Vísir - 23.02.1980, Blaðsíða 31

Vísir - 23.02.1980, Blaðsíða 31
rk0SwaMW'aWuta eUif heUdarl h.iWwW*w?MB éd^ras' tvw'- örUeróareQunda Sam'a'skr 128 455 130.295 135 929 ,43.511 146 960 150-861 187.850 197 487 204 242 205.47« 209.92' 211.31 220.2' 215.3 221.7 227 ' 238.' 298 428 legund islandartll Uda1500 76 uúasport76 V\N 1200 26 AuslioMmilOOO SKoda Renaull 12 2 Sb£30-20'26 BcSoletMa«öu TovotaWark■« 7 ' loyola CoroUa < Á Wietcurv 3 OaUiaisu 1400 i , foró Cortma 16 15 AusVm Al'eQ'0 16 Aud' 26 . 47. VoWO 244 OL Slgurður og Bjðrn féllu Þaö gekk ekki vel hjá þeim Sigurði Jónssyni og Bimi 01- geirssyni i svigkeppni Olympiu- leikanna i gær. Báðir féllu I siðari feröinni og voru þar með úr leik eftir ágætis árangur I fyrri ferö. Að henni lokinni var Sigurður I 29. sæti af þeim 83 keppendum sem hófu keppnina, og Björn i 31. sæti. Siðustu keppnisgreinar is- lensku keppendanna I Lake Placid eru I dag. Þá keppir Steinunn Sæmundsdóttir I svigi, og Haukur Sigurðsson i 50 km göngu. Þeir Ingólfur Jónsson og Þröstur Jóhannsson sem áttu að keppa I göngunni liggja báöir rúmfastir i flensu sem hefur herjað á keppendur á Olympiu- leikunum og geta ekki verið með. Olympiuleikunum I Lake Placid lýkur á morgun, og munu islensku keppendurnir væntan- legirheim á þriðjudagsmorgun. gk—. Ingimar Stenmark — lengst til vinstri — sést hér á myndinni hvila M | sig eftir sigurinn I stórsviginu s.l. þriðjudag. t gær bætti hann öðru ■ gulli við með sigri i sviginu. Með honum eru á myndinni Hans Enn frá Austurrlki og Andreaz Wenzel frá Liechtenstein. Stenmark hann er kðngurinn! Hafi einhver efast um það hver er besti skiðamaður heims i alpagreinum, þá þarf enginn að vera i vafa eftir Olympiuleik- ana I Lake Placid. í gær gerði Ingimar Stenmark sér lítið fyrir og bætti öðrum gullverðlaunum við stórsvigs- gullið sem hann hlaut s.l. þriðjudag. I gær var keppt I svigi, og Stenmark sigraði með hálfri sekúndu betri tima en næsti maöur. Þetta gerði Stenmark þrátt fyrir að hann væri 0,58 sek. á eftir besta manni eftir fyrri ferðina, en þá var hann I 5. sæti. Phil Mahre, USA, hafði forust- una, Jacques Luethy frá Sviss og Hans Enn frá Austurriki I 2.- 3. sæti og Bojan Krizaj frá Júgó- slaviu fjórði. Einhver hafði á oröi aö þannig vildi Stenmark hafa það, ekki vera fremstur eftir fyrri ferð heldur gefa hinum möguleika og hirða siöan gullið. Það reyndust orð að sönnu, I siðari ferðinni reyndust keppinautar Stenmark eins og skólastrákar viö hlið hans og hann vann glæstan sigur. Samanlagður timi hans var 1,44,26 min. Phil Mahre varö annar á 1,44,76 og Jacques Luethy náði I bronsverðlaunin með timann 1,45,06 min. Afrek Stenmark er frækilegt, og hann er óumdeilanlega konungur þeirra sklöamanna sem fremstir eru i heiminum I alpa- greinum. gk—. Getup hætt með gððri samvisku „Nú er nóg komið, þetta er oröið gott og ég er hættur keppni” sagöi sovéski skiöa- göngukappinn Alexander Tikhonov eftir að sovéska sveitin haföi sigraö I 4x7,5 km skiðaskotkeppnisboðgöngunni i Lake Placid I gær. Þaö er von að Tikhonov þyki nóg komið. Hann varð fyrstur allra til að vinna gullverðlaun á fjórum vetrar-Olympiuleikum I röð, en á ferli sinum hefur hann 25 sinnum hlotið gull- og silfur- verðlaun á Olympiuleikum og i Heimsmeistarakeppni, 33 ára aö aldri. Sovéska sveitin hefur sigraö i þessari keppni á þremur siöustu Olympiuleikum, en flestir áttu þö von á að a-þýska sveitin sem er núverandi heimsmeistari i þessari grein myndi bera sigur úr býtum. En svo fór ekki, mest vegna þess aö hittni þeirra þýsku — skotiö er I mark á gönguleiðinni — var mjög slök. Refsingin fyrir það var að þýska sveitin þurfti að ganga lengri vegalengd til aö vinna upp það sem tapaðist I skotkeppninni og þaö réði úrslitum keppninnar I heild. Þjóöverjarnir náöu þó I silfur- verðlaunin, i þriðja sæti voru V- Þjóðverjar, Norðmenn I fjórða sæti og Frakkar I 5. sæti. Sovétmaöurinn Tikhonov sem varð fyrstur allra til að vinna gullverðlaun á fjórum Olympiu- leikum I röð getur þvi hætt með góðri samvisku, en til gamans má geta þess að aðeins einum keppenda hefur tekist að leika það afrek á sumarleikunum, bandariska kringlukastaranum A1 Orter. gk-. Dempari Spindilkúla, Bremsuklossar. Aðalljós, Framrúða, Hurðarlæsing, Stefnuljósapungur, Kúplingsdiskur, Frambretti, Samkvæmt könnun í tímaritinu Samúel á verðmismun á varahlutum í bíla var LADA 1500 í 1. sæti og LADA sport í 2. sæti. Rétt er að geta þess að flestir varahlutir eru þeir sömu i allar gerðir af LADA. LADA hefur sannað kosti sína hér á landi með þvi að vera söluhæsti bíllinn ár eftir ár og er það bæði af sparneytni og hve ódýrir þeir eru í rekstri. (Viðhald og varahlutir). LADA er ódýr er sparneytin ______ ______ __ _____ ódýrirvarahlutir „ermest setdi bíllinrí” hátt endursöluverd BIFREIÐAR & LANDBUNAÐÁRVELAR Suðurlandsbraut 14, sími 38600 Söludeild sími 312 36 Varahlutaverslun sími 3 92 30 .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.