælli
maöur en Geir Hallgrimsson.
Það er bara verst að Dagblaö-
ið skyldi ekki taka upp þann hátt
að láta Gunnar Thoroddsen taka
þátt I Stjörnumessunni. Þótt
Stjörnumessan nái aðeins tii
þröngs sviðs og snúist mest um
popp, en þaðan eru allar siðari
tima þjóðhetjur landsins
sprottnar, hefði ekki veriö
óhugsandi að fá Gunnar Thor-
oddsen til að taka þátt I henni.
Hann spilar á pianó, og hefði
verið liklegur til að taka undir
við hinar þjóðhetjurnar I popp-
inu. En það er kannski áhrifa-
rikara að efna til skoðanakönn-
unar um þá tvo, Gunnar og
Geir.
Stjörnumessa Dagbiaðsins er
algert einkamál blaðsins, og
mörgum vikum fyrirfram hefur
veriö ákveðið hverjir eru
„mest-hvað” I landinu. Eins er
meö skoðanakannanir blaösins.
Auðvitað . ru þær einkaframtak
þess, og ofnt til þeirra með
sama eftiriiti og er viðhaft á
stjörnumessum. Með þessu er
þó ekki verið aö segja að Dag-
blaðið láti hagræða niðurstööum
á st jörnumessum sfnum eða viö
aðra leit aö úrvaisfólki og þjóð-
hetjum. Aðeins bent á það, að
um er að ræða framtak eins
blaðs á vettvangi þar sem
jókerarnir geta oröiö hæstir.
Að svo miklu leyti sem séö
verður, er' Gunnar vinsælli
maður en Geir Hallgrimsson.
Hann gæti auðveldlega veriö
vinsælli þótt hann hefði aidrei
komið nærri pólitik. Stjörnu-
messukerfið er nefnilega tak-
markað að þvl leyti, að það nær
til álita, sem hefur sáralitið með
alvörumálin að gera. Fróðlegt
væri að sjá hver úrslit yrðu,
tæki Dagblaöið sig til að einum
niu mánuðum liðnum, sem ætla
má að sé hæfilegur meðgöngu-
timi núverandi rikisstjórnar, og
efndiþá til nýrrar stjörnumessu
innan pólitikurinnar og popps-
ins. Þá gæti farið svo að Geir
væri oröinn vinsælli en Gunnar.
Hvað ætluöu þeir stjörnumessu-
menn að gera þá.
Það hefur veriö heldur ömur-
legt fyrir Sjálfstæðismenn að
horfa upp á það, hvernig póli-
tiskir andstæðingar hafa notað
sér þau forustuvandamál
flokksins, sem hafa verið að
springa út að undanförnu. Þetta
minnir allt nokkuð á aörar að-
farir, þegar jafnvel sjálfstæðis-
menn sóttu fram til að sundra
öðrum. Hefði Dagblaðiö verið á
dögum um 1930, og upp hefði
komið mál, þar sem deilt var
um hvort helsti stjórnmálamað-
ur landsins á þeim tima væri
geðveikur eða ekki, og Dagblað-
ið hefði efnt til skoðanakönnun-
ar af þvi tilefni, er alveg vist aö
meirihlutinn hefði staðið með
geðveikinni. Þannig eru nefni-
lega þessar stjörnumessur. Þær
geta verið skemmtilegar til aö
drepa timann, en þær eru að
sama skapi alveg markiausar
og einskis virði.
Svarthöfði.