Vísir - 27.02.1980, Qupperneq 3
vism Miðvikudagur 27. febrúar 1980
rj
JOHANN ORN SIGURJONSSON SKRIFAR UM REYKJAVIKURSKAKMOTIÐ:
Storskemmtíleg taflmennska
Reykjavíkurskákmótið.
Úrslit I 3. umferö.
Helgi: Helmers 1/2 : 1/2
Guðmundur : Torre 1/2 : 1/2
Schussler : Browne 1/2 : 1/2
Margeir : Haukur 1 : 0
Byrne : Sosonko 1 : 0
Miles : Vasjukov 1 : 0
Jón L. : Kupreitchik biðskák.
Þeir 150 áhorfendur, sem
sóttu Hótel Loftleiöir heim I
gær, uröu ekki fyrir vonbrigö-
um. Stórskemmtileg tafl-
mennska sást á flestum borð-
um, og mestur vandinn fyrir
áhorfendur að velja úr. En lit-
um stuttlega á gang mála og
byrjum á jafnteflisskákunum.
Helgi : Helmes var 22ja leikja
barningur, þar sem Helgi byrj-
aði meö enska leiknum. Hann
komst þó litt áleiðis gegn
traustri taflmennsku Norö-
mannsins, og I lokin virtist
Helmes standa öllu betur, ef
eitthvað var. Guömundur lék nú
1. e4, vafalaust minnugur taps-
ins gegn Hauki I 1. umferö, þar
sem hann valdi Reti-byrjun og
tapaði illa. Upp kom nú spánski
leikurinn og fékk Torre öllu
betra tafl út úr byrjuninni. Guð-
mundur greip þá til skipta-
munsfórnar, og fékk I staðinn
sóknarfæri. Svartur mátti gæta
sin i framhaldinu, hvað hann og
geröi, og jafntefli kom eftir
rúma 40 leikja tilfærslur. Hjá
Schussler : Browne kom upp
drottningar-indversk vörn.
Browne fékk stakt peð á d5, en I
staöinn frjálst spil, eins og oft
vill verða i sllkum tilfellum.
Ýmsir töldu aö stórmeistarinn
myndi einhvern veginn nýta sér
þetta til vinnings, en Sviinn hélt
öllu sinu og fékk verðskuldaö
jafntefli. Sosonko tefldi fremur
sjaldséða byrjun gegn Byrne,
L........
svonefnt Pelikans-afbrigði I
Sikileyjarvörn. Styrkur þessa
afbrigðis felst öðru fremur I þvi
að koma andstæöingnum á
óvart, en sé hann öllum hnútum
kunnugur, er voöinn vis. Byrne
reyndist kunna ýmislegt fyrir
sér I Pelikan-fræðunum, og var
fljótlega kominn út I gjörunnið
endatafl. Sosonko barðist lengi I
vonlausri stöðu, en eftir 40 leiki
hafði hann loks fengið nóg og
gafst upp. Miles tefldi magnaða
stöðubaráttuskák gegn
Benóný-byrjun Vasjukovs. Svo
vel tefldi Miles, að Sovétmaöur-
inn fékk aldrei minnstu von um
mótspil. Hafi einhver skákanna
I mótinu til þessa verið kennslu-
bókardæmi I stöðubaráttu, var
það einmitt þessi skák. En nú
var komið aö þeim skákum,
sem áhorfendur fylgdust hvað
mest meö. Jón L. tefldi mjög vel
útfæröa skák gegn þeim stór-
hættulega og taktlska skák-
manni, Kupreitchik. Sovét-
maðurinn kom aö venju með
Sikileyjarvörn, og var I sann-
kallaöri nauðvörn allan tlmann.
Menn hans komust ekki nægjan-
lega fljótt út á borðiö, og lengi
vel var svarti kóngurinn I
fremstu vlglínu. Allar tilraunir
Kupreitchiks til mótspils voru
kæfðar I fæöingu, og þegar
skákin fór I bið, var ekki annað
að sjá en staða Jóns væri unnin.
Skák Margeirs og Hauks var hin
frisklegasta. Margeir, sem
þekktur hefur verið fyrir traust-
an stöðubaráttustil, tefldi nú
grimma sóknarskák, þar sem
ekki var veriö að horfa I liðsafl-
ann. En sjón er sögu rlkari, og
við skulum llta á verkiö.
Hvltur : Margeir Pétursson
Svartur : Haukur Angantýsson
Kóngsindversk vörn.
1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. Rf3 Bg7 4.
ELO 12 3 + b 7 g °i 10 II IZ 11 N ViNfil.
I- BR0WNE. 5t5+fi m \ 'lz 'h
2. BYRNE. 2530 0 0 1 i *
B. SCftÚSSLER 2+20 'lz m % % l 'h
H. JbN L-'ARNASON 2435- m Íz 'lz 1 + 6.
5. GrUt>MUAlIUl R SÍCt. 24TS 0 'lz 'lz 1
Iö. MÍL ES 25+5 * 1 'lz 1 2'/z
?• MAR6-EÍR ‘PÉTURSS. 2425 a 0 1 1 2
2. 4E.LG-Í ’OLAFSSOAI 2445 i % 'lz 0 1 'lz
£)■ HELMERS 2405 0 0 'lz m 'lz
10. H-AUk'UR AAÍÍoANTýsS. 2425 i 'lz 0 m liz
11- VAS3UKOV 2545 '12 'lz 0 m \
12- TOKKEL 2520 'h ÍZ Íz m 1 'lz
13. KUPREÍTSf+ÍtC 2535 1 il m \'h + B
14. SOSONKO 2545 'lz 0 1 m 1 'lz
e4 d6 5. d4 0-0 6. Be2 Bg4 7. Be3
Rc6?
(Þessi leikur heföi verið góður
gegn 7 0-0, en er ómögulegur
gegn textaleik hvlts.)
8. d5 Bxf3 9. Bxf3 Re5 10. Be2 c6
11. 0-0 Dc7 12. f4 Re-d7 13. Hcl e6
(Svartur er með þrönga stööu,
nokkuö sem ekki samrýmist
hinum skarpa sóknarstll
Hauks.)
14. Khl. Hf-e8 15. Bgl exd5 16.
cxd5 c5
(Eftir 16. . . cxd5? 17. Rxd5 tap-
ar svartur skiptamun.) 17. Bf3
Da5? (Hér veröur drottningin
fjarri komandi átökum.) 18. g4
h6 19. h4. (Hér skal blásiö til
kóngssóknar.)
19... b5 20. g5 hxg5 21. hxg5 Rh7
22. e5 b4 23. Re4 dxe5 24. f5.
(Afram er teflt af sömu hörk-
unni.)
24. . gxf5
fi fi é
1 * ±A4
# ±±±±±
1
• iL
S# SA®
ABCOEFGH
25. Bh5. (Þarna lá hundurinn
grafinn. Eftir 25. Rd6 e4 stendur
svartur betur aö vfgi.)
25. . f4 (Ef 25. . . fxe4 26. Bxf7+
Kh8 27. Bxe8 Hxe8 28. Dh5 vinn-
ur hvítur.)
26. Dg4. He7 27. d6 He7 28. Df5
Bf6
(Ef 28. . . Hf8 29. Bxf7+ Hxf7 30.
Dxe6 og vinnur.)
29. gxf6 Rdxf6 30. Hxc5 Da6 31.
Bxf7+ Kh8
(Ef 31. . . Kxf7 32. Hc7 + .)
32. Hf3 De2 33. Hh3 Dxe4+ 34.
Dxe4Rxe4 35. Bxe6 Rxc5 36. Bf5
Kg7 37. Hxh7+ Kf6 38. Bc2 Hc8
39. Bxc5 og hvltur vann.
Biöskákin Jón L : Kupreitchik
Hvltur lék biðleik.
Auðunn að selja VIsi á Hlemmi: „Stundum kalt, en ég iet það ekkert á
m'g W”- Vlsismynd GVA
, Ægíiega gaman
að selja blöð”
- segir Auðunn blaðasali sem er 42 ára í dag
„Jú, það er ægilega gaman að
selja blöö”, segir hann Auðunn
Gestsson, blaöasali, en hann
verður einmitt 42 ára I dag.
Auðunn segist vera búinn að
selja VIsi I tiu ár og að þau séu
ófá þúsundin, sem hann hafi selt
á þessum tlma. Mest heldur
hann sig á Laugaveginum og á
Austurvelli og þar stendur hann
sína pligt og selur sin blöö
þeim, sem kaupa vilja.
Auðunn er spuröur, hvort ekki
geti verib kait að standa úti allan
daginn I norðannepjunni og selja
blööin: „Jú”, segir hann, „það er
stundum kalt, en ég læt það ekk-
ert á mig fá.”
Auöunn er oft meö söluhæstu
blaöasölum Visis og hann segir
okkur, aö hann eigi marga fasta
kúnna, sem komitil hansáhverj-
um degi og kaupi af honum blaö-
iö.
Visir óskar Auðuni til
hamingju með afmælið og þakkar
honum starfin á undanförnum ár-
um. —HR
„og söngurinn hljómar”
Það verður sannkölluð söng- og
matarhátið i Biómasal fimmtu-
dagskvöldið 28. febrúar.
Sælkerar kvöldsins verða hjónin
Unnur Arngrimsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson.
Hjónin kunna þá list að skemmta
gestum sinum og telja kvöldinu best
varið við Ijúffenga máltiö undir
léttri tónlist. Þau hafa fengiö Skúla
Halldórsson tónskáld og Guðmund
Guöjónsson söngvara til liðs við sig.
Á matseðli þeirra er m.a. „uppáhaldsréttur eiginmannsins” eins
og hann birtist eitt sinn % viðtali við Unni iLesbók Morgnnblaðsins
Matseðill
(MENU)
Frönsk blaðlaukssúpa
Soupe aux poreaux au
Porto
Fiskrúllur sælkerans
Croquettes de poisson
gourmet
Grisalundirdansherrans
Filet de porc danseur
Hawaii ís
Glace Hawaienne
VeriÖ velkomin
Hawaii-stemmning
á Vínlandsbar
ýrá kl 18:30
M a tur framreiddur
frá kl. 19:00
Sigurður
Guðmundsson
leikur á orgelið
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Borðapantanir
hjá veitingastjóra
í símu m 22321
og 22322
Pantið timanlega.
Sælkerar, látið
koma ykkur
skemmtilega á
óvart