Vísir - 23.02.1980, Blaðsíða 16

Vísir - 23.02.1980, Blaðsíða 16
mmmusm vtsm Laugardagur 23. febrúar 1980 16 s igurður Þórarinsson jarð- fræðingur geymir ekki gúmmístíg- vélin sín innf skáp eins og öðrum mönnum er tamt. Þess í stað standa þau útundir vegg í skrifstofu hans — þar er hentugt að grípa til þeirra ef einhvers staðar byrjar að g\ósa, þá ríður á að vera fljótur á staðinn til að fylgjast með fyrstu hrinunum. Skrifstofa Sig- urðar, sem er í húsi jarðfræðideildar Háskóla Islands/ er reyndar öll hin heimilislegasta. Bækur, tímarit og aðrir pappírar eru um allt og veggirn- ir eru þaktir skjalamöppum, kortum og öðrum uppdráttum. Þegar eitthvert eldgosið barágóma íviðtali okkar snaraðist Sigurður þegar úr sæti sínu og fór í möppur sfnar til að leita ártala eða ein- hverra tæknilegra upplýsinga. „Ég get ekki verið þekktur fyrir ann- að en að hafa þetta rétt" sagði hann. Svo langt siðan ég fæddist.......................... Vifttaliö hófst á mjög svo hefft- bundinn máta. Sigurftur var beft- inn aft segja ofurlitift frá uppruna slnum. — Hvenær ég fæddist? Þaö er nii svo langt slftan. Ég fæddist 8. janúar 1912 á Hofi I Vopnafirfti en fluttist mjög ung- ur aft Teigi sem er næsti bær. Þar bjó ég þangaö til ég fór 14 ára gamall I skóla á Akureyri og vil heldur láta kenna mig vift Teig en Hof. Þegar ég kom til Akureyrar var Menntaskólinn aö fara af staft og ég útskrifaftist 1931, af öörum ár- ganginum þaöan meö stúdents- próf. Siöan var ég eitt ár viö nám I jaföfræöi viö Kaupmannahafnar- háskóla, aðallega í efnafræöi, eölisfræöi og fílunni en fór siöan til Stokkhólms... Hvaft olliþvl aft þú fórst aft læra jarftfræfti? — Ja, ég haföi veriö aö hugsa um aö læra einhver húmanlsk fræöi, haföi til dæmis mikinn áhuga á latinu og öörum fornmál- um. En ég var óráöinn og haföi I rauninni áhuga á öllum fögum, þarna haföi lika mikiö aö segja aö náttúrufræöikennari minn á Akureyri var Pálmi Hannesson, sem siöar varö rektor Mennta- skólans I Reykjavlk. Hann var mjög lifandi kennari og þaö haföi sitt aö segja. Var jarftfræfti ekki óvenjulegt fag aft læra á þessum árum? — Þaft var I rauninni enginn út- skrifaöur jaröfræöingur á þessum tlma nema doktor Helgi Pjeturss. En maöur hugsaöi ekki um þaö þá aö fá stöðu, bara aö læra eitthvaö. Kennarastörf voru eiginlega einu atvinnumöguleikarnir. ingarmiklir. Þaö var allt veösett sem hægt var, þvl þó þetta væru okurlán fékk maöur þó peninga. Oriö var venjulega fyrst aö fara, slöan flnni flikur og svo hvaö sem var. Ég man eftir góðri myndavél sem ég átti af Leica-gerö, hana fékk ég 100 krónur fyrir. Þaö sem bjargaöi mér fyrstu háskólaárin var aö Baldvin Ryel, sem ég haföi búiö hjá á Akureyri, hjálpaöi mér svo mér tókst aö hjara. Kona hans, Gunn- hildur, lifir enn. Varð of seinn f Grimsvatnagosið Siguröur heldur áfram aö segja frá og er létt um mál. — Fyrstu þrjú árin sem ég var úti I Svíþjóö kom ég ekkert heim en stundaöi ýmsar rannsóknir á sumrin. Svo þegar gos varö i Grlmsvötnum voriö 34 flýtti ég mér heim en varð of seinn I gosiö sjálft. Hins vegar kannaöi ég menjar hlaupsins I Skeiðará og þaö sama ár áhrif jarðskjálftans á Dalvlk. Eftir þetta kom ég alltaf heim á sumrin og fór sumariö 1936 I hundaáleöaleiöangurinn upp á Vatnajökul sem Jón Ey- þórsson og Ahlmann stjórnuöu en bók Ahlmanns um leiöangurinn kom út hér fyrir jólin slöustu. Hundarnir vöktu nú aöallukkuna I þeirri ferö, þaö var einn Schafer- hundur en hitt Grænlandshundar. Nú, sumariö 1938 feröaöist ég um allt Vesturland til þess aö kanna hugsanlegar surtar- brandsnámur vegna þess aö þá var búist viö einangrun Islands ef stríö skylli á, en I fyrri heims- styrjöldinni haföi surtarbrandur veriö notaöur sem eldsneyti. Ég feröaöist um I einar sex vikur. mennirnir frá öllum löndunum saman á Grand Hotel og sam- komulagiö var bara gott til aö byrja meö. Ég fylgdist dálltiö meö þeim vegna þess aö ég þekkti mann sem var nokkurs . konar blaöafulltrúi og kom oft á hóteliö. Hann hét Bergström og var reyndar mikill lslandsvinur. 1 upphafi, meöan Þjóðverjum gekk vel I strlöinu, fékk maöur meiri og betri fréttir frá þeim en það snerist viö þegar þeim fór aö ganga verr, I orrustunni um Bretland. Þá var fariö aö strlöa Þjóöverjunum og blaöamennirnir voru skildir aö. Skortur? — Jú, þaö var náttúrlega hörö skömmtun, á tóbaki, kjöti og ýmsu fleiru en svo sem engin neyö. Erfitt var hversu litiö bensln var til og flestir bllar gengu fyrir gasi á striðsárunum, þá var vagn meö gasi aftan I hverjum bll. Skotið niður fyrir augunum á okkur! Hvaft ferftu svo aft gera hér heima? — Ég fór aft kenna viö Mennta skólann I Reykjavlk en varö 1947 forstööumaöur jaröfræöideildar nýstofnaös Náttúrugripasafns. Fyrir 10 árum varö ég svo prófessor. Þaö versta viö þaö er aö ég hef ekki komist á jökul siöan, ég haföi fariö á hverju vori I jöklaferð en nú eru próf I Há- skólanum á sama tima. Eldgos! Komstu þá ekki til íslands fyrr en eftir strlft? —* Jú, ég kom heim fyrri hluta árs 1945. Eftir Petsamo-ferðina I upphafi striösins komust engir Islending- ar frá Noröurlöndunum nema einn og einn meö flugvélum til Englands og siöan meö skipum til lslands. Ég fór meö sllkri sænskri leyni- flugvél til Englands ásamt fleir- um, til dæmis Þorbimi Sigur- geirssyni, og við komumst svo meö „convoy” til lslands. í Eng- Efalaust er dr. Sigurftur Þórarinsson þekktastur sem einn helsti eldgosasérfræfiingur þjóö- arinnár. A þaft var náttúrlega minnst. — Ég hef slampast á þaft aö vera alltaf heima þegar gos byrj- ar, — segir Siguröur. — Reyndar her ég alltaf setiö heima hjá mér þegar þau hefjast. Nú er best ég banki I tfe, — bætir hann viö og brosir. — Stóra Heklugosiö 1947 var fyrsta gosiö sem ég fylgdist meö og þaö sem ég hef lært mest af. Þess vegna hef ég alltaf veriö svolltiö veikur fyrir Heklu. Þetta gos var eitt af stærri gosunum I Heklu og gosmökkurinn steig upp I 30 þúsund metra hæö. Af þvl er til fræg ljósmynd sem var tekin á fyrstu mlnútum gossins af strák meö kassamyndavél sem hann var aö sækja fyrir bróöur sinn. Viö fundum þessa mynd um sum- ariö þegar viö auglýstum eftir myndum af gosinu, þá var bróöir- inn meö hana úti á sjó og hún fannst innan um togaramyndir og þess háttar. Meö þessari mynd gátum viö mælt hæö gosmakkar- ins fyrstu minúturnar og svo „Veit ekki betur en f jöldi manns oi með rauða Úrin voru fyrst að fara.... Hvernig var svo á námsárunum útl Svlþjóö? — Ætli þaö hafi ekki veriö til- tölulega skemmtilegt. Námiö var breiöara en nú er, ég stúderaöi bæöi grasafræöi og ýmsar grein- ar landafræöi og tók þetta frekar rólega. 1 Sviþjóft var námiö líka frjálsara en víöast annars staöar, próftilhögun og þess háttar, og llkara þvl sem nú er. Nú, námsárin eru alltaf róman tiskur tlmi en ég held aö stúdentédlfiö hafi verið dálitiö annaö en nú er. Viö vorum blankari en hins vegar áhyggju- lausari, vorum ekkert aö reyna aö pota okkur áfram. Erfitt aft kosta námlft? — Já, þaö var oft ansi knappt. Þá voru ekki námslán en hins vegar veittir árlega svokallaöir „Stóru styrkir” til tveggja efstu stúdentanna frá MA og tveggja efstu frá MR. Styrkurinn var 100 krónur á mánuöi en þá var nú Is- lenska krónan svipuö hinum krónunum á Noröurlöndunum og þetta þótti sæmilegt I Danmörku en var tæpara I Svlþjóö og maöur reyndi aö veröa sér úti um alls konar aukasporslu, ég skrifaöi greinar i sænsk blöö og svo fram- vegis. Oft seinkaöi peningasendingum aö heiman og þá var fariö til pantlánara, þeir voru mjög þýö- Varstu þá þegar farinn aft ein- beita þér aft eldgosum? — Nei, fyrstu árin var ég aöal- lega I jöklarannsóknum, en þaö eru jú mörg eldfjöll undir jökli.... Reyndar var ég á alls kyns randi, til dæmls var frjógreining ein aöalgreinin min. Þegar svo fariö var aö grafa I jaröveginn til aö aldursgreina frjóin komu I ljós öskulög og þá varö aö sinna þeim. 1939 vann ég viö uppgröft forn- býla I Þjórsárdal og kannaði af- stööu þeirra til öskulaga. Þá var nú orðið stutt I eldgosin sjálf.... Inniyksa i Sviþjóð öll striðsárin. Svo varö ég innlyksa i Svlþjóö öll stríösárin — segir Siguröur og ekur sér I stólnum. — Ég var þá I hálfu starfi viö aö vinna aö doktorsritgerö um öskulagarannsóknir en vann einnig hjá sænsku vegamála- skrifátofunni sem jaröfræöingur og sömuleiöis á ritstjórn alfræöi- oröabókar. Hvernig var aft búa I hinni hlut- lausu Svlþjóft? — Þaft var býsna athyglisvert, maöur fylgdist meö báöum hliö- um striösins og fékk fréttir frá báöum aöilum. Til dæmis sáum viö flugskeytin fara upp I fréttum frá Þjóöverjum og sáum þau svo lenda i London I fréttum frá Bret- um! landi bættust fleiri I hópinn, Sig- uröur heitinn Jóhannsson vega- málastjóri kom til dæmis frá Danmörku þar sem hann haföi veriö viö nám. Var þetta ekki mikil hættuför? — Hættu og hættu, — segir Sig- uröur og finnst lltiö til koma. Þaö var ný kafbátahrina. Þjóöverja um þetta leyti. Viö lögöum upp frá Englandi I stórri Ameriku-,,convoy” meö herskip á báöar hendur en þaö voru fimm skip sem fóru til Is- lands. Tvö týndust á leiöinni og eitt var skotiö niöur fyrir augun- um á okkur hér skammt frá landi, þeir stunduðu þaö þá kafbátarnir aö blöa á botninum eftir skipum. „Lyra”, sem ég var á, og annaö skip komust á leiöarenda. nokkuö nákvæmlega hvenær gos- iö hófst. Það gos sem var einna skemmtilegast og ævintýralegast var hins vegar gosiö I Surtsey, þaö var mjög þægilegt, viö gátum siglt I kringum þaö og fylgst meö. Þá var llka mjög áhugavert aö fylgjast meö baráttu náttúruafl- anna, annars vegar þeirra sem byggöu upp og hins vegar þeirra sem brutu niöur. Er Surtsey aft hverfa? — Já, húnhefur minnkaö mikiö og sjórinn er slfellt aö brjóta af henni. En ég held aö hún standi aö minnsta kosti nógu lengi til þess aö menn geti fylgst meö þvi hvernig gróöur og lif dafnar á eynni, þaö er mjög sjaldgæft og skemmtilegt aö fá tækifæri til Fyrstu árin bjuggu allir blafta- Ég skil ekki allt þetta umtal um rauftu húfuna mfna... Laugardagur 23. febrúar 1980 17 <ék%éé •• helgarviðtaliö Kötlu. Heldurftu aft hún fari afi gjósa bráftlega? — Ég hef nú veriö spuröur aö þessu I 20 ár. En þaft er rétt aft samkvæmt heföinni ætti hún aö fara aö gjósa. Hún hefur vana- lega gosið snemma á öldinni, eins og núna 19Í8, og svo aftur uppúr miöri öld svo aö um 1960 fóru menn aö spyrja aö þessu. Þaö hefur aöeins einu sinni gerst áöur aö hún hefur gosiö siöar en nú en ég held aö þaö sé ekki nokkur á- stæöa til aö telja hana útdauða. Þaö er reyndar taliö aö áriö 1955 hafi oröið þarna plnulltift gos... Hvert eldgos mikil- fenglegt á sinn hátt Hversu mörg eldgos hafa orftift hér á landi, til dæmis frá land- námstlft? — Eins og ég sagöi áöan, þá er erfittað segja nákvæmlega til um hvaö er eitt gos. En ætli þaö hafi ekki oröið um þaö bil 200 gos siöan land byggöist og þá I 30-40 eld- stöövum. En um þetta er ekki hægt aö segja meö neinni vissu, til þess vitum viö of lltiö. Attu þér eitthvert uppáhalds- eldgos? Nú veröur Siguröur þungt hugsi. Loks: — Hvert þeirra er mikilfenglegt á sinn hátt. Heklu- gosiö 1947 var mjög stórfenglegt gos og Surtsey mikiö ævintýri. Heklugosiö 1970 var svo afskap- lega huggulegt gos, aö öftru leyti en þvt, aö af þvi leiddi miklar flúoreitranir I gróöri, enda var haft á oröi aö þaö væri túristagos. Eitt af fallegum gosum, sem ég hef séö er gosiö I Jan Mayen haustiö 1970. Viö Guftmundur Sig- valdason flugum yfir þaft og þaö var mjög fallegt, hraunstraum- arnir skoppuöu niftur hllftarnar, rétt eins og lækir. Nú, gosiö I Heimaey var mjög dramatiskt, ekki slst vegna hins Island er reyndar mjög áhuga- vert frá jaröfræöilegu sjónar- miöi,— segir Sigurður. — Eldgos- in hafa skyggt á ýmsa aöra mjög áhugaveröa þætti íslenskrar jarö- sögu, svo sem jöklana og vindrof- iö og aöra landmótun, frostfyri- bæri og fl. Eldurinn hefur haft mjög mikil áhrif á þjóöina og sögu þjóöarinn ar, ég hef kynnt mér þetta nokkuö og þaö er til dæmis ljóst aö lsland er miöaö viö legu slna byggilegra vegna eldvirkninnar heldur en þaö væri ef ekki væri orka I iörum jaröar, þá væri enginn jaröhiti, engir hverir eöa laugar. Hver eru þin megináhugamál utan jarftfræftinnar? — Ja, ég hef alltaf veriö forvit- inn um tilveruna. Ég hef haft bók- menntir fyrir hobbi en gutlaö I mörgu. Af þvl láöir llka, aö ég hef fariö heldur grunnt og þaö á lik- lega bæöi viö um visindin og ann- aö. Ég held jafnvel aö þetta sé einkenni á minni kynslóö. Maria, María og rauða skotthúfan.... Gunnar ljósmyndari spyr nú Sigurft hvort hann hafi ort nokkuft um Kröflu. — Ort, neinei! Ég hef næstum ekkert ort, rlmu um Surtsey, jú. Þaft litla sem þaö $r, byrjaöimeö ()vl aö ég var formaöur Stúdenta élagsins' og siðar Jöklarann- sóknafélagsins. Eitthvaö þurfti ég aö hafa á skemmtunum þess- ara félaga en ég ætlaðist ekki til þess aö neitt slæddist út. Textinn um Þórsmerkurferftina og Mariu, Mariu, var hann ortur af einhverju sérstöku tilefni? — Hann var alla vega ekki ort- ur I neinni rómantlskri ástarvimu uppi I Þórsmörk, — segir Sigurft- ur og hlær. — Ég var veöurteppt- ur I Grimsvötnum ásamt nokkr- um öörum og einn okkar var aö þess. Ætli hún endi ekki llkt og drangamir viö Vestmannaeyjar, Bjarnarey og Elliöaey. Kóngurínn vildi fá fangamark sitt á eyna.. Þaö eru fleiri dæmi um gos I sjó en flestar hafa þær eyjar horfiö vegna þess, aö þær náöu ekki aö veröa jafnstórar og Surtsey, til dæmis Jólnir og Syrtlingur viö Surtsey. Ariö 1783 varö til undan Reykjanesi eyja sem var sklrö Nýey. Danakóngur lét þá gera stein meö fangamarki slnu og ætlaöi aö láta koma honum fyrir á eynni til þess aö helga sér þetta nýja land. En svo fannst eyjan aldrei aftur, þaö þótti mjög skrlt- iö.... Nú. slöustu 20 ár hafa orftift mörg gos, er eldvirkni aft aukast? — Já, þaö hefur veriö mikil virkni I öllum Atlantshafshryggn- um siöustu áratugina, bæöi hér*á Jan Mayen, Azoreyjum og viöar. Hérna byrjaöi þetta meö öskju 61, síöan kom Surtsey 63 og svo framvegis. En þetta kemur I hrinum og stundum eru löng hlé á milli. Þaö hefur veriö reiknaö út aö eldgos veröi hér á landi á aö meöaltali fimm ára fresti og ég held aö þaö sé engin ástæöa til þess aö halda aö þaö sé neitt aö breytast. Til dæmis hefur eldvirkni ekki breyst merkjanlega frá landnámi og reyndar ekki á miklu lengri tlma. Annars er erfitt aö ákvaröa ná- kvæmlega hvaö er eitt gos.stund- um koma t.d. mörg smágos sem má telja eitt og sama gosiö eins og sletturnar viö Kröflu. Mývatnseldar enduðu með stóru gosi Þar meft var Krafla komin á dagskrá. Telur Sigurftur aft þar séu lfkur á stóru gosi? — Ja, þaö þýöir nú ekkert aö spyrja mig aö þessu, aörir hafa fylgst miklu betur meö Kröflu. En ef viö tökum Mývatnseldana 1724-1729 sem eru um margt svip- aöir látunum viö Kröflu nú þá vantar ekki nema — Siguröur tekur fram blýánt og reiknar — um þaö bil ár upp á aö Krafla hætti, miöaö viö lengdina á Mý- vatnseldum. En þaö er ómögulegt aö segja nokkuö um þetta, Mý- vatnseldar enduöu meö stóru gosi og þaö gæti fariö svo aö viö Kröflu yröi gos vegna þess aö hraun- kvikan, sem hefur hingaö til streymt aö mestu til hliöanna, gæti veriöbúinaöfyllaupp I allar sprungur og auöveldasta leiöi í þess vegna veriö upp. Hvar hefftir þú staftsett Kröfli ■ virkjun ef þú hefftir fengift aft ráfta? — Ætli ég heföi ekki sett hana niður viö Kröflu! En ég heföi líka frestaö framkvæmdum þegar umbrotin byrjuöu. Nú hefur lengi verift von á gosi I „Vift sáum flugskeytin fara upp f fréttum frá Þjóftverjum og sáum þau svo lenda aftur I fréttum frá Bretum”. mannlega þáttar, þar sem gosift varft inni I bæ. Þaft gos var reynd- ar þörf áminning, menn voru farnir aö llta á eldgos sem eitt- hvert tívólí, sérstaklega eftir Surtseyjargosiö og Heklugosiö 1970 en gleymdu því hversu al- varlegur hlutur þau eru. Hefurftu gaman af eldgosum? Aftur verftur Siguröur þungt hugsi. — Gaman? Þaö má ég nú ekki segja.... En ef ekkert tjón veröur þá mællr ekkert á móti þvl aft maöur njóti þess sem hægt er njóta. Þau eru stórkostlegt sjón- arspil og ég get heldur ekki neitaö þvl aö sum þeirra eru falleg. En — og Siguröur leggur þunga á- herslu á orö sin — þaö má alls ekki draga úr alvörunni sem fylg- ir þeim. ísland mjög áhugavert frá jarðfræðilegu sjónarmiði Er jarftfræftin jafnspennandi nú og þegar þú varst aft læra? — Þá var jaröfræöin ekki nærri eins sérhæfö og nú er, viö vorum tveir eöa þrir jaröfræöingar hér á landi, nú um þaö bil 100 jarövis- indamenn. Þá fórum viö yfir breiöara sviö en höföum heldur ekki tima til þess aö kafa mjög djúpt I viöfangsefnin. En ég held aö þaö hljóti enn aö vera jafn spennandi, þaö fer auövitað eftir mönnum hvort þeir vilja þessa sérhæfingu. syngja slagara sem hann vildi fá Islenskan texta viö. Textinn átti nú aldrei aö fara lengra en niöur aö Tungnaá.... Nú ert þú þekktur fyrir ýmis- legt annaft en afskipti af eldgos- um. Hvaft til dæmis um rauftu skotthúfuna? Siguröur hlær aftur. — Ég hef nú aldrei skiliö umtaliö um hana. Ég veitekki betur en fjöldi manns gangi meö svona prjónáhúfur á höföinu án þess aö neinn taki eft- ir. Ég gekk fyrst meö svona húfu i Vatnajökulsferöinni 1936, þaö var bara venjuleg sklöahúfa. A strlðsárunum uröu svona rauöar húfur svo nokkurs konar symból fyrir andspyrnuhreyfinguna I Noregi og ég hef gengið meö þær siöan, eina missti ég reyndar I Surtsey, en fékk nýja og I Heima- eyjargosinu haföi ég hana undir hjálminum sem allir þurftu aö ganga meö, hún var prýöileg til þess. Er einhver hjátrú tengd raufiu skotthúfunni? — Þaö segi ég nú ekki. En ég man eftir sögu um hinn fræga vis- indamann, Niels Bohr. Gestur sem kom I sumarbústaö hans tók eftir þvl aö fyrir ofan dyrnar hékk hestaskeifa. Gesturinn sagöi þá viö Bohr: „Ekki trúi ég þvi aö þú, heimsfrægur raunvisindamaöur, trúir þvi aö svona skeifa færi þér hamingju”. Þá svaraöi Bohr hæglátlega: „Nei, en mér er sagt aö hún færi manni hamingju enda þótt maður trúi þvl ekki....” —IJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.