Vísir - 04.03.1980, Síða 24
Þriðjudagur 4. mars 1980.
síminner86611
Spásvæöi Veöurstofu tslands
eru þessi:
1. Faxaflói, 2. Breiöafjörö-
ur, 3. Vestfirðir, 4. Noröur-
land, 5. Noröausturland, 6.
Austfiröir, 7. Suðausturland,
8. Suðvesturland.
Veðurspá dagsins
Suövesturland og Faxaflói:
Hægviöri eða suövestan gola
og slydduél fram eftir degi, en
slðan vaxandi suöaustan og
austanátt, stormur á miöum,
en hægari til landsins og rign-
ing I kvöld og nótt.
Breiðafjöröur og Vestfiröir:
Suðvestan og vestan gola og
f slydduél i dag. Vaxandi aust-
anátt undir kvöldið, stinnings-
kaldi til landsins, en vlöa all-
hvasst eða hvasst á miöum og
rigning eða slydda I nótt.
Noröurland: Hægviöri eða
vestangola og skýjað með
köflum og slydduél á stöku
stað i dag. Vaxandi austanátt
undir kvöldiö, stinningskaldi
eðá allhvasst og rigning eöa
slydda I nótt.
Norðausturland: Léttir til
með vestan og suðvestan golu,
en vaxandi suðaustanátt og
þykknar upp I kvöld. Allhvass
suðaustan og rigning I nótt.
Austfiröir:, Sunnan-kaldi -eða
stinningskaldi og viðast dálitil
rigning fyrst, en siðan vestan-
gola og skýjað meö köflum.
Vaxandi suöaustan átt i kvöld,
hvassviðri eöa stormur og
rigning I nótt.
Suöausturiand: Sunnankaldi
eða stinningskaldi og rigning
vestan til I fyrstu en annars
hægviðri eöa suövestan gola
og dálitil slydduél á viö og
dreif. Vaxandi suðaustanátt
siödegis. Stormur eða rok og
rigning I kvöld og nótt.
veðriö hér og har
Klukkan sex I morgun:
Akureyrialskýjaö 3, Oslólétt-
skýjað 4-10, Reykjavik létt-
skýjað 0, Þórshöfn léttskýjaö
6.
Klukkan átján I gær:
Aþena skýjaö 13, Berlin skýj-
að 0, Feneyjar þokumóða 8,
Frankfurt skýjað 4, Nuuk úr-
koma I grennd 4-1, London
léttskýjað 5, Luxemburg
léttskýjað 0, Las Palmas létt-
skýjað 18, Mallorcaléttskýjað
13, Montreai léttskýjaö 4-8,
New York léttskýjað 1, Paris
skyjað 4, Róm þokumóða 12,
Maiaga alskýjað 16, Vfn létt-
skýjað, hiti við frostmark,
Winnipeg skafrenningur 4-14.
I
I
i
I
I
s
I
I
I
I
B
I
8
LoKI •
seglr
„Rukkunarheftin eru
tilbúin” segir Alþýöublaöiö i
dag, og á þar viö innheimtu á-
skriftargjalda. Þeir eru miklir
bjartsýnismenn kratarnir.
Bensfnverð hækkaði á tæpu ári um 104%:
Gjaldskrá Hitaveítu Suður
hækkaðt um
nesja
Heita vatniö hjá Hitaveitu
Suöurnesja hækkaöi i veröi um
121.36% á tæpu tólf mánaöa
timabili, eöa meira en veröiö á
bensininu, sem hækkaöi um
104.4% á tæpu ári.
Þegar gjaldskrá Hitaveitu
Suðurnesja tók gildi 6. nóvem-
ber 1976, kostaöi „mlnútulitri”
af heitu vatni 2.500 krónur.
Þetta verö hefur jafnt og þétt
farið hækkandi.
Ef litið er á timabilið frá 15.
febrúar 1979, en þá varö hækkun
á gjaldskrá Hitaveitu Suður-
nesja og fram til hækkunarinn-
ar 1. febrúar siðastliðinn, nem-
ur heildarhækkunin á timabil-
inu 121.36%. Hækkunin 15.
febrúar 1979 nam 40% eöa 1300
krónum, og kostaöi litri af heitu
vatni á minútu þá 4.550 krónur.
Eftir siðustu hækkun, 1. febrú-
ar, kostar litrinn hins vegar
10.072 krónur. Hækkun á gjald-
skránni frá upphafi er hins veg-
ar rúmlega 302%.
Björn Stefánsson hjá Hita-
veitu Suöurnesja tjáði blaðinu,
að veröiö á heita vatninu hækk-
aði til samræmis við bygginga-
visitiflu, auk þess sem tilkostn-
aður við framkvæmdir og
launahækkanir starfsmanna
ht'fðu þar komið inn i.
„Qryggis-
gæsia er
lyrir
hendi”
„Það er öryggisgæsla fyrir
hendi á þinginu og hefur lögreglu-
stjórinn I Reykjavlk skipuiagt
hana en ekki er viöeigandi aö
skýra nákvæmlega frá því meö
hvaöa hætti hún er” sagöi
Friöjón Sigurðsson forseti
tslandsdeildar Noröurlandaráös i
morgun.
1 Þjóðviljanum i dag er fullyrt
að litil sem engin öryggisgæsla sé
við innganga Þjóöleikhússins þar
sem Norðurlandaráðsþingið er
haldið. Þar geti að þvi er viröist
hver sem er ráfað út og inn að
vild.
Þótt lögreglumenn með
alvæpni standi ekki i dyrum
Þjóðleikhússins mun öryggis-
eftirlittalið fullnægjandi og munu
óeinkennisklæddir lögreglumenn
annast það. — SG
Guömundup
Vignir vara-
sáttasemjari
Guömundur Vignir Jósepsson,
gjaldheimtustjóri, hefur veriö
settur varasáttasemjari frá og
meö deginum i dag.4. mars 1980,
tii eins árs.
1 lögum segir, að félagsmála-
ráöherra geti skipað vararikis-
sáttasemjara til fjögurra ára I
senn og skuli hann fullnægja
sömu skilyröum og rikissátta-
semjari. Hann tekur við störfum
rikissáttasemjara þegar hann er
forfallaöur og er honum til að-
stoðar þegaf þörf krefur.
Mikiö pappirsflóö fylgir þingi Noröurlandaráös nú sem endranær, og sést hér á boröum brot af öllum
þeim pappirum, sem dreift er mánna á meðal i Þjóöieikhúsinu þessa dagana. Nánar segir frá
aöstööunni I Þjóðleikhúsinu i opnu VIsis I dag. Visismynd: JA
BREYTTAR REGLUR UM FORSETAKJÖR?
Þarf stjórnarskrárbreytlngu
„Þaö þarf stjórnarskrárbreyt-
ingu til þess aö breyta reglum um
forsetakjör og til þess dugar ekki
lagabreyting” sagöi dr. Gunnar
G. Schram, prófessor I stjórn-
skipunarrétti, i samtali viö VIsi I
morgun.
Tilefniö er skrif VIsis um
hugsanlegar breytingar.á reglum
um forsetakjör þannig aö tryggt
yröi aö forseti nyti meirihluta-
fylgis.
„Stjórnarskráin segir aö sá sé
réttkjörinn forseti sem flest
atkvæöi hlýtur og þvi ákvæöi
verður auðvitað ekki breytt nema
meö breytingu á stjórnar-
skránni”, sagði Gunnar.
Hann sagði einnig að þetta mál
hefði verið kannaö mjög náið af
þeirri nefnd sem samdi stjórnar-
skrárbreytingarnar 1944, og þar
heföu tillögur um að krefjast
meirihlutafylgis ekki náö fram að
ganga.
Samkvæmt þessu er þvi
óhugsandi aö umræddar breyt-
ingar næöu fram að ganga fyrir
forsetakosningarnar i sumar.
P.M.
Hækkun á iögjöldum bílatrygginganna er enn óviss:
Tryggingaruppliæðin mun
sennilega tvöfaldast
„Tryggingafélögin sóttu ekki
um ákveönar hækkanir á
iögjöldum ábyrgöartrygginga
bifreiöa, en þeirra hækkunar-
þarfir eru auövitaö svipaöar og
verðbreytingar sem oröiö hafa á
þessu ári” sagöi Páll Sigurösson
ráöuneytisstjóri I heiibrigöis- og
tryggingamálaráöuneytinu I
samtaii viö VIsi. Gjalddagi
ábyrgöatrygginga var 1. mars
og hafa þvl engar hækkanir
oröiö enn sem komið er.
Páll vildi ekki segja hvað
þetta þýddi i iðgjaldahækkun-
um, þvi enn væri margt óljóst I
þessum efnum. Tryggingafélög-
in ættu eftir aö senda inn ýmsar
breytingatillögur.sem m.a. miö-
uöu að þvi aö jafna muninn á
milli hinna einstöku verðlags-
svæða á landinu. Einnig væru
iögjöldin framreiknuð sem
merkti aö þau tækju mið af
áætluðum verölagshækkunum á
þessu ári.
„Viö erum orönir leiðir á
þessum skollaleik — við höfum
veriö látnir sækja um hækkanir
á iðgjöldum ábyrgðartrygginga
eftir ákveðnum reglum, en
siðan koma aðrir og reikna
dæmið allt ööru visi” sagði Run-
ólfur Þorgeirsson, skrifstofu-
stjórihjá Sjóvá.i viðtali viö Visi.
Hann á sæti i nefnd sem trygg-
ingafélögin settu á laggirnar til
að ganga frá hækkunarbeiðn-
um. Sagði hann. að bileigendur
yrðu látnir greiða sama iðgjald
og i fyrra, en jafnframt skuld-
binda sig til að greiða þaö sem
kæmi til viðbótar eftir að hækk-
un hefur verið ákveðin.
Þess má geta, aö nú liggur
fyrir Alþingi frumvarp um aö
ihækka ábyrgðartryggingu bif-
reiöa úr 18 milljónum upp I 120
milljónir króna. Dómsmála-
ráöuneytið hefur hins vegar lagt
til aö tryggingin hækkaði i 36
milljónir. Mun þetta að sjálf-
sögöu hafa áhrif á iögjöldin, en
þó ekki i sama hlutfalli og hækk-
unin.
— HR